Morgunblaðið - 12.11.1982, Side 17

Morgunblaðið - 12.11.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 17 Florencio B. Campomanes, hinn nýkjörni forseti FIDE, veifar sigri hrósandi eftir að úrslit höfðu verið tilkynnt í forsetakjörinu í gær- morgun. Símamynd AP. þessu hefur oft verið varpað fram. Talað var um klofning þegar Viktor Korchnoi gagn- rýndi FIDE vegna heimsmeist- araeinvígisins í Baguio á Fil- ippseyjum. Þá sögðu allir að Evrópa myndi kljúfa sig útúr — fyrir Korchnoi var þessu varpað fram, þegar Bobby Fischer setti fram sínar kröfur, þá gekk FIDE að þeim — og Rússar hótuðu að kljúfa. Þetta kjaftæði hefur loð- að við FIDE um langt skeið — þetta er bara kjaftæði sem ekki er mark á takandi." „Ekki eru allir viðhlæjendur vinir“ — Sovétmenn studdu Campo- manes vegna Korchnoi-máls- ins, segir Guðmundur G. Þór- arinsson „Ekki eru allir viðhlæjendur vinir — flest ríki Araba brugð- ust okkur. Það er greinilegt, að fulltrúar margra ríkja stóðu ekki við gefin loforð um að styðja Friðrik Ólafsson. Það virðist ljóst, að Sovétmenn og Símamynd AP. ■ðli sambandsins í kjörkassann. austurblokkin studdu Kazic í 1. umferð og fóru yfir á Campo- manes í 2. umferð. Rússar sögðu það skýrum orðum, að þeir hefðu verið óánægðir með frestun ein- vígis Karpovs og Korchnois í Merano. Sevasteianos, aðal- fulltrúi Rússa sagðist hafa varað Friðrik Ólafsson við frestun. Það er ljóst, að Korchnoi-málið varð Friðrik að falli. Erfitt er að segja hvernig ein- stök ríki hafa greitt í leynilegri atkvæðagreiðslu, en ýmis lönd sem við áttum að geta treyst eins og Kanada, Wales — jafnvel Bandaríkin, hafa brugðizt okkur á siðustu stundu," sagði Guð- mundur G. Þórarinsson í samtali við blaðamann Mbl. í Luzern. „Innan FIDE eru 120 ríki — þriðji heimurinn hefur afl at- kvæða á bak við sig og það ræður úrslitum. Friðrik hefur staðið sig mjög vel í starfi — hann hélt góðar ræður, stjórnaði fundum FIDE af röggsemi — þannig að málefnalega stóð hann vel. Campomanes háði sína kosn- ingabaráttu með fjármagni fremur en rökum. Mér finnst þetta sorgardagur í sögu FIDE, sérstaklega þegar haft er í huga að FIDE mun í vaxandi mæli vinna með alþjóðlegum stofnun- um, eins og UNESCO. Það er ekki heppilegt, að í forsetastóli sitji maður sem náð hefur kosn- ingu með fjárgjöfum. Skáksamband íslands stóð sig mjög vel hér í Luzern — þeir Gunnar Gunnarsson, forseti sambandsins, Þorsteinn Þor- steinsson, varaforseti, og Frið- þjófur M. Karlsson unnu gott starf. En við máttum okkar lítils gegn margnum — og fjármun- um. Júgóslavar segja, að Campo- manes hafi borgað farseðla fyrir fulltrúa ýmissa ríkja. Sagt er, að hann hafi lagt allt upp í hálfa milljón dala í kosningabaráttu sína — hann ferðaðist vitt og breitt um heiminn og bar gjafir á menn. Þegar búið var að telja atkvæði í fyrri umferð fórnaði Moloerovic frá Júgóslavíu hönd- um og sagði að þessar kosningar hefðu unnizt með peningum," sagði Guðmundur G. Þórarins- son. Korchnoi-málið felldi Friðrik — segir Gunnar Gunnarsson, forseti Skáksambands íslands „Þessi úrslit eru mikil von- brigði — okkur fannst liggja í loftinu, að úrslitin yrðu á annan veg og vorum bjartsýnir. En það kom í ljós að of mörg ljón voru í veginum — stórþjóðirnar vógu þyngst á metunum. Hvorki Sov- étmenn né Bandaríkjamenn studdu við bakið á Friðriki. Sov- étmenn eru Friðriki reiðir vegna Korchnoi-málsins. Það ristir