Morgunblaðið - 12.11.1982, Síða 23

Morgunblaðið - 12.11.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982 23 Haustið 1979 gerði sovézka sjón- varpið mikið veður út af ferð sem Brezhnev tók sér á hendur til heimabæjarins, Dneprdzerzhinsk í Úkraínu, til að minnast æskuár- anna. A fimmtán ára afmæli valdatöku hans, í október það ár, var birt mikið af heimildaefni um ævi hans og m.a. sýndur þáttur þar sem gamlir vinir hans röbb- uðu um frábæra forystuhæfileika hans. Tilgangurinn með þessu var að lýsa Brezhnev sem mikilhæfum landsföður, sem væri hátt yfir aðra hafinn, en ekki sá að vekja áhuga almennings á honum. Stjórnmálin virtust eiga" hug Brezhnevs allan og hann var mik- ill meistari í þeim áhættusömu loftfimleikum sem valdamenn verða að stunda í Kreml ef þeir ætla að halda völdunum og þar sem eitt víxlspor getur þýtt póli- tískan dauða og útskúfun. Hann gætti þess vandlega að hafa sam- starfsmenn sína með í ráðum þeg- ar taka þurfti mikilvægar ákvarð- anir, svo að tryggt yrði að þeir bæru einnig sökina ef illa færi. Á sama hátt gætti hann þess vel þegar hann reyndi að komast til valda að viðhalda sambandi við andstæðinga Krúsjeffs og trúlega hefur það átt þátt í því að hann sigraði í baráttunni um stöðu leið- toga kommúnistaflokksins. Hann gegndi þeirri stöðu æ síðan og grundvallaði völd sín á henni og það var ekki fyrr en í júní 1977 að hann bætti við sig embætti forseta Sovétríkjanna. Brezhnev tók þá virðingarstöðu frá Nikolai Podgorny, sem hafði farið með stjórnina ásamt Brezhnev og Alexei Kosygin for- sætisráðherra frá því Krúsjeff var sviptur völdum 1964, en sú stjórn gekk undir heitinu „þríeykið". Raunar hafði Brezhnev greinilega verið „fremstur meðal jafningja" síðan 1974. Kosygin sagði af sér af heilsufarsástæðum í október 1980 og þar með gafst Brezhnev færi á að treysta völd sín enn frekar. Það gerði hann með því að tilkynna að skjólstæðingur sinn, Nikolai Tik- onov yrði forsætisráðherra. Brezhnev var fæddur 19. des- ember 1906 og var því tíu ára gam- all þegar bylting bolsévika var gerð. Faðir hans var stálverka- maður og Brezhnev lagði það starf einnig fyrir sig 15 ára að aldri. Hann notaði frítíma sinn til þess að kynna sér framræslu óræktaðs lands og landmælingar í Kursk, nágrannaborg Dneprdzerzhinsk, þar sem Krúsjeff stundaði einnig nám. Hann gekk fljótlega í æsku- lýðshreyfingu kommúnista- flokksins og varð fullgildur félagi í flokknum 23 ára gamall. Árið 1935 útskrifaðist Brezhnev frá málmfræðistofnuninni í Dneprodzerzhinsk og tveimur ár- um síðar varð hann varaborgar- stjóri. Síðan varð Brezhnev einn af umdæmisleiðtogum úkraínska kommúnistaflokksins undir for- ystu Krúsjeffs. í stríðinu var Brezhnev stjórnmálaliðsforingi og varð hershöfðingi 1943 eins og Krúsjeff sem stundaði svipuð stjórnmálastörf. Sigurdaginn 1945 var Brezhnev í fararbroddi her- manna sinna á gífurlega mikilli hersýningu á Rauða torginu í Moskvu. Eftir stríðið varð Brezhnev rit- ari kommúnistaflokksins í Úkra- ínu og Moldavíu