Morgunblaðið - 20.03.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
7
HUGVliKM
eftir
Pétur Sigurgeirsson biskup
í trúnni berum við traust til
Guðs, sem starfar okkur til
góðs. Lúther vitnaði til orð-
anna: „í þínar hendur fel eg
anda minn, þú frelsar mig
Drottinn, þú trúfasti Guð.“
(Davíðs sálm. 31:6) í trúnni er
það Guð, sem dregur okkur að
sér með „taugum kærleikans",
Hósea spámaður komst svo að
orði um Gúð: „Eg kenndi
brennheitar meðaumkunar."
(11:8) Það átti rót sína að rekja
til þessarar elsku, er Jesús
kenndi í brjósti um mannfjöld-
ann.
Það er eflaust sameiginlegt
með okkur og Ágústínusi
kirkjuföður, að finna ekki frið
fyrr en hjartað öðlast traust
og gleði kærleika Guðs og nær-
ist af þeim kærleika frá degi
til dags. Ágústínus sagði að
undangenginni mikilli lífs-
reynslu og sálarbaráttu:
„Hjarta vort er órótt uns það
hvílist í Guði.“
Friðinn fann Ágústínus í
trúnni á Krist. Jesús var hon-
um „brauð lífsins" og það
sama er Kristur þeim, er á
hann trúa. Hann er svar him-
ins við bæninni: „Metta oss að
morgni með miskunn þinni."
(Davíðs sálm. 90:14) Þessi
hjálp er óþrjótandi. Því spáði
Jesaja: „Þér munið með fögn-
uði vatn ausa úr lindum hjálp-
ræðisins." (12:3)
Jesús lýsti köllun sinni sem
reynsla kynslóðanna hefur
staðfest: „Eg er brauð lífsins.
Þann mun ekki hungra, sem til
mín kemur, og þann aldrei
þyrsta, sem á mig trúir." (Jóh.
3:35) Danska sálmaskáldið,
Ingemann, yrkir um þessa
andlegu mettun trúarinnar í
sálminum: Þín miskunn, ó,
Guð, er sem himinninn há. Þar
segir í 4. erindi í þýðingu
Helga Hálfdanarsonar:
Kf sálirnar þyrstir, þú svölun þeim lér,
l»»r sadning frá hungraöar frá þér.
Þegar maðurinn eignast
þessa hugsvölun og upplifir í
trúnni hinn fórnandi kærleik
Guðs, þá fjarlægjast hugann
óskyld áhrif hugsana og til-
finningalífs. Þannig hefur
læknast í mörgum tilfellum
hið sjúklega ástand drykkju-
skapar. Guðstrúin sýnir, að
hún er afl, sem hjálpar mann-
inum til þess að losna frá því
sjúkdómsböli.
Þegar Kirkjan boðar fagn-
aðarboðskap Krists, er hún um
leið að „skera upp herör" gegn
því böli sem leiðir af áfengum
drykkjum. Nú eru áfengismál
mjög á dagskrá. Kirkjan er að-
ili að heildarsamtökum, sem
takast á við þennan vanda
þjóðarinnar. Og við skulum
ekki gleyma því, að kirkjan er
fólkið, sem trúir og tekur upp
kross sinn. Það hefur svarað
kalli Krists, hvar í stétt eða
stöðu, sem það kann að vera.
Drykkjuskapur og notkun
eiturlyfja er höfuðsjúkdómur
þjóðarinnar. Ýmislegt veldur
því, ekki síst að gáttir eru
opnar fyrir skaðræðisáhrifum
erlendum. Aldrei hefur verið
jafn knýjandi og nú að sporna
við þessu böli. Gjörbreyttir
lífshættir, tækni og vélaöld,
hraðinn og nákvæmni í sam-
göngum og samskiptum er
þess eðlis, að oft var þörf, en
nú er nauðsyn að menn séu
allsgáðir. Meiri fjárráð, fleiri
frístundir, auka freistingar.
Heilbrigðisskýrsla land-
læknis um neyslu áfengis og
fíkniefna leiðir í ljós, að sala
áfengis fer í vöxt. Við hlustum
á fréttir af risavöxnum fjár-
upphæðum, sem fara til áfeng-
iskaupa. „Áfengisnotkun full-
Ef
sálirnar
þyrstir...
orðinna er veruleg og vaxandi.
