Morgunblaðið - 12.11.1982, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 12.11.1982, Qupperneq 3
■ MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 3 Ljósastaurar fast við akbrautina „ÞETTA er mál sem er til úr- vinnslu hjá bæjaryfirvöldum, því Nýbýlavegurinn er gata sem verió er aó gera allsherjar úttekt á,“ sagði Ásmundur Guðmundsson, yf- irlögregluþjónn í Kópavogi í sam- tali við Mbl. Hann var spurður hvort staðsetning Ijósa- og raf- magnsstaura við Nýbýlaveg væri ekki hættuleg, en þeir standa mjög nálægt akbrautinni, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Eins og kunn- ugt er hafa að undanfornu orðið þrjú banaslys í Kópavogi, þegar ekið hefur verið á staura. Ásmundur sagði að lagfær- ingar væru að hefjast við vest- anverðan veginn, austur af Birkigrund, en síðan ætti að halda áfram endurbótum. Endurbætur af þessu tagi hefðu verið lengi á döfinni og margar samþykktir hefðu verið gerðar þar um af umferðarnefnd bæjar- ins. Ásmundur sagði að ástandið nú væri engan veginn gott, því Nýbýlavegurinn væri ein mesta umferðargatan í Kópavogi. 100% fjölgun at- vinnuleysisdaga ATVINNULEYSISDAGAR fyrstu tíu mánuði þessa árs eru í námunda við 160.000, en voru til samanburðar um 80.000 á sama tíma í fyrra. Fjölgun þeirra milli ára er því um 100%. I október sl. voru skráðir samtals 5.600 atvinnuleysisdagar á landinu öllu, en þetta svarar til þess að 260 manns hafi verið án vinnu allan mánuðinn, sem jafngildir um 0,2% af mannafla í mánuðinum, I sama mánuði í fyrra voru skráðir atvinnuleysisdagar um 4.500 á landinu. Fjölgunin milli ára er því tæplega 24,5%. Vinnumálaskrifstofu félags- málaráðuneytisins bárust í október 10 tilkynningar frá fyrirtækjum um uppsagnir á starfsmönnum á móti 2 á sama tíma í fyrra. „Fyrir- tækin eru úr ýmsum greinum at- vinnulífsins, svo sem fiskiðnaði, verktakastarfsemi, verksmiðjuiðn- aði og byggingariðnaði. Gefur þetta til kynna að meiri óvissa ríki nú á vinnumarkaðnum almennt, en á sama tíma undanfarin ár,“ segir í frétt ráðuneytisins. Mynd þessa tók Kristján Einarsson Ijósm. Mbl. á blaðamannafundinum með Kjartani Jóhannssyni í gær, en til hans var boðað í þingflokksherbergi Alþýðu- flokksins í Alþingishúsinu strax að afloknum þingflokksfundinum, þar sem gengið var frá vantrauststillögunni. menn verða fjarverandi á fundum Norðurlandaráðs og Atlantshafs- bandalagsins geta orðið til þess að seinka meðferð hennar. Samkvæmt 55. gr. þingskapa skal útvarpa um- ræðum á Alþingi um vantrausts- tillögu, ef níu þingmenn krefjast þess. Helgarpósturinn falur Morgunblaðsins felast fjárhagserf- ' iðleikar blaðsins einkum í skulda- < söfnun þess gagnvart Blaðaprenti á I fyrri hluta þessa árs. Við brott- j hvarf dagblaðsins Vísis úr því j fyrirtæki hækkaði mjög gjaldskrá I fyrirtækisins, þ.e.a.s. hlutur blað- ' anna, sem eftir urðu, í reksturs- , kostnaði Blaðaprents stækkaði i mjög. Síðari hluta árs mun rekstur \ Helgarpóstsins hafa rétzt nokkuð J og samkvæmt bráðabirgðauppgjöri j munu endar síðastliðins mánaðar I ná nokkurn veginn saman, en ekki 1 þó svo að unnt sé að greiða niður . j skuldir. / DÖdU- GARÐURINN ____xpnar í Aóalstosti 9____ Erla Ólafs hefur opnað nýja kvenfataverslun í Aðalstræti 9. Erla er reyndar eiginkona herra Garðars í Herragarðinum, þannig að það kom aðeins eitt nafn til greina á nýju búðina: ______ Dömuaarðurinn. __ Dömugarðurinn er fullur af fötum og skóm fyrir dömur á öllum aldri. Fötum sem ekki eru valin af handahófi, heldur fengin hjá virtustu og frægustu fataframleiðendum heims. Meðal beirraeru: nstian D íor_____ Cristian Dior Paris, óumdeilanleqa eitt þekktasta merkið í tískuheiminum. Við verðum með Dior kvenskó í mjög góðu úrvali. ___________,<M Jaeqer, klassískar vörur sem aldrei verða gamlar. Jaeger er sérstaklega þekkt fyrir úrvals ullarvörur og frábæra hönnun. _______daniel hechter_________________ Daniel Heckter, bekktur tískukóngur í París sem gjarnan fer ótroðnar slóðir. í Dömugarðinum verður áherslan sem sagt á vönduðum fatnaði, framleiddum úr úrvals efnum eftir fyrirsögn færustu fatahönnuða. Erla hefur fengið til liðs við sig sem verslunarstjóra Svölu Haukdal og saman eru þær ákveðnar í að veita viðskiptavinum sínum bestu biónustu í bænum. Aðalstræti 9 - Sími 16600 Stjóm útgáfufelags Helgarpóstsins kannar nú möguleika á sölu blaðsins. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins hafa a.m.k. tveir aðilar sýnt áhuga á að kaupa hlaðið og er annar þeirra aðila Ásgeir Hannes Eiríksson kaup- maður. Fyrirhugað var að í dag yrði haldinn framhaldsaðalfundur Vit- aðsgjafa, sem er útgáfufélag Helg- arpóstsins, en fundinum hefur verið frestað í einn mánuð, að því er segir í bréfi, sem framkvæmdastjóri blaðsins, Bjarni P. Magnússon, hef- ur sent handhöfum hlutafjárins. Bjarni vildi í gær ekkert tjá sig um málið að svo stöddu, en staðfesti, að áðurnefnt bréf hafi verið sent hluthöfum. í bréfinu segir, að á síð- ustu vikum og dögum hafi ýmsir möguleikar komið fram á lausn fjárhagsvandamála blaðsins, sem treyst gætu sjálfstæði þess og á for- sendum þeirra hafi stjórnin ákveðið að fresta aðalfundinum á meðan þessir möguleikar yrðu kannaðir nánar. I bréfi Bjarna P. Magnússonar til hluthafa segir, að rekstur Helgar- píóstsins hafi í ár ekki gengið sem skyldi. Samkvæmt uonlvsimrum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.