Morgunblaðið - 16.11.1982, Side 28

Morgunblaðið - 16.11.1982, Side 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982 Minning: Helgi S. Guðmundsson fyrrv. bæjarfulltrúi Fffddur 18. nóvember 1906 Dáinn 8. nóvember 1982 í dag er borinn til grafar einn hinna traustu íslandssona. Af öll- um einstökum hugtökum lýsir hugtakið traustleiki honum hvað réttlegast og bezt. Að ytri gerð var hann sterklegur og rammger. Hið innra bar hann sömu kosti. Hvar sem hann kom að málum reyndist hann jafnan glöggur, rökfastur, yfirvegaður og sannfærandi. Ráðhollur var hann og úrræðagóð- ur, drenglundaður og hreinskipt- inn. Aldrei lagði hann öðrum illt til né mítti vamm í nokkru vita, er hann snerti. Af vinnuveitend- um og samstarfendum var hann vel liði ín og dáður. Astvinum sín- um og skyldmennum var hann sem ættarhöfðingi. Til hans voru ráðin sótt, einkum er miklu varð- aði. Þó hann kvæntist aldrei sjálf- ur, gegndi hann raunar víðfeðmu, umhyggjusömu föðurhlutverki meðal sinna. Vinfastur var Helgi og enda vinmargur. Slíkt er jafn- an einkenni valmenna. Umfram það, sem ég áður vissi af honum, staðfestist fyrir mér síðastliðin tvö ár, er við sátum saman í safn- aðarstjórn Aðventkirkjunnar í Reykjavík, eftir að ég tók þar við prestsstörfum. I þeirri stjórn var hann búinn að þjóna um 20 ára skeið sem ritari. Þar ríkir sár söknuður um horfið kostamenni, og veit ég, að með þeim orðum mæli ég fyrir munn allrar safnað- arstjórnarinnar — ennfremur fyrir munn alls safnaðarins. í öllu starfi hans fyrir söfnuðinn komu fram ofan skráðir eiginleikar. I slíku mann-samskipta-starfi eru innviðir manns reyndir til þraut- ar. En þar reyndist Helgi vandað- ur, skyldurækinn, umgengnisgóð- ur, jafnlundaður og glaðvær og viðmótshlýr ... Hann virti mjög aðra menn og sjónarmið þeirra, en var svo markverður í málum sín- um, að jafnvel þeir, sem ekki deildu heils hugar sjónarmiðum við hann, komust ekki hjá því að hlusta, Helgi fæddist í Hafnarfirði 18. nóvember 1906. Foreldrar hans voru Guðmundur Magnússon bif- reiðastjóri og Stefánía Halldórs- dóttir. Þau bjuggu í Hafnarfirði og þar ólst Helgi upp. Nám stundaði hann við Gagn- fræðaskóla Akureyrar og varð gagnfræðingur frá Flensborgar- skóla 1923. Sem vænta mátti var Helgi mik- ill athafnamaður. Upp úr póst- flutningafyrirtæki föður síns milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur stofnaði hann ásamt fimm öðrum mönnum fyrirtækið Áætlunarbíl- ar Hafnarfjarðar árið 1934 og var framkvæmdastjóri þess til 1947, er starfsemi þess hætti. Næstu ár stundaði hann ýmis störf. Árin 1950—1958 var hann bæjarfulltrúi Hafnarfjarðar og í bæjarráði sat hann árin 1951—1958. í íþrótta- nefnd átti hann sæti 1950—1954, í Krísuvíkurnefnd 1954—1960, í stjórn Rafveitu Hafnarfjarðar sat hann 1957—1974 og var formaður þeirrar stjórnar 1962—1963 og 1966—1970. í Atvinnumálanefnd 1950—1952. Þá var það 1. janúar 1956 að hann réðst sem bókari og gjaldkeri við bæjarfógetaembætt- ið í Kópavogi og síðar skrifstofu- stjóri. Hélt hann því starfi til 1. janúar 1976, er hann lét af föstu starfi, en var