Morgunblaðið - 08.06.1983, Side 24

Morgunblaðið - 08.06.1983, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 spurt og svarað Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS HAFLIÐI Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, hefur tekið að sér að svara spurningum lesenda Morgunblaösins um garðyrkju, Lesendur geta lagt spurn- ingar fyrir Hafliða jafnt um ræktun matjurta sem trjárækt og blómarækt. Tekið er á móti spurningum lesenda á ritstjórn Morgunblaðsins í síma 10100 milli kl. 11 og 12 árdegis, mánudaga til föstudaga. Hafliði Jónsson er landsþekktur garðyrkju- frömuður og hefur haft yfirumsjón með öllum ræktunarmálum borgarinnar í nær þrjá áratugi. GLERBROT OG PLASTDOLLUR IJndirbúningur þjóðhátíðarhalda 17. júní er nú í fullum gangi og það minnir mig á þá tíð, þegar allt var gert til að skreyta borgina okkar eins og framast gat orðið á þessum árstíma, með vel þvegnum götum, slegnum grasblettum, blóm- skreyttum torgum og fánaborðum allt um kring við tjörnina. Þetta var fyrir þá tíð, er Aust- urstræti var orðið að göngugötu og plastílát voru komin til sög- unnar, og áður en farið var að tala um nauðsyn þess að skapa líf í borg. Torfumenningin hafði ekki haldið innreið sína í okkar litla samfélag. Engum kom til hugar að mæta við Austurvöll og hlýða á ræður um Jón Sigurðsson, „sverð okkar og skjöld" í frels- isbaráttunni, klæddir gallabux- um og með óþvegið hár. Og þótt Haukur Morthens héldi uppi fjöri með hljómsveit Svavars Gests á Lækjartorgi fram undir morgun og kaupahéðnar seldu blöðrur og pylsur úr tjöldum við Útvegsbankann, þá var auðvelt að hreinsa upp bréfsneplana að morgni næsta dags og blómin á Austurvelli brostu við vegfar- endum eftir ánægjulega þjóð- hátíð. En nú er af sú tíð. Börnin okkar tekin við, stríðalin af eft- irlæti okkar og allt viðhorf þeirra er annað en okkar, sem fögnuðum 17. júní 1944 — lang- þráðum degi frelsis og fyrir- heita, fyrir tæpum 40 árum. Og okkur fallast hendur er við göng- um um Austurvöll og Austur- stræti að morgni 18. júní, allt er nú með öðrum svip en við höfð- um vænst. Fagnaðarhátíð hefur leitt til foræðis og blómin á Austurvelli ekki lengur til, Aust- urstræti glerbrotavöllur, plast- dollur um öll stræti. Hvað hefur skeð? Það er áreiðanlega orðið tíma- bært að staldra við og hugleiða leiðir til úrbóta á þeim ófögnuði sem við höfum leitt yfir okkur, með vanhugsuðum aðgerðum í frjálsræðisátt, er verða mættu til þess að gera Reykjavík að líf- legri borg. Sú hugsjón okkar hef- ur leitt til þess ófagnaðar sem við okkur blasir að morgni hvers hvíldardags árið um kring, ef við leggjum leið okkar um götur og torg miðborgarinnar. Hvað er til ráða, er verða mætti til að snúa þessum ófögn- uði í þann farveg, að öllum verði metnaðarmál að ganga um á al- mannafæri með sama hugarfari og þeir láta sér annt um að gera, innan veggja eigin heimilis? Þessa dagana leita hundruð skólafólks eftir sumaratvinnu, sem erfitt er að veita m.a. vegna þess hversu kostnaðarsamt það er að halda borginni sómasam- lega hreinni eftir vanhugsaða skemmtan margs af þessu sama fólki, við að sóða út umhverfi sitt og þyngja með því skatt- byrði uppalenda sinna. í níu mánuði ársins höldum við úti skólum fyrir þetta sama æsku- fólk, fyrir stóran hluta af þeim launum sem við vinnum okkur inn og greiðum því að auki vasa- aura til að geta ólátast um helg- ar, með þeim sýnilega ófögnuði er við okkur blasir hvarvetna á strætum borgarinnar. Er nema von þótt okkur, er eigum að annast upphreinsun á soranum, sárni og teljum ástæðu ærna til að aðhafast eitthvað til að kveða niður þennan ósóma? II Birkikvistur Ágústa Sigurðardóttir, Selfossi, spyr: Er eitthvað hægt að gera við því, þegar birkikvisturinn er orðinn lat- ur að blómstra? Svar: Birkikvistur er það sem við köllum hálf-runna eða mitt á milli runna og fjölærrar jurtar. Slíkir runnar geta átt það til að verða með vetrarkal alveg