Morgunblaðið - 16.11.1982, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.11.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982 45 „Og ekki má gleyma því í þeim þrengingum sem nú virðast blasa við Háskóla íslands, að vís maður og skólameistari kallaði vínsöluhúsin drykkjuskóla forðum tíð. Kannski þeir geti bara komið í stað skólakerfisins eins og það leggur sig. Við verðum nefnilega að gæta þess að verða ekki gamaldags, þó að háværir minnihlutahópar haldi því fram, að það frelsi, sem börnum og unglingum er búið meðan foreldrarnir ryðjast á garðann í drykkjuskólunum, verði allaf hallærisplansfrelsi.“ Dettur nokkrum 1 hug að þetta fólk sé að skara eld að sinni köku? Á.H. skrifar: „Loksins hafa látið til sín heyra samtök sem tala máli nútímans og bera fyrir brjósti hag þjóðarinnar. Þar er sosum engin eiginhags- munastreita eða fégirni á ferðum. Hreinar hvatir og þjónslund (löngun til „að veita góða þjón- ustu“ á fagmáli) ráða þar ríkjum. Þessi hógværi og hlédrægi hóp- ur kallar sig Samband veitinga- og gistihúsa. Það sýnir skýrleikann og lítillætið. Það eru sem sé húsin, grunnmúruð og góð til fjárfest- ingar, sem þenkja og álykta en ekki skeikular persónur, kannski langt á eftir tímatali þeirra vits- munavera sem hér um ræðir. Samband þetta er að sjálfsögðu á móti reglum þeim sem hér gilda um sölu og veitingar áfengis enda segja mannvitsbrekkurnar þær hálfrar aldar gamlar (settar 1969 og síðar). Auðvitað eru það afspyrnu vondir menn sem vilja ekki leyfa þessum velgerðarmönnum lands- lýðs að selja hollefnið alkóhól all- an sólarhringinn alla daga ársins. Og að sjálfsögðu hverjum sem kaupa vill. Og helst af öllu hvar sem er. Allt annað er gamaldags frelsisskerðing. (Eina varan, sem nóg er af í Póllandi, er áfengi). Ef einhver er í vafa um að hreinar hvatir búi hér undir fer hann villur vegar. — Allt vilja þeir gera fyrir almenning. Þeir óánægja hjá þessum haustbörnum mínum með það, að félagar þeirra, sem fæddir eru fyrri part ársins, fá hærri laun á sumrin en þau sem fædd eru að haustinu. Þetta finnst mér að mætti alveg eins leiðrétta, þótt ekki sé þarna um háar upp- hæðir að tefla, eins og hitt með skemmtistaðina. Ég vona að þetta komist á beinni línu til þingmanna okkar. Hvað er slysa- varðstofa? Öryrki hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Ég varð fyrir meiðslum fyrir nokkrum dögum, en á þriðjudagskvöld (8. nóv.) gat ég ekki þolað við fyrir kvölum, svo að ég fór á Slysavarðstofuna. Þegar þangað kom var ég spurð, hvað að væri. Ég sagði sem var, en fékk það svar, að ekki væri hægt að sinna svo gömlum meiðslum; ég gæti komið daginn eftir. Því spyr ég: Hvað er slysavarðstofa? Hvað mega meiðsl vera gömul til þess að maður fái annast um þau þar? eru nefnilega nútímamenn og hafa meira að segja komið á staupasölu við borð líkt og tíðkaðist á öldinni sem leið. En menn, sem voru á móti almenningi og frelsinu eins og Jón skáld Olafsson og Björn ritstjóri Jónsson, fengu slíkt verslunarfrelsi afnumið með lög- um. Nú kallast þessi borð ekki lengur búðardiskar heldur barir, — á íslensku máli garðar. Og ekki má gleyma því í þeim þrengingum sem nú virðast blasa við Háskóla íslands að vís maður og skólameistari kallaði vínsölu- húsin drykkjuskóla forðum tíð. Kannski þeir geti bara komið í stað skólakerfisins eins og það leggur sig. Við verðum nefnilega að gæta þess að verða ekki gam- aldags þó háværir minnihlutahóp- ar haldi því fram að það frelsi, sem börnum