Morgunblaðið - 18.02.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1983
49
Eddie Fisher
+ Kddie Fisher hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan
hann hrapaði ofan af stjörnuhimninum sem söngvari.
Hann er hins vegar mjög ánægður með velgengni
dóttur sinnar, Carrie, sem slegið hefur í gegn á Broad-
way og er spáð bjartri framtíö.
Eddie fór á sínum tíma frá móður Carriear,
Debbie Reynolds, til að taka saman við Liz Taylor,
en nú býr hann einn og yfirgefinn. Þá sjaldan hann
sést er hann í fylgd dóttur sinnar, en hún hefur
stutt hann með ráðum og dáð í baráttu hans gegn
áfenginu og eiturlyfjum.
Eubie Blake látinn
+ Eubie Blake, sá síðasti og einn af mestu rag-time-
tónskáldunum, lést nú fyrir nokkru, aðeins fimm dög-
um eftir aö þúsundir tónlistarmanna og annarra New
York-búa höfðu haldið 100 ára afmæli hans hátíðlegt.
Eubie Blake samdi meira en 1.000 lög og m.a. „Mem-
ories of You“ og „I’m just wild about Harry“.
Foreldrar Eubie Blakes voru þrælar á ungum
aldri og öldin tuttugasta var ekki gengin í garð,
þegar Blake var farinn að geta sér gott orð sem
píanisti á hóteli í Baltimore. Árið 1921 tók Blake
höndum saman við söngvasmiðinn Noble Sissle og
settu þeir upp fyrsta „svarta söngleikinn" á Broad-
way, „Shufflin Away“.
fclk í
fréttum
Burt
Lancaster
+ Burt Lancaster lætur engan
bilbug á sér finna þótt hann sé að
verða sjötugur og segist ekkert
vera á þeim buxunum að setjast í
helgan stein. Nú síðast lék hann í
sjónvarpsmyndinni um Marco
Polo, sem gert hefur stormandi
lukku og þá ekki síst hann sjálfur
í hlutverki páfans.
Burt Lancaster hóf feril sinn
sem sirkuslistamaður en fór
snemma út í kvikmyndirnar.
Hann á fimm börn og er marg-
faldur afi eins og eðlilegt er en
þau hjónin, Norma og hann,
skildu fyrir 14 árum. Síðan hefur
Burt búið með einkaritara sín-
um, Jackie Bone. Á þessari
mynd er Burt með leikkonunni,
Amöndu Plummer, dóttur leik-
arans Christopher Plummer, en
hún hefur að undanförnu leikið
á Broadway.
+ Bo Derek, það fagra fljóö, leitar
nú dyrum og dyngjum að viðeigandi
mótleikara í myndina Bolero, sem
bráðum verður hafist handa við.
Hann á að vera hár og karlmannleg-
ur enda á hann að verða ástfanginn
af Bo í myndinni. Þegar síðast frétt-
ist hafði leitin engan árangur borið.
COSPER
Er vekjaraklukkan þín biluð? Hafðu engar áhyggjur, ég skal
koma til þín í fyrramálið og sjá til þess að þú vaknir.
Dalakofinn
tískuverslun Linnetstíg 1, Hafnarfirði
Vorum að taka fram kjóla í fjölbreyttu úrvali. Kvöld-
kjóla, vor- og sumarkjóla, fermingarkjóla, kjóla í yfir-
stæröum og samkvæmis-buxna samfestinga.
Hinn sprenghlægilegi gamanleikur
KASLIll í KASSAIVM
verður enn á fjölunum, vegna mikillar aösóknar laugardags-
kvöld kl. 20. Ath. breyttan sýningartíma. Þriðjudag kl. 20.30.
Miöasala frá 17—19 daginn fyrir sýningardag og frá kl. 17.00
sýningardag.
Miöapantanir í síma 16444.
SÍÐAST SELDIST UPP.
r/v
Velkomin
um borð
Enn einu sinni kitlum við bragðlaukana
Sýnishorn af okkar frábæru rétturr
1 kvöld Laugardagskvöld
Rússneskur kavíar Sniglar og ristaðir kóngssveppir í
m/Blims. rjómasósu.
Svinseyru m. Tartarsosu. Innbakaður nautahryggsvöðvi
Russneskur iambakule. ,■ sa|thjup m/broccoli í ostasósu.
„ , Biaka- Ferskjur í kampavínshlaupi og rjóma.
Krækiberiaskyrterta.
Hollenski söngvarinn
Raymond
Groenendaal V/
frá Antillueyjum
skemmtir gestum í
kvöld og annað kvöld.
Jón Möller leikur á píanóið í takt við
öldunið.
bnginn gleymir málsverði um borð í Rán.
Veitingahúsið
Skólavörðustíg 12, sími 10848.
I
Metsö/uNaó cí hverjum degi!