Morgunblaðið - 31.10.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
37
þessa. Megi krafturinn og mann-
dómurinn ætíð fylgja honum.
Konu hans, Ingigerði Karlsdóttur,
og börnum þeirra óskum við hjón-
in líka til hamingju og að þau
megi lengi enn njóta samvista við
þennan góða heimilisföður.
Gunnar Bjarnason
Á morgun þann 1. nóvember
1982, er Hjalti Pálsson fram-
kvæmdastjóri sextugur. Á slíkum
tímamótum í lífi manna fáum við
samferðamennirnir oftlega þörf
fyrir að rifja upp minningar lið-
inna ára, sem sækja að á hægum
stundum í dagsins önn. Auðvitað
dregur maður fram hið hugljúfa,
sem viðkomandi tekur þá sem lof,
en lofið er mörgum alls ekki að
skapi. Maður er þá jafnframt að
rekja þætti sem tvinnast saman í
samskiptum við vini og samferða-
menn.
Hjalti Pálsson verður nú að þola
það að borið sé á hann nokkuð lof.
Hann er vinsæll maður og ekki
síður vinmargur. Vinsældir hans
meðal samferðamanna stafa af
viðmóti og lífsviðhorfi sem honum
er eðlislægt, og að hans mati alls
ekki ástæða til að tíunda.
Hjalti er sonur hjónanna Guð-
rúnar Hannesdóttur frá Deildar-
tungu og Páls Zophaniassonar
fyrrv. búnaðarmálastjóra og al-
þingismanns, og er næstyngstur í
hinum mannvænlega barnahópi
þessara merku hjóna. Hann fædd-
ist að Hólum í Hjaltadal þann 1.
nóvember 1922, en fluttist með
foreldrum sínum til Reykjavíkur
barn að aldri, er faðir hans hóf
störf þar hjá Búnaðarfélagi Is-
lands.
Hjalti ólst upp við leik og nám í
Reykjavík, en íangskólanám þar
var honum ekki hugstætt, og lét
hann hið svonefnda gagnfræða-
próf nægja. Hann settist svo í
Hólaskóla og lauk þaðan búfræði-
prófi. Þaðan lá leiðin til Ameríku.
Hjalti hóf nám við ríkisháskólann
í Fargo N-Dakota en lauk náms-
ferli sínum með prófi í vélaverk-
fræði við landbúnaðarháskólann í
Ames í Iowa-ríki.Á þessum árum
var Iowa-háskóli einn af þremur
skólum sem taldir voru þeir bestu
er völ var á í Bandaríkjunum eink-
um hvað varðaði nám í búvísind-
um. Hinir skólarnir voru háskól-
inn í Wisconsin og Cornellháskól-
inn í íþöku, N.Y. Þeir ungu menn
sem urðu þess hlutskiptis aðnjót-
andi að mennta sig í Bandaríkjun-
um á þessum árum, einkum í
Mið-Vesturríkjunum, kynntust
því besta sem finnst í fari þeirrar
þjóðar. Með opnum hug gátu menn
öðlast góðan þroska og mótað sinn
persónuleika, sem er hverjum
manni til gagns og gæfu í lífinu.
Þá möguleika sem þarna buðust
notaði Hjalti til hins ýtrasta og
ber hann það með sér enn í dag í
ríkum mæli.
Sporaslóðir okkar Hjalta lágu
saman í Reykjavík á unglingsár-
unum, en einn bræðra hans var þá
með mér í bekk i gagnfræðaskóla.
Kunningsskapur okkar varð þó
meiri seinna, að námi loknu.
Námsferill okkar var reyndar
áþekkur og áhugamálin á margan
hátt svipuð. Hjalti haslaði sér völl
í viðskiptalífi höfuðborgarinnar
en ég sneri mér að búskap á föð-
urleifð minni að Reykjum.
Hjalti hóf ævistarfið með því að
stofna og stjórna fyrirtækinu
„Dráttarvélum hf.“ sem byggðist
m.a. á tækniundrinu „Ferguson"
dráttarvélinni. Viðskiptamennirn-
ir voru fyrst og fremst bændur og
hugsjón hins unga forstjóra var að
stuðla að tæknivæðingu sveitanna.
