Morgunblaðið - 12.11.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 12.11.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 Efldi áhrif Rússa í heiminum og hélt Austur- Evrópuþjóðum niðri LEONID Brezhnev forseti, sem var æðsti valdamaðurinn í Kreml um 18 ára skeið, lengur en nokkur annar æðsti leiðtogi Sovétríkj- anna, reyndi að tengja nafn sitt slökunarstefnunni, détente, en hans verður e.t.v. fremur minnzt fyrir kenningu þá, sem við hann er kennd og valdamennirnir í Kreml notuðu til þess að réttlæta innrás- ina í Tékkóslóvakíu 1968 og íhlut- un í öðrum kommúnistalöndum. Þrátt fyrir stuðning sinn í orði við détente stjórnaði hann þeirri við- leitni Rússa að standa Banda- ríkjamönnum á sporði á kjarn- orkusviðinu og það gróf undan trú vestrænna ríkja á fyrirætlunum hans og þeirri friðsamlegu sam- búð austurs og vesturs sem hann hvatti til. Brezhnev treysti stöðu Sovét- ríkjanna sem heimsveldis í valda- tíð sinni og Sovétríkin urðu risa- veldi. A valdatíma hans gerðu Bandaríkjamenn og Rússar tvo meiriháttar samninga til að draga úr kjarnorkuvígbúnaði og hætt- unni á kjarnorkustyrjöld, Salt-1 1972 og Salt-2 1979. Bandarísku forsetarnir Richard Nixon og Ger- ald Ford ferðuðust til Sovétríkj- anna, Brezhnev ferðaðist til Bandaríkjanna og þetta voru blómaár détente, en sú stefna var fallvölt. Viðurkennt var að þar sem détente ætti að tryggja frið- samlega sambúð væri helzta for- senda þessarar stefnu að tak- marka vígbúnaðarkapphlaupið. Sovézkir embættismenn sögðu að Brezhnev vildi að sín yrði minnzt fyrir að draga úr viðsjám í sambúð austurs og vesturs, fyrst og fremst með undirritun Saít-2, og fyrir að setja nýja stjórn- arskrá. En á sama tíma og Brezhnev predikaði détente varð ekkert lát á vígbúnaðarkapp- hlaupinu. Undir forystu Brezhn- evs náðu Rússar svokölluðu jafn- ræði í kjarnorkumálum, sumir sögðu yfirburðum, og venjulegur herafli þeirra varð öflugri en venjulegur herafli NATO. Efa- semdir um fyrirætlanir Rússa jukust og stuðningurinn við dé- tente dvínaði. Á síðustu stjórnar- árum Carters forseta og í tíð Reagans forseta sakaði Banda- ríkjastjórn Rússa um að tala um frið, en byggja um leið upp hættu- lega hernaðarvél og nota hana til að að raska jafnvæginu í heimin- um. Stjórn Reagans taldi eflingu sovézka heraflans svo geigvæn- lega að Bandaríkjunum stafaði hætta af. Á valdaárum sínum neitaði Brezhnev að slaka á klónni í Austur-Evrópu, hann stórefldi heraflann og reyndi að auka áhrif Rússa í heiminum, m.a. með stór- efldum flota sem sigldi um öll heimsins höf. Rússar komu í vax- andi mæli fram í hlutverki heims- veldis og höfðu síaukin afskipti af málefnum Asíu, Afríku, Miðaust- urlanda og Rómönsku Ameríku. Rússar sendu herlið inn í Afgh- anistan í desember 1979 til að bæla niður baráttu landsmanna gegn stjórn marxista, öldunga- deiíd Bandaríkjaþings neitaði að siaofesta Salt-2 og nú er svo kom- ið að loknum 18 ára valdatíma Brezhnevs að samskipti Banda- ríkjamanna og Rússa hafa sjaldan verið í eins miklum öldudal frá því Taladi um frið og détente en fylgdi herskárri stefnu heima og erlendis á dögum kalda stríðsins. Gott dæmi um andrúmsloftið var sú viðvörun Brezhnevs á byltingar- deginum, 7. nóvember, að Rússar mundu svara öllum árásaraðilum með hefndarárás sem mundi ríða þeim að fullu. Brezhnev hélt áfram hug- myndafræðilegum deilum við Kínverja á valdaárum sinum, en eftir lát Mao Tse-tungs 1976 var vonað að sambúðin við þá gæti batnað. Innrásin í Afghanistan virtist gera þær vonir að engu, en á þessu ári leitaði Brezhnev hóf- anna hjá Kínverjum á ný vegna versnandi sambúðar við Banda- ríkjamenn og hann hvatti oft til þess í haust að samskipti hinna tveggja stórvelda kommúnista yrðu færð í eðlilegt horf. í síðasta mánuði hófust viðræður milli landanna í fyrsta skipti í þrjú ár, en Kínverjar setja ýmis skilyrði fyrir eðlilegri sambúð og