og vakti brátt at- hygli Stalíns sem gerði hann að aukafulltrúa í stjórnmálaráðinu 1952. Krúsjeff fól honum yfir- stjórn nýræktarsvæða í Kazakst- an í Mið-Asíu 1954. Gott veður tryggði metuppskeru tvö ár í röð og að launum fékk Brezhnev stöðu aðalfulltrúa í stjórnmálaráðinu 1957. Árið 1960 gerði Krúsjeff hann að forseta, sem er fyrst og fremst virðingarstaða, og menn gerðu að því skóna að Krúsjeff hefði talið að hann gæti fullnægt stjórnmálametnaði Brezhnevs með því og um leið tryggt völd sín. Fjórum árum síðar glataði Krúsj- eff völdunum og 18 ára valdaferill Brezhnevs hófst. tjó.sm. (M.K.M. með lotningu og ótta í Sovétríkj- unum og hefur að nokkru leyti fengið uppreisn æru. Hann varð valdamestur þeirra þriggja for- ystumanna sem tóku við völdun- um af Nikita Krúsjeff þegar hon- um var steypt af stóli 1964. Brezhnev kunni greinilega illa við sig í margmenni, en naut sín oft vel í hópi fárra manna, hvort held- ur verkamanna eða erlendra stjórnmálaleiðtoga. Hann var oft alvörugefinn og fálátur þegar hann kom fram opinberlega og svo mikil leynd hvíldi yfir athöfnum hans að hann var býsna fjarlægur í augum sov- ézks almennings sem vissi lítið um hann, jafnvel ekki hvað hann átti mörg börn. Stundum var hann ekki eins formfastur í ferðalögum erlendis og það var á slíkum ferða- lögum sem Viktoria kona hans sást helzt opinberlega. í ferðum sínum skýrði hann jafnvel frá nokkrum áhugamálum sínum, sem voru einkum hraðskreiðir bílar, veiðiferðir og ný rafeindartæki. Fjölskylda Brezhnevs var sjald- an í sviðsljósinu, en þó var dreift nokkrum opinberum myndum af Viktoriu konu hans í sambandi við sjötugasafmæli hennar 1977. Sagt var að frú Brezhnev hefði kynnzt manni sínum þegar þau voru bæði við nám í málmfræðistofnuninni í Dneprsdzerzhinsk. Yuri sonur þeirra varð aðstoðarutanríkis- viðskiptaráðherra. Galina dóttir þeirra fékk stöðu í Bandaríkja- stofnuninni í Moskvu. Fréttir hafa hermt að Brezhnev-hjónin ættu annan son, Mikhail, sem væri við nám í blaðamennsku. í kringum sjötugsafmæli Brezhnevs, og aftur á sjötíu og fimm ára afmælinu, var svo mikil dýrkun á persónu hans að haft var á orði að hún slagaði upp í dýrk- unina á Stalín. Afmælisins var minnzt opinberlega með mikilli viðhöfn um öll Sovétríkin. Hann var gerður að forseta Sovétríkj- anna, en sú staða bættist við störf hans sem leiðtoga flokksins, hann var gerður að marskálki Sovét- ríkjanna, brjóstmynd af honum var komið fyrir í heimaborg hans og ný sovézk stjórnarskrá var lögð fram nánast í hans nafni. Minningarathöfn um Brezhnev í sovézkri verksmióju. Myndin kom fram á sjónvarpsskerminum í Hljómbæ. víða verið pottur brotinn og það hefur leitt til matvælaskorts. Hergagnaiðnaðurinn hefur verið látinn sitja í fyrirrúmi og það hef- ur leitt til vöruskorts sem hefur lýst sér í löngum biðröðum. Sam- göngumál hafa verið í ólestri. Brezhnev reyndi að tryggja hóf- legan hagvöxt og lagði stórhuga og vanhugsaðar áætlanir fyrir- rennara síns, Nikita Krúsjeffs, á hilluna. Brezhnev og