Þar gegndi fyrirtæki hans for-
ystuhlutverki á þessum árum svo
sem mörgum er kunnugt. Síðan lá
leiðin til Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga þar sem hann var ráð-
inn framkvæmdastjóri véladeildar
og seinna innflutningsdeildar, og
hefir hann starfað þar síðan.
Hugðarefni Hjalta eru mörg og
margvísleg, í starfinu, í félagslífi
og á sviði útivistar. Ennfremur
hefir hann gaman af allskyns
sögugrúski og ættfræði. Persónan
Hjalti Pálsson er vel gerður mað-
ur að ætt og upplagi. Hann er
mótaður af brag síns ágæta æsku-
heimilis. Víða hefir mér verið vel
tekið þar sem ég hefi litið inn hjá
fólki, en minnisstæðar eru mér
móttökur þær sem móðir Hjalta
sýndi mér ávallt, óvandabundnum
unglingi, er leið mín lá á það
heimili. Umh.vggja og áhugi
Hjalta fyrir íslenskri bændastétt
er meðtekin og ástunduð fyrir
áhrif foreldra hans og æskuheim-
ilis. í umræðum um þau mál, þar
var ekki örgrannt um að fleiri
legðu við hlustir en heimafólkið
eingöngu.
Utivist í samneyti við íslenska
hestinn leiddi af sér veruleg um-
svif á sviði félagsmála í röðum
hestamanna. Þar urðu okkar sam-
skipti mikil. Kjarkur og ráðsnilld
er aðalsmerki Hjalta, þar sem og
annars staðar. Hann var og er
mjög virkur í röðum Fáksmanna í
Reykjavík, en einnig og ekki síður
í í Landssambandi Hestamannafé-
laga. Raunsætt mat ásamt hæfi-
legu ívafi af kímni einkenna
málflutning hans, og málin liggja
fyrir, einföld og auðskilin, ásamt
tillögum um lausnir á næsta leiti.
Hjalti hefir oftlega verið valinn
í það vandastarf að vera þulur á
mótum hestamanna og leyst þau
mál, þegar mikið liggur við, með
miklum glæsibrag.
Maðurinn er vel máli farinn,
smekkmaður á móðurmál sitt.
Hann býr yfir ágætri kunnáttu
um ættir hrossa, feril einstakra
hesta, ásamt kunnugleika á hög-
um og hugðarefnum hinna ein-
stöku hestamanna.
í tólf ár sat hann í stjórn Lands-
sambands Hesfamannafélaga
meginhluta síðasta áratugs. Þótti
mér sá félagsskapur sem þá sat í
stjórn góður og stjórnarfundir
ánægjulegir enda meðbyr í hesta-
mennsku bæði hér og erlendis.
Þessi upptalning verður ekki
lengri, en af mörgu er að taka og
vandi úr að velja. Við vinir hans
og félagar úr röðum áhugamanna
um íslenska hestinn, sendum hon-
um og hans ágætu konu, Ingigerði
Karlsdóttur, kveðjur og þakklæti
á merkisdegi þeirra á morgun. Við
væntum þess að þau megi njóta
lífsins og hvors annars enn um
langt árabil og að við félagarnir
megum eiga þar nokkurn þátt í,
eftirleiðis sem hingað til.
Lifið heil.
Jón M. Guömundsson,
Reykjum.
Nú þegar ég átta mig á því, að
vinur minn, Hjalti Pálsson, er orð-
inn sextugur, finn ég, hversu tím-
inn líður fljótt. Mér finnst í raun
og veru ekki langt síðan Hjalti var
ungur maður. Ungur maður með
fullt af verkefnum framundan ,
sem hann vann að lausn á. En
þannig hefur Hjalti alltaf verið.
Hann hefur um dagana leyst ara-
grúa verkefna af ýmsu tagi, því
hann er mikill dugnaðarforkur, en
að hverju máli leystu hefur hann
fundið sér ný verkefni til að vinna
að. Brautryðjendastarfið fer hon-
um vel, enda maðurinn myndar-
legur og aðsópsmikill.
Hjalti Pálsson er fæddur að
Hólum í Hjaltadal 1. nóv. 1922.
Foreldrar hans voru Guðrún
Hannesdóttir frá Deildartungu og
Páll Zóphóníasson alþingismaður
og búnaðarmálastjóri. Um það
leyti sem Hjalti fæddist. eða árin
1920 til 1928, var faðir hans skóla-
stjóri við búnaðarskólann að Hól-
um.