bæði löndin hafa enn fjölmennt herlið á landamærunum. í ágúst 1968 gerði herlið frá Sovétríkjunum og öðrum Varsjár- bandalagslöndum innrás í Tékkó- slóvakíu til að steypa stjórn Alex- anders Dubceks, sem reyndi að brjótast undan ofurvaldi Rússa og koma á kommúnisma með „mannlegu yfirbragði". Þar með batt Brezhnev enda á hættu á „endurskoðunarstefnu" og frá þessum tíma er „Brezhnev-kenn- ingin“, þess efnis að sósíalistaríki geti gripið til íhlutunar í málefni annarra sósíalistaríkja ef atburðir í einu þeirra ógni öryggi annarra. Opinber Ijósmynd af Brezhnev sem sýnd var í sovézka sjónvarpinu þegar skýrt var frá andláti hans. Myndin kom fram á sjónvarpsskerminum í Hljómbæ þar sem sendingar sovézka sjónvarpsins eru sýndar í beinni út- sendingu. i.jósm. jvim. ÓI.K.M. Brezhnev og .>vor>oda, i'orseti Tékkóslóvakíu, lyfta blómvendi til marks um vináttu í Bratislava skömmu lýrir innrásina 1968. Dubcek til vinstri, Kosygin og Podgorny fyrir aftan Brezhnev og Svoboda. Stjórnmálaráð Brezhnevs óttaðist greinilega að tilraunir eins og þær sem voru gerðar í Tékkóslóvakíu gætu leitt til þess að Austur- Evrópuríkin segðu skilið við aust- urblokkina. Aðrar Austur- Evrópuþjóðir létu sér innrásina að kenningu verða og gættu þess að styggja ekki risann í austri, þang- að til verkamenn í Póllandi létu til skarar skríða 1980. Ókyrrðin sem hófst í Póllandi sumarið 1980 var annað alvarlegt áfall fyrir valdamennina í Kreml og „Brezhnev-kenninguna" og prófsteinn á stefnu þeirra. Stjórn Brezhnevs skoraði á stjórnina í Varsjá að halda verkamönnum í skefjum og Jaruzelski hershöfð- ingi varð við áskoruninni með setningu herlaganna í desember 1980. Þar með komst á sæmileg kyrrð í landinu eftir 16 mánaða öngþveiti. Þessu tókst að koma til leiðar án þess að grípa þyrfti til nýrrar innrásar í líkingu við inn- rásina í Tékkóslóvakíu 1968. Setn- ing herlaganna spillti hins vegar sambúð austurs og vesturs, íþyngdi bágbornum efnahag Rússa og sýndi glögglega hve Rússum reynist erfitt að hafa eft- irlit með þeim löndum sem kom- ust undir áhrif þeirra eftir síðari heimsstyrjöldina. 1 Afghanistan hefur sjálfhelda skapazt í viðureign skæruliða og sovézka herliðsins þar, þótt það sé skipað tæplega 100.000 mönnum. Klerkastjórnin í Iran er tortrygg- in í garð Rússa þrátt fyrir hatur sitt á Bandaríkjamönnum. Ind- verjar hafa hins vegar færzt nær Rússum á sama tíma og Banda- ríkjamenn hafa komið til liðs við helztu fjandmenn þeirra, Pakist- ana. Stjórn kommúnista í Víet- nam er sem fyrr traustur banda- maður Rússa og fjandsamleg Kínverjum. Bandalagið við Víet- nama hefur leitt til aukinna um- svifa sovézka Kyrrahafsflotans, en þau hafa valdið nýjum efna- hagsbyrðum. Vestur-Þjóðverjar, Frakkar og fleiri Vestur-Evrópuþjóðir hafa haldið áfram umfangsmiklum við- skiptum við Rússa, þótt þau hafi tekið undir gagnrýni Bandaríkja- stjórnar á íhlutun Rússa í Afgh- anistan og ábyrgð þeirra á setn- ingu herlaga í Póllandi. Það hefur verið Bandaríkja- mönnum áhyggjuefni að þeir telja að Rússar hafi hafið nýjar til- raunir til að auka áhrif sín i Róm- önsku Ameríku með stuðningi við stjórn Sandinista í Nicaragua og í Afríku með stuðningi við Eþíópíu, Mozambique og Angola, þar sem þúsundir kúbanskra hermanna hafa hreiðrað um sig og eru raunverulegir staðgenglar Rússa. í Miðausturlöndum hafa Rússar haldið áfram að gegna hlutverki: þeir senda hergögn til Líbýu og Sýrlands og treysta samband sitt við Frelsissamtök Palestínu, sem þeir hafa veitt stjórnmálaviður- kenningu. Bandaríkin, ísrael og Egyptaland hafa hins vegar sýnt lítinn áhuga á ítrekuðum tillögum Brezhnevs um alþjóðaráðstefnu um frið í Miðausturlöndum. Heima fyrir átti Brezhnev við sömu erfiðleika að stríða í efna- hagsmálum og aðrir þeir sem hafa farið með æðstu völd í Sovétríkj- unum. I landbúnaðinum hefur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.