Morgunblaðið - 31.10.1982, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1982
41
litsferðir eftir lokun og um helgar
óbeðinn.
Hörður giftist eftirlifandi konu
sinni, Guðmundu Guðmundsdótt-
ur, 1. maí 1937. Þau eignuðust eina
dóttur, Áshildi, sem nú er 43 ára
gömul.
Líf þeirra hjóna hefur gengið
sinn vanagang þótt dóttir þeirra
sé þroskaheft, en þau kusu alla tíð
að hafa hana heima, þótt erfitt
væri. Vegna dótturinnar voru
hans áhugamál m.a. Styrktarfélag
vangefinna, enda var hann þar í
stjórn í fjölda ára.
Psoriasis þjáði Hörð allt frá því
árið 1939, en seinna kom hjarta-
bilun eða kransæðastífla. Hann
hafði mikinn áhuga fyrir bættu
heilsufari psoriasis-sjúklinga og
var því frumkvöðull að stofnun fé-
lagsskapar eða Samtaka psoriasis-
og exem-sjúklinga. Hann fékk son
minn, Ásgeir, til að taka að sér
formennsku og mun þetta félag
hafa bætt ýmislegt fyrir psorias-
is-sjúklinga.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar
vil ég þakka fyrir allt það sem
Hörður hefur fyrir okkur gert.
Ég bið góðan Guð að halda
verndarhendi yfir Mummu mág-
konu og Áshildi dóttur þeirra.
Gunnar Ásgeirsson
Okkur setur hljóð, þegar okkur
er sagt að náinn ættingi eða vinur
sé fallinn frá. Þannig var það með
Hörð frænda minn, jafnvel þó
kallið gæti komið hvenær sem
væri. Okkur fannst öllum að hans
væri svo mikil þörf hér meðal
okkar og hlutverki hans væri
langt frá því að vera lokið.
Hörður frændi var föðurbróðir
minn, og man ég svo vel sem barn,
að það var ávallt mikið tilhlökk-
unarefni, ef Hörður var væntan-
legur í bæinn. Hann var ávallt
kátur, sterkur og mikil barnagæla.
Við bárum alltaf alveg sérstaka
virðingu fyrir honum og okkur
þótti ákaflega vænt um hann, því
hann talaði mikið við okkur. Börn
okkar hjóna hafa notið þess í
seinni tíð, þar sem hann fann
ávallt tíma til þess að tala við þau.
Sonur minn sem nú er 14 ára
minnist þess oft, að hans fyrsta
launaða vinna hafi verið hjá Herði
frænda, er hann fékk það hlutverk
að stimpla blöð „frammi hjá
Herði" eins og við orðuðum það
daglega. Hörður átti alveg sérlega
gott með að fá ungt fólk til að
vinna fyrir sig. Andlit drengsins
ljómaði allt þegar hann kom fram
í búð til mín, og sýndi mér krón-
urnar sem hann hafði fengið, en
mest þótti honum um vert, að
Hörður hafði hælt honum og sýnt
honum hlýhug. Þetta, hlýja og hól,
er lykillinn að gleðinni og það
vissi Hörður vel.
Ég átti því láni að fagna að
starfa með Herði og Guðmundu
konu hans í nær 15 ár hjá Gunnari
Ásgeirssyni hf. Það þótti mér eft-
irtektarvert öll þessi ár, að Hörð-
ur var ávallt fyrstur að spyrja
hvernig gengi, ef eitthvað var ekki
í lagi, og gaf sér tíma til að ræða
og ráðleggja.
Ég og fjölskylda mín viljum
þakka Herði allt gamalt og gott.
Hann kenndi okkur margt, þá sér-
staklega að meta lífið eins og það
kemur fyrir, þrátt fyrir ýmsa
hnökra hér og þar.
Við sendum Mummu og Áshildi
okkar innilegustu ^samúðarkveðj-
ur.
Þórhildur Gunnarsdóttir
Kveðja frá starfsmönnum
og nemendum Lækjaráss
Okkur langar að þakka vini
okkar Herði Ásgeirssyni sam-
fylgdina sem var alltof stutt.
Þakka alla hlýjuna og hvað hann
var óspar á hvatningarorðin. Öll
samtölin, bæði þau gamansömu og
alvarlegu. Eftir þau vorum við
oftast fróðari en ella um öll hugs-
anleg málefni.
Nemendurnir sakna þess manns
sem alltaf var reiðubúinn að tala
við þau þótt okkur þessum „heil-
brigðu" hefði ekki þótt umræðu-
efnið merkilegt. Eins var alltaf
tími fyrir klapp á herðarnar á
þeim sem ekki hafa mál, og fylgdu
þá venjulega nokkur hlý orð í leið-
inni, þó ekki væri neins svars að
vænta. Fyrir þetta og allt annað
þökkum við.
Elsku Mumma og Ása, við send-
um ykkur okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur, því ykkar er missir-
inn mestur.
A.A.
Kveðja frá Samtökum psori-
asis- og exemsjúklingum
Þótt fregnin um andlát Harðar
Ásgeirssonar kæmi okkur félögum
hans í Samtökum psoriasis- og ex-
emsjúklinga eins og þruma úr
heiðskíru lofti, kom hún okkur þó
ekki alveg á óvart, því við höfðum
fylgst með heilsu hans hin síðari
ár og vissum að hann var búinn að
búa við verulegan heilsubrest, sem
hann bar af karlmennsku og þol-
gæði. Hörður var einn aðalhvata-
maður að stofnun samtakanna
fyrir réttum 10 árum og var fyrsti
formaður þeirra og sat í stjórn
þeirra í nokkur ár. Hann var á
meðan heilsa hans entist mikil
driffjöður í öllum málum okkar og
er víst að ekki er á nokkurn hallað,
þegar sagt er, að án hans hefðu
ýmis mál okkar, sem í höfn eru
komin, ekki náð fram að ganga svo
giftusamlega, ef hans og hans
góðu ráða hefði ekki notið við. Hjá
okkur er því skarð fyrir skildi,
sem seint mun fyllast. Alveg fram
á hinsta dag var hann fullur
áhuga á málefnum samtakanna og
hvatti okkur með ráðum og dáð.
Við vottum hans nánustu samúð
okkar og hluttekningu, en minn-
um á að orðstír góðra manna og
framsýnna, mun seint fyrnast og
mun þáttur Harðar Ásgeirssonar í
sögu Samtaka psoriasis- og ex-
emsjúklinga ávallt vera í minnum
hafður.
ViÖsjáumum innpökkun ogsendingu
(kosta)(boda)
Bankastræti 10
*Þessa þjoniistn hjiKliiin viö til 1. desember
v&rtíðina
Toyota lyftarar, sterkir, liprir
og sparneytnir.
Rafmagns og diesel, 2Vi tonna
með snúningsútbúnaði.
Opið mastur bætir útsýni og
eykur vinnuöryggi.
Lyftihæð í 3,50 — 4,30 m.
Á pumpuðum dekkjum.
Til afgreiðslu strax.
TOYOTA
LYFTARAR
TOYOTA
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
SÍMI 44144
KÓPAVOGI