Morgunblaðið - 27.03.1983, Side 8
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
Myndaflokkurinn, Brideshead Revisited, sem
sjónvarpið íslenska mun hefja sýningar á í
kvöld, hefur hvarvetna hlotið feikilegt lof áhorf-
enda og gagnrýnenda og unnið til margskonar
verðlauna og viðurkenninga. M.a. hefur flokk-
urinn hlotið þrenn verðlaun bresku sjónvarps-
akademíunnar; fyrir að vera besti myndaflokk-
urinn, fyrir bestan leik, (Anthony Andrews) og
bestu hönnun sviðsmyndar. Einnig hefur flokk-
urinn unnið til verðlauna fyrir búninga, fórðun,
hljóð og klippingu, svo það ætti kannski að vera
þess virði að setjast fyrir framan sjónvarpið í
kvöld og fylgjast með þessu vinsæla sköpunar-
verki breskra sjónvarpsþáttagerðarmanna. Þeir
eru líka heldur frægari fyrir vandaða sjón-
varpsþætti en hitt.
Þættirnir hafa verið sýndir í minnst 20 löndum,
en í Bandaríkjunum voru þeir útnefndir til 11
Emmy-verðlauna og þar voru gagnrýnendur
sammála um ágæti þáttanna. Það hefur verið
talað um að Brideshead Revisited séu bestu
sjónvarpsþættir sem gerðir hafa verið. The
Washington Post í Ameríku sagði a.m.k.:
„Þetta eru tvímælalaust bestu sjónvarpsþættir
sem sýndir hafa verið í Bandaríkjunum.“
Málverk af rithöfundinum Evelyn Waugh (1903—1966) gert af Henry Lamb.
ÆITARÓÐALIÐ
— Valinn maður
í hverju rúmi —
Þegar litið er yfir lista leikenda
í þáttunum sést að valinn maður
er í hverju rúmi. Þekktustu leikar-
arnir eru án efa gömlu kempurnar
Sir Laurence Olivier og Sir John
Gielgud. Olivier á að baki sér
stórkostlegan leikferil í breskum
og bandarískum kvikmyndum og
ekki síður á sviði. Hefur hann ætíð
þótt ákaflega fágaður og góður
Shakespeare-leikari. Hann var
sleginn til riddara 1947 fyrir störf
sín í bresku leikhúsi og hann var
fyrsti forstöðumaður breska Þjóð-
leikhússins árið 1963. Árið 1970
varð Olivier fyrsti leikarinn í sög-
unni, sem varð meðlimur í
Lávarðadeildinni bresku.
Sir John Gielgud er eins og
Olivier álitinn fyrsta flokks
Shakespeare-leikari. Hann á að
baki sér leik í fjölda kvikmynda og
hlaut Óskarsverðlaunin 1982 fyrir
leik í aukahlutverki í gaman-
myndinni Arthur, sem sýnd var
hér um jólin. Þá hefur hann verið
útnefndur til Óskarsins 1964.
Aðalhlutverkin í Brideshead
Revisited eru í höndum tveggja
ungra leikara, Anthony Andrews
og Jeromy Irons. Andrews hefur
eins og áður sagði verið verðlaun-
aður fyrir leik sinn í þáttunum, en
hann er helst frægur fyrir leik í
sjónvarpsþáttum í Bretlandi. ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur
kannast kannski við hann frá því í
Upstairs Downstairs voru sýndir í
sjónvarpinu en þar fór hann með
nokkur hlutverk. Jeromy Irons
vann sér fyrst frægð með Brides-
head-þáttunum en hann er einnig
þekktur fyrir leik sinn á móti Mer-
yl Streep í kvikmyndinni The
French Lieutenant’s Woman. Á
tímabili, 1980, vann hann jöfnum
höndum við bæði verkin. Áður en
honum bauðst hlutverkið í Brides-
head var hann lítt þekktur leikari
í smáhlutverkum í sjónvarpi,
kvikmyndum og á sviði. Hann hef-
ur einnig hlotið viðurkenningu
fyrir leik sinn í þáttunum.
Þá er ógetið leikkonunnar Cla-
ire Bloom, sem leikur eiginkonu
Oliviers í þáttunum. Hún hefur
leikið í fjölda kvikmynda eins og
Look Back in Anger, The Spy Who
Came in From the Cold og fleiri,
en hún varð fyrst fræg 1952 þegar
hún kom fram í mynd Charlie
Chaplin, Limelight.
— Söguþráður —
það er breska sjónvarpsstöðin,
Granada, sem framleiðir Brides-
head Revisited, sem eru gerðir ár-
ið 1981 og eru þeir byggðir á
frægri skáldsögu hins þekkta
breska rithöfundar Evelyn
Waugh. í íslenskri þýðingu hafa
þættirnir hlotið nafnið Ættaróð-
alið. Söguþráður þáttanna er á
þessa leið: Það er árið 1944. Charl-
es Ryder (Jeromy Iron) höfuðs-
maður í breska hernum, kemur
ásamt herdeild sinni til nýrra
bækistöðva. Þær eru í Brides-
headkastala, staður þar sem hann
átti ljúfar og seinna meir sárar
stundir á æskuárunum. Hann læt-
ur berast í huganum meira en tvo
áratugi aftur í tímann þegar hann
var ungur námsmaður í Oxford
1922. Þar hittir hann ungan mann,
Sebastian Flyte (Anthony And-
rews) og með þeim tekst mikil vin-
átta. Flyte er yngri sonur
Marchmain (Sir Laurence Olivier)
lávarðar í Bridesheadkastala. Seb-
astian býður Charles með sér til
kastalans og eiga þeir þar margar
ánægjustundir. Charles kynnist
fjölskyldunni, lafði Marchmain
(Claire Bloom), dætrum hennar
Júlíu (Diana Quick), Kordelíu
(Phoebe Nicholls) og eldri bróður
Sebastians, Brideshead lávarði
(Simon Jones).
