Morgunblaðið - 20.03.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
5
Glugginn: Sýnd verða atriði úr kvikmyndinni „Húsinu“ og nett við aðstandendur hennar, þá Egil Eðvarðsson og
Snorra Þórisson, sem eru hér að störfum við kvikmyndunina (fyrir miðri mynd) ásamt aðstoðarfólki sínu,
Sigfúsi Guðmundssyni, Ingibjörgu Briem og Sigmundi Arthúrssyni.
Glugginn kl. 20.50:
Ný menningarmiðstöð,
Húsið og Oresteia
Á dagskrá sjónvarps kl. 20.50
er Glugginn — þáttur um listir,
menningarmál og fleira. Umsjón-
armaður Sveinbjörn I. Bald-
vinsson.
Skoðuð verður nýja menning-
armiðstöðin í Breiðholti og rætt
við Markús Örn Antonsson borg-
arfulltrúa, Elfu Björk Gunn-
arsdóttur og Elísabetu Þóris-
dóttur. Sýnd verða atriði úr
kvikmyndinni „Húsinu" og rætt
við aðstandendur hennar, þá Eg-
il Eðvarðsson og Snorra Þóris-
son. Fjallað verður um sýningu
Þjóðleikhússins á óresteiu eftir
gríska harmleikjaskáldið Eskýl-
os og sýnt atriði úr leiknum, auk
þess sem rætt verður við Svein
Einarsson. Ernie Wilkins, Rúnar
Georgsson, Guðmundur Ing-
ólfsson, Tómas R. Einarsson og
Guðmundur Steingrímsson
flytja djasstónlist. Ernie Wilk-
ins er bandarískur saxófónleik-
ari og hljómsveitarstjóri og lék
m.a. í hljómsveit Count Basie
fyrr á árum. Síðan verður rætt
við Vernharð Linnet, formann
Jazzvakningar, í tilefni þess að
félagið er að gefa út plötu með
upptökum af leik Gunnars
Ormslev.
Stundin okkar kl. 18.00:
Þrettán ára söngkona, dæmi-
saga og hjólaskautadans
Á dagskrá sjónvarps kl. 18.00 er
Stundin okkar. Umsjónarmaður
Bryndís Schram. Upptöku stjórn-
aði Viðar Víkingsson.
í Stundinni okkar verður farið í
Tívolí hjá skátum á Akranesi.
Ingunn Gylfadóttir, 13 ára, frá
Seyðisfirði syngur lagið „Bæj-
arbragur". Flutt verður mynd-
skreytt saga úr Dæmisögum Es-
óps; Þorsteinn frá Hamri þýddi,
Jónína Guðmundsdóttir mynd-
skreytti og Arnhildur Jónsdóttir
les. Þrjár stelpur frá Akranesi
sýna hjólaskautadans. Fram-
haldsleikritið Sara Klara heldur
áfram. Höfundar þess eru Auður
Haralds og Valdís Óskarsdóttir,
en Edda Björgvinsdóttir leikur.
Þessi þáttur nefnist „Sara Klara á
réttri hillu". Loks verða teikni-
myndasögurnar „Blámann" og
„Einmitt svona sögur".
Sunnudagsstúdíóið — kl. 20.00:
Krakkar á krossgötum og
strákar í bifvélavirkjun
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.00
er SunnudagsstúdíóiA — Útvarp
unga fólksins, Guðrún Birgisdóttir
stjórnar.
Guðrún sagði: — Ég tala fyrst
við 13 ára gamla stelpu frá Seyð-
isfirði, Ingunni Gylfadóttur, sem
m.a. hefur leikið á trommur i
kvennahljómsveitinni Maríu þar
eystra, en Ingunn er að gefa út
plötu, sem kemur á markaðinn
eftir helgina. Platan heitir
Krakkar á krossgötum og er svo-
lítið sérstök að mínu mati, fjallar
um táninga og samskipti þeirra
við eldri kynslóðina. Lögin eru
dönsk, en textarnir íslenskir og
hljómsveitin Friðryk spilar undir
söngnum hjá Ingunni. í þessum
þætti bregðum við okkur í fyrstu
kynnisferðina af fleiri fyrirhug-
uðum í skóla og varð Iðnskólinn í
Reykjavík efstur á blaði. Við
SunnudagsstúdíóiA: Rætt verAur viA
Ingunni Gylfadóttur, 13 ára gamlan
söngvara og tónlistarmann frá SeyA-
isfirAi, sem er aA gefa út plötu.
göngum á fund skólastjórans og
lítum svo inn f bifvélavirkjadeild-
ina og spjöllum við strákana, en
þar voru engar stelpur. Nú, svo
verður bréfalestur eins og venju-
lega og fréttatíminn.
ein af þeim allra bestu
Rimini á Italíu er einhver vinsœlasti
sumarleyíisstaður sem völ er á. Þangað
flykkjast íslendingar í stórum stíl, slaka á í
langþráðu sumarleyíi við hreina og fallega
ströndina og njóta þess á milli fjölbreytts
skemmtanalífs, fróðlegra skoðunarferða og
stuttra verslunarleiðangra um nágrennið.
Fyrir fjölskylduíólk er Rimini hrein gullnáma.
Börn og fullorðnir finna þar endalaus
viðíangsefni við sitt hœfi og auðvitað
sameinast fjölskyldan í leikjum, skemmtun-
um og fjörlegum uppátœkjum sem einmitt
einkenna svo mjög mannlíf þessara hressilegu
sólarstrandar. Og nú býður Samvinnuíerðir-
Landsýn að auki upp á sérstakan barnafar-
arstjóra sem sér um að yngstu ferðalang-
arnir hafi alltaf nóg við að vera.
■«S\.
Vv
7
Tsrsssr
Riccione
Cattolica
Cesenatico
Adriatic Riviera of
Emilia - Romagna (Italy )
Gatteo a Mare
San Mauro a Mare
Misano Adriabco
Lidi di Comacchio
Savignano a Mare
Bellaria - Igea Marina
Cervia - Milano Marittima
Ravenna e le Sue Marine
Eitthvað
veitingahus
skemmtistaðir
næturklúbbar
diskótek
leikvellir
sundlaugar
hjólaskautavellir
minigolfvellir
skemmtigarðar
Tívolí
útimarkaður
stórmarkaðir
þúsundir verslana
o.fl. o.fl.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899