Morgunblaðið - 08.06.1983, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.06.1983, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakið. Upplýsinga; miðlun ASÍ Allt frá fyrsta degi þessa stjórnarsamstarfs hefur Morgunblaðið lagt megin- áherslu á að ríkisstjórnin verði að gera þjóðinni ítarlega grein fyrir viðskilnaði fyrrverandi stjórnar og þeim hættum sem framundan eru, að öðrum kosti sætti menn sig ekki við þær efnahagsþrengingar sem eru óhjákvæmilegar þegar víta- hringur verðbólgunnar er rof- inn. Ríkisstjórninni ætti að vera það auðvelt að koma þess- um upplýsingum á framfæri með þeim hætti sem allir skilja. Dæmin voru reiknuð og gögn lögð fram um stöðuna í stjórnarmyndunarviðræðun- um. Alþýðusamband íslands átt- ar sig á nauðsyn upplýsinga- miðlunar og treystir ekki á aðra í því efni heldur hefur nú sent út fréttabréf, þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir þeim sjónarmiðum sem launþegaforingjar í stjórnar- andstöðu telja best við hæfi að halda á loft. í ályktun for- mannaráðstefnu Álþýðusam- bandsins segir, að fyrstu að- gerðir verkalýðssamtakanna vegna ráðstafana nýju stjórn- arinnar hljóti að vera markviss upplýsingamiðlun til félags- manna sinna, þar sem stjórn- völd hafi kosið að gera hvergi grein fyrir afleiðingum bráða- birgðalaganna. Augljóst er að upplýsinga- miðlun Alþýðusambandsins verður mjög einhliða, þar sem höfuðáhersla er lögð á lítinn kaupmátt launa en flestu öðru sleppt úr myndinni. Áróður Al- þýðusambandsins ber einfeldn- ingslegt yfirbragð, þegar látið er að þvi liggja að líklega af óvináttu í garð launþega hafi stjórnmálamennirnir ákveðið að rýra hlut þeirra sem mest. Með þessum einhliða hætti eru lögð drög að því að grafa undan trausti manna á ríkisstjórninni og eftir að áróðurinn hefur sí- ast inn fyrir tilstilli Alþýðu- sambandsins verður hann svo notaður til flokkspólitísks framdráttar fyrir Alþýðu- bandalagið sem skerti kaupið 14 sinnum með lögum frá 1978 án þess að það bæri nokkurn varanlegan árangur. Leiðin út úr efnahagsvand- anum er pólitísk. Ríkisstjórnin ratar ekki þá leið nema með stuðningi allrar þjóðarinnar og raunar getur stjórnin ekki ann- að en bent almenningi á leið- ina, því að hún kemst ekki lengra en þjóðin vill að farið sé. Þess vegna er svo nauðsynlegt að stefnan sé skýrt mörkuð og rækilega kynnt, annars lendum við á sömu villigötum og áður. Bæði forystumenn launþega og atvinnurekenda eru í farar- broddi á þessari göngu ásamt með stjórnmálamönnunum. Skerist launþegaarmurinn úr leik og vilji rjúfa fylkinguna þurfa hinir að segja hvers vegna hann fer villur vegar eða elta hann. Greidslu- þolið að bresta Hækkanirnar sem nú æða eins og logi yfir akur sam- hliða því sem verðbótakerfi launa er kippt úr sambandi valda því að greiðsluþol al- mennings er að bresta. Stað- reynd er, hvort sem ráða- mönnum líkar betur eða verr, að svo lengi hefur reynt á þetta þol undanfarið að það getur tæplega þanist meira. Síðan er skýringalaust dembt yfir laun- þega hverri hækkuninni eftir aðra og þeir sem fyrir ákvörð- ununum standa yppta öxlum. Nýlega gekk í bæjarþingi dóm- ur þar sem staðfest var, að af- skipti verðlagsyfirvalda komu almenningi beinlínis í koll, þar sem þau leiddu til hærra verðs á þjónustu Strætisvagna Reykjavíkur. Þeir sem standa vörð um hið vitlausa verðmyndunarkerfi á landbúnaðarvörum eiga auð- vitað að færa rök fyrir ákvörð- unum sínum eins og aðrir. Skýra niðurstöðu sína í smá- atriðum og segja frá því, hvar þeir hafi tekið til hendi í því skyni að vernda þá sem standa undir landbúnaðinum með því að kaupa afurðirnar og borga skatta í niðurgreiðslur. Hvers vegna getur ríkið ekki afsalað sér hækkun á sínum hluta þegar bensínverð hækk- ar? spyrja menn. Vísitölu- trygging fjáröflunarkerfis ríkisins er ekki skert þótt vísitölukerfi launa sé tekið úr sambandi. í þann mund sem greiðsluþol heimilanna er að bresta af augljósum ástæðum og almenningur verður að neita sér um margt sem talið hefur verið sjálfsagt í verðbólguveisl- unni er nauðsynlegt að þeir sem í skjóli hins opinbera verð- myndunarkerfis hafa allt á þurru gangi fram fyrir skjöldu og færi rök fyrir sérstöðu sinni. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Mario Soares forsætisráðherra og Mota Pinto formaður Sósfaldemó krataflokksins (PSD) sem verður að- stoðarforsætisráðherra f nýju stjórninni. Ný stjóm í Portúgal: Enginn frýr Soares vits né áræðis Því gæti farið að rofa til í efnahags lífi eftir óstjórn og ringulreið Mario Soares, formaður Sósíalistaflokksins (PS) í Portúgal, sem hefur nú tekið við forsætisráðherraembsttinu, er svo sem ekki alveg ókunnug- ur á þeim vettvangi, hefur tvívegis áður gegnt þeim starfa og var utan- ríkisráðherra í nokkrum fyrstu ríkisstjórnunum, sem voru myndaðar í Portúgal eftir „nelliku-byltinguna" þar 25. aprfl 1974. Sumarið 1975 var Soares ráð- herra í stjórn Vasco Gonz- alves sem þótti að verða býsna hallur undir kommúnista. Um allt landið virtust áhrif og ítök kommúnista vaxa, fólk hraktist úr landi, ofsóknir voru að verða kerfisbundnar á hendur þeim sem studdu ekki stjórnina og herstjórnin, MFA, varð æ um- svifameiri. Soares og Salgado Zenha sem sátu þá í stjórninni sögðu af sér í mótmælaskyni og Sósíalistaflokkurinn hóf síðan mikla fundaherferð um Portúgal þvert og endilangt til að mót- mæla þeim vinnubrögðum sem voru viðhöfð, því að um tíma var ekki annað sýnt en nýfengið lýð- ræði í Portúgal væri að renna út í sandinn. MFA tók þessar að- gerðir mjög illa upp og ríkis- stjórnin lagði blessun sína yfir allt sem herstjórnin ákvað með þögn og afskiptaleysi. Soares og menn hans sýndu þetta sumar mikið hugrekki, sem varla verð- ur til neins jafnað og síðan hafa Portúgalir raunar kallað þennan tíma „heita sumarið 75“. Ekki er nokkur vafi á því að frumkvæði Sósíalistaflokksins átti drýgstan þátt í að stöðva framgang og yf- irgang MFA og í nóvember það ár var bundinn endi á þessa þróun, þegar brotið var á bak aftur samsæri kommúnista um valdarán. Sá sem átti mestan þátt í að upp um það komst var lítt þekktur herforingi, Antonio Ramalho Eanes, sem síðar var kosinn forseti Portúgals. Mario Soares er fæddur í Lissabon 7. desember 1924, sonur þekkts stjórnmálamanns Fyrsta lýðveldisins sem stóð frá 1910—1926. Soares nam lög við háskólann í Lissabon og gerðist ungur athafnasamur í baráttu sinni gegn einræðis- og fasista- stjórn Salazaars. Hann stofnaði neðanjarðarsamtök sem unnu gegn henni og PIDE — leynilög- regla Salazaars — handtók hann margsinnis. Hann sat í fangelsi hvað eftir annað vegna skoðana sinna og árið 1970 varð hann að fara úr landi. Hann flutti þá til Frakklands, kenndi við háskóla og skrifaði mikið um portúgölsk málefni og hafði nána samvinnu við skoðanabræður sína í Portú- gal þótt allt yrði það að fara leynt. Hann stofnaði Sósíalista- flokkinn, ásamt nokkrum öðrum portúgölskum útlögum í Bonn árið 1973. Eftir byltinguna 1974 sneri hann svo heim og landar hans fögnuðu komu hans ákaft. Fyrstu árin eftir byltinguna varð PS ágætlega ágengt í kosn- ingum, en eftir að Alianca Democratica — bandalag sósíal- demókrata og miðdemókrata — var sett á laggirnar fyrir frum- kvæði Francisco Sa Carneiros fór að halla undan fæti fyrir Sósíalistaflokknum. Mikil valda- barátta hófst innan hans, enda innan vébanda hans fólk með skoðanir allt frá marxisma til léttrar hægri stefnu. Soares lét af forystu flokksins um tíma ár- ið 1979. Honum og Eanes, for- seta landsins, hafði þá lent sam- an og samflokksmenn hans sök- uðu hann um að bera ábyrgð á lélegri útkomu PS í kosningun- um 1979. Heyrðust þá ýmsar raddir sem töldu að stjórnmála- ferli Soares væri lokið, enda tímabært að yngri menn kæm- ust til meiri metorða í flokknum. Árið 1981 tók Soares þó við á nýjan leik eftir að hafa unnið ótvíræðan sigur á vinstri öflun- um og augljóst var að eftirmað- ur Soares varð ekki fundinn í bili. Sósíalistaflokkurinn gagn- rýndi óspart veika stjórn Pinto Balsemaos, sem hafði tekið við eftir skyndilegt fráfall Sa Carn- eiros. Áugljóst var að stjórnin var sjálfri sér sundurþykk og forsætisráðherra mistókst ger- samlega að ávinna sér tiltrú meðráðherra sinna hvað þá hins almenna borgara. Þegar boðað var til kosninga nú var því ein- sýnt að Sósíalistaflokkurinn myndi vinna góðan sigur og gengið var út frá því sem gefnu að Mario Soares yrði síðan falið að mynda stjórn. Soares er kænn stjórnmála- maður, prúðmenni og mikill mælskumaður og er lagið að vekja hrifningu og áhuga á máli því sem hann flytur. Hann er landsföðurlegur í fasi og traustvekjandi og án efa sá stjórnmálamaður nú, sem er virtastur innan Portúgals og þekktastur utan Portúgals. Menn binda vonir við að sú stjórn, sem hann hefur tekið að sér að leiða, þori að sýna þá festu og einurð sem dugir til að Portúgalir geti náð tökum á þeim mikla efnahagsvanda sem hrjáir landið og bætt atvinnu- ástandið sem er vægast sagt heldur dapurlegt. Eftir að veik stjórn Pinto Balsemaos hefur baksað við erf- ið verkefni án þess að sýna þá áræðni og samstöðu sem til hef- ur þurft eru Portúgalir orðnir langeygir eftir því að forsætis- ráðherra þeirra treysti sér til að ákveða aðgerðir sem gætu orðið til þess að ástandið batnaði. So- ares hefur aldrei verið frýð vits né kjarks og þvi er ekki ástæða til annars en ætla að eftir vond ár gæti nú farið að birta til.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.