Morgunblaðið - 16.11.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
39
hann við framkvæmdastjórn í
flugfélaginu Vængjum hf. og rak
það af mikilli ósérplægni og dugn-
aði til ársins 1976, þegar eigenda-
skipti urðu þar og hann seldi eign-
arhluta sinn í félaginu.
Það var laust eftir þessi tíma-
mót, sem leiðir okkar Hafþórs
lágu fyrst saman, því að árið 1977
var hann ráðinn kaupfélagsstjóri
að Kaupfélagi Saurbæinga að
Skriðulandi. Því starfi gegndi
hann til miÖs árs 1980.
Á árunum þeim, eins og raunar
enn, steðjaði mikill vandi að dreif-
býlisversluninni og vandséð með
hvaða hætti smærri rekstrarein-
ingar gætu séð sér farborða, þar
sem eftirtekjan stóð ekki undir
dreifingarkostnaðinum. Við þær
aðstæður ráðlagði ég ýmsum góð-
um forystumönnum smærri kaup-
félaganna að skoða möguleikana á
að efna til samstarfs við stærri
nábúa, því að undan afleiðingun-
um yrði vart vikist með öðrum
hætti. En hér réði sem áður sterk-
ur vilji til sjálfræðis, og fengu
bændur hinn 32 ára gamla Reyk-
víking til kaupfélagsstjórastarfs
og hófst hann þegar handa.
Gamalt íslenskt orðtak segir, að
„veldur hver á heldur" og sú varð
raunin á í þessu tilviki. Með at-
orku sinni, útsjónarsemi og ráð-
deild grundvallaði Hafþór enn
betur en áður þau félags- og versl-
unarlegu tengsl sem kaupfélagið
átti í héraði. Fyrr en varði voru
þeir Saurbæingar búnir að endur-
bæta verslunarreksturinn og jafn-
framt byggja nýtt frystihús; en
um þá framkvæmd höfðu menn
ekki þorað að hugsa sem möguleg-
an valkost nokkrum mánuðum
fyrr.
Það sem olli straumhvörfunum í
Saurbæ var sleitulaus vinnusemi
kaupfélagsstjórans að hagsmuna-
málum félagsmannanna sem allir
urðu vitni að í hinni fámennu
byggð. Við þá atorku leystist úr
læðingi vilji margra til að verða
að gagni og með vinnuframlagi
margra sveitunga reis frystihúsið,
sem um mörg ókomin ár kemur til
með að bera bændum þar og
dugmiklum kaupfélagsstjóra þess-
ara ára, órækt vitni.
I Sambandinu var fylgst með
þessum þróttmikla nýliða í sam-
vinnustarfinu, og enn betur eftir
að hann fór að sækja ráðstefnur
samvinnumanna, taka þar þátt í
umræðum og leggja gagnlegt til
mála.
Því var það, þegar ísfirðinga
vantaði kaupfélagsstjóra snemma
árs 1980 og ég var beðinn um að
aðstoða við þá ráðningu, að Haf-
þór varð mér strax ofarlega í
sinni. Eg vissi reyndar að bæði
hann og fjölskyldan kunnu vel við
sig vestur í Dölum og að þar var
margt enn ógert, en á ísafirði biðu
samt miklu stærri verkefni úr-
lausnar, sem ekki var allra að
leysa.
Þegar ég lýsti erfiðleikum
þeirra ísfirðinganna og dró lítið
undan, glotti vinur minn Hafþór
við tönn og sagðist skyldu hugsa
málið um sinn og svara málaleitan
minni handan helgar. Er við
kvöddumst, sagði hann mér þó að
skaplyndi sitt væri þannig að
hann kynni betur við að byggja
upp og endurreisa en að halda
bara í horfinu. Vissi ég þá strax
hvert lokasvar hans yrði.
Á ísafirði hefir Hafþór unnið
hvert þrekvirkið af öðru, og nú
röskum tveim árum síðar er hagur
kaupfélagsins og álit með allt öðr-
um hætti en um fjöldamörg und-
angengin ár. í rauninni finnst mér
að gamla álitið á kaupfélaginu
okkar, sem ég man eftir síðan ég
var lítill drengur á ísafirði, sé nú
fyrst endurvakið og að mikill
þróttur sé að færast í alla starf-
semina.
Á sínum skamma starfstíma á
ísafirði megnaði Hafþór að jafna
langvinnan lóðaágreining við bæj-
aryfirvöld, endurskipuleggja að
verulegu leyti verslunarrekstur og
mannahald kaupfélagsins, leggja
fram áætlun um byggingu slát-
urhúss á ísafirði, kaupa Steiniðj-
una hf. á ísafirði, sem er viða-
mikið fyrirtæki á sviði stein-
steypu- og byggingarvörusölu. Og
loks, tæpum mánuði fyrir sviplegt
fráfall hans, undirskrifaði hann
samning um kaup kaupfélagsins á
vörumarkaðinum Ljóninu, sem er
önnur stærsta smásöluverslunin í
kaupstaðnum. Ef honum hefði
enst líf og heilsa er ekki að efa að
stórvirkni hans hefði gætt víðar í
atvinnusögu Isfirðinga, bæði fé-
lagi og byggð til heilla.