þar iausráðinn við störf upp frá því, unz hann lézt. Einn hinna mörgu, sem fékk spænsku veikina, er hún gekk yfir landið var Helgi. Varð hann aldrei samur síðan. Samt kvartaði hann aldrei, heldur bar lasleika sinn með karlmennsku þeirri, sem hon- um var la&in, og algeru æðruleysi ... að kveldi hins 8. nóvember sl. var hann fluttur á Borgarsjúkra- hús Reykjavíkur og fékk þar hægt og friðsælt andlát. Árið 1959, hinn 23. maí, samein- aðist Helgi Aðventsöfnuðinum. Þar var hann sami, heilsteypti, trausti þegninn sem og á öllum öðrum sviðum Iífsins. Aldrei var sæti hans autt í kirkjunni. Þar er nú stórt skarð fyrir skildi, og flyt ég kveðjur og þakkir Aðventsafn- aðarins í Reykjavík. Hans er sár- an saknað. Syrgjandi ástvini, ætt- ingja og kunningja bið ég Guð að blessa. Jón Hjörleifur Jónsson Lengi hélt ég að hann væri smiður. Hann var í vinnuslopp, eins og trésmiðir klæðast oft, með blýant í brjóstvasa og derhúfu á höfði. Hann var sivinnandi við hús- byggingu. Húsið sem hann byggði var næsta hús við nýbyggingu for- eldra minna við Hrauntungu í Kópavogi. Það var ekki fyrr en eftir að flutt var i húsið að mér varð ljóst að þessi iðjusami maður var ekki smiður og að iðjusemin var hjálp hans við elskulega systur. Margt annað um Helga Guð- mundsson kom mér á óvart síðar. Við unnum saman um nokkurra ára skeið, og þá kynntist ég glettni hans, hjálpsemi, nákvæmni og heiðarleika. Eg hafði gaman af bílnúmerum og spurði hann einu sinni hvernig hann hefði fengið lága númerið sitt. „Það myndir þú ekki vilja vinna til,“ svaraði hann glettinn. Ég var ekki reiðubúinn til að samsinna því án frekari rök- semda, og eftir að hafa þráspurt sagði hann: „Þú myndir ekki vilja vera svona gamall, eins og ég er — en það er nú skýringin — númerið var ekkert lágt þegar ég fékk það.“ Að fæðast og deyja og búa alla ævi á sama stað er óvenjulegt í þéttbýli. Kannski er það besta einkunn þessa góða manns, Helga Guð- mundssonar. Hann undi glaður og hógvær við sitt — hann fæddist og bjó alla ævi á föðurleifð sinni í miðbæ Hafnarfjarðar, þeim bæ sem hann hafði unnið svo margt. Við vinir hans eigum þá ósk sjálfum okkur til handa, að Helgi Guðmundsson hafi haft og muni hafa þau áhrif á breytni okkar sem hann sjálfur hefði viljað og gaf til kynna með ljúfmennsku sinni. Leó E. Löve. Fregnin um andlát Helga S. Guðmundssonar kom mér mjög á óvart. Aðeins fáum dögum áður sá ég hann á ferli og kom það ekki i hug minn að það mundi vera í síð- asta sinn. Þegar ég kynntist Helga fyrir nær 40 árum bjó hann að Suður- götu 45 ásamt móður sinni og systkinum og alla tið síðan átti hann heima á sama stað. Helgi var fæddur í Hafnarfirði 18. nóvember 1906, sonur Guð- mundar Magnússonar bifreiðar- stjóra Auðunssonar í Hafnarfirði og konu hans, Stefaníu Halldórs- dóttur bónda í Norðurkoti í Holt- um Stefánssonar. Börn þeirra hjóna voru fimm, eitt lést í bernsku. Helgi var næstelstur þeirra er upp komust. Öll eru systkinin nú látin. Helgi stundaði nám í Gagn- fræðaskóla Akureyrar en gagn- fræðingur varð hann frá Flens- borgarskóla árið 1923. Helgi