dýpra en ég hélt — Korchnoi- málið felldi Friðrik Ólafsson," sagði Gunnar Gunnarsson, for- seti Skáksambands Islands, í samtali við blaðamann Mbl. í Luzern. „Þá má segja að það hafi verið mistök hjá Friðriki að fara ekki til Afríku og kynnast málefnum Afríkuríkja af eigin raun — kynnast forustumönnum Afríku- ríkja. En fyrst og fremst var vont að hafa hvoruga stórþjóð- ina á bak við Friðrik. Það kom á daginn að Campomanes hafði tryggt sér stuðning Rússa fyrir- fram. Bretar stóðu dyggilega við bakið á Friðriki — Raymond Keene er forseti Skáksambands samveldisríkja og beitti áhrifum sínum óspart. En það kom fram hjá mörgum, að Campomanes hafði farið nánast alls staðar — og manni finnst lúalegt að kaupa atkvæði — málefni eiga að ráða.“ Sorgardagur í sögu FIDE — segir David Levy, fulltrúi Skotlands „Þetta er sorgardagur í sögu FIDE — miðstöð alþjóðaskák- sambandsins verður flutt frá Evrópu — frá mestu skákþjóð- um heims þar sem flestir bestu skákmenn heims eru. Friðrik Ólafsson hafði bryddað upp á fjölmörgum nýjungum í starfi FIDE — hann hefði getað gert svo mikið fyrir FIDE, hefði hann fengið að halda áfram starfi sínu,“ sagði David Levy, fulltrúi Skotlands á þingi FIDE í Luz- ern, í samtali við blaðamann Mbl. „Það er ljóst, að úrslitin réðust ekki af hag skákarinnar — skák- in var sett til hliðar og persónu- legur metnaður einstakra manna réð ríkjum. Þetta er upp- hafið að endalokum FIDE,“ sagði Levy. Sprungur hafa mynd- azt innan FIDE — scgir Rolf Littorin, fulltrúi Svíþjóðar „Þetta er sorgardagur — skák- in var látin víkja fyrir pólitík. Þriðji heimurinn hefur yfirtekið FIDE — sem hefur misst mik- ilhæfan forseta. Þungamiðjan í starfi FIDE mun færast frá Evr- ópu til Asíu — frá helstu skák- þjóðum heims,“ sagði Rolf Litt- orin, fulltrúi Svíþjóðar, i samtali við Mbl. „Þetta hefur það í för með sér, að Evrópa verður að taka ein- dregnari afstöðu — sprungur hafa myndazt innan FIDE. Það skal ósagt látið hvort FIDE klofnar — og það skiptir kannski minnstu. Evrópa tekur héðan í frá eindregna afstöðu — og Sov- étmenn verða að fylgja V-Evr- ópu því þar eru öll sterkustu mótin, — þar eru bestu verð- launin og þar tefla bestu skák- mennirnir,“ sagði Rolf Litterin. Eg mun hætta hjá FIDE — segir Bakker, ritari FIDE „Þessi úrslit eru mér mikil vonbrigði. Friðrik Ólafsson vann að mörgum góðum málum, sem hann því miður fær ekki að ljúka. Allt starf hans hefur feng- ið snöggan endi. Fulltrúar hér hafa valið Campomanes sem boðaði „breytta stefnu", og breytta starfshætti. Ég tel að Friðrik hafi verið á réttri braut — að breytinga sé ekki þörf og vil því ekki taka þátt í því að breyta. Ég mun því hætta hjá FIDE,“ sagði Ineke Bakker, rit- ari FIDE, í samtali við Mbl. „Skoðanir okkar Friðriks fóru saman, ég hef átt gott samstarf með honum í 4 ár. Ég er ekki sammála skoðunum Campoman- es — þess vegna hætti ég,“ sagði Bakker. k og jum“ Campomanes. Hætt væri við að FIDÉ klofnaði, Sevatianos, aðal- fulltrúi Sovétmanna, kom til mín eftir kosninguna og bauð mér formennsku í nefnd FIDE hjá UNESCO. Ég afþakkaði, sagði að úr því þeir vildu mig ekki sem forseta, þá þýddi ekki að stinga dúsu upp í mig með formennsku í nefnd. Það væri ekki stórmannlegt. Það er tvennt sem ég tel að skipti meginmáli í hvernig end- anleg úrslit urðu. Annars vegar afstaða Sovétmanna og hinsveg- ar Arabal. Sovétmenn höfðu gert það upp við sig löngu