Auk starfa sinna á ísafirði vann
haijn með Sambandinu við kaup á
Fiskiðjunni Freyju hf. og útgerð-
arfélaginu Hlaðsvík hf. á Suður-
eyri. Sat hann fyrir hönd Sam-
bandsins í stjórnum beggja félag-
anna, þar af fyrstu mánuðina sem
stjórnarformaður þeirra. Lagði
hann sig í framkróka við að sinna
þeim störfum af sömu alúð og
ábyrgð og öllum öðrum, en eins og
mörgum mun kunnugt gerðist
kaupfélagið einnig samkaupandi
að félögunum að fjórða hluta og
átti fulltrúa úr Suðureyrardeild
sinni í stjórnum beggja félaganna.
Það var aðalsmerki þessa kæra
látna vinar míns, að hann sinnti
öllum störfum sem til féllu í kaup-
félaginu, hvort heldur þau voru
talin til óþrifalegri verkanna eða
skrifstofustarfans. Því gátu sam-
starfsmenn hans eins átt von á
honum við kjöttilfærslu í frysti-
klefa eldsnemma að morgni í slát-
urtíðinni, við dæluviðgerðir í
kyndiklefanum eða við akstur á
steypubílnum. Eins og foringja er
siður fór hann fyrir liði sínu í öll-
um störfum, og það kunnu sam-
verkamenn hans að meta.
Mér er minnisstætt lítið atvik
fyrir allmörgum mánuðum, þegar
kaup á Steiniðjunni voru afstaðin
og starfsfólkið var að halda hátíð í
tilefni þess að sláturtíð var nýlok-
ið. Þegar Guðný og Hafþór gengu
þá í veislusalinn, klöppuðu við-
staddir þeim hjónum til heiðurs.
Slíkt sýna ísfirðingar aðeins sín-
um bestu mönnum.
Hann ávann sér tiltrú hjá
bændum, enda ræktarsamur við
hagsmuni þeirra, en líka virðingu
annarra, bæði í sveit og bæ, sem
til hans leituðu og höfðu af honum
kynni.
Eg minnist margra ferða okkar
yfir vestfirsk fjöll og heiðar, þegar
við tveir einir flugum erinda Sam-
bandsins og kaupfélagsins til Súg-
andafjarðar og víðar og einnig
annarra flugferða á vél hans TF-
MAO. Margt sýndi hann mér í
þeim ferðum, sem ég geymi þakk-
látum huga og á eftir að rjátla
mér við í minningu hans þegar
tímar liða. í þessum ferðalögum
komst ég m.a. að því, að Hafþór
var vel hagmæltur, þótt ekki flík-
aði hann því nema við örfáa vini
sína, en þeim gat hann átt til að
senda kveðjur í bundnu máli við
hátíðleg tækifæri.
Þótt ég hafi hér tíundað nokkuð
af starfsferli Hafþórs og atorku,
skal ekki við svo skiljast að láta
þess ógetið að hann átti góða konu
og sonu sem stóðu með honum í
öllum hans störfum. Þess þarf og
með í annasömu embætti, og það
brást ekki að konan og elsti sonur-
inn stóðu eins og eikur og gerðu
honum kleift að vinna svo langan
dag sem raunin varð á. Á því
heimili heyrði ég aldrei möglað
þótt seint væri komið heim frá
dagsverki, né um rætt þótt árla
væri úr rekkju risið.
Á heimili þeirra var ávallt gott
að koma, svo gott að þá fannst
mér ég vera kominn fyrst heim á
æskuslóðir, þegar ég hafði gengið
að leiði föður míns og síðan til
stofu þeirra Guðnýjar og Hafþórs.
I þeirri stofu var kæst með góðum
á glaðri stundu.
En skjótt hefir sól brugðið
sumri, og miklu fyrr en ég hafði
vonað og beðið. Komið er að leið-
arlokum og kvaðst að sinni. Haf-
þóri, eiginkonu hans og sonum flyt
ég alúðarþakkir Sambandsins
fyrir stórmikil og heilladrjúg störf
hans í þágu samvinnuhreyfingar-
innar, en sjálfur drúpi ég höfði í
minningu góðs vinar.
Eftirlifandi eiginkonu og sonun-
um ungu, sem misst hafa svo mik-
ið, móður hans, systkinum, ætt-
ingjum og venslafólki öllu flyt ég
dýpstu samúðarkveðjur á þessum
sorgartíma og bið þeim öllum
Guðs blessunar.