gerð- ist bifreiðarstjóri er faðir hans hafði með höndum vörubifreiða- akstur. Vann Helgi við það starf til ársins 1935 að hann stofnaði ásamt öðrum Áætlunarbíla Hafn- arfjarðar hf., sem annaðist akstur á sérleyfisleiðinni Reykjavík- Hafnarfjörður. Var hann fram- kvæmdastjóri þess fyrirtækis en jafnframt ók hann áætlunar- bílunum í forföllum. Áætlunarbíl- ar Hafnarfjarðar hf. var fyrir- tæki, sem af áræði og bjartsýni var stofnað á erfiðum tímum kreppuáranna til að annast fólks- flutninga á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur en svo varð fyrirtæk- ið að leggja þann rekstur niður árið 1947 þar sem ríkið yfirtók starfsemina og fór að reka hana á eigin vegum. Breyttist sú þjónusta m.a. þannig að ferðum fækkaði til muna. Þótti mörgum það til hins verra en vel hafði verið að ÁBH staðið, bæði stjórnunarlega og góð þjónusta veitt, enda traustir og samhentir menn, sem stóðu þar að verki. Eftir að starfsemi Áætlunarbíla Hafnarfjarðar lauk vann Helgi ýmis störf en réðist 1. jaoúar 1956 sem bókari og gjaldkeri til Bæj- arfógetaembættisins í Kópavogi og síðar skrifstofustjóri. Gegndi hann því starfi til 1. janúar 1976 er hann lét af föstu starfi fyrir aldurs sakir en síðan vann hann Sœmundur E. Kristjáns- son — Minningarorð Fæddur 2. september 1909 Dáinn 5. nóvember 1982 Sæmundur fæddist á Bíldudal 2. september 1909, sonur hjónanna Viktoríu Kristjánsdóttur og Kristjáns Árnasonar, skipstjóra. Hann var elstur þriggja systkina. Ungur missti Sæmundur móður sína og var honum þá komið í fóst- ur til Jóns S. Bjarnasonar kaup- manns og Dagbjartar Árnadóttur, en Dagbjört var föðursystir Sæ- mundar. Bjuggu þau fyrst í Otra- dal og síðan á Bildudal. Að loknu barnaskólanámi fór Sæmundur til náms hjá séra Böðvari Bjarna- syni, presti á Hrafnseyri við Arn- arfjörð. Síðan fór hann til Reykja- víkur og lauk gagnfræðaprófi utanskóla við Menntaskólann í Reykjavík. Að því loknu fór Sæ- mundur í Vélskóla íslands og lauk þar námi. Eftir það starfaði hann sm vélstjóri bæði á sjó og landi, var meðal annars lengi stöðvar- stjóri á oliustöð Skeljungs hf. í Skerjafirði og eftir það fram- kvæmdastjóri bifreiðaverkstæðis- ins Spindils. Seinustu starfsárin vann Sæmundur hjá Eimskipafé- lagi Islands. Sæmundur starfaði að félags- málum, var í Vélstjórafélagi Is- lands, Vestfirðingafélaginu í Reykjavík, og í stjórn þess nokkur ár. í Stangaveiðifélagi Reykjavík- ur og einn af stofnendum stanga- veiðifélagsins Ugga 1950 og gjald- keri þess félags frá 1955. Hann var gætinn í öllu sem hann tók að sér og félagarnir báru traust til hans. I 25 ár hafði stangaveiðifélagið Uggi laxveiðiána Grjótá í Hítar- dal á leigu og kölluðu staðinn Skógarsel. Sæmundur hafði eins og við mikla ánægju af dvöl sinni þar með fjölskyldu sinni og öðrum félögum á hverju sumri. Hann hafði mikinn áhuga á veiðiskap enda það í blóð borið frá forfeðr- um. Sótti snemma á sjóinn á ungl- ingsárum sínum fyrir vestan. Stundaði mikið lax- og silungs- veiðar í ám og vötnum. Hafði hann yndi af útiverunni í faðmi fjallanna og að rölta eftir árbökk- unum, og