Trúlegt er, að notkunarvenjur
unglinga endurspegli þær
venjur, sem tíðkast almennt í
landinu." (Úr skýrslu land-
læknis bls. 18)
Þrátt fyrir þessa dökku
mynd af ástandinu, ríkir
bjartsýni í röðum þeirra, sem
gegn áfengisbölinu berjast.
Miklir og augijósir sigrar hafa
náðst í þeirri baráttu. Það er
ekki síst að þakka samstilltum
átökum þeirra, sem við
vandann glíma og halda mjög
á lofti þeirri hjálp, sem lækn-
aði þá af hinu sjúklega
ástandi, og gaf þeim nýtt líf.
Yfirlæknir Freeport-sjúkra-
hússins í New York vék orðum
að þessari hjálp, þegar hann
sagði í blaðaviðtali: „Eg er
þeirrar skoðunar, að til þess að
sigrast á áfengissýkinni, þurfi
hver einstaklingur að gera sér
grein fyrir því, að til er æðra
vald en hann sjálfur." (Mbl.
11/4 1978)
Fyrst þegar félagssamtök
voru stofnuð gegn áfengisböl-
inu hér á landi fyrir tæpum
100 árum var mönnum ljóst, að
leita varð hjálparinnar í trú á
Drottin. Fjölnismenn höfðu
rætt og ritað um bindindismál,
og vakið þjóðina til umhugsun-
ar um vandann. Þegar fyrsta
góðtemplarastúkan var stofn-
uð 10. jan. 1884, ritaði stofn-
andinn, Friðbjörn Steinsson, á
þessa leið:
„Góðtemplar er maður, sem
trúir á Guð og elskar trúna og
hefur unnið það heit að vera
al-bindindismaður alla ævi.
Hann er mótstöðumaður
drykkjusiða vorra tíma, ötull
liðsmaður bindindismálsins,
aðstoðarmaður þeirra, sem
bágt eiga ..., Iifir eigi fyrir
sjálfan sig einan, heldur notar
allan tíma sinn og krafta Guði
til dýrðar."
Yngstu samtök áhugamanna
gegn áfengisvandamálinu,
SAÁ á íslandi einkennast af
þessum sama anda. Það sjón-
armið kom skýrt fram í pre-
dikun Björgúlfs Guðmunds-
sonar formanns samtakanna,
sem hann flutti í dómkirkj-
unni sl. sunnudag. Bænin er til
hjálpar þeim, „sem hefur villst
af leið,“ — eins og það er orðað
í sálmi séra Matthíasar. Og
hver, sem hefur átt við vanda-
málið að stríða, þekkir ekki
sigurmátt bænar ÁA samtak-
anna?
Gud gefí mér edruleysi
til að saetta mig við
það, sem ég f» ekki breytt ...
kjark til þess að breyta því,
sem ég get breytt ...
og vit til að greina þar á milli.
Satt er það, að enginn hætt-
ir drykkjuskap, nema hann
vilji það sjálfur. Hann verður
að koma „til sjálfs sín“ (Lúk.
15:17) Þegar það skref er stig-
ið, finnur sá hinn sami, að föð-
urfaðmur Guðs er opinn. Guð
læknar með „taugum kærleik-
ans“. Kristur gaf oft svarið,
sem felst í þessum orðum: „Trú
þín hefur bjargað þér.“ (Mark.
5:35)
Þó að hér sé mál, sem fyrst
og fremst snertir Guð, og þann
sem til hans leitar, þá getur
þjóðfélagið og almenningsálit-
ið á ýmsan hátt komið þeim til
aðstoðar, sem ofurseldir eru
ástríðu drykkjuskapar. — Það
er íhugunarefni, sem almenn-
ing varðar.
Reynslan sýnir, að þeim
mun greiðari aðgang, sem
menn hafa að áfengi, er meira
drukkið. Það getur gert gæfu-
muninn.
Maður nokkur kom í hótel,
sem hafði vínveitingaleyfi og
bar. Þetta var á stórhátíðis-
degi. Maðurinn spurði af-
greiðslustúlkuna í anddyri
hótelsins:
„Er barinn opinn?“
En þar sem þetta var á
stórhátíð, var lokunardagur.
