Morgunblaðið - 12.11.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
ítalska stjórn-
in segir af sér
Ekkert samkomulag um fjárlagafrumvarp
Kómaborg, 11. nóvember. Al\
GIOVANNI Spadolini, forsætisráíihcrra Ítalíu, ákvaö i dag aö segja af sér fyrir
sig og ráöuneyti sitt. Astsöan er ósamkomulag milli kristilegra demókrata og
sósíalista innan stjórnarinnar. Sandro Pertini, forseti landsins, neitaði að svo
stóddu að taka lausnarbeiönina til greina og skoraði á stjórnarflokkana að
jafna ágreininginn. Kkki er vitaö hvaða áhrif þessi afstaða forsetans kann að
hafa en ekki talið útilokað, að Spadolini leiti til þjóöþingsins og fari fram á
traustsyfirlýsingu þess.
Fimm stjórnmálaflokkar eiga
aðild að stjórn Italíu nú. Það eru
kristilegir demókratar, sósíalistar,
jafnaðarmenn, frjálslyndir og svo
Lýðveldisflokkurinn, sem er flokk-
ur Spadolinis sjálfs. Það eru efna-
hagsmál, sem ágreiningi valda
milli stjórnarflokkanna. Enn hefur
ekki tekist samkomulag innan
stjórnarinnar um fjárlagafrum-
varp, sem lagt skal fyrir þjóðþingið
eigi síðar en í lok þessa mánaðar.
Kólumbía
ögn á eftir
áætlun
('ape ( anaveral, 11. nóvember. Al\
(■KIMSKl'TLAN Kólumhía lagði í
sína fimmtu ferð út í geiminn i g«r
og gekk allt að óskum. Fjórir geim-
farar eru um horð og gervitungl sem
koma á fyrir í geimnum. Foringi
ferðarinnar er geimfarinn Vance
llrand, sem kom meðvitundarlaus
til jarðar eftir Apollo/Soyus geim-
ferð Bandaríkjamanna og Sovét-
manna árið 1975.
Þetta er önnur ferð Kólumbíu í
röð sem stenst algerlega tíma-
áætlun, nokkuð sem starfsmenn
Geimferðastofnunar Bandaríkj-
anna eru afar ánægðir með til
þess að laða að viðskiptavini. Um-
sjónarmaður geimskotsins að
þessu sinni, A1 O’Hara, baðst þó í
gríni afsökunar á því að skutlan
hafi lagt sex hundruðustu úr sek-
úndu of seint af stað!
Moskvubúar kaupa sér myndir at hinum látna forseta I dag.
Mismunandi viðbrögð fólks
við dauða Brezhnevs í Moskvu
Mo.skvu, II. nóvember. AP.
VIÐBRÖGÐ fólks í Moskvu við
dauöa Leonid I. Brezhnevs voru á
mismunandi vegu. í flestum tilvik-
um voru þau afar látlaus og í mikilli
mótsögn við hina skipulögðu aðdáun
hvar sem hinn látni leiðtogi kom
fram. Brezhnev kom síðast fram
opinberlega á sunnudag.
Hópar fólks fylltu Rauða torgið
í miðborg Moskvu er dauði
Brezhnevs var tilkynntur um kl.
11 að staðartíma. Fólk virtist
undrandi á fregnunum og sumir
sögðust ekki trúa því að leiðtoginn
væri allur. Meirihluti alþýðunnar
lét lát Brezhnevs ekki neitt á sig
fá. í stórri verslunarmiðstöð í
miðborginni fór allt fram með
eðlilegum hætti og fólk ranglaði
búð úr búð án þess að sýna svip-
brigði af einu eða öðru tagi.
Borgarar hristu almennt höfuð-
ið við spurningum vestrænna
fréttamanna er þeir reyndu að
grafast fyrir um viðbrögð fólks og
hvern það teldi mundu taka við
embætti leiðtogans. Sumir höfðu
heyrt tilkynninguna um dauða
Brezhnevs í sjónvarpi, en aðrir að-
eins af afspurn.