Drottinn minn, gef þú dánum
ró, en hinum líkn er lifa.
Kjartan I*. Kjartansson
Að morgni þriðjudags 26. októ-
ber fréttist að leit væri hafin að
flugvél Hafþórs Helgasonar kaup-
félagsstjóra á ísafirði. Hann hafði
skroppið á vélinni til Súganda-
fjarðar kvöldið áður í ágætu veðri
í erindum kaupfélagsins. Á þriðju-
dagsmorgun fyrir birtingu fer
hann í loftið áleiðis til ísafjarðar,
en veður gekk mjög snögglega upp,
auk þess hafði flugvitinn á Þver-
fjalli bilað um nóttina. Hvergi
hefur verið lendandi, því snýr
hann við til að reyna að fljúga
suður úr óveðrinu, en það tókst
ekki. Hafið geymir nú flugmann
og vél.
Hafþór Helgason var fæddur í
Reykjavík 12. janúar 1945. For-
eldrar hans voru Helgi Jóhannes-
son Hafliðason bifvélavirki, Jó-
hannssonar skipstjóra á Snæ-
fellsnesi og Sigurbjörg Jónsdóttir,
Halldórssonar bónda í Framnesi,
Rangárvallasýslu, og fyrri konu
hans, Guðbjargar Jónsdóttur.
Eignuðust þau Helgi og Sigur-
björg 7 börn, 3 syni og 4 dætur,
var Hafþór. næstyngstur. Móðir
hans og systkini eru öll á lífi, en
faðir hans lést 1965.
Þann 12. október 1968 gekk Haf-
þór að eiga Guðnýju G. Krist-
jánsdóttur, Soffaníassonar frá Vík
í Mýrdal og konu hans, Ingibjarg-
ar Svöfu Guðjónsdóttur frá Akur-
eyri, eiga þau þrjá syni: Alexand-
er, fæddur 1966, Erling Friðrik,
fæddur 1973, og Vésteinn, fæddur
1980.
Hafþór lauk prófi úr Verk-
námsskólanum í Reykjavík 1962
og réttindi til skipstjórnar á 30
tonna bát hlaut hann sama ár.
Einkaflugmannsprófi lauk hann
1%5, atvinnuflugmannsprófi með
blindflugsréttindum 1976. Á yngri
árum stundaði hann sjómennsku á
bátum og togurum. Um tíma rak
hann eigið bílaverkstæði í Garða-
bæ og árið 1967 dvaldist hann í
A-Þýskalandi við nám og störf í
bílaverksmiðju. 1969 vann hann á
rannsóknarstofu Isals, 1970—1973
var hann starfsmaður hjá Þórisós.
Haustið 1973 gerðist hann meðeig-
andi og framkvæmdastjóri hjá
Flugfélaginu Vængjum hf. og
starfaði þar uns fyrirtækið var
selt árið 1976.
Hafþór hafði mikinn áhuga á
flugi, þegar hann var að læra flug
keypti hann í félagi við annan
Stinson Voyager 1 hreyfils flugvél.
Síðar eignaðist hann 1 hreyfils
vél, Super Cup, þá vél gerði hann
upp sjálfur. Síðast átti hann hlut í
2ja hreyfla 5 sæta flugvél, Piper
Apache, í fyrrasumar eignaðist
hann vélina einn.
Honum þótti vænt um þessa vél,
sem bar einkennisstafina TF-Mao,
hann kallaði hana „Mao formann".
Hann var óspar á að nota hana, ef
skreppa þurfti inn í Djúp, vestur á
Firði eða til Reykjavíkur, enda var
hann kallaður „kaupfélagsstjórinn
fljúgandi".
1977 gerðist hann kaupfélags-
stjóri hjá Kaupfélagi Saurbæinga
í Dölum, reyndist hann mjög vel í
því starfi. Vorið 1980 var Kaupfé-
lag ísfirðinga í miklum vanda,
kaupfélagsstjórinn hafði sagt upp
starfi, en hann var sá fjórði á
fáum árum. Félagið var ilía farið
eftir sífelldan taprekstur og
mannaskipti. Með milligöngu for-
ráðamanna Sambands ísl. sam-
vinnufélaga var Hafþór beðinn að
fara til ísafjarðar og freista þess
að drífa félagið upp. Þetta
ákveðna verkefni tók hann að sér.
Og þá fóru hlutirnir að snúast.
1981, ári eftir komu hans, kaupir
kaupfélagið Fiskiðjuna Freyju á
Suðureyri, ásamt Sambandinu og
Suðureyrarhreppi, kaupfélagið
átti fyrir hlut í þessu fyrirtæki. Á
sama ári kaupir kaupfélagið
Steiniðjuna hf., sem rak steypu-
stöð, timbursölu o.fl. Árið 1981
kom svo út með góðum hagnaði.