Að loknu gagnfræðaprófi í
Reykjavík lauk Hjalti búfræði-
námi frá Hólaskóla árið 1941. Ár-
in 1943 til 1947 var hann við nám í
Bandaríkjunum og lauk prófi í
landbúnaðarverkfræði vorið 1947
frá ríkisháskólanum í Ames í
Iowa-ríki.
Allt frá því að Hjalti lauk námi
hefur hann helgað samvinnu-
hreyfingunni krafta sína. Árin
1948—1949 var hann fulltrúi í
Véladeild SÍS. Árið 1949 varð
hann framkvæmdastjóri Drátt-
arvéla hf., sem þá voru nýstofnað-
ar. Gegndi hann því starfi allt til
ársins 1960. Árið 1952 gerist hann
einnig framkvæmdastjóri Véla-
deildar Sambandsins.
Því starfi gegnir hann til ársins
1967, en þá tekur hann við fram-
kvæmdastjórn Innflutningsdeild-
ar Sambandsins, sem hefur verið
hans aðalstarf síðan.
Árið 1951 kvæntist Hjalti Ingi-
gerði Karlsdóttur. Foreldrar
hennar eru Þóra Ágústsdóttir og
Karl Ó. Jónsson skipstjóri. Ingi-
gerður er glæsileg kona og af góðu
og dugandi fólki komin. Hafa þau
hjón komið sér upp stórmyndar-
legu heimili að Ægissíðu 74 í
Reykjavík. Börn þeirra eru þrjú,
Karl Óskar, Guðrún Þóra og Páll
Hjalti.
I starfi sínu fyrir samvinnu-
hreyfinguna hefur Hjalti lagt
gjörva hönd á margt. Þegar hann
var fulltrúi í Véladeild SÍS og
framkvæmdastjóri Dráttarvéla
hf., teiknaði hann t.d. mörg
hundruð súgþurrkunarkerfi fyrir
bændur og ráðlagði um vélakaup
og tekjuval. Fer ekki á milli mála,
að hinn mikli dugnaður Hjalta
átti stóran þátt í velgengni Drátt-
arvéla hf. þegar fyrstu starfsár
þeirra. Hann lagði mikil ferðalög
á sig vítt og breitt um landið.
Traustvekjandi framkoma og
karlmannlegt fas hins unga
manns greiddu auðveldlega götu
hans í samskiptum við fólk, enda
ávann hann sér traust og vináttu
mikils fjölda manna á stuttum
tíma.
Þegar Hjalti tók að sér fram-
kvæmdastjórn Véladeildarinnar,
víkkaði starfssviðið, og tíminn til
persónulegra samskipta við stóran
vina- og kunningjahóp minnkaði.
En duglegur er hann við að halda
sambandi við gömlu kunningjana,
sem hann eignaðist um allt land á
sínum yngri árum.
Véladeild Sambandsins óx mjög
að umsvifum þau 15 ár sem Hjalti
var þar framkvæmdastjóri. Hon-
um var mjög umhugað um að
fylgjast með nýjungum og örri
þróun í vélum og tækjum, sér-
staklega því sem sneri að landbún-
aði. Hann stóð fyrir byggingu á
húsi Véladeildar að Ármúla 3 í
Reykjavík, sem er mikil og glæsi-
leg bygging.
Þegar Helgi Þorsteinsson fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Inn-
flutningsdeildar Sambandsins lést
árið 1%7, var Hjalti ráðinn fram-
kvæmdastjóri þeirrar deildar og
hefur verið það síðan, svo sem fyrr
segir.
Innflutningsdeild Sambandsins
er ein mikilvægasta stofnun sam-
vinnumanna. Rekstrarafkoma
Sambandsins og kaupfélaganna er
verulega háð því, hvernig Inn-
flutningsdeildin stendur sig í sínu
hlutverki við vöruútvegun og ekki
síður vöruval. Innflutningsdeildin
hefur margar undirdeildir, sem
sumar hverjar eru á við stór fyrir-
tæki. Verkefni framkvæmdastjór-
ans er því bæði stórt og víðfeðmt.