Fyrstu merkin um viðbrögð i
Moskvu komu í ljós þegar sovéskir
fánar með svörtum sorgarborðum
voru dregnir að húni skömmu eftir
hádegið. Greinilegt var þó á
mörgu fólki, að það gerði sér ekki
grein fyrir hvern var verið að
syrgja. Héldu margir að Kirilenko
hefði látist.
Dauði Brezhnevs var ekki til-
kynntur opinberlega fyrr en rúm-
um 26 stundum eftir dauða hans.
Orðrómur hafði þó verið á kreiki í
Moskvu frá því í gærkvöld.
Margaret Thatcher um njósnamálið í Cheltenham:
Brezhnevs minnst
sem mikilhæfs leiðtoga
Washington, Bonn, Tel Aviv, 11. nóvember AP.
„Allt tjón er um leið tjón
Atlantshafsbandalagsinsu
l.undunum, II. nóvember. Al\
FJÖLDI þjóðarleiðtoga minntist Leonids Brezhnevs, forseta Sovétríkjanna í
dag og margir þeirra lýstu honum sem einum áhrifaríkasta og mikilhæfasta
stjórnmálaleiðtoga okkar tíma. Konald Reagan, forseti Bandaríkjanna sagði,
að Brezhnev hefði verið mikilvægasti stjórnmálaleiðtogi heims í nær tvo
áratugi og sendi fjölskyldu hans svo og sovézku stjórninni samúðarkveðjur.
Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýzkalands lýsti Brezhnev sem einörð-
um baráttumanni fyrir málsstað Sovétrikjanna, er lagt hefði sig fram við að
koma samskiptum Sovétríkjanna og Vestur-Þýzkalands í eðlilegt horf.
„ÞAÐ er ekki aðeins að uppljóstran-
ir Geoffrey Primes hafi skaðað hags-
muni Bretlands heldur og Banda-
ríkjanna um leið. Allt það tjón sem
okkur og Bandaríkjamönnum er
unnið er um leið tjón Atlantshafs-
bandalagsins," sagöi Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, um leið og hún tilkynnti neðri
málstofu breska þingsins i dag, að -
hafin yrði tæmandi rannsókn á
njósnastarfsemi Primes.
„Það eru á hinn bóginn engar
sannanir fyrir því,“ sagði Thatch-
er ennfremur, „að Prime hafi haft
aðgang að upplýsingum um hern-
aðaráætlanir okkar og banda-
manna, né skjölum um kjarnorku-
vopn.“
Fram hefur komið í breskum
dagblöðum, að Bandaríkjamenn
telja sig hafa vissu fyrir því, að
Prime viti um nöfn þriggja ann-
arra njósnara, sem starfa á vegum
Sovétmanna, en ekki hafi verið
skýrt frá því af pólitískum ástæð-
um.
Síðdegisblaðið The Sun hefur í
dag eftir háttsettum embættis-
manni innan Scotland Yard, að
Bandaríkjamenn telji sig vita að
Prime hafi fyrir rétti játað að vita
um nöfn þriggja annarra njósn-
ara, þó ekki nauðsynlega innan
Cheltenham-stöðvarinnar.
Fyrrum aðstoðaryfirmaður
bandaríksu leyniþjónustunnar,
CIA, Ray Cline, sagði að hann
teldi augljóst, að uppljóstranir
Primes hefðu veitt Sovétmönnum
geysilega mikilvægar upplýsingar
um starfsemi og vinnubrögð leyni-
þjónustu Breta og Bandaríkja-
manna, sem aftur yrði til þess að
Sovétmenn myndu breyta öllum
sínum dulmálslyklum og sending-
um.
ísraelska stjórnin gaf ekki út
neina yfirlýsingu í tilefni fráfalls
Brezhnevs, en í útvarpi þar í landi
var sagt í dag, að stjórn landsins
vonaðist til þess, að breytingar
innan sovézku stjórnarinnar yrðu
til þess að breyta stefnu Sovétríkj-
anna gagnvart Israel, en stjórn
Sovétríkjanna hefur þótt draga
taum Araba í viðskiptum þeirra
við ísraelsmenn.
