Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983
Ungur ýtustjóri slapp naumlega er ýtan fór í sjóinn:
„Fékk holskeflu gler-
mig“
út úr húsinu og upp á yfirborðið
og synti síðan til lands. Menn
sem eru að reisa olíutanka þarna
á múlanum tóku á móti mér og
hjálpuðu mér í land. Ég er ekk-
ert meiddur að ráði en þó finn ég
til eymsla í höfði og í baki. En
það var mikið af kurluðu gleri
innan fata sem ekki kom í ljós
fyrr en ég fór að skipta um föt.“
Húnbogi var aðeins búinn að
vera fjóra daga á jarðýtu þegar
óhappið varð en hann er vanur
öðrum vinnuvélum. Hann var
ekkert eftir sig eftir volkið og
sagðist tilbúinn að byrja aftur
þegar vélin kemst í lag ef eig-
andi hennar vildi. Konráð Gísla-
son, eigandi ýtunnar, sagðist
vona að búið yrði að gera við
hana á miðvikudag eða fimmtu-
dag en hún skemmdist ekki mik-
ið nema rafbúnaður og rúður.
Úlfar
sjávar yfir
Morgunbladid/Úlfar.
ísafirdi, 7. júní.
„ÉG fann þegar stórgrýtiö byrjaði
að skríða undan jarðýtunni,“ sagði
Húnbogi Valsson, 23ja ára ýtu-
stjóri á ísafirði, sem varð fyrir
þeirri lífsreynslu síöastliðinn
mánudag að sex tonna jarðýta,
sem hann stjórnaði, sökk á um sjö
metra dýpi í sundunum á ísafirði.
„Ég reyndi strax að koma ýt-
unni í bakkgír en þá drap hún á
sér og ég stefndi beint í hafið.
Þegar ýtan, sem allan tímann
stóð á beltunum, var komin í sjó
ætlaði ég að komast út um einu
dyrnar í stjórnhúsinu, en vatns-
þrýstingurinn var þá orðinn svo
mikill að ég gat ekki opnað. Ég
veit ekki nákvæmlega hvað gerð-
ist; en um það bil sem ýtan
stöðvaðist á botni splundraðist
framrúðan undan vatnsþungan-
um og ég fékk holskeflu gler-
brota og sjávar yfir mig. Ég
drakk einhvern sjó en komst þó
Húnbogi Valsson við jarðýtuna.
brota og
Sementsverksmiðjan:
Fyrstu kolin
FYRSTI kolafarmurinn til semcnts-
verksmiðjunnar á Akranesi kom frá
Amsterdam á mánudaginn, en sem-
entsverksmiöjan mun á næstunni taka
kol til brennslu í stað olíu.
í samtali við Mbl. sagði Guðmund-
ur Guðmundsson framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðju ríkisins, að um
з. 600 tonn af kolum hefðu verið af-
fermd á Grundartanga í gær. Kolin
komu um Amsterdam frá Bandaríkj-
unum. Ekki hefði verið talið ráðlegt
að geyma þau nálægt byggð og því
verið brugðið á það ráð að afferma
þau á Grundartanga. Guðmundur
sagði ennfremur að brennsla kola
hæfist innan skamms, en þau kost-
uðu nú u.þ.b. helming af olíuverði.
Hefði verið byggð sérstök verk-
smiðja er malaði kolin og blési þeim
inn í ofn, þar sem sementsgjallið
væri brennt. Þá hefðu verið gerðar
ráðstafanir til mengunarvarna, en
kostnaður við framkvæmdir væri
и. þ.b. 30 milljónir króna.
Ný plata Mezzoforte
komin upp f 75. sæti
Nýja tveggja laga piatan með Mezzoforte, sem ætlað er hið
erfiða hlutverk að fylgja forvera sínum eftir, komst í gær-
morgun upp í 75. sæti breska smáskífuvinsældalistans eftir
að hafa gist 83. sætið í síðustu viku, en þá aðeins eftir tveggja
daga sölu.
Á þessari nýju plötu er aðallagið
„Rockall", en lagið á B-hliðinni heit-
ir „Gazing At The Clouds“ og munu
margir e.t.v. kannast betur við lagið
undir nafninu „Spáð í skýin.“ Fast-
lega má gera ráð fyrir að „Rockall"
sigli upp vinsældalistann, en hvort
lagið kemst í 17. sætið, eins og
„Garden Party“, eða jafnvel enn ofar
verður framtíðin að skera úr um.
Eftir talsverðar tafir er breiðskíf-
an „Catching Up With Mezzoforte"
loks að koma út í Bretlandi, en á
henni er að finna bestu lögin af
þremur fyrstu plötum hljómsveitar-
innar. Er að sögn Péturs Kristjáns-
sonar hjá Steinum hf. vonast til þess
að hún fullnægi þeirri þörf, sem ver-
ið hefur fyrir nýja plötu frá Mezzo-
forte að undanförnu.
