Morgunblaðið - 31.10.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
SVIPMYND
Fyrir átta árum var ungur lög-
fra-öingur frá St'villa ráöinn fram-
kva-mda.stjóri spa-nska Sósíalista-
flokksins scm á þeim tíma haföi
vcriö skipulagöur og rekinn úr
fjarlægö frá því í borgarastyrjöld-
inni. Starfscmin var sveipuö hulu
og á fundinum scm skar úr um
ráöningu hins nýja framkvæmda-
stjóra gckk sá undir dulncfninu
„Isidoro“. I»cgar fundinum, sem
haldinn var i París, lauk voru
blaðamcnn cngu nær um hiö
raunverulcga nafn hans. í Madrid
var hcldur cnginn scm vissi hver
hinn dularfulli lögfræöingur var.
Nú vita þaö allir því aö fyrir þing-
kosningarnar á Spáni á fimmtu-
daginn var, var þaö löngu orðiö
deginum Ijósara aö Felipc (íonzál-
cz yrði sigurvcgari og næsti for-
sætisráöherra landsins.
Felipe González Márquez, eins
og hann heitir fullu nafni, er
fertugur að aldri, annar í röð-
inni af fjórum systkinum, sonur
mjólkurhúseiganda. Á meðan
hann var við laganám í Sevilla
tók hann þátt í starfi kristilegra
demókrata, sem í byrjun
sjöunda áratugarins voru það
afl í stjórnmálífi landsins sem
Felipe González
— næsti forsætisráðherra Spánar
eftir Aslaugu
Ragnars
helzt gat talizt framfarasinnað.
Þess var þó skammt að bíða að
hann drægist að róttækari
hreyfingu, samtökum sósíalista
þar sem helzti forvígismaðurinn
var Alfonso Guerra. Allar götur
síðan hafa þeir González verið
samspyrtir og spænski Sósíál-
istaflokkurinn í núverandi
mynd er öðru fremur árangur-
inn af þessu samstarfi. Guerra
er sagður hafa eir.staka skipu-
lagshæfileika. Hann hefur átt
mikinn þátt í því að skapa Gon-
zález sem stjórnmálaleiðtoga og
er hans nánasti aðstoðarmaður.
Felipe González hefur verið
virkur í hreyfingu spænskra
sósíalista frá 1969. Hann og fé-
lagar hans gerðu sér fljótlega
grein fyrir því að mikilla breyt-
inga var þörf ætti þetta stjórn-
málaafl að ná fótfestu og brýn-
asta verkefni í upphafi var að ná
stjórninni úr höndum gömlu
sósíalistanna, sem frá því í
borgarastyrjöldinni höfðu haft
bækistöðvar sínar í Frakklandi,
svo unnt væri að taka hug-
myndafræði flokksins til endur-
skoðunar rog endurskipuleggja
hann og undirbúa þannig endur-
reisn stjórnmálaflokkanna í
landinu. Réttilega spáðu þessir
ungu menn því að eðlilegt stórn-
málastarfsemi hæfist á ný um
miðjan áttunda áratuginn.
González, Guerra og félagar
þeirra urðu smám saman þekkt-
ir undir nafninu „Sevillamafí-
an“. Hún jók áhrif áhrif sín
jafnt og þétt og innsiglaði völd
sín í flokknum með kosningu
Gonzáles í framkvæmdastjóra-
starfið 1974.
Þegar Franco einræðisherra
safnaðist til feðra sinna ári síð-
ar var González í hinni beztu
aðstöðu til að halda áfram að
festa sig í sessi innan flokksins.
Út á við gætti hann þess vand-
lega að láta hvorki ginnast af
gyíliboðum frá hægri né vinstri.
Þannig skapaði hann sér ákjós-
anlega miðjuaðstöðu sem skilaði
sér í þingkosningunum 1977 en
þá fengu sósíalistar 118 þing-
menn af 350 í Cortez, spænska
þinginu, og urðu þannig stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn. í
þingkosningunum ári síðar biðu
sósíalistar ósigur sem dró
ágreining í röðum þeirra upp á
yfirborðið, en deilur snerust
einkum um það hvort flokkur-
inn væri marxískur eða ekki.
Þegar upp var staðið kom Felipe
González öllum á óvat með því
að lýsa því yfir að hann segði af
sér sem leiðtogi flokksins frem-
ur en að veita forystu flokki sem
kenndi sig við marxisma. Þessi
ákvörðun kom honum til góða
sex mánuðum síðar, en þá var
han endurkjörinn flokksleiðtogi
með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða og síðan hefur ekki
leikið vafi á því að stefna flokks-
ins er hófsöm jafnaðarstefna en
ckki marxísk.
