Morgunblaðið - 27.03.1983, Page 40
88
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
'«* SÖLU- OG MARKAÐSDEILD RAFRÁSAR undir stjórn Sigurjóns
Einarssonar sér um kynningu og aðstoð við valá þeim tölvubúnaði
sem best hentar hverju sinni, er hagkvæmastur f innkaupi, í rekstri
og getur vaxið með fyrirtækinu.
í UPPHAFI SKYLDI ENDIRINN
SKOÐA
Nauðsyn tölvuvæðingar í öllum rekstri er staðreynd sem
allir gera sér Ijósa, en því miður hafa kaup og sala
tölvubúnaðar farið fram meira afkappi en forsjá. Það getur
verið erfitt að feta sig um frumskóg heillandi gylliboða sem
viðast hafa að geyma allsherjarlausn við hverjum vanda. Því
gefur víða að líta, í fyrirtækjum, flókinn tölvubúnað sem
aldrei verður fullnýttur eða fæst ekkigert við. Uppbygging
og þarfir fyrirtækja geta verið með svo margvíslegu móti
ao ólíklegt er að eitt vörumerki öðrum fremur geti leyst
alla þá þætti sem til greina koma.
HUGBÚNAÐARDEILD RAFRÁSAR undir stjórn Magnúsar Karls-
sonar annast þróun og aðlögun á þeim búnaði sem fyrir valinu
verður, sér um uppsetningu, gefur ráðleggingar varðandi skipulag
og síðast en ekki síst gerir hugbúnaðardeildin tillögur um besta ~
nýtingu búnaðarins nú og í náinni framtíð.
Þegar er RAFRÁS hóf starfsemi sína árið
1977 gerðu aðstandendur fyrirtækisins sér
fulla grein fyrirþví að til þess að geta boðið
viðskiptavinum sínum sem hagstæðust kjör
og heppilegastar lausnir í rekstri, þá yrði
fyrirtæídð að hafa á boðstólum fjölbreytt
úrval tölvubúnaðar, tækni til þess að þróa
og aðlaga þann búnað hinum ýmsu
rekstrarformum, og sérþjálfaða
viðhaldsdeild.
Þessu markmiði virðist hafa verið náðþví í
dag er tölvubúnað frá RAFRÁS að finna í
flestum atvinnugreinum jafnt hjá opin-
berum stofnunum sem í einkafyrirtækjum
og nú getur RAFRÁS boðið allt frá smáum
einkatölvum til stórra heildarlausna s.s.
framleiðslustýringu fyrir iðnfyrirtæki.
ÞJÓNUSTU- OG VIÐHALDSDEILD RAFRÁSAR undir stjórn
Gunnars Karls Guðjónssonar sér um reglulegt eftirlit með öllum þeim
búnaði sem RAFRÁS hefur selt og sett upp. Fljótvirk og fullkomin
viðhaldsþjón usta.
PÚGETUR REITT
iÞIG Á RAFRÁS
Líttu við hjá okkur í RAFRÁS og kynntu þér hvaða aðstoð
við getum veitt þér við að tölvuvæða fyrirtæki þitt.
Sérmenntaðir starfsmenn í öllum deildum ásamt ótrúlegu
úrvali fyrsta flokks tölvubúnaðar og reynsla á sviði hönnunar
hugbúnaðar fyrir íslensk fyrirtæki eru þeir þættirsem skipa
RAFRÁS í fremstu röð íslenskra tölvufyrirtækja.
RAFRÁS er umboðsaðili fyrir eftirtalda framleiðsluaðila:
Memorex, Osborne Computer Corp., Nort Star Computer
Corp., Visual Technology, Mannesmann-Tally, Oki Electric,
Computer International, Safe Computing, Micro Products
Software Ltd. o.fl.
FELLSMULA 24 SIMAR: 82055/82980