Morgunblaðið - 16.11.1982, Blaðsíða 42
COLF
m ______
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
sigur, hitti hann aldrei nema níu
sinnum reglulega almennilega á
sjötiu og tveggja holu braut. Á
næstsíöustu holunni skaut hann
boltanum út á bílastæði. Djöful-
gangur hans þegar hann er að
leika er hreint ótrúlegur, og amer-
ískir golfsérfræöingar neita að viö-
urkenna hann og viröa, jafnvel þó
hann hafi unnið Greensboro Open
1978 og The Masters 1980. Þaö
hlýtur þvi að vera fulllangt gengiö
þegar aðeins almenningur dáir
hann.
Þaö er skiljanlegt aö Severiano
Ballesteros sé gullnáma fyrir fram-
kvæmdastjóra sinn, Ed Barner,
sem hefur reynst honum vel í alla
staöi og verið honum afar hliðholl-
ur. Ballesteros er ekki aðeins
framúrskarandi golfleikari, en
samkvæmt skrifum í blaöinu Golf
World var hann valinn heimsins
besti golfleikari áriö 1981, hann er
einnig afar spennandi persóna auk
þess sem hann er mjög ungur sem
gerir hann áhrifamikinn sem aug-
lýsanda.
Margir af þeim auglýsingasamn-
ingum sem hann hefur gert hafa
leitt af sér mikla öfund meöal evr-
ópskra golfleikara, þótt undarlegt
megi virðast, þar sem Ballesteros
er sagður tala mjög lítiö um pen-
inga.
Ballesteros er meö tímanum
oröinn reglulega afslappaöur í
framkomu, og þaö æsir hann ekki
lengur upp þótt hann sé minntur á
sín stærstu mistök sem golfleikara,
þegar hann var dæmdur úr leik í
US Open T980, þar sem hann
mætti of seint í startiö. Fyrir vikiö
var hann gagnrýndur gífurlega og
lýst sem hrokafullum hiröuleys-
ingja. i þá daga særöi þetta hann
en núna segir hann: „Ég gat hugg-
aö mig viö þaö að einmitt út af
þessu atviki fékk ég góöan samn-
ing viö frægt úrafyrirtæki.“
heimsins
1981
Hann var valinn
besti golfleikari
ÞAÐ ERU miklir peningar í boði þegar um eina
golfkeppni er að ræða, en þegar heilir 300.000
dollarar (nærri fimm milljónir ísl.) eru má segja
fengnir meö einu höggi, er gamanið farið aö
kárna og því vissara að standa sig.
Þetta var nú samt tilfellið þann 3. janúar á
þessu ári, þegar Ameríkumaðurinn Johnny
Miller og Spánverjinn Severiano Ballesteros
áttust við. Með þeim í keppninni voru Jack
Nicklaus og Lee Trevino, báðir frá Ameríku, og
Suður-Afríkumaðurinn Gary Player. Keppnin
„Million Dollar Challenge“ fór fram í Sun City í
Bophuthswana, Suður-Afríku. Eftir 72 holur
stóðu þeir Miller og Ballesteros jafnir að vígi,
eða meö 271 högg hvor. Það var því ákveðið aö
halda litla aukakeppni til að skera úr um það
hvor myndi hreppa umslagið þykka. Þar gat
hvert högg ráðið því hvor færi á brott með
300.000$ sem verðlaun.
Eins og margir vita var það Miller sem öllum
á óvart náði sigri eftir að Ballesteros hafði mis-
tekist högg.
Miller var þar með mesti sigurvegari sög-
unnar í golfíþróttinni — og Ballesteros annar
mesti.
Venjulegast er því þannig háttaö
aö Ballesteros er sá er fer meö
sigur af hólmi og er þá sama hvar
hann keppir. Áriö 1981 vann hann
t.d. fimm sigra í jafnmörgum lönd-
um, í Stóra-Bretlandi, Spáni, Sví-
þjóð, Japan og Ástralíu og þar
með er hann eini risinn sem hefur
unniö stórsigra af núlifandi
mönnum vítt og breitt um heiminn.
Severiano Ballesteros er aöeins
25 ára aö aldri, fæddur 9. apríl
1957, og á þrjá bræöur sem allir
voru aldir upp í fátækt á búgaröi
foreldra sinna fyrir utan Santand-
er.