Ekkert var vitað um viðbrögð
brezku stjórnarinnar í dag en gert
ráð fyrir, að hún myndi senda
samúðarkveðju til sovézkra
stjórnvalda samkvæmt venju. Það
voru Sovétmenn, sem fyrstir gáfu
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra viðurnefnið „járnfrúin".
Mauno Koivisto, forseti Finn-
lands kom fram í útvarpi og sjón-
varpi í dag og lýsti yfir „djúpum
harmi sínum" vegna dauða
Brezhnevs, sem Koivisto lýsti sem
einum mesta stjórnmálaleiðtoga
okkar tíma.
Pierre Trudeau, forsætisráð-
herra Kanada , sem nú er á ferða-
lagi um Evrópu, lýsti í dag yfir
samúð sinni vegna fráfalls
Brezhnevs og lýsti honum sem
virtum stjórnmálaleiðtoga, sem
óskað hefði eftir friði fvrir þjóð
sína.
SINDRA
STALHE
Fyrirliggjandi í birgðastöð
plötujárn
Þykktir frá 2—50 mm
ýmsar stæröir.
m.a. 1000x2000 mm
1500x3000 mm
1500x5000 mm
1500x6000 mm
1800x6000 mm
Borgartúni31 sími27222
m m
Dauði Brezhnevs harm-
aður í Austur-Evrópu
VIÐBRÖGÐ við dauða Leonid Brezhnevs í Austur-Kvrópu voru flest á einn
veg. Var dauöi hans harmaður víðast hvar, utan í Rúmeníu þar sem andláts
hans var einungis getið i einni setningu innan um aðrar fréttir. Hér á eftir
verður greint frá viðbrögðum í einstökum löndum.
A-l>ýskaland: Boðað var til sér-
staks fundar í miðstjórn austur-
þýska kommúnistaflokksins þar
sem dauði Brezhnevs var harmað-
ur. Var honum á fundinum lýst,
sem dyggum lærisveini Leníns.
Ilngverjaland: Dagskrá útvarps
var rofin til þess að skýra frá
dauða Brezhnevs. Var fréttin
margendurtekin. Þá var leikin
sorgartónlist og m.a. „Vetur" úr
verki Vivaldis „Árstíðirnar fjór-
ar“.Á fundi, sem boðað var til í
miðstjórn ungverska kommún-
istaflokksins í tilefni fréttarinnar,
stóðu meðlimirnir upp í virð-
ingarskyni við hinn látna.
Búlgaría: Útvarpið í Sofíu til-
kynnti tíðindin og færði sovéskum
ráðamönnum um leið samúðarósk-
ir. Víða um Iandið var vinna
stöðvuð í verksmiðjum.
Júgóslavia: Um 1.600 fulltrúar á
ársþingi verkalýðsfélaga risu úr
sætum sínum í eina mínútu í virð-
ingarskyni við hinn látna leiðtoga.
Tékkóslóvakía: Brezhnev var
enn í lifenda lífi í Tékkóslóvakíu í
morgun. Dauði hans var tilkynnt-
ur í 10-fréttum útvarpsins. Fánar
blöktu í hálfa stöng.
Pólland: Tíðindin um dauða
Brezhnevs heyrðust fyrst kl. 10 í
útvarpi. Voru leikin sorgarlög áð-
ur en haldið var áfram með
dagskrána. „Dauði eins manns
breytir engu,“ er haft eftir pólsk-
um verkamanni, en leiðtogar þjóð-
arinnar orðuðu fráfall Brezhnevs
sem „mikinn missi."
I Kína var við því búist að dauði
Brezhnevs myndi verða til þess að
hægja á samningaviðræðum Sov-
étmanna og Kínverja. Skýrt var
frá dauða leiðtogans í stuttum til-
kynningum, bæði í útvarpi og
sjónvarpi.