Lagið „Rockall" hefur fengið mjög
góðar viðtökur í útvarpsstöðvum og
heyrist títt á öldum ljósvakans. Þá
hafa þær fregnir borist af tónleika-
ferðalagi hljómsveitarinnar, að
henni hafi verið tekið með kostum og
kynjum er hún kom fram í Henryá
Africa í Glasgow í gær. Var fram-
kvæmdastjóri hússins að sögn yfir
sig ánægður, en um leið súr yfir því
að hafa aðeins bókað hljómsveitina á
tvenna tónleika.
Troðfullt var á öllum tónleikum
Mezzoforte í Baileyá í Watford og
lætur nærri að um 7000 manns hafi
heyrt hana leika þar. Mezzoforte átti
upphaflega að leika í Glasgow í
gærkvöldi og í kvöld, en tónleikunum
var flýtt um einn dag. Frá Glasgow
heldur hljómsveitin til Worcester,
þá Poole, Croydon og Manchester, en
ferðalaginu lýkur ekki fyrr en um
miðjan júlf.
Geimferjan hér aftur
BANDARÍSKA geimferjan Enter-
prise hefur viðdvöl hér á landi á
leið sinni til Bandaríkjanna frá
flugsýningunni í París. Hún var á
áætlun hingað til Keflavíkurflug-
vallar klukkan 13.45, en var fyrr á
ferðinni og flaug lágt yfir Reykja-
vík í leiðinni, þó það hafi ekki ver-
ið á upphaflegri flugáætlun hennar
hingað. í gær og í morgun hefur
fólk leyfi til að skoða hana í ná-
lægð, en ekki er leyft að fara inn í
hana.
Eins og fyrr sagði lagði ferjan
upp frá París og flaug yfir Birm-
ingham, Manchester og Glasgow
á leið sinni hingað til lands.
Myndina tók Einar Falur Ing-
ólfsson af ferjunni á Keflavíkur-
flugvell í gær, skömmu eftir
komu ferjunnar. Héðan fer ferj-
an klukkan 11 í dag áleiðis til
Goose Bay á Nýfundnalandi.
Þekktur spænskur píanóleikari, Jose Ribera, hélt tónleika í Norræna húsinu í gærkvöldi. Á efnisskránni var
spænsk nútímatónlist. Ribera, sem lék nú í fyrsta sinn á íslandi, er þekktur fyrir flutning nútímatónvcrka og
hafa mörg nútímatónskáld tileinkað honum verk sín. MorgunbiaAiA/KEE.
Trúum ekki öðru
en Alþingi felli
skerðingarákvæðin
Segir Kristján Thorlacius, formaður BSRB
„VIÐ LEGGJUM megináherslu á
tvennt, annars vegar að afnámi rétt-
inda til samninga verði aflétt og
kaupskeröingarákvæði bráðabirgða-
laganna verði endurskoðuð," sagði
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, í gærkvöldi í samtali við
Morgunblaðið, vegna ályktunar
stjórnar og samninganefndar banda-
lagsins, sem sagt er frá annars stað-
ar í blaðinu.
„Við teljum að bráðabirgðalögin
feli í sér ákvæði sem séu slík
skerðing á mannréttindum og
gróflegt brot á lýðræði, að við
trúum því ekki fyrr en á verður
tekið að Alþingi felli ekki þessi
skerðingarákvæði, þegar í sumar.
Þessi ákvæði varða sjálfan
grundvöll lýðræðisins og frjálsrar
verkalýðshreyfingar.
Hvað kjaraskerðinguna varðar
þá er hún gífurleg og við óttumst
að erfitt verði að na upp áætlaðri
30% kjaraskerðingu og það verði
því erfitt að ná upp laununum aft-
ur. Þar að auki óttumst við mjög
að ráðstafanirnar leiði til slíks
samdráttar í atvinnulífinu, að það
muni fara hér eins og þar sem
svipuðum aðferðum hefur verið
beitt, að þær leiði til atvinnuleys-
is. Samtökin álíta þetta mjög
uggvænlegar horfur," sagði
Kristján.
„Við höfum ákveðið að segja
upp gildandi kjarasamningum og
boða til funda með félagsmönnum
okkar í haust, þar sem þessi mál
verða rædd. Þessi fundahöld eru
ekki hvað síst hugsuð til að leita
álits okkar félagsmanna og í
framhaldi af þeim verður boðað til
bandalagsráðstefnu, þar sem það
álit sem kemur fram á þessum
fundum verður haft að leiðarljósi
við ákvarðanir um frekari aðgerð-
ir,“ sagði Kristján að lokum.
Góð aðsókn
hjá Braga
SÝNINGU Braga Ásgeirssonar í
Listmunahúsinu lauk um helgina.
Aðsókn var mjög góð og seldust
um 50 myndir og 20 grafíkmöppur.
Mest var aðsóknin á sunnudaginn
og var þá stöðugur straumur fólks
á sýninguna.