Morgunblaðið - 08.06.1983, Side 15

Morgunblaðið - 08.06.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 15 Áhöfnin hvumsa er stálfugl settist London, 7. júní. AP. ELDSNEYTISLAUS þota af Harrier-gerd í eigu brezka flotans nauðlenti á mánudagskvöld á þilfari spænska flutningaskips á Atlantshafi, að sögn brezka varnarmála- ráðuneytisins í dag. Áhöfnin um borð í flutn- ingaskipinu Alraigo, sem er tvö þúsund og þrjú hundruð tonn, fylgdist með forviða er þotan settist ofan á hleðsluhólf skips- ins, en þotur af Harrier-gerð eru þeim kostum búnar að geta lyft sér og lent lóðrétt og þar með án flugbrautar. Talið er að nokkrar skemmdir hafi orðið á þotunni og að hún sé ekki í flugfæru ástandi, en sjálft mun skipið óskaddað, svo og farmur þess. Flugmaðurinn mun upphaf- lega hafa ætlað að lenda þotunni við hliðina á flutningaskipinu, eftir að hann hafði tapað sam- bandinu við móðurskipið, en sá sér síðan leik á borði að stýra henni milli lunninga og lenda henni á bringunni til að forðast skrið. Mun atburðurinn hafa átt sér stað í um 192 kílómetra fjar- Harrier-þota brezka flotans. lægð suðvestur af Oporto í Portúgal, en móðurskip þotunn- ar „HMS Illustrious", var á leið til að taka þátt í flotaæfingum Atlantshafsbandalagsins á Atl- antshafi. Austur-Þýskaland: Fyrrverandi nasistaforingi dæmdur í lífstíðarfangelsi Berlín, 7. Júní. AP. AUSTUR-þýskur dómstóll dæmdi í dag Heinz Barth, fyrrverandi SS-for- ingja, í lífstíðarfangelsi fyrir þátt hans í fjöldamorðum í síðari heims- styrjöldinni í Frakklandi og Tékkó- slóvakíu. Talið hafði verið líklegt að Barth, sem er 62 ára gamall, yrði dæmdur til dauða. Hann var ákærður fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni þar sem hann stóð fyrir því að 642 menn voru teknir af lífi í Oradour-sur-Glane í Frakklandi 10. júní 1944. Hann viðurkenndi einnig að hafa tekið 92 Tékka af lífi árið 1942. Hann sagði það hafa verið hefndarráð- stöfun vegna þess að andspyrnu- hreyfingin hafði tekið nasista- foringja af lífi. Réttarhöldin, þar sem fjöldi vitna kom fram, hófust 25. maí síðastliðinn. Yfirvöld í Austur- Þýskalandi segja Barth hafa búið í landinu án nokkurs eftirlits þar til hann var handtekinn á árinu 1981. Barth var viðstaddur þegar dómsorð var kveðið upp í dag og hlustaði álútur. Heinz Barth, fyrrverandi nasistafor- ingi, hlýðir á niðurstöðu réttarins í dag, en hann var dæmdur í lífstíðar- fangelsi fyrir stríðsglæpi í síðari heimsstyrjöldinni. Sendiherra Frakklands í Aust- ur-Þýskalandi, Maurice Deshors, var viðstaddur hluta réttarhald- anna og hlustaði á fimm landa sína lýsa því hvernig þeir hefðu komist lífs af úr Oradou-fjölda- morðunum með því að liggja hreyfingarlausir innan um lík vina sinna og ættingja. Franskur herréttur dæmdi Barth til dauða að honum fjar- stöddum árið 1953, en Frakkar fóru ekki fram á framsal hans nú. Það liggur enn ekki ljóst fyrir hvernig Barth tókst að búa í Austur-Þýskalandi óáreittur í öll þessi ár, en saksóknarinn, Horst TALSMENN vestrænna ríkja, bæði á og utanvið ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um þróun