Morgunblaðið - 20.03.1983, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. MARZ 1983
43
annað dæmi; hér í sendiráðinu er
komin skúffa sem er merkt „ís-
lenskar kvikmyndir" en hún var hér
ekki áður. En samt sem áður held
ég að það sé enn of snemmt að fara
af stað með kvikmyndaviku og dett-
ur svona í hug að það gæti verið
vænlegra að byrja á að reyna að
koma íslenskri mynd til sýningar í
franska sjónvarpinu.
ísland er enn land brautryðjenda,
hér er enn nóg svigrúm til að breyta
og bæta. Ólíkt því sem gerist er-
lendis í stórum borgum standa hér
mönnum opnar dyr til að fram-
kvæma sínar hugmyndir. En smæð-
inni fylgja líka ókostir og um ieið
og það er auðvelt að verða þekktur
á íslandi, þá held ég að það sé erfitt
að vera þekktur. Hér þekkja aliir
alla og verður það til þess að ekki er
rætt af hlutleysi um verk manna
heldur kemur inn í umræðurnar
einkalíf viðkomandi.
Á þessum fimmtán mánuðum
sem ég hef dvalist hér vona ég að
eitthvað hafi unnist við að minnka
fjarlægðina á milli íslands og
Frakklands, en einmitt það finnst
mér vera hlutverk menningarmála-
fulltrúa. Þá hefur mér fundist mik-
ilsvert að vinna að verkefnum þar
sem íslendingar eru með í ráðum
eða þar sem ég hef verið hafður
með. Svo var til að mynda með Emil
Zola-sýninguna þar sem Ljós-
myndasafnið sá um skipulagningu
en ég sá bara um að útvega þeim
efni.
Kannski að það mikilvægasta sé
að geta haft hér opna skrifstofu þar
sem fólk getur komið og Ieitað til
okkar sem milligönguaðila um bæði
menningarmál og önnur samskipti
við Frakkland.
Nú, þegar starfi mínu hér er lok-
ið, sný ég aftur til Parísar þar sem
ég kenni ensku. Auk þess vinn ég
svo að síðari hluta Doctorat d’État í
bandarískum bókmenntum.
Þessi tími hér hefur verið ein-
stæður, hér hef ég eignast marga
góða vini, ég á örugglega eftir að
sakna fslands.
m.e.
Fjolmiðlakönnunin:
Kostaði
tæplega
200 þús.
krónur
— sex símakannanir
um sjónvarpsnotkun
„ÞESSI könnun kostaði tæplega 200
þúsund krónur,“ sagði Kristín Þor-
kelsdóttir, formaður SÍA, í samtali
við Mbl. um kostnað af fjölmiðla-
könnun þeirri, sem kynnt var opin-
berlega á dögunum. Kristín sagði, að
auk þessarar fjölmiðlakönnunar,
sem framkvæmd var í lok síðasta
árs, yrðu á þessu ári gerðar sex
símakannanir fyrir SÍA um notkun
fólks á sjónvarpi. Heildarkostnaður
við þessar kannanir allar sagði
Kristín vera um 500 þúsund krónur.
Kristín sagði, að í hverri síma-
könnun um sjónvarpsnotkun, væri
hringt í 250 manns og væri ætlun-
in að fá út úr þessum könnunum
heildarmynd af sjónvarpsnotkun
eftir árstíðum. Sérstakt úrtak er
notað hverju sinni.
Fjölmiðlakönnunin var hins
vegar byggð á 2000 manna úrtaki
og framkvæmd með spurninga-
lista gegnum póstkerfið. Þetta var
þriðja lesendakönnunin, sem SÍA
lætur gera; sú fyrsta var 1978,
önnur 1980 og þessi þriðja var
framkvæmd í árslok 1982, en
niðurstöður lágu svo fyrir nú.
^^^skriftar-
síminn er 830 33
T KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
IKUHHAR
Bananar Del Monte — Appelsinur Jaffa — Appelsínur spánskar
— Blóðappelsínur Marokkó — Klementínur Miniolas — Mandarínur
spánskar — Epli rauö Indipendens — Epli rauö Svarti svanurinn
— Epli frönsk Golden — Epli frönsk Granny Smith — Sítrónur
Jaffa — Sítrónur Sunkist — Grapefruit Jaffa — Pomelos Jaffa —
Melónur Suöur-Afríka — Melónur Senegal — Vínber græn Cape
— Vínber blá — Perur italía — Avacado — Kiwi — Ananas.
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300
geturðu fengið litaskerm á
System/34
tölvuna
hjá IBM
IBM vinnur jafnt og þétt að því að
gera tölvustörfin skemmtilegri og
þægilegri. Enn sem fyrr er System/34
ein vinsælasta og hagkvæmasta
tölvan fyrir íslenskt atvinnulíf. IBM
býður nú nýjan litaskerm á
System/34.
IBM 5292 litaskermurinn skilar 7
litum sem opna þér nýja möguleika
á framsetningu upplýsinga, meðal
annars á myndrænan hátt.
Borðið er létt og meðfærilegt. Enn
fremur má stilla hallann á
lyklaborðinu á einfaldan hátt til
hagræðis fyrir starfsfólk.
Það er staðreynd, að kaupverð
System/34 hefur nýverið lækkað um
40% hérlendis vegna hagstæðrar
framleiðsluþróunar. Þú gerir því góð
kaup í IBM System/34.
I
System/34 hefur nýtt og fallegt
lyklaborð, hannað með allar helstu
kröfur um vinnuaðstöðu og þægindi
í huga. Lyklarnir eru 83 í sömu
uppsetningu og á vélritunarborði,
með talnaröð og skipunarlyklum.
—«—T ZZ Skaftahlíð 24 • 105 Reykjavík • Sími 27700
ÍSLENSK ÞEKKING—ALÞJÓÐLEG TÆKNI