og unglingum er búið meðan foreldrarnir ryðjast á Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif- ar: „Velvakandi. Viltu gera svo vel að birta eftir- farandi: Nú um þessar mundir eru út- varp og sjónvarp notuð sem áróð- urstæki til að níða karlmenn. í út- varpi kemur það fram í þættinum Á tali, og í sjónvarpi í auglýsing- um. Þar eru karlar útfáerðir í drekalíki, sem vill gína yfir öllu og í annarri útfærslu er karlmaður í útbíuðu eldhúsi, sem á enga stoð i veruleikanum í vinnubrögðum karlmanna. í þættinum Á tali eru karlmenn gerðir svo auðvirðilegir og vitlaus- ir, að engu tali tekur. Þar eru sjúkrabílar hvíandi út af meintum slysum sem karlmenn eiga að hafa leitt yfir sig; einnig uppspennt ær- andi hljóð af hrynjandi leirtaui með tilheyrandi brothljóðum og eftir öllu að dæma er það ekkert smáræðistjón sem orðið hefur á því heimili. Það er ekki bara einn diskur eða þá tveir. Og þarna er karlmaðurinn að verki, eða látið er líta út að svo sé. garðann í drykkjuskólunum, verði allaf hallærisplansfrelsi. Nei, það er meðal annars hrein umhyggja fyrir æskunni sem knýr félagana í þessum göfugu samtök- um til þess að vinna af fórnfýsi þjóðhagslega nytsöm störf. Fórn- arlund þeirra er einstök. Að vísu hefur þeim verið leyft að Ieggja á sig erfiði og vökur við að selja áfengi langt fram yfir miðnætti. En þeir vilja meira, því að þetta er auðvitað ekki nóg. Það þarf líka að fjölga á meðferðarstofnunum fyrir drykkfellda menn svo að starfsliðið hafi nóg að gera. Því er þetta mesta þjóðþrifastarfsemi þó fyrirmyndirnar séu meira en ald- ar gamlar. — Eða dettur nokkrum í hug að þetta fólk sé að skara eld að sinni köku, hugsa um eigin- hagsmuni, auka sölu, gróða, fjár- muni — eða svoleiðis?" Þessar aðferðir verða ekki til að bæta hlut kvenna eða til heiðurs þeim. Það skyldi þó aldrei vera svo komið, að konur séu búnar að fá of mikið frelsi nú þegar, og komið sé að nýjum þætti í mannkynssög- unni, að konur séu að ná völdum til að kúga karlmenn. Mér finnst greinileg merki þess, að þær séu ekki að vinna að jafnrétti, heldur séu þær í valdabaráttu. Og nái þær þessum völdum, verður það engum til góðs, því að konur eru á margan hátt og á sumum sviðum kvikindislegri en karlar. Má víst deila endalaust um það, eins og lítt er sparað. Ég segi líka, að óteljandi til- brigði eru í samskiptum karla og kvenna, en konur ættu að vara sig; þær ættu ekki að hætta á að missa virðingu þá sem þær hafa notið hjá meirihluta karlmanna. Það er til að konur hafi karla sem þræla; þeir leggja það mikið á sig margir hverjir til að þóknast kröfum kvennanna, að þeir bíða tjón á heilsu sinni. Um það mætti margt fleira segja." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hugsa þarf til nýtingu auðlinda. Rétt væri: ... til nýtingar auðlinda. Verða ekki til að bæta hlut kvenna Dýrakjötseyði Diana Consomme de gibier Diana ★ ★ ★ Hreindýrabuffsteik Baden-Baden Noisette de renne Baden-Baden ★ ★ ★ Rjúpur að hætti hússins Perdrix blanche maison ★ ★ ★ Steikt villigæs Au Jus Oie Sauvage Rotie Au Jus ★ ★ ★ Súkkulaðiskál með bláberjafyllingu Timbale de chocolat aux mirtilles Bang&Olufsen Þegar gæöi, hönnun og verð haldast jafn vei í hendur og í Beocenter 7002 hljómtækja- samstæðunni, þá er valið auðvelt. Komdu og leyfðu okkur aö sýna þér þessi frábæru hljómtæki, sem fá lof tónlist- ar- og listunnenda. Verð 39.980 — með hátölurum. Greiðslukjör. Beovox S 55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.