Morgunblaðið - 12.11.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
5
Síldveiðar ganga vel
Allharöur árekstur varð á horni Grensásvegar og Hæðargarös í gærmorgun. Atvik voru þau að Volvo-Lapplander var
ekið norður Grensásveg, en Toyota-bifreið var í þann mund ekið yfir gatnamótin og hugðist ökumaðurinn aka inn
Hæðargarð. Skullu bílarnir saman á gatnamótunum. Lítil meiösli urðu á fólki, en maður í Toyota-bílnum meiddist
lítilsháttar. Við áreksturinn valt Volvo-bifreiðin og skemmdist talsvert, en hinn billinn er nánast ónýtur, samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar. Ljósmynd: j.s.
MORGIINBLAÐINU barst í gær svo-
hljóðandi orðsending frá séra Jóni A.
Baldvinssyni, öðrum umsækjanda um
stöðu sóknarprests við Fríkirkjuna i
Keykjavík. Er hún stíluð til safnaðar-
ins:
„Af persónulegum ástæðum hef
ég ákveðið að draga umsókn mína
um prestsembættið í söfnuði ykkar
til baka.
Um leið og ég þakka þeim, sem
sýndu umsókn minni áhuga, bið ég
söfnuðinn að taka myndarlega á
móti sr. Gunnari Björnssyni og fjöl-
menna á kjörstað.
Megi blessun fylgja störfum hans.
— Sr. Jón A. Baldvinsson."
Veitt lausn
36.000 lestir komnar á land síðastliðinn þriðjudag
SÍLDVEIÐAR ganga vel þessa dag-
ana og á þriðjudagskvöld höfðu
veiðzt 36.000 lestir, en á sama tima i
fyrra nam veiðin 29.000 lestum. Nær
öll síldin er nú söltuð, en smávegis á
enn eftir að salta af sérverkuðum
síldarflökum og einnig mun eitthvað
saltaö fyrir innlendar niðursuðuverk-
smiðjur.
Veiðum í lagnet var hætt um
síðustu mánaðamót, en þá höfðu
veiðzt í þau um 2.000 lestir. í nót
hafa veiðzt 23_.500 lestir og 10.500 í
reknet. í gær var góð veiði í rek-
netin og vitað er um tvo báta, sem
fengu fullfermi út af Herdísarvík.
Nokkuð hefur borið á því að halda
hefur orðið aftur af skipum til þess
að svigrúm vinnist til að vinna afl-
ann í landi, en afkastageta í fryst-
ingu er víða takmörkuð vegna þess
að samhliða henni er unnið í öðr-
um fiski. Síld er nú að mestu fryst
á svæðinu frá Höfn í Hornafirði
vestur á Akranes.
Morgunblaðið spjallaði í gær við
Guðjón Ólafsson, skrifstofustjóra
Fiskiðjunnar í Vestmannaeyjum,
og sagði hann, að mikið væri að
gera í frystingunni og unnið nán-
ast dag og nótt. Afkastagetan væri
85 til 100 lestir á sólarhring, en
alls væri nú búið að taka á móti
730 lestum, sem skiptust á milli
frystingar og flakasöltunar. Þá
væri einnig unnið í öðrum fiski.
Hann gat þess, að bæði Gullborgin
og Ófeigur III væru að fá full-
fermi, 80 til 90 lestir, út af Herdís-
arvíkinni, en þeir væru báðir á
reknetum. Sú síld kæmi til Eyja í
dag og yrði þá meira en nóg að
gera. Vegna þess hefði hann haft
samband við báta, sem væru á
veiðum til að fá þá til að doka við
svo ekki kæmi til vandræða, ætl-
unin væri að gefa starfsfólki frí á
sunnudaginn. Enda borgaði sig
ekki að frysta síld í næturvinnu.
Dró umsókn
sína til baka
ormi i
allegum
ötum
Fimm skip seldu
erlendis í vikunni
FIMM íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn í Englandi og I'ýzkalandi í þess-
ari viku. I næstu viku eru fyrirhugaðar
10 sölur erlendis, en fiskmarkaðurinn
i Fleetwood hefur enn ekki verið
opnaður. Skipin selja því aðallega í
Grimsby og Hull í Englandi og Brem-
erhaven og ('uxhaven í Þýzkalandi.
Eyjaflotinn
stækkar
Vestmannaeyjum 11. nóvember.
NÚ í vikunni fjölgaði í skipastól
Vestmanneyinga. Tveir ungir
sjómenn, Guðjón Örn Aðal-
steinsson og Bragi Júlíusson,
hafa keypt hingað Haftind HF
123, 42ja lesta trébát frá Hafn-
arfirði.
Bátur þessi var smíðaður á
Seyðisfirði árið 1946, búinn
350 ha. Cummins-vél, frá 1975.
Hið þekkta aflaskip Guð-
mundur RE 29 verður gert út
frá Vestmannaeyjum í vetur.
Það er Hraðfrystistöð Vest-
mannaeyja sem hefur tekið
við útgerð skipsins.
-hkj.
Freyja RE seldi á mánudag 64,5
lest í Grimsby. Heildarverð var
1.053.700 krónur, meðalverð 16,33.
Sama dag seldi Sunnutindur SU 92,1
lestir í Hull. Heildarverð var
1.549.000 krónur, meðalverð 16,81. Á
þriðjudag seldi Ársæll HF 117,6
lestir í Grimsby. Heildarverð var
1.814.600 krónur, meðalverð 15,43.
Sama dag seldi Hólmanes SU 143,1
lest í Bremerhaven. Heildarverð var
1.769.100, meðalverð 12,36. Viðey RE
seldi á miðvikudag 202,2 lestir" í
Bremerhaven. Heildarverð 2.667.100
krónur, meðalverð 13,19.
Samúðarbók í sendi-
ráði Sovétríkjanna
MORGUNBLAÐINU barst í gær svo-
hljóóandi fréttatilkynning frá sendi-
ráði Sovétrikjanna á íslandi:
„Sendiráð Sovétríkjanna á íslandi
tilkynnir með djúpri hryggð, að
þann 10. nóvember 1982 varð bráð-
kvaddur Leoníd ílits Brésnjef, for-
seti forsætisnefndar Æðsta ráðs
Sovétríkjanna og aðalritari mið-
stjórnar Kommúnistaflokks Sovét-
ríkjanna.
Samúðarbók mun liggja frammi í
Túngötu 9, fimmtudaginn 11. nóv-
ember frá klukkan 14 til 18, föstu-
daginn 12. nóvember frá klukkan 11
til 13 og 15 til 18.“
frá embætti
FORSETI íslands hefur hinn 8.
þ.m., samkvæmt tillögu dómsmála-
ráðherra, veitt Loga Einarssyni,
hæstaréttardómara, lausn frá emb-
ætti frá 1. janúar 1983 að telja,
samkvæmt ósk hans, að því er fram
kemur í frétt frá Dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu.
OG UMBOÐSMENN
UM LAND ALLT
rCesar — Akureyri, Eplið — ísafirði, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavik, Alfhóll — Siglufirði, Nína — Akranesi, Ram ■
Húsavík, Bakhúsið — Hafnarfirði, Austurbær — Reyðarfirði, Kaupfél. Rangæinga Hvolsvelli, Sparta — Sauðárkróki, Skógar -
Egilsstöðum, isbjörninn — Borgarnesi, Lea — Ólafsvík, Lindin — Selfossi. Paloma — Vopnafiröi, Patróna — Patreksfirði, Báran -
Grindavík, Þórshamar — Stykkishólmi, Inga — Hellissandi, Hornabær — Höfn Hornafirði.