Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
Sjálfstæðismenn í Reykjavík:
Gengið verður
frá prófkjörslist-
anum um helgina
Á FIINDI með stjórnum sjálfstaeðis-
félaganna í Keykjavík í gærdag, var
leitad eftir uppástungum um nöfn á
framboóslista flnkksins til prófkjörs
í Keykjavík. I*á kom fram að próf-
kjörsnefnd hefur að venju sent þing-
mönnum og þeim sem hlutu bind-
andi kjör, bréf þar sem þeir eru
spurðir, hvort þeir hafi hug á að taka
sæti á prófkjörslistanum. Hér er um
tvo menn að ræða, sem ekki hafa nú
þegar tilkynnt um prófkjörsþátttöku,
Ellert B. Schram og Gunnar Thor-
oddsen.
Gunnar Helgason, formaður
prófkjörsnefndar, sagði í viðtali
við Mbl. í gær, að gengið yrði frá
prófkjörslistanum um helgina.
Hann sagðist reikna með að á list-
anum yrðu 26 til 30 nöfn, en 17
hafa þegar boðið sig fram. Á und-
anförnum árum hafa verið allt frá
26 til 43 nöfn á prófkjörslistum
flokksins í Reykjavík.
Samkvæmt heimildum Mbl.
voru þeim Ellert og Gunnari send
bréf í fyrradag þar sem tilkynnt
var, að kjörnefnd snéri sér skv.
venju til þingmanna flokksins og
þeirra sem hlotið hefðu bindandi
kjör í þeim tiigangi að kanna
hvort þeir hefðu hug á að taka
sæti á prófkjörslistanum. Mun
frestur til svara vera til kl. 14 á
laugardag, að öðrum kosti lítur
nefndin svo á að viðkomandi hafi
ekki áhuga á þátttöku.
Fer Vilmundur
ekki í prófkjör-
ið í Reykjavík?
VILMIJNDUR Gylfason alþing-
ismaður mun nú íhuga að taka
ekki þátt í prófkjöri Alþýðu-
flokksins í Keykjavík fyrir
næstu alþingiskosningar, þar
sem hann og stuðningsmenn
hans stefni að því að stofna
Bandalag jafnaðarmanna og
bjóða fram í öllum kjördæmum
landsins við næstu alþingiskosn-
ingar.
Fyrir flokksþing Alþýðu-
flokksins, sem haldið var í
Reykjavík um síðustu helgi,
hafði Vilmundur á orði að ef
hann bæri ekki sigurorð af
Magnúsi H. Magnússyni í kosn-
ingum um varaformann flokks-
ins, væri ekkert annað að gera
en axla pokann sinn og koma sér
á annan bát þar sem „klassísk
jafnaðarstefna og nýróttækni"
væru í heiðri hafðar. Vilmundur
INNLENT
sagði á flokksþinginu aö hann
ætlaði sér ekki að verða nein
hornreka í Alþýðuflokknum.
Ljósm: Kristján Kinarsson.
Filippus hertogi í Reykjavík
FILIPPUS hertogi og drottningarmaður af Englandi hafði hálftíma viðdvöl
hér á landi í gærdag, þar sem hann kom frá Grænlandi á leið til Bretlands.
Fékk prinsinn sér kaffi og pönnukökur á meðan sett var eldsneyti á flugvél-
ina, ræddi um íslensk stjórnmál og náttúru landsins, og hélt síðan för sinni
áfram. Filippus stjórnaði flugvélinni sjálfur i lendingu og sat við stýrið í
flugtaki. Á myndinni má sjá Filippus ganga frá flugvélinni í fylgd þeirra
Olafs Egilssonar sendiherra og Williams McQuillan sendiherra breta á
íslandi.
Qlympíuskákmótið:
Island
gerði jafn-
tefli við
Indónesíu
ÍSLENZKA karlasveitin
gerði jafntefli 2—2 gegn
Indónesíu á Ólympíuskák-
mótinu í Luzern í gær.
