Morgunblaðið - 08.06.1983, Page 32
Veist þú um einhverja
H;_________góóa frétt?
ringdu þá í 10100
MIÐVIKUDAGUR 8. JUNI 1983
Sími 44566
RAFLAGNIR
samvírki JS\f
Farmanna- og
fiskimannasambandið:
Krefst
stöðvunar
Hafþórs
FARMANNA- og fiskimannasam-
bandið fór þess á leit við Landhelg-
isgæsluna í gær að Hafþór, sem
Þormóður rammi á Siglufirði leigir
af Hafrannsóknastofnuninni, yrði
færður til hafnar.
Ástæðan er sú að í gær var ekki
enn búið að lögskrá áhöfn skips-
ins, að sögn Ingólfs Stefánssonar,
framkvæmdastjóra Farmanna- og
fiskimannasambandsins. Hafþór
hefur verið rúman hálfan mánuð
að veiðum og það er að sögn Ing-
ólfs skýlaus skylda skipstjórans
að sjá til þess að áhöfnin sé
lögskráð, en í því felst m.a. að hún
sé tryggð.
Landhelgisgæslan gat ekki orðið
við þessari beiðni sambandsins
vegna þess að ekkert varðskip var
í námunda við Hafþór. Ingólfur
Stefánsson sagði að þess verði
krafist að skipið verði stöðvað um
leið og það kemur næst til hafnar.
Fá 530
þús. fyrir
fálkann
FÁLKAÞJÓFAR geta vænst þess
að fá allt að 50.000 þýsk mörk (um
það bil 530 þúsund íslenskar krón-
ur) fyrir fuglinn samkvæmt upplýs-
ingum sem fram komu f sjónvarps-
þætti f V-Þýskalandi á dögunum. í
þættinum var fjallað um ránfugla
og varplönd þeirra og var þar sér-
staklega minnst á haförninn og ís-
lenska fálkann. Þátturinn er í röð
náttúrulífsmynda sem sýndar eru
við miklar vinsældir í V-Þýska-
landi.
Sigurlaug Sæmundsdóttir,
arkitekt í Miinchen, hafði sam-
band við Morgunblaðið, í tilefni
fréttar blaðsins síðastliðinn
laugardag, en þar var greint frá
ráni úr fálkahreiðri í friðlandinu
við Mývatn. Sigurlaug sagði að
vegna fyrrgreinds sjónvarpsþátt-
ar hefði frétt þessi ekki komið
sér á óvart.
Dagblöð hefðu einnig skýrt frá
ævintýralega háu verði fyrir rán-
fugla um þessar mundir. Sigur-
laug sagði að það væru einkum
auðugir arabískir olíufurstar
sem keyptu slíka fugla og notuðu
þá við veiðar að hætti miðalda-
konunga.
Benfica vill kaupa Pétur
BENFICA, eitt þekktasta knattspyrnulið heims, vill kaupa Pétur Pét-
ursson. Pétur fór í morgun áleiðis til Lissabon í Portúgal til að líta á
aðstæður hjá félaginu og til viðræðna við forráðamenn þess.
Benfica hafði nýlega samband
við Antwerpen í Belgíu, núverandi
félag Péturs. í framhaldi af því
hafði Benfica samband við Pétur
og bauð honum til Portúgal til við-
ræðna. Antwerpen hefur sett upp
geysihátt verð fyrir Pétur eða 20
milljónir belgískra franka, jafn-
virði 10,7 milljóna íslenzkra
króna.
Fleiri félög hafa haft áhuga á að
kaupa Pétur og hafa belgísk blöð í
því sambandi nefnt hollenzku fé-
lögin Ajax og Feyenoord og
spænska félagið Sporting Gijon.
Þekktasti knattspyrnumaður
Benfica fyrr og síðar er Eusebio,
sem lék með félaginu gegn Val á
Laugardalsvelli 1968. Eusebio
kemur til landsins í þessari viku í
boði Víkings og mun hann leika
með félaginu gegn Stuttgart.
Sjá samtal við Pétur Pétursson
á íþróttasíðu.
BSRB segir upp
kjarasamningum
SAMEIGINLEGUR fundur stjórnar og samninganefndar
BSRB samþykkti í gær samhljóða að segja upp gildandi
kjarasamningum. Jafnframt mótmælti fundurinn harðlega af-
námi samningsréttar fram til 1. feb. 1984 og skerðingu hans
til 1. júní 1985 og telur ákvæði nýsettra bráðabirgðalaga
jafngilda banni við starfsemi verkalýðshreyfingarinnar. Um
sjálfan grundvöll lýðræðisins og frjálsrar verkalýðshreyfingar
sé að tefla og rannsaka beri hvort þessi skerðing á starfsrétt-
indum almannasamtaka sé ekki brot á stjórnarskránni og
alþjóðasamþykktum, sem ísland er aðili að.
Þá segir að þær efnhagsráð-
stafanir sem nú hafa verið gerð-
ar, geri ekki að neinu þá kaup-
máttaraukningu launa, sem
BSRB hafi náð fram frá því að
Eimskipafélagið selur
Bæjarfoss og Fjallfoss
EIMSKIP hefur undirritað samning um sölu á Fjallfossi og verður skipið
afhent nýjum eigendum í byrjun júlí. Kaupendur eru þýzkir, en skipið verður
skráð í Panama. Söluverð er um 28 milljónir króna. Þá hefur Eimskip gengið
frá sölusamningi á Bæjarfossi til fyrirtækisins OK hf. á ísafirði. Söluverð
Bæjarfoss er um 11 milljónir króna.