og viðskipti, úti- íokuðu nánast í dag nýjar skuld- bindingar um þróunaraðstoð til þriðja heimsins. Aðalritari ráðstefn- unnar, Gamani Corea, hafði þó lýst því yfir áður í dag, að þróunarlöndin þyrftu á milli 85 og 140 milljarða Bandarikjadala í viðbótaraðstoð til þróunar á árinu 1984—’85 Það voru háttsettir bandarískir embættismenn á sjötta fundi ráðstefnunnar í Belgrad, ásamt vestur-þýzka efnahagsmálaráð- herranum Otto Lambsdorff, sem gáfu í skyn að þróunarlöndin gætu ekki vænzt mikils af ráðstefnunni í þetta sinn. í ræðu sinni i dag sagði aðalritari ráðstefnunnar hins vegar, að æskilegt væri að upphæð sú er hann nefndi kæmi frá þjóðlegum peningastofnunum, opinberum þróunarsjóðum, einka- fjármagnsmörkuðum, tækniað- stoðarfyrirtækjum og sjálfstæð- um fjárfestingaraðilum. Hann sagði að þróunarlöndin væru í gíf- urlegum þrengingum fjárhagslega Busse, gat þess á einum stað í skýrslu sinni, að ónefnd ríki á Vesturlöndum hefðu ekki veitt fullnægjandi gögn í málum stríðs- glæpamanna. Barth féll nokkrum sinnum saman við vitnaleiðslurnar, er hann hlýddi á fyrrverandi fórnar- lömb sín lýsa atburðum. Hann viðurkenndi allar ákærurnar og sagðist einungis hafa verið að framkvæma skipanir. og ekkert nema tafarlaus stuðn- ingur gæti komið því til leiðar að hagþróun kæmist fljótlega á skrið. Einnig benti hann á að hagvöxtur í iðnríkjunum væri háður efna- hagsbata í þróunarríkjunum og öfugt. En áður en iðnríkin gætu byrjað gagnsókn sína, sagði hann að fullnægja yrði eftirtöldum skil- yrðum: vextir þyrftu að lækka, jafnvægi þyrfti að koma á í al- þjóðagengismálum, og snúa þyrfti við varnarstefnu í tollamálum. Corea flutti ræðu sína á öðrum degi sjöttu ráðstefnunnar, sem mun standa yfir til loka júnímán- aðar. Danir vilja deilu setta í gerðardóm Osló, Frá Jan Erik Lauré, frétta- ritara Morgunblaðsins. Viðrádanlegri reiðhjólsslanga Hannover, V estur l»ýzkalandi, 7. júní. AP. VESTUR-ÞÝZKT gúmmífyrirtæki hefur skýrt frá því að það hafi fram- leitt reiðhjólsslöngu, sem unnt er að gera við án þess að taka hjólið sjálft af reiðskjótanum. Hin nýja slanga sýnist við fyrstu sýn vera hringlaga líkt og þær slöngur, sem þegar eru á markaðnum, en við nánari at- hugun reynist hún hafa tvo sam- tengda en loftþétta enda. Segir í tilkynningu frá framleiðandan- um, Continental Gummiwerke, að hægt sé að toga slönguna af hjólinu til hliðar án þess að taka það af gafflinum — eða ef um afturhjól er að ræða, án þess að taka af keðjuna. Ekki er enn vit- að hvenær slangan nýja kemur á almennan markað. Þróunarlöndum léð óhlióðseyru Belgrad, 7. júní. AP. ^ ** Mannleg mistök komu af — segir í niðurstöðu dansks herréttar Kaupmannahöfn, 7. júní. AP. HERRÉTTUR kvað í dag upp þann úrskurð að það hafi verið aðgæsluleysi yfirmanns sem varð til þess að flugskeyti var hleypt af stað af freigátunni Peter Skram í september á síðastliðnu ári með þeim afleiðingum að það hafnaði í miðri sumarbústaðabyggð rétt utan við bæinn Lumsás. Atvik þetta átti sér stað 6. sept- ember síðastliðinn þegar freigát- an Peter Skram var á leið til að taka þátt í heræfingum NATO