Jón L. Árnason gerði jafntefli
við Handoko á 1. borði, Helgi
Ólafsson tapaði fyrir Adianto á
2. borði, Margeir Pétursson
gerði jafntefli við Miolo á 3.
borði og Jóhann Hjartarson
vann Ging á 4. borði. íslenzka
sveitin hefur hlotið 24% vinn-
ing. Sovézka sveitin er lang efst
og virðist stefna í öruggan sigur
á mótinu.
Islenzka kvennasveitin hefur
komið mjög á óvart með góðri
frammistöðu. í gær tefldi hún
t.d. gegn rúmensku stúlkunum á
2. styrkleikaborði, þ.e. á borðinu
við hliðina á sovézku sveitinni.
íslenzku stúlkurnar urðu að
þola 0—3 tap, fyrir geysisterkri
rúmenskri sveit, þær Guðlaug
Þorsteinsdóttir, ðlöf Þráins-
dóttir og Áslaug Kristinsdóttir
töpuðu allar.
Forsætisráðherra um vantrauststillögu Alþýðuflokksins:
Verður að traustsyfirlýsingu
Alþingis, er hún verður felld
Væntir fundar með formanni Alþýðuflokksins eftir nokkra daga
„ÉG GEKI ráð fyrir viðræðufundi
með formanni Alþýðuflokksins eftir
fáeina daga,“ sagði Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra er Mbl.
ræddi við hann í gær um stöðu mála í
viðræðum Alþýðuflokksins og ríkis-
stjórnarinnar. Þá sagðist forsætis-
ráðherra vænta þess, að vantrauststil-
laga þingflokks Alþýðuflokksins, sem
lögð var fram á Alþingi í gær yrði
ríkisstjórninni til halds og traust.
Forsætisráðherra sagði varðandi
viðræðurnar við Alþýðuflokkinn og
þær kröfur sem formaður hans hef-
ur lagt fram: „Bráðabirgðalögin
hafa þegar verið lögð fyrir þingið.
Varðandi annað atriðið sem er
stjórnarskrármálið þá höfum við
unnið að því undanfarna mánuði að
hraða störfum stjórnarskrárnefnd-
ar þannig að hún geti skilað sínum
greinargerðum sem allra fyrst.
Hún var m.a. á fundi í dag milli
klukkan fimm og sjö. Hún var á
öðrum fundi fyrr í vikunni og það
fer að líða að því að hún skili grein-
argerðum til þingflokkanna. Varð-
andi þriðja atriðið, kjördag, þá er
það til umræðu og athugunar hjá
ríkisstjorninni. Ég geri ráð fyrir
viðræðufundi með formanni Al-
þýðuflokksins eftir fáeina daga.
Þá var forsætisráðherra spurður
álits á framkominni vantrauststil-
lögu. Hann svaraði: „Um van-
traustið verða útvarpsumræður frá
Alþingi og þá fáum við ráðherrarn-
ir gott tækifæri til þess að skýra
okkar viðhorf og svara ýmsum
ásökunum og leiðrétta mishermi.
Það gefst líka tækifæri til þess að
ræða nokkuð um tómahljóðið í
stjórnarandstöðunni og spyrja
hana nánar út í tillögur hennar í
efnahagsmálum, sem hefur nú
reynst erfitt að fá út. Að þessum
umræðum loknum verða greidd at-
kvæði um vantrauststillöguna.
Hún verður felld og þá er það um
leið traustsyfirlýsing Alþingis til
ríkisstjórnarinnar, svo ég vona að
þetta verði okkur allt til trausts og
halds.“
— Þú fagnar sem sagt framkom-
inni vantrauststillögu á ríkis-
stjórnina?
„Það er síður en svo að ég hafi á
móti henni."
Þingflokkur Alþýðuflokksins leggur fram vantraust á ríkisstjórnina á Alþingi:
Vantrauststillagan og viðræður
við ríkisstjórnina óháðir hlutir
— segir Kjartan Jóhannsson formaöur Alþýðuflokksins
„Vantrauststillagan stendur engu
art sírtur. Þetta eru óháðir hlutir,"
svararti Kjartan Jóhannsson formart-
ur Alþýrtuflokksins á blarta-
mannafundi sem hann bortaði til í
gær í tilefni af þvi að þingflokkur
Alþýrtuflokksins samþykkti á fundi
sínum sem haldinn var skömmu ártur
vantrausLstillögu á ríkisstjórnina og
var hún lögrt fram í gær. Kjartan er
hér art svara spurningu um þart, hvort
hann muni halda áfram virtræðum virt
rikisstjórnina, ef hún gengur að fram-
settum skilyrrtum hans, þrátt fyrir að
vantrauststillagan verrti á sama tíma
til mertferðar á Alþingi.