dokaði þá oft við í fögru umhverfi og hlustaði á raddir náttúrunnar, éins og sönnum veiðimanni sæmir. Setti saman veiðistöngina og lagði agnið fyrir lónbúann. Var fengsæll eins og faðirinn. Við áttum margar ógleymanlegar stundir í ferðum okkar við sportveiðina svo og öðr- um ferðalögum er við fórum með konum okkar út á landsbyggðina. Þá eru og ógleymanlegar þær sjó- ferðir er við fórum saman frá olíu- stöð Skeljungs hf. í Skerjafirði. Þá var aflinn oft góður á handfærið. Þá minnist ég þess hve ánægjulegt var að koma að landi og heim til Benediktu, konu Sæmundar, sem tók alltaf á móti fiskimönnunum af sinni alkunnu umhyggju og gestrisni, á því fallega heimili sem þau bæði voru alla tíð svo samtaka um að prýða. Þau gáfu börnum sínum gott heimili og gestum var ánægja að dvöl þar. Sæmundur eignaðist 2 börn áð- ur en hann kvæntist, Hafstein og Jóhönnu. Árið 1942, þann 14. marz, kvæntist hann eftirlifandi konu sinni Benediktu Þorsteins- dóttur, Þorsteins Einarssonar byggingameistara hér í borg og konu hans, Ragnhildar Bene- diktsdóttur. Þau Benedikta og Sæmundur eignuðust 4 börn: Sigríður Dagbjört gift Jóni Erni Márinóssyni lögfræðingi, Kristján matreiðslumaður kvæntur Ernu Vilbergsdóttur og Viktor Smári kennari sem býr með heitkonu sinni Ingibjörgu H. Hafstað. Öll eru börn þeirra hjóna mesta myndarfólk eins og þau eiga ættir til að rekja. Barnabörn eru orðin ellefu. Að leiðarlokum þökkum við Unnur kona mín tryggð og vináttu Sæmundar alla tíð frá því að við kynntumst, sem aldrei bar skugga á. Guð geymi góðan vin. Benediktu vinkonu okkar og hennar fjölskýldu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Minn- ingin um góðan dreng Iifir. Guðm. J. Kristjánsson Gangið hægt og hljótt um sali, vinir mínir. Sæmundur hefur boð- ið öllum góða nótt. Genginn er góður maður, sem gott var að kynnast og gott var að eiga að vini. Hann er kvaddur með söknuði, en í huga geymast hlýjar minningar. Þegar kveðjustundin er komin, brestur orðgnótt og anda til að móta kveðjuna á þann hátt sem viljinn stendur til og verðugt væri. Ég vildi geta kveðið Sæmundi kvæði að skilnaði og lýst þeim heilladísum er mættust við vöggu hans í æsku og báru honum gull og gæfu, gleði og þrótt. Þær kenndu honum listina að teyga af lind lífs- ins á þann hátt að manndómur og þroski vaxi ævina út. Og heilladís- irnar lögðu þá vizku í brjóst hans að allt sem fyrir kemur á lífsleið- inni á eitthvert erindi til manns og þær gáfu Sæmundi skarp- skyggni til að skynja það erindi hverju sinni, og hæfileikann til að læra af því að njóta þess. Ég vildi einnig geta lýst hagleik þeim og árvekni sem einkenndi hvert það starf er hann annaðist sitt æviskeið, því þar má kenna undirstöðu gróandi mannlífs. Sæmundur átti heilsteypta sál og skýra hugsun, var bæði hjarta- hlýr og glaður, frjáls í.fasi, góður förunautur, þéttur á velli og þétt- ur í lind. Manngildi hans var ekki hvað sízt fólgið í jákvæðu hugar- fari og kjarki til að Iifa lífinu í sátt við samferðafólk og sjálfan sig. Hann var nærgætinn við þá sem bágt áttu, fastur fyrir gagn- vart yfirgangi, en