Felipe Conzález er sagður al-
vörugefinn og í eðli sínu ófram-
færinn. I samtölum sínum við
blaðamenn að undanförnu hefur
hann látið þess getið, að eftir
því sem hann nálgaðist takm-
arkið — stjórn landsins — hafi
persónuleiki hans verið að
hreytast. Hann er umkringdur
lífvörðum hvar sem hann fer og
að því geðjast honum ekki, og
hann segist eiga bágt með að
sætta sig við þá staðreynd að
hann hafi ekki lengur tíma til að
búa til eggjaköku með kartöfl-
um handa vinum sínum, en sú
eggjakaka er sögð sérlega Ijúf-
feng.
„Þetta herðir mann,“ segir
hann. „Ég reyndi að vera sam-
kvæmur sjálfum mér. Ég held
að ég sé í eðli mínu opinskár, en
ég er kominn með skráp.“ En
það er ekki aðeins hið innra sem
Felipe González hefur verið að
breytast. Framan af sást hann
ekki öðruvísi en með úfið hár og
í ópressuðum fötum. Nú er hann
kominn í snyrtileg jakkaföt og
með hálsknýti og snyrtilega
greitt hár.
Carmen Romero heitir kona
hans og eiga þau þrjú börn; tíu,
níu og fjögurra ára. Carmen er
kennari og hefur lengi verið virk
í samtökum sósíalista. Þegar
hún var að því spurð nýlega
hvernig henni litist á að verða
æðsta frú landsins kvaðst hún
ekki vita annað en að Soffía
drottning skipaði þann sess og
það með prýði.
í kosningabaráttunni hefur
González þeyst um landið þvert
og endilagt og á tímabili hafði
hann látið reyna svo mikið á
röddina að hann var orðinn
rámur og fékk þau fyrirmæli frá
lækni að mæla helzt ekki orð af
vörum nema þegar hann yrði að
halda ræðu. hann reykir hav-
anna-vindla, sem hann fær
senda frá Castro á Kúbu, í tíma
og ótíma. í málflutningi fyrir
kosningar hefur González mjög
gætt hófs í yfirlýsingum.
Eftir því sem kosningarnar
hafa nálgazt og útlitið fyrir sig-
ur González og flokks hans farið
vaxandi hefur umræða um póli-
tískan grundvöll og stefnu
flokksins aukizt. Flokkurinn á
aðild að alþjóðasamtökum jafn-
aðarmanna og frá 1976 hefur
González verið þar varaforseti.
Kosningabaráttan hefur verið
háð undir merki hinnar rauðu
rósar jafnaðarmanna. Þeir
stjórnmálamenn erlendir sem
González og félagar hans telja
til vináttu við eru menn eins og
Willy Brandt, Bruno Kreisky og
Olof Palme, sem allir eru sósí-
al-demókratar, þ.e. jafnaðar-
menn, og eftir það uppgjör sem
átti sér stað í flokki González
árið 1979, þegar hann sagði af
sér og var síðan endurkosinn
flokksleiðtogi sex mánuðum sið-
ar með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða, virðist liggja beint við
að telja flokkinn jafnaðar-
mannaflokk.
Um þetta efni segir hann
sjálfur í viðtali við bandaríska
tímaritið Time nýlega og leggur
til grundvallar samanburð við
Mitterand Frakklandsforseta og
stefnu hans: „Pólitískur, efna-
hagslegur og félagslegut raun-
veruleiki er allur ann&r í Hpáni
en hann er í Frakklandi. Við
mundum ckki framfylgia sams-
konar þjóðnýtingarstefnu og
þeir af því að Spánverjar hafa
ófullnægjandi forsendur til að
fara slíka leið. Þar fyrir utan
hef ég ekki mikla trú á þjóðnýt-
ingu.“ Það hefur raunar kom ð
fram að eina þjóðnýí<ngin s-m
González hefur hug á eð iáta
fara fram á Spáni er þjóðnyting
rafveitna.
González hefur látiö I ljós
áhuga á að Spánverjtr gegni
mikilvægara hlutverki á al-
þjóðavettvangi en þeir gera nu.
Hann telur að Spánverjar hafi
vanrækt samskipti við róm-
önsku Ameríku, þjóðirnar fyrir
botni Miðjarðarhafs og Araba-
ríkin. Afstaða hans til aðildar
að Atlantshafsbandalaginu er
sú, að Spánverjar hafi enga þörf
fyrir að ganga í bandalagið.