Kjartan sagði í upphafi fundar-
ins, að vantrauststillagan væri
fram komin vegna þess að því hefði
verið haldið fram bæði af sjálf-
stæðismönnum og talsmönnum
ríkisstjórnarinnar að Alþýðuflokk-
urinn stæði í viðræðum við ríkis-
stjórnina um að styðja hana.
„Þetta er svo dæmalaus rangtúlkun
að engu tali tekur. Eins og allir
ættu að vita, þá myndu hugsanleg-
ar viðræður, sem ekki hafa verið í
gangi, snúast um það að koma rík-
isstjórninni frá og ákveða kosn-
ingar, og þá aðeins að kröfum
okkar uppfylltum, og um afgreiðslu
brýnustu þingmála." sagði Kjartan
og bætti því við að afstaða Alþýðu-
flokksins til ríkisstjórnarinnar
væri alveg skýr. Hann væri andvíg-
ur henni og væri vantrauststillag-
an flutt til þess að taka af allan
vafa um það.
Kjartan var þá spurður hvort
viðræðum við ríkisstjórnina yrði
haldið áfram þrátt fyrir van-
trauststillöguna. Hann svaraði:
„Það hafa engar viðræður átt sér
stað og ég hef ekkert heyrt frá rík-
isstjórninni síðan á þriðjudaginn.
Skilyrðin sem ég setti verða ekki
slitin í sundur og þeim hefur ekki
verið fullnægt. Vantraustið er ein
aðferðin til þess að knýja á um að
ríkisstjórnin gefi tafarlaust svar.
Þá var Kjartan spurður hvað
hann myndi gera, ef ríkisstjórnin
samþykkti í dag að ganga að öllum
skilyrðum hans. „Vantrauststil-
lagan stendur engu að síður," svar-
aði hann. Hann var þá spurður í
framhaldi af því hvort hann myndi
samt sem áður ganga til viðræðna
við ríkisstjórnina á sama tíma og
vantrauststillagan væri til með-
ferðar á Alþingi. Hann svaraði:
„Þetta eru óháðir hlutir, en ég verð
nú að segja það að framkoma ríkis-
stjórnarinnar um að fara ekki að
þessum skilyrðum fljótt og afdrátt-
arlaust gefur ekki tilefni til þess að
ætla að hún hafi neinn áhuga á
þessum viðræðum." Hann vildi
ekki svara ákveðið nánar spurður
hvort hann myndi ganga til við-
ræðna við þær aðstæður. Sagðist
fyrst vilja sjá hvort hann fengi taf-
arlaust svar við skilyrðum sínum.
Þá var þingflokksformaðurinn
spurður hvort allir þingmenn
flokksins hefðu samþykkt tillög-
una. Hann sagði alla tíu þingmenn
hans vera flutningsmenn. Aðspurð-
ur um hvort Vilmundur Gylfason
hefði setið þingflokksfundinn þar
sem tillagan var samþykkt kvað
hann Vilmund ekki hafa setið
fundinn, en hann hefði verið í þing-
húsinu. Haft hefði verið talsam-
band við hann og Vilmundur væri
flutningsmaður eins og aðrir þing-
menn flokksins.
Kjartan ítrekaði í lokin að það
hefði aldrei verið ætlun Alþýðu-
flokksins að styðja ríkisstjórnina
og að vantrauststillagan væri fram
komin til að taka af allan vafa um
það. Þá var Kjartan beðinn álits á
ummælum Magnúsar H. Magnús-
sonar varaformanns flokksins í
viðtali í Mbl. í fyrradag. Hann viidi
ekki tjá sig um þau á fundinum.
Kjartan sagðist aðspurður
reikna með að vantrauststillagan
yrði tekin til meðferðar í samein-
uðu Alþingi í næstu viku, þó kvað
hann þá staðreynd, að margir þing-