Ættfaðirinn, Marchaim lávarð-
ur, hefur yfirgefið heimilið og býr
með ástkonu sinni í Feneyjum.
Charles verður sem heillaður af
þessu fólki, þrátt fyrir viðvaranir
vina sinna. Hann undrast oft á því
hve kaþólsk trú virðist hafa mikil
áhrif á gerðir þess og skoðanir.
Sebastían óttast, og það ekki að
ástæðulausu, að ættingjar sínir
taki Charles frá sér því hann fellir
hug til Júlíu, systur hans. Vinirnir
heimsækja Marchmain lávarð í
Feneyjum þar sem ástkona hans,
Cara (Stephane Audran) varar
Charles við að ánetjast March-
mainfjölskyldunni. Eftir heim-
komu vinanna fara skuggahlið-
arnar á hinu glæsta lífi að koma
betur í ljós. Sebastían gerist æ
vínhneigðari og Charles er að
nokkru kennt um. Júlía giftist
framagjörnum stjórnmálamanni
og á endanum er Charles útskúfað
úr þessum hópi. Hann snýr sér að
málaralist og öðlast frama á því
sviði. Síðar hittir Charles Júlíu
aftur.
Þetta er saga glæsimenna og
kvenna, sem áttu blómaskeið sitt
milli tveggja heimstyrjalda. Eve-
lyn Waugh lýsir þessari
forréttindastétt sem spilltri og
glataðri og þeir eiga helst upp-
reisnarvon, sem halda fast við
fornar dyggðir, tryggð og trúfestu,
ást og mannkærleika eða bjargast
vegna einlægrar trúar.
— Slá í gegn —
Fljótlega eftir útkomu Brides-
head Revisited leitaði kvik-
myndafélagið MGM hófanna um
kvikmyndarétt. Waugh hafnaði
boðinu þegar honum varð ljóst að
gera átti útþynnta ástarvellu úr
sögunni. Árið 1950 stóð til áð
breskt kvikmyndafélag filmaði
söguna og Graham Greene, vinur
Waughs, átti að skrifa handritið.
En þó Waugh hafi litist vel á
hugmyndina dagaði hún uppi sök-
um fjárskorts kvikmyndafélags-
ins. Það var svo ekki fyrr en árið
1981 að Granada sjónvarpsstöðin
réðist í gerð framhaldsflokks í ell-
efu þáttum eftir Brideshead Re-
visited. Hér var í engu kastað til
höndum og þættirnir voru frum-
sýndir í okt. 1981, fimmtán árum
eftir dauða höfundarins. Það varð
fljótlega Ijóst að þættirnir myndu
slá í gegn í Bretlandi, enda hafði
sjaldan verið vandað meira til
nokkurra sjónvarpsþátta og
kostnaðurinn varð gífurlegur. Eitt
glæsilegasta sveitasetur á Eng-
landi, Howardkastali í Yorkshire,
var notaður fyrir hinn ímyndaða
Bridesheadkastsala.
Evelyn Waugh (1903—1966)
hefur oft verið nefndur í sömu
andrá og rithöfundurinn, Graham
Greene. Þeir voru jafnaldrar, báð-
ir snerust þeir til kaþólskrar trúar
og báðir hafa þeir skrifað um trú-
arleg efni. En skáldheimur þeirra
er ólíkur. Waugh gaf út sína
fyrstu bók 1928, Decline and Fall,
sem vakti töluvert fjaðrafok og
tveimur árum síðar kom út Vile
Bodies, sem hlaut enn betri við-
tökur. Þessar skáldsögur voru
samfélagsádeilur í ætt við fjörleg-
ar og gagnrýnar lýsingar Huxleys,
Noel Crowards og Somerset
Maughams á hinu ljúfa lífi unga
mannsins.
— Ríkt og
fallegt fólk —
Brideshead Revisited kom út ár-
ið 1945 og hlaut hún mjög góðar
viðtökur gagnrýnenda. Hún var
almennt talin besta bók hans til
þess tíma og síðari vek hans
breyttu litlu þar um. Sérstaka at-
hygli vakti bersögli höfundar,
hreinskilni og áhersla á gildi trúar
og ástar. „Að þekkja og unna ann-
arri mannveru er undirrót allrar
visku," segir hann á einum stað. í
bréfi sem hann skrifaði lafði Dor-
othy Lygon, þegar hann var byrj-
aður á bókinni, sagði hann: „Ég er
að skrifa yndisfagra bók um af-
skaplega ríkt og fallegt eðalborið
fólk, sem býr í höllum og hefur
engar áhyggjur nema þær sem eru
sjálfskaparvíti, það eru púkar
kynhvatar og drykkjuskapar."
Seinna sagði hann um efni sög-
unnar: „Það er áhrif guðlegrar
náðar á hóp ólíkra en nátengdra
persóna."
— Rekinn fyrir
drykkjuskap —
Evelyn var snemma trúhneigð-
ur en hann þótti uppreisnargjarn.
Eftir menntaskólanám í Sussex,
þar sem hann hafði m.a. skrifað
leikrit um undirokun skólapilta,
hélt Waugh til Oxford til að nema
sagnfræði. Þar kynntist hann
helstu menningarvitum háskólans
sem margir hverjir voru af aðals-
ættum og tók hann mikinn þátt í
félagslífi þeirra. Sum þau kynni,
sem hann stofnaði til á skólaárun-