„Við höfum aldrei verið and-
vígir Atlantshafsbandalaginu,“
segir hann um stefnu flokks síns
að þessu leyti. „Það sem við er-
um á móti er að Spánn gangi í
Atlantshafsbandalagið, og það
er annað mál. Það eru ekki ein-
ungis við heldur allir sem eiga
aðild að Alþjóðasambandi jafn-
aðarmanna sem vilja að hernað-
arbandalög verði afnumin. En
fyrst hernaðarbandalög eru nú
einu sinni til þá höfum við ekki
gert neina hugmyndafræðilega
atlögu að tilveru Atlantshafs-
bandalagsins. Með tilliti til
fyrirkomulags varna og örygg-
ishagmsmuna er engin þörf á
því fyrir Spánverja að ganga í
Atlantshafsbandalagið. Flokkur
okkar vill efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðild að Atl-
antshafsbandalaginu. Við höf-
um ekki tiltekið neinn tima fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu. Við
munum fylgjast með framvind-
unni af ýtrustu varfærni og at-
hygli. Okkur liggur ekkert á.“
Sá samningur um varnir og
bandarískar herstöðvar í land-
inu sem Spánverjar hafa gert
við Bandaríkin tengist að sjálf-
sögðu spurningunni um NATO-
aðild. í samningnum eru ákvæói
um gagnkvæman uppsagnar-
rétt, en samningur þessi héfur
ekki verið staðfestur af spænska
þinginu. „Við höfum alltaf sagt
að við mundum framfylgja stað-
feitum samningi, en þennnn
samning á eftir að staðfestí í I
spánska þinginu. Það er mögu- r
leiki á því að samningurinn I
verði ekki staðfestur. Ég seg:
möguloiki Það sem við höfuui jj
áhyggjur af í sambandi við
samningirn er að hann er sni.-'
inn að varnakerfi Atlantshai;
bandalagsins en ekki að þörfurn ,
Spánverja fyrir varnir. Ef þetiU j
er gagnkræmur samningur, -
samningur um sameiginleg. r
varnir, þá þyrfti ég að taka af-
stöðu til þess hvort hann þjórií r L
öryggishagtmunum Spánar.“
(Heim. The Observer, |
Time og AP). i
Mikil lista-
verk flutt
til New York
Feneyjar, 29. október. AP.
HIÐ víðfræga listasafn Peggy heit-
innar Guggenheim verður að mestu
leyti flutt til Bandaríkjanna á næst-
unni þar sem haldin verður sýning á
mörgum stórkostlegum listaverkum
í New York í nóvember og fram í
desember. „Þetta verður mikill
listaviðburður þar í borg,“ sagði
Philip Rylands, framkvæmdastjóri
safnsins.
Meðal listaverka sem til sýnis
verða í Nýju Jórvík eru þekkt verk
eftir snillingana Dali, Picasso,
Chagall og Miro. Sýningin verður í
Solomon R. Guggenheim lista-
safninu.
Eigendur Guggenheim-safnsins
í Feneyjum munu nota tækifærið
meðan á sýningunni í New York
stendur og gera umfangsmiklar
endurbætur á húsakynnum safns-
ins. Þau hafa löngum þótt óviðeig-
andi, bæði var húsið mikla aldrei
fullklárað, auk þess sem það hefur
verið grátt leikið af loftmengun
Feneyja og hitastigsbreytingum.
Þá hefur jafnan flóðahætta vofað
yfir safninu, en aðstandendur
safnsins vonast til að ganga nú
svo frá, að listaverkunum verði
óhætt er heim til Feneyja kemur á
ný-
Fengu 3—4 ára
fangelsisdóma
^ lU rlín, 28. október. AP.
ÁTTA Pólverjar, þar af fimm með-
limir Samstöðu, voru í dag dæmdir í
þriggja og fjögurra ára fangelsi fyrir
að ræna farþegaþotu frá pólska flug-
félaginu LOT er hún var í áætlunar-
flugi á milli Wroclaw og Varsjár og
beina henni til Vestur-Berlínar í apr-
il á þessu ári.
Þeir Jerzy Zelichowski, sem
skipulagði ránið, og Lech Rom-
anski, sem gefið er að sök að hafa
skotið á tvo verði er til átaka kom
á milli þeirra og ræningjanna,
voru dæmdir í fjögurra ára fang-
elsi. Fjórir fengu þriggja og hálfs
árs fangelsi og sjöundi maðurinn
hlaut þriggja ára dóm. Áttundi
maðurinn, sem einnig kom við
sögu í ráninu, fékk tveggja og
hálfs árs fangelsisdóm. Krafist
hafði verið fimm til sjö ára fang-
elsisvistar yfir flugræningjunum.
Flugrán þetta hafði í för með
sér að 28 hinna 52 farþega, sem í
vélinni voru, og fimm úr áhöfninni
kusu að vera um kyrrt í V-Þýska-
landi. Margir í vélinni voru ætt-
ingjar flugræningjanna.
Róm:
Arás á synagógu
Kómaborg, 29. október. AP.
TVEIR átján ára gamlir ítalskir pilt-
ar voru handteknir á fimmtudags-
kvöldið eftir að hópur ungmenna
kastaði eldsprengjum að litlu bæna-
húsi Gyðinga i Rómaborg.
Enginn slasaðist í atlögu þess-
ari, sem varð nú um þremur vik-
um eftir að hryðjuverkamenn réð-
ust með vélbyssum og sprengjum
að hópi Gyðinga sem voru að
koma út úr stærsta bænahúsi
þeirra í borginni. Lítill drengur
lézt og 37 manns slösuðust þá.
X-Xöfóar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!