Morgunblaðið - 08.06.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ1983
Uppástunga
frá Andrópof
Moskvu, 7. júní. AP.
ANDRÓPOF Sovétleidtogi hefur endurnýjað tillögu Sovétmanna um kjarn-
orkuvopnalaus Nordurlönd. í veizlu, sem hann hélt forseta Finnlands,
Mauno Koivislo, á mánudagskvöld, sagöi Andrópof aó hugmyndin gæti
einnig átt við um Eystrasalt.
Leiðtoginn varpaði þessu fram
eftir að hann og Koivisto höfðu
undirritað samning sem fram-
lengir vináttu- og samstarfs-
sáttmála Finnlands og Sovétríkj-
anna til ársins 2003. Fyrir nokkr-
um mánuðum lét yfirhershöfðingi
í sovézka hernum, Nikolai Cher-
vov, í veðri vaka, að ef Eystrasalt
yrði lýst kjarnorkuvopnalaust
svæði, myndu Sovétmenn nema
brott sex kafbáta búna kjarnorku-
eldflaugum sem þar eru staðsettir.
Sérfræðingar á Vesturlöndum
hafa hins vegar leitt rök að því að
hér sé um úrelta kafbáta að ræða,
sem verið sé að taka úr umferð.
Friðarsinni
handtekinn
Moskvu, 7. Júní. AP.
TIMBURVERKAMAÐUR frá Síb-
eríu, sem dreiföi bréfi þar sem
Kandaríkjamenn og Sovétmenn eru
beönir um aö ónýta kjarnorkuvopn
sín, befur veriö dæmdur til þriggja
ára fangelsisvistar, aö því er eigin-
kona hans tilkynnti í dag.
Maðurinn, Alexander Shatr-
Lokað fyrir
hallarsögur
London, 6. júní. AP.
ÆÐSTI vörður dóms og laga í
Bretlandi hefur komið í veg fyrir
að fyrrverandi þjónustustúlka í
Buckingham-höll fái aö segja frá
rcynslu sinni viö brezku hirðina,
að sögn talsmanna hallarinnar í
dag.
Ollu starfsfólki við hirðina
mun skylt að undirrita þagnar-
eið og hafa lögfræðingar hennar
tvisvar staðið í málarekstri
vegna tilrauna fyrrverandi
starfsfólks til að hagnast af
vitneskju sinni. Samkvæmt tals-
mönnum hallarinnar hefur rík-
issaksóknari Bretlands stefnt
fyrrverandi þjónustustúlku,
Michelle Riles að nafni.
Nýja-Delhi:
Brenna brúðir
sínar til bana
Nýja-Delbi, 6. júní. AP.
SEXTAN ungar brúðir voru brenndar
til bana í síöustu viku í Nýju-Delhi,
höfuöborg Indlands, vegna þess, að
foreldrar þeirra gátu ekki greitt fé-
gráöugum tengdasonunum nægan
heimanmund að því er lögreglan
greinir frá.
Síðastliðinn laugardag var 23 ára
gömul stúlka, Padmawati Khurana
að nafni, brennd til bana í einu
hverfa Delhi-borgar og olli dauði
hennar uppþotum og miklum mót-
mælum. Hundruð manna gengu um
götur með brunnin líkama stúlk-
unnar í fararbroddi og var þess
krafist, að tengdafólki hennar
fyrrverandi væri refsað að mak-
leikum.
Tengdamóðir Khurönu, mágur
hennar og tvær mágkonur hafa
verið handtekin, sökuð um morð,
en mannsins hennar fyrrverandi er
enn saknað.
Um helgina var tilkynnt um tvær
brúðarbrennur í viðbót og hafa eig-
inmennirnir og þeirra fólk þann
háttinn á, að þeir ausa steinoliu
yfir konurnar og bera eld að. Er
ástæðan undantekningarlaust sú,
að foreldrar kvennanna reyndust
ekki jafn vel efnaðir og fjölskylda
brúðgumans hafði talið sér trú um.
Að sögn yfirvaldanna voru 260
konur brenndar til bana í höfuð-
borginni einni á síðasta ári og urðu
þessir atburðir langflestir meðal
miðstéttarfólks, sem talar punjabi.
avka, var handtekinn í júlímánuði
síðastliðnum er hann var að safna
undirskriftum undir friðaráskor-
un fyrir sjálfstæða friðarhreyf-
ingu í Moskvu. Eiginkona hans,
Anna, tilkynnti síðan í dag að
hann hafi verið dæmdur fyrir and-
sovéskan áróður 26. apríl síðast-
liðinn í bæ nokkrum í Vestur-
Síberíu.
