Morgunblaðið - 31.10.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
Norskur prestur sýnir
í Norræna húsinu:
Námskeið
í matreiðslu endurtekið
Vegna mikillar eftirspurnar endurtökum viö námskeiö um matreiöslu í örbylgjuofnum og meöferö þeirra.
Námskeiöiö veröur haldiö í verslun okkar aö Hverfisgötu 103 á morgun, mánudag,
og fimmtudaginn 4. nóvember kl. 20—22.
Stjórnandi námskeiðanna veröur Ólöf Guðnadóttir, hússtjórnarkennari.
Þátttaka tilkynnist
í síma 17244 frá kl. 10—12
á morgun og næstu daga.
HUOMBÆR
HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999-17244
Réttir dagsins sunnudaginn 31. október
Hádegi Kvöld
Rjómalöguð sveppasúpa. Hreindýrakjötseyði „Diana
Smjörsteikt síldarflök Gufusoðin smálúðuflök
með fylltum bökuðum gratineruð með humarsósu.
eplum. eða
eða Heilsteiktar grísalundir
Rauðvínsmarineraður lambahryggjarvöðvi með með koníaksrjómasósu.
hvítlaukssósu. Nougat fromage.
Rjómaís með ferskum ávöxtum.
KAFFIHLAÐBORÐ ALLA SUNNUDAGA
Auk þess eru á boðstólum fjölbreyttar og gómsœtar veitingar alla
daga frá kl. 8.30 til 23.30.
Við bjóðum sérstakan morgunverð og glœsilegt kaffihlaðborð
síðdegis alla sunnudaga.
VÖNDUÐ VEISLUFÖNG
Vinsamlegast athugið að vegna sívaxandi eftirspurnar eftir
veisluföngum frá okkur í veislur í heimahúsum og félagsheimilum
er nauðsynlegt að panta með góðum fyrirvara.
Upplýsingar eru gefnar í veitingahúsinu sjálfu og í síma 10622.
i/ Bankastræti 2
Borðapantanir í síma 14430.
Myndskreyt-
ingar við helgi-
kvæðið Geisla
Norski listamaðurinn Bjern
Bjorncboc, sem er aðstoðarprestur
við dómkirkjuna í Niðarósi
(Þrándheimi) kemur til íslands
um næstu helgi og ætlar að sýna í
anddyri Norræna hússins mynd-
skreytingar, sem hann hefur gert
við norsku útgáfuna á helgi-
kvæðinu Geisla eftir sr. Einar
Skúlason, sem var eitt merkasta
skáld 12. aldar. Geisli er með elstu
helgikvæðum sem varðveist hafa.
Bjorn Bjorneboe hefur, auk
starfa sinna innan kirkjunnar,
fengist við myndlist og er kunnur
fyrir myndskreytingar sínar og
teikningar. M.a. hefur hann
myndskreytt Lilju Eysteins Ás-
grímssonar, sem Almenna bókafé-
lagið ætlar að gefa út.
Á sýningunni í Norræna húsinu
sýnir Bjerneboe 28 tússteikningar
gerðar við Geisla og 20 nýjar kol-
teikningar.
Sýningin verður opnuð miðviku-
daginn 3. nóv. kl. 19.00 og stendur
til 17. nóvember.
Miðvikudagskvöldið 3. nóv. kl.
20.30 verður dagskrá í Norræna
húsinu helguð Geisla. Gunnar
Eyjólfsson leikari les upp, Knut
0degaard skáld heldur fyrirlestur
um kvæðið og blásarar flytja tón-
list frá miðöldum.
Laugardaginn 6. nóv. kl. 13.30
verður haldið málþing í Norræna
húsinu undir heitinu List og kirkja.
Fundarstjóri verður dr. Þórir Kr.
Þórðarson, prófessor. Þar' flytur
Bjorn Bjorneboe erindi og svarar
fyrirspurnum og síðan verða al-
mennar umræður. Fulltrúum
kirkjunnar, arkitektum, myndlist-
armönnum og öðrum úr röðum
listamanna er sérstaklega boðin
þátttaka, en annars er málþingið
öllum opið.
Þann 10. nóvember verður
„Liljukvöld" í Hallgrímskirkju, en
meðal þeirra er þar koma fram er
Bjorn Bjorneboe.
(KrétUtilkynninx.)
Kirkjudagur
Rangæinga-
félagsins
Kangæingafélagið i Keykjavík
gengst fyrir kirkjudegi fyrir eldri
borgara í Bústaðakirkju í dag klukk-
an 14.
Hefst hann með guðsþjónustu,
þar sem séra Ólafur Skúlason,
dómprófastur, predikar. I»á flytur
formaöur félagsins, Dóra Ingvars-
dóttir ávarp og kór Rangæingafé-
lagsins syngur. Þá verða kaffiveit-
ingar.
SHA styðja
smáþjóðir
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun:
„Landsráðstefna Samtaka
herstöðvaandstæðinga, haldin í
Reykjavík 9. og 10. október 1982,
lýsir yfir stuðningi við baráttu
Palestínumanna og líbanskra
samherja þeirra gegn hamslausri
árásar- og útþenslustefnu stjórn-
valda Ísraelsríkis, og fordæmir af-
skipti Bandaríkjamanna af mál-
um þeirra, sem m.a. fólust í því að
skilja almenning í Vestur-Beirút
eftir varnarlausan sem byssufóður
fyrir hægrisinnaða ofbeldismenn.
SHA skorar á íslensk stjórnvöld
að veita frelsissamtökum Palest-
ínumanna, PLO, pólitiska viður-
kenningu og stuðning.
Samtökin árétta þá stefnu sína
að styðja smáþjóðir og alþýðu víða
um haim, sem eiga í hatrammri
baráttu fyrir lífi og frelsi."