Morgunblaðið - 20.03.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
27
Frances borin öskrandi úr dómsalnum.
eigendur höfundarréttarins vildu
ekki selja.
Maður er nefndur Mel Brooks.
Hann stofnaði sérstakt fyrirtæki,
Brooksfílms, sem hefur það að
markmiði að styðja unga og
óþekkta menn. Fyrsta myndin,
sem fyrirtækið fjármagnaði, var
hin fræga mynd „Fílamaðurinn".
Mel heyrði um Frances og gerði
sér lítið fyrir og keypti
kvikmyndaréttinn. Hann fékk
handritshöfunda „Fílamannsins",
Christopher DeVore og Eric Bergen,
til að semja handritið, fékk sama
framleiðandann, Jonathan Sanger,
en réði nýjan leikstjóra, Graeme
Clifford, sem lengi hafði reynt að
gera mynd um leikkonuna, en án
árangurs.
Graeme segir: „Frances var ekki
trufluð á geðsmunum, hún var
bara sjálfstæðari og hreinskilnari
en aðrir. Ég tel að hana hafi innst
inni langað til að laga sig að líf-
inu, en það var bara ekki í eðli
hennar."
Jessica Lange —
ný stjarna
Aðalhlutverkið er í höndum til-
tölulega óþekktrar leikkonu, Jess-
icu Lange. Hún varð að vísu fræg
hér um árið er hún lék kærustu
King Kong, en eftir það spurðist
ekkert til hennar í tæp fjögur ár.
Hún notaði tímann vel, losaði sig
við eiginmanninn og tók saman
við rússneska ballettdansarann
Mikhail Baryshnikov, en þau eru
nýlega skilin. (Sagan um kynni
þeirra er eitthvað á þessa leið:
Mikhail var í veislu sem haldin
var í tilefni frumsýningar King
Kong. Hann tók eftir sætri ljós-
hærðri konu og spurðist fyrir um
hana. Honum var tjáð að hún væri
vinkona King Kong. „Hver er King
Kong?" spurði Mikhail. „Get ég
hitt hann?“.)
Jessica fékk áhuga á ævi Franc-
es þegar hún var í leikskóla í New
York. „Ég horfi á tvær leikkonur,
móður og dóttur, leika áhrifamik-
ið atriði, sem gerðist á geðveikra-
hæli. Ég hreifst mjög af persónun-
um og spurðist fyrir úr hvaða
verki atriðið væri og mér var tjáð
að það væri samið úr bók eftir ein-
hverja Frances Farmer. Ég rauk
strax út í bókabúð, en það tók mig
langan tíma að finna bókina."
(Þess má geta að til eru tvær bæk-
ur um ævi Frances: sjálfsævisag-
an „Will There Really Be a Morn-
ing?“ og „Shadowland" eftir Will-
iam Arnold.) Þegar Jessica frétti
að kvikmynd um ævi Frances væri
í bígerð, hafði hún samband við
leikstjórann og hún fékk hlutverk-
ið.
Fyrsta hlutverk Jessicu eftir
hina löngu þögn, var í mynd Bob
Fosse, All That Jazz. Síðan lék hún
í Póstmanninum sem hringir alltaf
tvisvar á móti Jack Nicholson.
Jessica hlaut einróma lof fyrir
bæði hlutverkin.
Tökur á „Frances" hófust í
október 1981 og reyndust þær erf-
iðar, sbr. orð Jessicu sjálfrar: „Ég
hef verið bæld allt mitt líf og aídr-
ei fengið útrás, eins og nauðsyn-
legt er. En ég naut góðs af hlut-
verkinu, þó þær 18 vikur, sem tök-
ur stóðu yfir, séu erfiðasta lífs-
reynsla mín. Það er strembið að
leika reiða manneskju í 12—14
klukkustundir á dag í 18 vikur.
Það hafði neikvæð áhrif á per-
sónulegt lít niitt“. Jessica fékk á
sig sama óorðið og Frances fyrr,
talin skapvond, orðhvöss og erfið í
umgengni. En mótleikari hennar,
Kim Stanley, ráðlagði henni að
leika í gamanmynd eins fljótt og
hún gæti. „Hreinsaðu huga þinn,“
sagði Kim. Aðeins þremur vikum
síðar byrjaði hún leik sinn í mynd
Dustin Hoffmans, Tootsie,
(Kynskiptingurinn). Jessica segir
að það hlutverk hafi dregið hana
aftur inn í sitt gamla eðlilega líf,
dregið sig frá persónuleika Franc-
es, sem var að ganga að henni
dauðri.
