Morgunblaðið - 20.03.1983, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
Það sem
pils og kjólar
hylja
Nærfatatfskan í París
1983—1984
Tískuhönnuðir heimsins
eru iðnir við að segja fólki
hvernig því ber að ídæðast
þannig að enginn verði sér
til skammar á opinberum
vettvangi né annars staðar.
Sumar- og hausttískan í
nærfatnaði var sýnd fyrir
nokkrum vikum í tískuhús-
um Parísarborgar og vekja
sýningar á þessum fatnaði
jafnan mikla athygli, ekki
síst hjá karlþjóðinni ...
Þessi nærföt eiga sem sé að
vera til brúks næsta sumar
og eitthvað fram á haustið,
en viðbúið er að þá taki
eitthvað annað við, kannski
eitthvað ögn hlýlegra.
Sýningin, sem þessar
myndir eru frá, fór fram í
Salon de la Maille fyrir
nokkru og var fréttaritari
Mbl. í París, Anna Nissels,
þar viðstödd.
Nærfatnaðurinn er m.a.
frá fyrirtækjunum Tri-
umph og Neyret, en einnig
áttu nokkur bandarísk
nærfatafyrirtæki fatnað á
sýningunni.
Skólaskákmót Norðurlanda:
I slendingar höföu yfirburði í elsta og yngsta flokki
íslendingar stóðu sig að venju vel í
keppni skólanemenda á Norður-
löndum sem háð var í Turku í
Finnlandi um daginn. Teflt var í
fimm aldursflokkum á mótinu, tíu
þátttakendur í hverjum, eða tveir
frá hverri þjóð. Bæði í elsta
flokknum og þeim yngsta náðu
okkar menn gjörsamlega að skáka
jafnöldrum sínum og unnu tvöfald-
an sigur. í flokki 18—19 ára var
það Karl Þorsteins, sem sigraði og
Elvar Guðmundsson varð í öðru
sæti, en þeir eru báðir orðnir vel
þekktir skákmenn. Sigurinn í
yngsta flokknura, 10 ára og yngri,
kom því meira á óvart, en þar vann
Hannes Hlífar Stefánsson allar
skákir sínar, 6 að tölu, og sigraði,
en Þröstur Árnason vann alla
nema Hannes og varð í öðru sæti.
Frábær árangur hjá þeim fé-
lögum og því fengum við þá í
heimsókn til okkar niður á Mbl.
ásamt fararstjóranum, ólafi H.
ólafssyni, varaformanni Taflfé-
lags Reykjavíkur, og báðum þá
að segja okkur frá ferðinni og
ýmislegu varðandi taflmennsku
sína.
Þeir kváðu ferðina hafa verið
mikið ævintýri, en skemmtilegra
í Danmörku en í Frnnlandi. „Þar
var allt of kalt, 15 stiga frost,"
sagði Þröstur og Hannes bætti
því við að þá hafi þeir verið vakt-
ir allt of snemma á morgnana til
að borða morgunmatinn og
sendir snemma í háttinn á
kvöldin. En það var samt
skemmtilegt að vera með í mót-
inu, það voru þeir sammála um.
Andstæðingarnir flýttu
sér of mikið
Áður en mótið hófst bjuggust
þeir alls ekki við að verða í
tveimur efstu sætunum í sínum
flokki, en skákirnar voru óvenju
langar fyrir svo unga keppendur,
gátu orðið allt að fjórir klukku-
tímar og þeim fannst þeir hafa
notað tímann betur en andstæð-
ingarnir, sem voru sumir hverjir
fullfljótfærir. ólafur H. sagði að
þeir Hannes og Þröstur hefðu
fengið mjög góðan undirbúning
fyrir ferðina með því að tefla i
opna flokknum á Skákþingi
Reykjavíkur í janúar, en þar
tefldu þeir langar skákir við sér
miklu eldri andstæðinga.
Hættulegustu keppinautar
þeirra voru sænsku strákarnir
Bakk og Solbrand, sem urðu
jafnir í þriðja sæti með þrjá og
hálfan vinning. Georg Bakk
vann sænska mótið í vetur en
fljótfærnin háði honum mikið í
Finnlandi. Hann lék nærri alltaf
viðstöðulaust að sögn þeirra fé-
laga. Bakk fór sérlega flatt á
þessu gegn Hannesi: „Ég mætti
aðeins of seint í skákina við
hann og tefldi því fyrstu leikina
of hratt," sagði Hannes. „Bakk
gat unnið af mér mann í byrjun-
inni, en af því að hann lék svo
hratt missti hann af þeim mögu-
leika og svo vann ég skákina,"
sagði Hannes. Stundum var þó
tíminn notaður út í yztu æsar.
„Ég átti bara þrjár mínútur eftir
á móti einum útlendingi þegar
skákin var búin en þá var ég líka
búinn að máta hann,“ sagði
Þröstur og nú fór að léttast
brúnin á þeim félögum er þeir
rifjuðu upp þessa sigra sína gegn
útlendu keppinautunum.
En úrslitaskákin á milli ykk-
ar?
Þá sagðist Þröstur hafa náð
heldur betri stöðu eftir byrjun-
ina og Hannes var á sama máli
enda höfðu þeir skoðað skákina
gaumgæfilega eftir á. „En þá
fórnaði ég manni í vitleysu og þá
var taflið tapað," bætti Þröstur
síðan við. Eftir það vann Hannes
svo skákina örugglega. I verð-
laun fengu þeir vasatöfl og
verðlaunapeninga.
Lærðu 5 og 6 ára
að tefla
Svo skemmtilega vill til að
þeir Þröstur og Hannes eru báð-
ir fæddir meðan á heimsmeist-
araeinvíginu á milli þeirra
Fischers og Spassky stóð. Hann-
es er fæddur 18. júlí 1972 en
Þröstur 2. ágúst sama ár.
„Ég var fimm ára þegar eg
lærði mannganginn af bróður
mínum," sagði Hannes. Hannes
byrjaði að sækja æfingar hjá
Tafífélagi Reykjavíkur þegar
hann var sjö ára, en þá þegar
hafði hann vakið athygli með því
að ná jafntefli við sovézka
stórmeistarann Vasjukov i fjöl-
tefli, sem þótti einstætt afrek
hjá svo ungum dreng. Nú hefur
Hannes 1315 Elo-skákstig, hann
æfir sig mest með því að tefla
við bræður sína, auk þess sem
hann les bækur, þ.á m. júgó-
slavneska tímaritið Informator
sem flestir stórmeistarar lesa og
þykir sérlega vandað.
„Pabbi kenndi mér að tefla
þegar ég var sex ára,“ sagði
Þröstur og strax árið eftir byrj-
aði hann að sækja unglingaæf-
ingar TR á laugardögum. Eins
og hjá Hannesi er mikið teflt á
heimili hans og þar eru líka til
margar skákbækur, þ.á m. allar
þær íslensku. Þröstur hefur
núna 1250 Elo-skákstig.
Þeir félagar eru báðir úr
Breiðholtinu, en samt finnst