niður að rót á hörðum vetrum, en vaxa upp og blómstra á einu sumri þrátt fyrir það. Birkikvisturinn hefur sýnt að hann er afar harð- gerður og heldur lífi í greinum, þótt um hann blási napurt að vetrinum. Sjálfsagt gæti það örvað hann til blómgunar að taka hann upp á nokkurra ára fresti og skipta honum í tvo eða þrjá hluta, sé hann kominn með mikla rót. III Lótusinn Hróðný Bogadóttir, Kambaseli 21, spyr: Lótusinn, sem um ræðir og ég spurði um í síðasta þætti (þ.e. 1. júní), heitir fullu nafni lotus nel- imbo nucifera. Svar: Ég verð að biðja Hróðnýju velvirðingar á því, að ég skuli hafa getið mér rangt til um lót- usblómið hennar. Það sem hún er að rækta mun hafa verið selt í blómabúðum hér, innflutt sem hnýði frá Hollandi. Eftir því sem ég kemst næst, þá er hér um að ræða kerplöntu, sem að sjálf- sögðu þarf að ræktast í vatni eins og öll önnur lótusblóm en erfitt mun í flestum tilfellum að fást við ræktun iótusplantna í heimahúsum. Kerin þurfa að vera sem næst 1 metri í ummál og dýptin jafnan 80—100 sm. Mér er kunnugt um margar til- raunir til að rækta hér vatna- lótus en veit engin dæmi þess, að það hafi heppnast. Þetta er stutt svar við löngu umræðuefni. IV Fjöruþang Kristjana Milla Thor.steins.son, Haukanesi 28, spyr: 1. Er hægt að nota þara beint úr fjöru í garða sem áburð? Ef svó er, hvenær á þá að gera það og þarf að skola þarann áður? 2. Þegar sáð er og plast sett yfir, hver á þá eftirmeðferðin að vera? Þarf að vökva og kem- ur meira illgresi vegna þessa? Svar við spurningu 1: Þang má að sjálfsögðu bera beint á grasflatir eins og það berst á fjörur en í öilum tilvikum þarf að hreinsa það af flötinni að vori. Sé það hins vegar notað til áburðar í beð, verður að láta það rotna í haug, áður en það er borið í beð- in. Engin þörf er á skolun í hvor- ugu tilfellinu. Svar við spurningu 2: Óhyggilegt er að leggja plast yfir sáðreit og á ég þá t.d. við gulrófna- eða gulrótabeð, eða þar sem sáð er fræi í beð en hins vegar er hyggi- legt að nota glært plast sem strengt er yfir sáðreitinn, t.d. á bogum eða á annan hátt, og tryggt er að dúkurinn leggist ekki ofaní sáðbeðin. Sé plast hins vegar notað við kartöflu- rækt, er ráðlegast að nota svart plast og gera göt á plastið fyrir grösin. Nægileg væta á að berast í moldina i gegnum þau göt sem á plastið hafa verið rist og undir svörtu plasti dafnar ekki illgresi vegna skorts á ljósi. Því er hins vegar öfugt farið þegar glært plast er notað. IV. Runnamura, lerki og snækróna Halldóra Gunnarsdóttir, Vest- urströnd 13, spyr: 1. A að klippa runnamuru og lerki og hvenær á þá að gera það? 2. Hvenær og hvaða tilbúinn áburð á að setja á ný beð þar sem ársgömul tré eru? 3. Þarf snækróna að vera þar sem skjól er eða má planta henni annars staðar? Svar við spurningu 1: Runna- muran laufgast mjög seint og er oft erfitt að greina fyrr en í júní- lok hvernig henni hefur reitt af á liðnum vetri. Svo virðist að hún sé á mörkum þess að geta þrifist hér við þann sumarhita sem verið hefur að undanförnu. Það er rétt að klippa hvorki hana né lerkið fyrr en um eða eftir miðjan júlí, ef æskilegt þykir að framkvæma einhverja skerðingu. Svar við spurningu 2: Sé ekki um mikið magn af trjám að ræða, er fljótvirkast og best að hafa þann hátt á, að vökva þau vel að kvöldi eða síðla dags með hreinu vatni en gefa þeim morg- uninn eftir áburðarvatn, sem t.d. gæti miðast við það, að hver planta fengi sem svaraði einni matskeið af áburði leystum upp í 2—3 lítrum af vatni. Best er að láta áburðinn leysast upp í vatn- inu yfir nóttina og notast má við venjulegan garðáburð. Slíka vökvun mætti framkvæma tvisv- ar eða þrisvar að sumrinu, en þó ekki eftir að kominn er miður júlí. Svar við spurningu 3: Snæ- krónan þarf fyrst og fremst að njóta allrar þeirrar bestu birtu sem völ er á og hún þolir illa að vera staðsett þar sem vind- strengur angrar hana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.