Báðar myndirnar voru frum-
sýndar i desember sl. og gagnrýn-
endur rómuðu leik Jessicu í báðum
myndunum og hún hefur meira að
segja verið orðuð við óskarsverð-
launin. Það er í fyrsta skipti síðan
1942 (Teresa Wright), að sama
leikkonan hefur átt möguleika á
Óskarnum í tveimur myndum
sama árið.
HJÓ
Alexander Marks, Anna Norman og Sarah Boulton Smith leika i tónleikun
um í Norræna húsinu i minudagskvöldið.
Tónleikar í Norræna húsinu
Á minudagskvöldið eru tónleikar
í Norræna húsinu, þar sem Alexand-
er Marks fiðluleikari, Sarah Boulton
ligfíðluleikari og Anna Norman pí-
anóleikari koma fram.
Á efnisskránni verða m.a. Són-
atína fyrir fiðlu og lágfiðlu eftir
Milhavd, Sónata fyrir fiðlu og pí-
anó eftir Debussy og Tríó fyrir
fiðlu, lágfiðlu og píanó eftir Moz-
art.
Frá tölvunámskeiðinu Morgunbiaíið/JHS.
Þorlákshöfn:
Tölvunámskeid
í grunnskólanum
horlákshöfn, 16. febrúar.
MIKILL og góður aukastarfskraftur
hefur starfað við Grunnskólann í
Þorlákshöfn síðastliðnar fímm vik-
ur. Þarna voru i ferðinni fjórir
kennaranemar úr Kennaraháskóla
íslands í æfíngarkennslu.
Þeir sem með þessum nemum
hafa starfað segja að þetta hafi
allt verið úrvals fólk sem hafi ver-
ið sér og skóla sínum til mikils
sóma.
Ein stúlkan úr hópnum, Kristin
Steinarsdóttir, sem starfað hefur
á vegum Tölvuskólans, hafði með
sér tölvur hingað og hélt fjölmenn
og vel heppnuð námskeið.
Alls voru 23 fullorðnir á tveim
námskeiðum, þar af 12 kennarar,
hinir voru flestir skrifstofufólk
frá ýmsum fyrirtækjum í bænum.
Þess má geta hér að Ölfushreppur
og fleiri fyrirtæki sýndu þessu
mikinn skilning og greiddu hluta
námskeiðskostnaðar.
Einnig voru fjögur námskeið
fyrir börn á aldrinum 10—15 ára,
alls 45 börn.
J.H.S.
Sýna verk eftir
Ionesco
MÁNUDAGINN 21. mars nk., kl. 21.00,
frumsýnir Aristófanes, leikklúbbur Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti, leikritið „Jak-
ob og Hlýðnin" eftir Eugene Ionesco í
þýðingu Karls Guðmundssonar. Leik-
stjóri er Rúnar Guðbrandsson. Sýnt verð-
ur ( nývígðri félags- og menningarmiðstöð
borgarinnar við Gerðuberg 3—5 ( Hóla-
hverfí. Næstu sýningar verða miðvikudag-
inn 23. mars og fóstudaginn 25. mars.
Allar sýningarnar hefjast kl. 21.00.
t fréttatilkynningu frá leikklúbbnum
segir: „Ionesco er talinn f hópi fremstu
leikskálda þessarar aldar, og vakti
verulega athygli með fyrsta verki sfnu,
„Skollóttu söngkonunni“, sem hann
samdi 1948. „Jakob og Hlýðnin" skrif-
aði hann 1950, og skömmu sfðar annað
verk um sömu persónur „Framtíðin býr
f eggjunum". „Jakob og Hlýðnin" fjall-
ar m.a. um baráttu einstaklingsins við
viðteknar skoðanir, settar reglur og
siðalögmál. Um firringuna í mannleg-
um samskiptum, mátt og vanmátt
orðanna. Og baráttu skynseminnar við
óbeislaðar hvatir og ástríður.
Níu leikarar taka þátt í sýningunni,
en stærstu hlutverkin eru f höndum
Rafns Rafnssonar og Ellenar Freydfsar
Martin. Alls munu 15 manns standa að
sýningunni."
TILBOÐ
I