Morgunblaðið - 12.11.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
19
Nokkrar konur úr Kvenfélagi Karlakórs Reykjavíkur á meðal munanna, sem
boónir verða á basar félagsins. Ljósm.: KÖE.
Kvenfélag Karlakórs
Rvíkur heldur basar
i **
Bíóhöllin:
Svörtu tígrisdýrin
KVENFÉLAG Karlakórs Reykjavík-
ur heldur bazar aö Hallveigarstöö-
um laugardaginn 13. nóvember og
hefst hann klukkan 14.
í fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu hefur borizt, segir að á
boðstólum verði fjölbreytt úrval
handavinnumuna, prjónavara,
föndurhlutir, og einnig ýmsir jóla-
munir. Þá bjóða konur upp á hinar
„heimsfrægu" söngkökur félags-
ins.
Basar Kven-
félags Há-
teigssóknar
KVENFÉLAG Háteigssóknar heldur
basar á morgun, laugardaginn 13. nóv-
ember, í Tónabæ og hefst hann klukk-
an 13.30. í ávarpi, sem prestar safnaö-
arins hafa sent Morgunblaðinu, segir
m.a.:
„Kvenfélag Háteigssóknar hefur
árum saman stutt af fórnfýsi að
þörfum Háteigskirkju og haft for-
göngu oftsinnis um fjáröflun til ým-
islegra verkefna safnaðarins. Ágóð-
anum af basarnum verður sem áður
varið til þeirra þarfa sem bíða úr-
lausnar og til starfsemi kvenfélags-
ins. Margt er ógert og ýmsu er ólok-
ið, sem þörf er á að þokist áfram.
Á boðstólum verða margir ágætir
og þarflegir handunnir munir.
Einnig verða seldar kökur á basarn-
um.
Við, prestar Háteigskirkju, hvetj-
um alla velunnara kirkjunnar til að
fjölmenna á basarinn í Tónabæ á
morgun.
Þess skal og getið að tekið verður
á móti gjöfum og munum á basarinn
í kvöld (föstudag) 1 Háteigskirkju
kl. 17—20 og á laugardagsmorgun
frá kl. 10 árdegis."
BÍÓHÖLLIN hefur frumsýnt
bandarísku kvikmyndina
„Svörtu tígrisdýrin“ með
Chuck Norris í aðalhlutverki,
en hann mun vera heims-
meistari í karate.
í myndinni leikur hann
John T. Booker, leiðtoga
Svörtu tígrisdýranna,
bandarískrar herdeildar í
Víetnam, sem er sérþjálfuð í
að ná hermönnum úr klóm
óvinanna.
MORGUN'.
L Fnr*lji*me»ii hóp. áhog.fóll.^ um frtðar og *f«opnun*rmál Á mymlinni <-m
* (f.v.) Ilrlf* Jóhannradóllir. Ólin* N.r..,A„doll.r, (.uðmundur Oorgwon.
Félnr Mallhíannoa o« Krialin iotgrinóMU,
RáÖstefna um friðar-
og afvopnunarmál
HÓPIIR áhaf.fóika um frióar of
« H !«•
A róðatrfnunni verðn flutt f)ð«
-ár' afiaaa..
atefnualjóri verftur Tryggvi Giala-
aon akólameistari
I tengslum við þraaa ráðatefnu
•tendur aami hópur fyrlr kvlk-
m> ndadagakrá I C-aal Regnhc
dagana 10.—14. nóvemþi
adi aai i
Leiðrétting við
frétt um ráð-
stefnu um friðar-
og afvopnunarmál
NOKKIJRRA missagna gætti í frétt
blaðsins í gær af ráðstefnu um frið-
ar- og afvopnunarmál, sem haldin
verður á Hótel Loftleiðum næstkom-
andi laugardag.
I fyrsta lagi var ranglega skýrt
frá tímasetningu, en rétt er að
ráðstefnan hefst kl. 9.30 laugar-
dagsmorguninn 13. nóv. Einnig er
það misskilningur blaðsins að
Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræð-
ingur sé enn blaðamaður Þjóðvilj-
ans. í þriðja lagi er það ekki rétt
sem blaðið segir um undirtekir fé-
lagasamtaka við þessari ráð-
stefnu. Þær voru ekki dræmar,
heldur nær undantekningalaust
góðar. í fjórða lagi er það ekki alls
kostar rétt að einu stjórnmála-
samtökin, sem leitað var til í sam-
bandi við ráðstefnuna, hafi verið
ungliðahreyfingar flokkanna, því
kvenfélög stjórnmálaflokkanna
fengu einnig bréf varðandi ráð-
stefnuna og fleiri félög tengd
flokkunum. Öll þessi félög
stjórnmálaflokkanna, sem haft
var samband við, tóku vel í ráð-
stefnuhugmyndina nema SUS.
Hins vegar tóku önnur félög
sjálfstæðismanna ráðstefnu-
hugmyndinni vinsamlega. Tekið
skal fram að ráðstefnunni er ætl-
að að vera vettvangur skoðana-
skipta og hún er öllum opin.
Hópur áhugamanna
um friðar- og afvopnunarmál.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
Leka-vandamál, sem
má leys
Lausar límfestingar
V-
Sérstaklega mjúkir jaðrar við
teygjuna, vemda bamið frá því
að teygjan þrengi að því.
LOTUS fellur fullkomlega
að líkama bamsins.
LOTUSerþykkog
rakaþolin. og þykkust þar
sem mest mæðir á.
LOTUS er mjúk og
meðfærileg, og hetdur
húðinni við bleyjuna nær
alveg þurri, þó bleyjan
blotni.
Vegna mjúkrar teygju,
sem heldur LOTUS
bleyjunni þétt að, er nú
ekki lengur hætta á leka
niður með lærum
bamsins.