Fjallfoss var smíðaður í Dan-
mörku árið 1974 og er eitt af fjórum
systurskipum, sem Eimskip keypti
árið 1977. Skipin hafa nú öll verið
seld. Undanfarin misseri hefur
Fjallfoss verið í ýmsum óreglu-
bundnum flutningum. Unnið hefur
verið að því um nokkurn tíma að
selja skipið, og er sala þess liður í
endurnýjun á stórflutningaskipum
félagsins.
Eins og áður hefur verið greint
frá, keypti Eimskip fyrr á þessu ári
stórflutningaskipið John Wulff, sem
verður afhent félaginu í september
eða október nk. John Wulff er með
225.000 rúmfeta lestarrými, sem er
um það bil helmingi stærra en í
Fjallfossi. Burðargeta nýja skipsins
er 4.000 tonn.
Eimskip er með kaup á öðru stór-
flutningaskipi í athugun og frekari
endurnýjun á stórflutningaskipum
félagsins.
Eimskip hefur haft Bæjarfoss á
söluskrá í nokkuð langan tíma, og
erfiðlega hefur gengið að selja skipið
erlendis. Skipið hentar ekki til
brettaflutninga á frystum fiski, en
eins og kunnugt er vinnur Eimskip í
samráði við Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna að breyttu fyrirkomulagi
frystiflutninga.
Bæjarfoss verður í flutningum á
frystum fiski fyrir eigendur OK, sem
eru Skagstrendingur hf., Niðursuðu-
verksmiðjan og fleiri aðilar. Bæjar-
foss var smíðaður í Noregi árið 1972
og keyptur til landsins 1975. Bæjar-
foss hefur frá upphafi verið í flutn-
ingum á frystum fiski einkum til
Bretlands og meginlands Evrópu og í
söfnun hér innanlands.
Er Bæjarfoss hefur verið seldur
rekur Eimskip fimm frystiskip, en
auk þess hefur félagið aukið veru-
lega flutning á frystum fiski í frysti-
gámum á undanförnum misserum. Á
þetta bæði við um flutninga til
Bandaríkjanna og Evrópu.
samtökin öðluðust samningsrétt
1962. Um næstu áramót muni
þær ráðstafanir sem gerðar hafi
verið hafa valdið a.m.k. 30%
kjaraskerðingu frá árinu 1982 og
að það þurfi því 40% launahækk-
un á næsta ári ef ná eigi kaup-
máttarstigi þess árs. Þær ráð-
stafanir sem gerðar hafi verið
séu einhliða skerðing á kaup-
mætti launa, en verðlag látið
óheft. Vísitölubætur á laun séu
afnumdar, en vísitölutenging
lána látin haldast. Landbúnað-
arvörur hafi þegar hækkað um
22—33% og innfluttar vörur um
20% og skriða hækkana á opin-
berri þjónustu sé farin af stað
með hækkun orkuverðs.
Þá er í tillögunni, sem sam-
þykkt var samhljóða, látinn í
ljósi uggur um að ráðstafanir
stjórnvalda kunni að leiða til at-
vinnuleysis, vegna samdráttar
sem þær valdi í atvinnulífi lands-
manna.
í tillögunni er boðað að efnt
verði til fundarhalda til að kynna
afleiðingar bráðabirgðalaganna
og kannað verði viðhorf félags-
manna til bráðabirgðalaganna,
en þau hljóti samtökin að hafa að
leiðarljósi við ákvarðanatöku á
bandalagsráðstefnu í kjölfar
hinna almennu funda.
Franska stúlkan
kannar
möguleika á
skaðabótamáli
MARIE LUCE BAHUAUD,
franska stúlkan sem varð fyrir lík-
amsárás í sæluhúsi á Skeiðarár-
sandi í ágústmánuði síðastliðnum,
er nú stödd hér á landi vegna yfir-
heyrslna í máli ákæruvaldsins á
hendur Grétari Sigurði Árnasyni,
sem misþyrmdi henni og olli dauða
Yvette systur hennar.
Ásamt því að Marie Luce ber
vitni fyrir Sakadómi Reykjavík-
ur, kannar hún möguleika á að
höfða skaðabótamál vegna
þeirra meiðsla og þjáninga sem
hún leið þegar fyrrgreindir at-
burðir urðu. Samkvæmt heim-
ildum Mbl. hitti hún í gær lög-
fræðing sem kannar fyrir henn-
ar hönd hugsanlega möguleika á
skaðabótum vegna þessa.
Yfirheyrslur yfir stúlkunni
fóru fram í gær í Sakadómi
Reykjavíkur.
Sjá frásögn á miðopnu.
Gullskipsmenn
byrjaðir aftur
GULLSKIPSMENN eru byrjaðir aftur
af fullum krafti við undirbúning á
björgun Het Wapen Van Amsterdam á
Skeiðarársandi.
Sem kunnugt er fluttu þeir öll
tæki og búnað upp á sandinn þegar
vart varð við gosið í Grímsvötnum.