fyrir þingið að styðja við bakið á Campomanes. Þar virðist Korchnoi-málið hafa skipt meginmáli, þeir gerðu sér- stakt samkomulag við Campo- manes þess eðlis, að Krogius verði kosinn í framkvæmda- nefnd FIDE — mikilvæga nefnd innan FIDE. Með þessu virðist sem eigi að fórna Averbach, sem er mikilsvirtur fyrir störf sín í þágu skákarinnar, fyrir Krogius, sem er lítt þekktur. Hin meginástæðan er afstaða Araba, þeir studdu mig alveg undir það síðasta. Svo virðist sem daginn fyrir þingið þá hafi þeir breytt um afstöðu, af hverju er erfitt að meta en engum vafa er undirorpið að að einhverskon- ar samkomulagi var komist við Campomanes. Menn vita sem er, að ekki þýð- ir að múta Aröbum með dollur- um — af þeim hafa þeir nóg en hinsvegar er almannarómur hér, að ísrael hafi að einhverju leyti komið inn í þetta samkomulag. Að ísrael muni á næstunni verða fyrir barðinu á þessu samkomu- lagi. En ljóst er, að púsluspil Campomanesar gekk ekki upp fyrr en daginn fyrir þingið þegar Arabar ákváðu að ganga til liðs við hann. Hér í Luzern var mjög hörðum áróðri beitt gegn Evrópu — og úrslit kosninganna sýna að þriðji heimurinn og flest sósíal- istaríkin snerust gegn ríkjum Evrópu. Sem dæmi um þessa af- stöðu er Argentína: Fulltrúi Argentínu sagðist að mörgu leyti hlynntur framboði mínu, en Falklandseyjastríðið kæmi í veg fyrir að hægt væri að kjósa mig — jú ég væri Evrópubúi og V-Evrópa hefði stutt Bretland í stríðinu. Þetta ásamt svo fjöl- mörgu öðru sýnir að annarleg sjónarmið réðu í kosningunum til forseta FIDE — sjónarmið sem koma skákinni í engu við.“ — Sérðu eftir að hafa tekist á við forsetaembættið? „Nei, alls ekki. Þetta hefur verið mikil lífsreynsla. Ég kom til FIDE sem nýgræðingur að mörgu leyti — eins og sveita- strákur til borgarlífsins. Þetta er allt annar heimur — allt önn- ur sjónarmið ráða en maður hef- ur alist upp við. Ég hef alist upp við að standa við orð mín — heiðarleika. Því harðneitaði ég, meðal annars að farið væri út á sömu braut og Campomanes — það kom til að mynda til álita hjá stuðningsmönnum mínum, að borga fargjaldið undir full- trúa frá Bólivíu svo hann gæti greitt atkvæði sitt — væntan- lega til mín. Vitað er, að Campo- manes greiddi fargjald fjöl- margra fulltrúa hingað tij Luz- ern — ég hafnaði því alfarið, að farið væri út á þá braut að greiða fargjaldið fyrir fulltrúa Bólivíu. Með því væri farið inn á sömu braut og andstæðingurinn — nota sömu meðul og hans og slíkt kom ekki til greina. Ég vildi heldur falla heiðar- lega — með sjálfsvsirðingu en ná kosningu með sömu meðulum og andstæðingurinn. — Hvað er framundan hjá þér — nú þegar þér hefur verið ýtt til hliðar sem forseti FIDE. Munt þú byrja að tefla á ný? „Um það er ómögulegt að spá — ætli ég hafi ekki misst of mik- ið úr til þess að ná toppnum í skákinni — hef líklega gloprað of miklu niður bæði hvað lær- dóm snertir og ekki síður tilfinn- ingunni — en hver veit — ef árangur næðist þá væri það freistandi — en kostaði gífurlegt átak. Ýmsir hafa verið að gera því skóna að ég byði mig fram á ný 1986 — ég veit ekki hversu fýsilegt það er. Það er ekki freistandi að vera í forsvari fyrir FIDE þegar skákin skiptir ekki lengur höfuðmáli — þegar póli- tík og baktjaldamakk ríkja. Því auðvitað er ég fyrst og fremst skákmaður — hef reynt að þjóna FIDE sem slíkur," sagði Friðrik Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.