Það er sagt aö fátæk börn á
Spáni hafi tvo möguleika á því aö
koma sér áfram í lífinu, þaö er að
ná frama í íþróttum, eöa gerast
nautabanar. Þaö þótti því sjálfsagt
aö Ballesteros héldi sér vió golf-
íþróttina, þar sem búgaröur for-
eldra hans lá rétt viö jaöarinn á
golfvellinum Padrena. Níu ára aö
aldri fékk hann sína fyrstu kylfu, og
var hún óspart notuö upp frá þeim
degi. Hvern dag sló hann fleiri
hundruö högg, en þar sem hann
fékk sáralítiö að vera á vellinum
sjálfum varö hann aö æfa sig í
sandinum á nærliggjandi strönd.
Ballesteros var því neyddur til
að spila með gamalli „3-járna“
kylfu í erfiöu landslagi, en engu aö
síður er það ein höfuðforsenda
þess aö í dag er hann einn besti
sem síöan þá hefur ekki verið sleg-
ió í þessari keppni. Sama ár varö
hann númer 3 í Scandinavian
Open og British Open. Sérstaklega
vakti þaó athygli þegar hann
tryggöi sér annað sætiö í Klassik
British Open-mótinu. Því var lýst
sem stórviöburöi aö 19 ára strák-
hvolpur, á sínu þriöja atvinnu-
mannstímabili, gæti verió svona
framarlega innan um úrvals golf-
leikara hvaöanæva úr heiminum.
Sjálfur var hann óhress meö aö
hafa ekki unniö.
Tvær keppnir tekur Ballesteros
fram yfir allar aörar. Önnur er
Scandinavian Open, en hana hefur
hann unniö tvisvar sinnum, og hef-
ur aldrei lent neöar en í þriöja
sæti. Hin keppnin er US Masters.
Hún er haldin ár hvert í aprílmán-
uói í Augusta, þar sem eitt mis-
heppnaö högg getur haft afdrifa-
ríkar afleióingar, eins og á Padr-
ena-vellinum þar sem Ballesteros
óx úr grasi.
Allur heimurinn þráir og dáir
keppnismenn, og er Ballesteros
sannkallaður keppnismaöur á
golfvellinum. Hann er sá maöur
sem tekur miklar áhættur og
sleppur oftast vel út úr þeim, enda
er hann gífurlega vinsæll meöal
áhorfenda. Þegar hann áriö 1979
vann British Open-mótiö á Royal
Lytham, sem var hans fyrsti stór-
golfleikari heims og á alla hylli al-
mennings.
Þaö er svo til sama hvar boltinn
er niðurkominn, hann getur ætíö
slegiö boltann á réttan hátt og þar
með komið honum inn á grænuna.
Ballesteros er staöfesting á því
sem amerikumaðurinn Arnold
Palmer sýndi oft á tíðum. „If you
can hit it you can hole it.“ „Ef þú
hittir hann eru búinn aö jaröa
hann.“
Severiano Ballesteros var 13
ára aö aldri þegar hann vann sinn
fyrsta sigur, en þá spilaöi hann 18
holur í 65 höggum á Padrenavellin-
um, fimm undir pari og þar meö
met hvað ungling varöar. Fjórum
árum síðar eða 17 ára geröist
hann atvinnumaöur í golfi og voru
þá allir bræðurnir fjórir orðnir at-
vinnumenn, en hinir eru: Baldo-
mero, Vicente og Manuel.
Sérfræðingar voru allir sammála
um að Severiano Ballesteros heföi
alla möguleika á því aó veröa
stórmenni i íþróttinni. Sjálfur var
hann efins og oft skaut sú hugsun
upp kollinum aö hætta þessu. „Ég
vinn aldrei neitt," sagöi hann
vonsvikinn.
En timinn leiö og tveim árum
síöar lét hann aö sér kveöa á
golfvöllum Evrópu, og áriö 1976
vann hann opna hollenska meist-
aramótió, átta höggum á undan
næsta manni á eftir. Er það met,
• Þarna haföi Ballestaros ástaaöu til að gleöjast, hann haföi sigraö og
var 100.000 dollurum ríkari. Já, peningarnir streyma inn til þeirra sem
eru bestu golfieikarar í heiminum.