Hún sagði að fjórtán sam-
starfsmenn eiginmanns síns hefðu
vottað það við réttarhöldin að þeir
hefðu undirritað skjalið án þess að
hafa tekið eftir því hvað á því stóð
og vildu þeir því fá nöfn sín máð
þaðan út.
Shatravka var handtekinn af
finnskum landamæravörðum árið
1974 á landamærum Finnlands og
Sovétríkjanna og honum snúið
aftur til Sovétríkjanna eftir
flóttatilraun. Hann var þá í fimm
ár á geðveikrahæli.
Shatravka er fyrsti Sovétmað-
urinn sem hlýtur fangelsisdóm
fyrir kjarnorkumótmæli svo vitað
sé. Margir hafa hins vegar orðið
að þola gæsluvarðhald eða yfirgef-
ið land.
Veður
víða um heim
Akureyri 13 léttskýjaó
Amsterdam 20 heiöskírt
Aþena 30 skýjaó
Beirút 27 heióskírt
Barcelona 31 lóttskýjeó
Berlín 20 heióskfrt
Brusael 28 heióskfrt
Chicago 20 heiðskfrt
Dyflinni 15 skýjaó
Feneyjar 21 heióskfrt
Frankfurt 21 heiöskfrt
Genf 23 skýjaó
Helsinki 16 skýjaó
Hong Kong 29 heióskfrt
Jerúsalem 25 heióskfrt
Jóhannesarborg 19 heióskírt
Kaupmannahöfn 17 heióskfrt
Las Palmas 22 lóttskýjaó
Lissabon 20 rigning
London 25 heióskfrt
Los Angeles 20 skýjaó
Madrid 33 heióskirt
Malaga 24 Mttskýjaó
Mallorca 31 heiórikt
Mexikóborg 18. skýjaó
Montreal 15 rigning
Moskva 17 skýjaó
New York 26. skýjaó
Nýja Delhí 43 heióskírt
Osló 19 heióskfrt
París 28 heióskfrt
Peking 33 heióskfrt
Rio de Janeiro 23 rigning
Reykjavík 10 alskýjaó
San Francisco 31 skýjaó
Stokkhólmur 18 rigning
Tel Aviv 27 heióskfrt
Tókýó 25 skýjaó
Vancouver 20 skýjaó
Þórshöfn 12 skýjaó
Nýlega var settur á sviö leikur í lofti yfir Lundúnum þegar tvcr vélar úr síöari heimsstyrjöldinni voru látnar auglýsa
alþjóölega flugsýningu sem haldin var á Biggin Hill. Myndin sýnir hvar Messerschmitt-vélin er „skotin niður“ af
Spitfire-vél, sem nýlega var seld á uppboöi fyrir 260.000 pund.
Hart skyldi
mæta hörðu
París, 7. júní. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Frakklands, Claude Cheysson,
varaði í dag vid minnstu eftirgjöf gagnvart áróöursbrögðum
andstæöinga meöaldrægra kjarnorkueldflauga.
í ræðu, sem hann flutti á þing-
fundi Vestur-Evrópubandalagsins,
sagði Cheysson: „Þetta er hættan,
sem steðjar að nú. Undanlátssemi
af okkar hálfu kynni að gera
frakkari hugsanlega andstæðinga,
sem annaðhvort vita ekki eða
þykjast ekki vita af óróleika eigin
þegna." Hann sagði ennfremur að
misvægi það er Sovétmenn hefðu
orsakað með því að miða
SS-20-eldflaugum sínum á Evrópu
væri óviðunandi. Það er von
Frakka, bætti hann við, að vog-
arskálarnar verði aftur jafnaðar
við samningaborðið í Genf. Utan-
ríkisráðherrann kvað þó fráleita
hugmynd að semja um sjálfstæð-
an kjarnorkuvígbúnað Frakka.
('heysson,
utanríkisráöherra Frakka.
Sovétríkin:
Hundrað fórust er
skip rakst á brú
\ <_■. n áii
Moskvu, 7. júní. AP.