félagi hans Mikhail Suslov, sem lézt fyrr á þessu ári, komu á svokölluðum „ný-stalín- isma“ heima fyrir til að binda enda á svokallaða „þíðu“ sem hófst í bókmenntum og stjórnmál- um í tíð Krúsjeffs. Hörð stefna var tekin upp gegn starfsemi póli- tískra andófsmanna, sem ollu erf- iðleikum, þrátt fyrir mótmæli frá Vesturlöndum. Hundruð og e.t.v. þúsundir andófsmanna hafa verið dæmdir til langrar fanga- eða vinnubúðavistar, sendir í geð- sjúkrahús eða flæmdir í margra ára útlegð á afskekktum stöðum í Sovétríkjunum. Kunnasti andófsmaðurinn, Andrei Sakharov, sem vakti at- hygli á mannréttindabrotum, var handtekinn í janúar 1980, sviptur öllum vegtyllum og sendur til borgarinnar Gorky, sem er lokuð útlendingum. Listamenn og rit- höfundar eins og nóbelsskáldið Alexander Solzhenitsyn nutu nokkurs frelsis á fyrri valdaárum Krúsjeffs, en bækur þeirra feng: ust ekki birtar í tíð Brezhnevs. í listum og bókmenntum var aftur lögð áherzla á „sósíalrealisma" í þjónustu ríkisins og því til dýrðar. Solzhenitsyn var handtekinn og rekinn úr landi og aðrir rithöfund- ar voru neyddir til að fara. Rithöf- undurinn Lev Kopelev fékk leyfi til að dveljast erlendis í eitt ár, en sviptur borgararétti eftir að hann fór 1981. Alexander Ginzburg fékk að fara til Vesturlanda 1979, en ekki fyrr en skipt hafði verið á fimm fangelsuðum andófs- mönnum í Sovétríkjunum og tveimur sovézkum njósnurum á Vesturlöndum. Herferðin gegn andófsmönnum átti þátt í að spilla sambúð austurs og vesturs. Stjórn Brezhnevs undirritaði Helsinki-samninginn um öryggi Evrópu og mannréttindamál og Brezhnev og Viktoria kona hans sem lítið hefur borið á. Myndin var tekin á kjörstað 1979. leyfði að vísu rúmlega 200.000 sov- ézkum Gyðingum að flytjast úr landi, en síðan samskipti Banda- rikjamanna og Rússa versnuðu hefur sama sem engum Gyðingum verið leyft að fara úr landi. Nær allir félagar í nefnd þeirri sem andófsmenn skipuðu til að fylgj- ast með því hvernig Rússar stæðu við Helsinki-samninginn hafa ver- ið handteknir. Eðlisfræðingurinn Yuri Orlov var dæmdur til sjö ára vinnubúðavistar og fimm ára út- legðar í Síberíu 1978. Félagar úr annarri nefnd sem var skipuð til að fylgjast með misnotkun Rússa á geðlækningum, þeirra á meðal Anatoly Shcharansky, hafa einnig verið dæmdir, svo og baráttumenn trúfrelsis. Helsinki-ráðstefnan 1975 var einn mesti sigur Brezhnevs í utan- ríkismálum, en mannréttinda- málin gerðu hann að Pyrrhusar- sigri. Ráðstefnan viðurkenndi raunverulega landamæri eins og þau höfðu verið eftir heimsstyrj- öldina og drottnunarstöðu Rússa í Austur-Evrópu. Þar sem Vestur- veldin gátu komið því til leiðar að hvatt var til þess í lokayfirlýsing- unni að mannréttindi yrðu í heiðri höfð gátu þau notað mannrétt- indaákvæðið til að gagnrýna takmarkanir á málfrelsi, trúfrelsi og prentfrelsi. Brezhnev var einn þeirra svip- lausu skrifstofuembættismanna sem hófust til valda á síðari valda- árum Stalíns, sem enn er litið til

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.