jafnan hófstillt- ur, prúðmenni í hvívetna. Sæmundur Erlendur Kristjáns- son hét hann fullu nafni og var vélstjóri að mennt. Foreldrar hans voru Kristján Árnason skipstjóri og kona hans, Viktoría Kristjánsdóttir, sem bjuggu á Bíldudal, og þar ólst Sæmundur upp fram til tvítugs, en fór síðan til náms í Iðnskóla Hafnarfjarðar og lærði þar járnsmíði. Árið 1933 hafði hann lokið vélstjóraprófi og gerðist þá vélstjóri á ýmsum skipum til 1942. Vann hann síðan hjá olíufélaginu Skeljungi hf. til ársins 1955, þar af tíu ár sem stöðvarstjóri í Skerja- firðinum. Stofnaði hann þá bif- reiðaverkstæðið Spindil og starf- rækti það í nær tuttugu ár, eða þangað til hann varð að hætta erfiðisvinnu vegna hjartaáfalls. Náði hann sér þó allvel aftur og vann síðustu árin hjá Eimskipafé- lagi Islands hf. Sæmundur kvæntist 14. marz 1942 eftirlifandi konu sinni, Bene- diktu Þorsteinsdóttur, en foreldr- ar hennar voru Þorsteinn Fr. Ein- arsson húsasmíðameistari í lausráðinn við ýmis störf hjá emb- ættinu. Helgi var mjög traustur maður og drengur hinn besti. Hann var orðvar og orðheldinn og það sem hann lofaði að gera var unnið. Hann var gætinn og gjörhugull enda greindur vel. E.t.v. var hægt að láta sér detta í hug að hann hafi verið fastur í gömlum siðum og venjum en það var síður en svo. Hann horfði fram á veginn og gerði sér fulla grein fyrir nauð- synlegum breytingum á hverjum tíma, en hann gerði sér einnig grein fyrir því að of mikill asi gat valdið miklum áföllum og tafið eðlilegar framfarir. Og tengslin við hinar gömlu góðu dyggðir, trú- mennsku, heiðarleika, reglusemi og orðheldni vildi hann ekki rjúfa. Þar var hann sannur og heill. Margir munu þeir vera sem leit- uðu til Helga, enda var hann bæði hjálpsamur og ráðhollur. Fundu menn til öryggis og að þeir stæðu fastari fótum eftir að hafa rætt við Helga. Mun það hafa verið svo innan fjölskyldu hans að kapp- kostað var að heyra álit Helga um vandamál, sem leysa þurfti. Þótti farsælt að fylgja ráðum hans. Öllum, sem Helga þekktu, ber saman um það að gott væri að vinna með honum, hann var sam- viskusamur, traustur og dag- farsprúður. Þannig var orðspor Helga. Hann var þekktur öndvegismaður Reykjavík og kona hans, Ragn- hildur Benediktsdóttir. Börn þeirra Sæmundar og Bene- diktu eru fjögur: Kristján Sæ- mundsson matreiðslumaður kvæntur Vigdísi Aðalsteinsdóttur, Sverrir Sæmundsson vélstjóri kvæntur Ernu Vilbergsóttur, Sig- ríður Dagbjört Sæmundsdóttir gift Jóni Erni Marínóssyni, Viktor Smári Sæmundsson kennari, unn- usta hans er Ingibjörg Halldórs- dóttir. Barnabörnin eru 11. Við hjónin höfum þekkt Sæ- mund og Benediktu alllengi og oft verið gestir á heimili þeirra, og mörg undanfarin ár höfum við all- oft spilað saman á vetrum, á heimilunum til skiptis, og átt saman mjög ánægjulegar stundir. Einnig höfum við, þessi fjögur, ferðast saman innanlands á síðari árum, kannað nýjar slóðir, og jafnan haft mikla ánægju af, enda hafa sum ferðalög okkar þegar orðið að dýrmætum endurminn- ingum, sem oft ber á góma. j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.