MEIRA EN HUNDRAÐ sovéskir ferðamenn létu lífíð þegar farþegaskip á
ánni Volgu rakst á járnbrautarbrú meö þeim afleiöingum aö efsta þilfarió
rifnaói af, að því er talsmaóur sovésku ríkisferðaskrifstofunnar tilkynnti í
kvöld. Ostaófestar fregnir hermdu aó tala látinna væri nær tvö hundruö.
Talsmaðurinn, sem ekki vildi Slysið átti sér stað á sunnu-
láta nafns síns getið, sagði þá er dagskvöld nálægt iðnaðarborginni
létust hafa verið í kvikmyndasal
skipsins, sem er tékkneskt og ber
nafnið Alexander Suvorov. Eng-
inn erlendur ferðalangur mun
hafa verið um borð þegar slysið
átti sér stað.
Ulyanovsk, sem er fæðingarstaður
Lenins, um 720 kílómetra suðaust-
ur af Moskvu, að því er segir í
fregnum sovéskra fjölmiðla. Skýrt
var frá slysinu á sama tíma hjá
opinberu fréttastofunni TASS og í
Dómar yfir mafíu
Palermo, Sikiley, 7. júní. AP.
í LOK umsvifamestu málsóknar gegn Mafíunni, sem dæmi eru um, ákvaó
héraósdómstóll á Sikiley snemma þriðjudags aó fimmtíu og níu einstaklingar
væru sekir félagar í meiri háttar eiturlyfjahring og dæmdi þá til fangelsisvistar
í aó minnsta kosti sex mánuði og í mesta lagi tuttugu ár.
Ákærurnar má rekja aftur til skyldan, Inzerillo-fjölskyldan og
ársins 1980 er lögreglan klófesti
fjörutíu kíló af heróíni í Mílanó áð-
ur en það komst á áfangastað í New
York. f hópi sökudólganna eru með-
limir þriggja fjölskyldna í Palermo,
sem um langan aldur hafa verið
viðriðnar Mafíuna, Spatola-fjöl-
Gambino-fjölskyldan. Foringi eit-
urlyfjahringsins, Rosario Spatola,
var dæmdur í þrettán ára fangelsi
og honum skipað að greiða sekt að
jafnvirði nær einnar og hálfrar
milljónar íslenzkra króna.
kvöldfréttum sovéska sjónvarps-
ins á mánudagskvöld.
Fregnir af slysum í Sovétríkjun-
um eru sjaldgæfar og eru yfirleitt
ekki birtar nema í hlut hafi átt
háttsettir sovéskir embættismenn
eða útlendingar, eða um hafi verið
að ræða svo mikið manntjón að
ógerlegt er að halda fréttinni
leyndri.
í opinberri tilkynningu stjórn-
valda segir: „Miðstjórn kommún-
istaflokksins og stjórnmálaráðið
tilkynna hér með að 5. júní henti
óhapp farþegaskipið Alexander
Suvorov á ánni Volgu, í nánd við
borgina Ulyanovsk, og manntjón
varð ..."
Einnig kemur fram í tilkynn-
ingunni að nefnd háttsettra
manna hafi verið skipuð til að
rannsaka tildrög slyssins. Engar
frekari upplýsingar voru gefnar.
Ekki tókst að ná sambandi við
embættismenn í Ulyanovsk í dag,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og
lögregla og embættismenn, sem
talað var við í gærkvöldi, sögðust
ekki geta gefið neinar frekari upp-
lýsingar um málið.
Anderson í for-
setaframboð 1984
WaNhington, 7. júní. AP.
JOHN B. ANDERSON mun veröa meö í baráttunni til forsetakjörs á árinu
1984 sem leiðtogi nýs fiokks. Ekki er aö vænta opinberrar tilkynningar um
framboóið á næstunni, en Anderson, sem er fyrrverandi þingmaóur repúblik-
ana, er um þessar mundir aó undirbúa kosningabaráttu sína.
Anderson tilkynnti þetta á
fundi fyrir skömmu og sagðist
hafa þá trú að milljónir kjósenda
séu orðnar þreyttar á leiðtogum
demókrata og repúblikana. Hann
stefnir að því að koma á fót nefnd
25 manna til að koma þessum
þriðja flokki á laggirnar. „Þessu
verður að vera lokið fyrir haust-
ið,“ sagði Anderson í viðtali.
John B. Anderson