Kemur sér þá vel, að hann er bæði
stórhuga og kjarkmikill. Enda
hafa mörg stórvirki verið unnin á
framkvæmdastjóraárum hans í
Innflutningsdeild, meira og minna
fyrir hans forgöngu. Má nefna
kornturna við Sundahöfn, Fóður-
blöndunarstöð SÍS og hús Inn-
flutningsdeildar við Elliðavog
(Holtagarða). Allt eru þetta stór
og þörf verkefni. Holtagarðar
munu vera ein af stærstu bygging-
um landsmanna.
Auk þess sem hér er talið, hefur
Hjalti átt sæti í ýmsum nefndum
og stjórnum á vegum samvinnu-
manna um lengri eða skemmri
tíma, svo sem: Framkvæmda-
stjórn SÍS, stjórn Dráttarvéla hf.,
stjórn Osta- og smjörsölunnar sf.,
stjórn Tollvörugeymslunnar hf.,
stjórn Kornhlöðunnar o.fl.
Þá hefur hann átt sæti í ýmsum
opinberum nefndum.
Hjalti er áhugamaður um
hestamennsku. Hefur hann og
fjölskyjda hans löngum átt góða
hesta. í félagsmálum hestamanna
hefur hann verið virkur þátttak-
andi og verið lengi í stjórn Lands-
sambands hestamanna.
Því miður hefur Hjalti átt við
nokkra vanheilsu að stríða, sem er
sykursýki. Hann hefur þó sigrast
á því vandamáli, eftir því sem
mögulegt er. Hjalti er einn af
stofnendum Samtaka sykursjúkra
og á sæti í stjórn þeirra samtaka.
Hefur hann unnið mjög gott starf
á þeim vettvangi.
Eins og fleiri ættmenna hans
hefur Hjalti mikinn áhuga á
ætL'ræði. Hefur hann varið mikl-
um tíma til þeirrar fræðigreinar
og var annar af tveimur ritstjór-
um Deildartunguættarinnar, sem
er mikið rit í tveimur bindum. En
móðurætt Hjalta er frá Deildar-
tungu.
Lengi mætti halda áfram að
telja upp ýmislegt, sem Hjalti hef-
ur tekið sér fyrir hendur um dag-
ana. En hér verður staðar numið.
Hjalti Pálsson er stór maður
vexti og myndarlegur og vekur at-
hygli hvar sem hann fer. Þrátt
fyrir að vissu leyti hrjúft yfir-
bragð er hann samt að jafnaði
hlýr og þægilegur í viðmóti. Hann
er skapmikill maður og heldur
fast á sínu máli, en er drengilegur
og ávallt sáttfús, þó að í odda
skerist. I starfi sínu er hann
stórhuga og gjarnan á undan sinni
samtíð.
Hann á gott heimili, þau hjónin,
Hjalti og Inga, hafa staðið fast
saman í blíðu og stríðu og verið
samhent í besta lagi. Heimili
þeirra er fallegt, og þar er gott að
koma, enda gestkvæmt.
Fyrir nokkrum árum keyptu
þau sér sumarbústað á fallegum
stað í Skorradal. Þar dvelja þau
gjarnan á sumrin, þegar stund
gefst frá annasömu starfi.
Ég veit, að á þessum degi hugsa
samvinnumenn og aðrir vinir um
allt land sterkt til Hjalta og fjöl-
skyldu hans.
Um leið og ég læt í ljós ánægju
yfir því að hafa um áratugi átt
gott samstarf við Hjalta, vona ég,
að þar verði framhald á og að hon-
um endist líf og heilsa til margra
góðra verka.
Nú á sextugsafmæli hans fær-
um við Anna honum, sem og fjöl-
skyldu hans, okkar bestu óskir um
gott gengi og gæfuríka framtíð.
Undir þær óskir veit ég að hans
mörgu samstarfsmenn og vinir
taka.
Olafur Sverrisson
Aukið öryggi fyrir þig.þína og þá sem
á vegi ykkarverða. ATLAS snjóhjólbardar
í hálku og í snjó. Minni bensíneydsla,
meiri ending.---------------------------
Útsölustaðir: Kaupfélögin um allt land
GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM
SAMBANDIÐ
VELADEILD
HJÓLBARÐASALA
Höfðabakka 9 ^83490-38900