Nú í haust kaupir svo kaupfélagið
vörumarkað Ljónsins á Isafirði.
Þessi umsvifamiklu eignakaup
vöktu mikla athygli og juku trú
manna á félaginu. Það var skoðun
Hafþórs að vænlegasta leiðin til
að rífa fyrirtækið upp, væri að
renna fleiri stoðum undir rekstur-
inn. Því voru tækifærin gripin
þegar félaginu buðust þessar eign-
ir til kaups. Auk þess var fyrir-
hugað að byggja vörumarkað á
ísafirði og sláturhús.
Undirritaður hefur haft náið
samstarf við Hafþór síðan hann
kom til ísafjarðar, ég er ekki í
neinum vafa um að allt þetta hefði
tekist á skömmum tíma, ef hans
hefði notið lengur.
Hafþór var slíkur atorku- og
dugnaðarmaður, að leitum mun að
öðrum slíkum, hann lagði sig allan
í starfið, annað komst ekki að.
Hafþór hreif fólk með sér og sá
margar leiðir til ávinnings og líka
til sparnaðar, ekki síst. Hlutur
hans í uppgangi Kaupfélags Is-
firðinga er ómælanlega stór. Hann
var glaðlyndur og á góðum stund-
um eða þegar starfsfólkið gerði
sér dagamun var hann hrókur alls
fagnaðar. Við kaupfélagsmenn
höfðum vænst þess að halda hon-
um í starfi í nokkur ár í viðbót,
eða eins og hann sjálfur sagði, á
meðan hann væri að hressa upp á
félagið.
Það var mikið áfall fyrir okkur
að missa hann og ekki síst á þenn-
an hátt. Þó er þetta miklu meiri
missir fyrir eiginkonu hans og
drengina ungu, sem treystu á
handleiðslu hans og forsjá.
Að leiðarlokum þakka ég af al-
hug góðum dreng fyrir mikið starf
og góð kynni og bið guð að blessa
hann og varðveita.
Við hjónin vottum Guðnýju og
drengjunum, móður hans og öðr-
um vandamönnum okkar inni-
legustu samúð.
Konráð Jakobsson
Kveðja frá Starfsmannafé-
lagi Kaupfélags ísfirðinga
Starfsmenn Kaupfélags ísfirð-
inga vilja með nokkrum orðum
minnast kaupfélagsstjóra síns,
sem féll frá á sviplegan hátt á
miðjum annasömum starfsdegi.
Kaupfélag ísfirðinga hafði átt
við töluverða erfiðleika að stríða í
mörg ár og hin tíðu kaupfélags-
stjóraskipti settu óneitanlega sitt
mark á alla starfsemi félagsins,
innan þess sem utan. En um mitt
ár 1980 réðst til starfa Hafþór
Helgason, sem við nú minnumst,
og fór þá allt að færast til betri
vegar. Þetta hafði það í för með
sér, að ánægjulegra varð að vinna
hjá félaginu og þegar menn sáu,
hve ótrauður og atorkusamur
kaupfélagsstjórinn gekk til allra
starfa, smitaði það ósjálfrátt út
frá sér meðal starfsmannanna.
Menn vonuðu nú, að hagur Kt
vænkaðist og virtist svo ætla að
verða.
En skjótt skipast veður í lofti.
Snögglega var sem klippt á þráð-
inn og þessi maður, fullur af lífi og
atorku, sem svo miklar vonir voru
bundnar við innan félagsins, var
skyndilega allur. Verður ekki séð,
hvernig skarð hans mun fyllt í
bráð, en starfsmenn KÍ vilja
leggja sitt af mörkum til að starfa
áfram í anda Hafþórs Helgasonar
og halda uppi merki því, sem hann
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
hafði svo drengilega brugðið á
loft. Með því getum við best heiðr-
að minningu hans.
Guðný kona hans, Alexander og
litlu drengirnir tveir eiga miklar
þakkir skildar fyrir sinn þátt í
starfi Hafþórs, sem svo sannar-
lega er á margan hátt ekki ómerk-
ara en starf kaupfélagsstjórans
sjálfs, því mikið álag var á heimil-
inu vegna starfa Hafþórs. Við
sendum þeim öllum og öðrum ást-
vinum innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð veri minning Hafþórs
Helgasonar.
FITUBANINN
Aðeins 2-3 töflur 1/2 tíma
fyrir máltíd, gefur fyllingu
þannig að þú borðar ekki meira
en þú þarft.
INNIHELDUR einnig,
Prótein og jurtaefni
Nú fáanlegt í Apótekum
og matvöruverslunum
um mest allt landið
INOHOLD
ca.
100 stk.
et rent
produM
AGÚST SCHRAM
heildverslun simi 31899
Bolholt 6, 105 Reykjavík