í Eystrasalti. Sex sumarbústaðir gjöreyði- lögðust er flugskeytið lenti á sumarbústaðabyggðinni og tólf aðrir skemmdust lítillega, en eng- inn slasaðist. Lögreglan sagði eft- ir á, að veðrið hafi að öllum líkind- um afstýrt stórslysi þennan dag, þar sem enginn var í bústöðunum sökum rigningar. Eftir margra mánaða rannsókn á atviki þessu tilkynnti herréttur- inn í dag að það hafi verið yfir- maður í hergagnadeild, en ekki skipherra freigátunnar, sem hafi verið ábyrgur fyrir atvikinu. NORÐMENN hafa lýst sig undr- andi á þeirri hótun Dana, að skjóta deilunni á milli þeirra og Grænlend- inga um staðsetningu skiptilínunnar á milli Austur-Grænlands og Jan Mayen til alþjóðlegs gerðardóms. Uffe Elleman-Jensen, utanrík- isráðherra Dana, skýrði frá því fyrir helgina að Danir hygðust leita ásjár gerðardóms í deilunni ef ekki yrði gert átak af hálfu Norðmanna til þess að leysa hana hið snarasta. Talsmaður norska utanríkis- ráðuneytisins, Geir Gung, hefur lýst furðu sinni á þessum ummæl- um Elleman-Jensen og segir Norð- mönnum ekki hafa skilist hingað til, að deiluna þyrfti að leysa með forgangshraði. Umræðurnar hafi enn ekki siglt í strand og því séu ummæli danska ráðherrans óskilj- anleg. Kínversk vél í hafið Tapei, Taiwan, 7. júní. AP. FLUTNINGAVÉL kínverskra þjóð- ernissinna fórst í hafið með óbreytta borgara innanborðs skömmu eftir að hún hóf sig til flugs frá eyjunni Que- moy á leið til Taiwan. Að sögn varn- armálaráðuneytisins á Taiwan létu a.m.k. sautján af fjörutíu og sjö manns lífið. Að sögn ráðuneytisins var níu manns fljótlega bjargað, en flug- vélar og bátar leita nú tuttugu og eins manns, sem saknað er. Flugvélin, af gerðinni C-119, mun hafa hrapað eftir bilun í hreyfli hægra megin og fallið níu- tíu og einn metra áður en hún skall á sjónum. Farþegarnir voru flestir á leið til ættingja í Taiwan. Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL/GOOLE: Jan ............ 12/6 Jan ............ 27/6 Jan ............ 11/7 Jan ............. 25/7 ROTTERDAM: Jan ............ 13/6 Jan ............ 28/6 Jan ............ 12/7 Jan ............ 26/7 ANTWERPEN: Jan ............ 14/6 Jan ............ 29/6 Jan ............ 13/7 Jan ............ 27/7 HAMBORG: Jan ............ 16/6 Jan ............. 1/7 Jan ............ 15/7 Jan ............ 29/7 HELSINKI: Helgafell ...... 10/6 Helgafell ...... 11/7 LARVIK: Hvassafell ..... 20/6 Hvassafell ...... 4/7 Hvassafell ..... 18/7 GAUTABORG: Hvassafell ..... 21/6 Hvassafell ...... 5/7 Hvassafell ..... 19/7 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ..... 22/6 Hvassafell ...... 6/7 Hvassafell ..... 20/7 SVENDBORG: Hvassafell ...... 9/6 Helgafell ...... 17/6 Hvassafell ..... 23/6 Dísarfell ...... 27/6 Hvassafell ...... 7/7 ÁRHUS: Hvassafell ...... 9/6 Helgafell ...... 17/6 Hvassafell ..... 23/6 Dísarfell ...... 27/6 Hvassafell ...... 7/7 GLOUCESTER MASS.: Skaftafell ...... 21/6 Skaftafell ...... 19/7 Jökulfell ....... 28/7 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ........ 23/6 „ Skaftafell . 21/7 öKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.