Stúlkan svaraði:
„Nei, barinn er lokaður."
Þá varð manninum að orði:
„Guði sé lof!“
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN
MYNDAMOT HF.
Verötrygging veitir vörn gegn veröbólgu — en hefur þú hugleitt
hversu mikla þýöingu mismunandi raunvextir hafa fyrir arösemi
þína?
Yfiriitiö hér aö neðan veitir þér svar viö því.
VERÐTRVGGÐUR SPARNAÐUR - SAMANBURÐUR A AVðXTUN
Verötrygging m.v.lánskjaravisitölu Nafn- vextir Raun- ávöxtun Fjöldi ára til að tvöf raungildi höfuðstóls Raunaukning höfuðst. eftir 9 ár
Veðskuldabréf 3% 8% 9ár 100%
Sparisk. ríkissj. 3.5% 3.7% 19ár 38.7%
Sparisjóðsreikn. 1% 1% 70ár 9.4%
100%
Verðtryggð
veðskuldabréf
Dæmi um
raunaukningu
höfuðstóls eftir 9 ár.
Verðtryggð
spariskírteini ríkissjóðs
Verðtryggður
sparisjóðsreikningur
Verðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagslns hefur víötæka reynslu í
verðbréfaviöskiptum og fjármálalegri ráögjöf og miðlar þeirri þekk-
ingu án endurgjalds.
GENGIVERÐBRÉFA
20. MARS1983
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓDS:
1970 2. flokkur
1971 1. flokkur
1972 1. flokkur
1972 2. flokkur
1973 1. flokkur A
1973 2. flokkur
1974 1. flokkur
1975 1. flokkur
1975 2. flokkur
1976 1. flokkur
1976 2. flokkur
1977 1. flokkur
1977 2. flokkur
1978 1. flokkur
1978 2. flokkur
1979 1. flokkur
1979 2. flokkur
1980 1. flokkur
1980 2. flokkur
1981 1. flokkur
1981 2. flokkur
1982 1. flokkur
1982 2. flokkur
Sölug«ngi
pr. kr. 100.-
11.701,45
10.197,20
8.841,98
7.493,24
5.356,04
4.933,42
3.405,87
2.800.27
2.109,70
1.999,49
1.595,85
1.480,59
1.236,38
1.003,89
789.84
665,80
515,19
385,89
303,45
259.85
193,03
175,53
131,23
MoOalévOxtun umfram varötryggingu #r
3,7—5,5%.
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGÐ:
Sölugengi m.v. nalnvaxti
(HLV)
12% 14% 16% 18% 20% 47%
1 ar 63 64 65 66 67 81
2 ár 52 54 55 56 58 75
3 ár 44 45 47 48 50 72
4 ár 38 39 41 43 45 69
5 ár 33 35 37 38 40 67
VEÐSKULDABRÉF
MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU:
Sölugengi nafn- Ávöxtun
m.v. vextir umfram
2 afb./ári (HLV) varötr.
1 ár 96,49 2% 7%
2 ár 94,28 2% 7%
3 ár 92,96 2V4% 7%
4 ár 91,14 2V4% 7%
5 ár 90,59 3% 7%
6 ár 88,50 3% 7%%
7 ár 87,01 3% 7V.%
8 ár 84,85 3% 7V4%
9 ár 83,43 3% 7 V4%
10 ár 80,40 3% 8%
15 ár 74,05 3% 8%
VERÐTRYGGÐ
HAPPDRÆTTISLAN , , RÍKISSJÓÐS prkrTæ9-
C — 1973 3.340,09
D - 1974 2.872,15
E — 1974 2.021,38
F — 1974 2.021,38
G — 1975 1.339,92
H — 1976 1.224,53
I - 1976 971,46
J — 1977 867,10
1. fl. — 1981 186,83
Ofanskráð gengi er m.v. 5% ávöxtui
p.á. umfram verötryggingu auk vinn
ingtvonar. Happdraattiabráfin eru gef
in út á handhafa.
Vcrðbréfamarkaöur
Fjárfcstingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavík
lönaðarbankahúsiT1 Sími 28566