Morgunblaðið - 01.07.1983, Qupperneq 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983
Tökur voru í fullum gangi þegar okkur bar að
og meóan við biðum eftir að ná tali af leikstjóran-
um skoðuðum við okkur um á svæðinu.
Stórbrotin leikmynd hönnuð af náttúruöflum íslands og Gunnari Baldurssyni.
flýgur", og lögðum við þangað leíð okkar fyrir
skömmu. Stærsti hluti leikmyndarinnar er drang-
ur einn mikill sem stendur við Skarðshlíð. Þar
uppi við standa gömul fjárhús sem tekið hafa á
sig nýjan svip og leika hlutverk mannabústaða í
myndinni, sem á að gerast á íslandi fyrir 800
árum.
AUSTUR undir Eyjafjöllum hefur Hrafn Gunn-
laugsson hafið tökur á nýrri kvikmynd, „Hrafninn
Hrafn: „Þú kemur
út svona og viö
sjáum að þú þekkir
þessa hurð... “
Unnið aö síöustu
tökum dagsins.
ra
liii
arna ægði öllu saman, gamlir
tímar rákust á nýja. Við hliö-
ina á heiðnu goöi sem stóö
úti á hlaði skorið í tré var stór
kvikmyndatökukastari, og þegar
litiö var inn í húsin mátti sjá potta á
hlóðum, mat í trogum, kaffibrúsa
og sígarettupakka.
Hrafn kom aðvífandi, smá eyða
hafði myndast meöan veriö var að
færa kvikmyndatökuvélina úr stað.
„Eruð þiö búin aö skoöa ykkur
um?“ spurði hann og lá vel á hon-
um.
„Við höfum farið nýjar leiðir eins
og þiö sjáið. Við höfum ekki veriö
aö eltast viö sögulegar heimildir
um búninga, hús og líf á þessum
tíma, heldur sniðið þetta eftir því
sem við höldum að hafi allt eins
getað veriö, og skapað þessari
sögu eigin heim. Þannig verður
þetta verk stærra en nokkuö ann-
að sem ég hef fengist við og leggst
á mig með miklum þunga ... líkt
og þetta bjarg sem viö stöndum
viö. En ég er samt sem áöur alveg
rólegur yfir þessu og öll fram-
kvæmd gengur mjög vel.
Þetta verður mjög spennandi
mynd, dramatíkin fær að njóta sín
og atburðarásin er mjög skýr.
Fóstbræður, Þórður og Eiríkur,
flýja undan einveldi Haralds hár-
fagra í Noregi. Þeir höggva
strandhögg í írlandi og taka með
sér fólk á leiöinni og setjast síöan
aö á íslandi sem pólitískir flótta-
menn. Þórður sem Helgi Skúlason
leikur er strangtrúaður maöur á
hin heiönu goö og fylla þau huga
hans.
Kona hans er leikin af Eddu
I Björgvinsdóttur og er hún írsk, hún
er ekki sammála manni sínum og
hann grunar hana jafnvel um að
vera kristna. En á þessum árum
eru einmitt tímamót heiðni og
kristni. Eiríkur er leikinn af Flosa
Ólafssyni og dregur til tíöinda þeg-
ar að garöi hans ber undarlegan
mann sem kallar sig Gest. Fylgir
þessum manni hrafnaflokkur og
segir hann þau tíðindi aö ástandið
í Noregi hafi breyst og sé honum
því óhætt aö snúa aftur. En Gestur
sem leikinn er af Jakobi Þór Magn-
ússyni virðist eiga annaö og meira
erindi til íslands en aö flytja þessi
boö ..."
Meira fengum við ekki aö vita
því nú var vélin komin á sinn stað
og fengum viö að fylgjast með síð-
ustu tökum dagsins. Að því búnu
heimsóttum viö mötuneyti leikar-
anna sem er staösett í 60 ára
gömlu félagsheimili, en tvö önnur
hús við Skarðshlíö hafa einnig ver-
ið fengin að láni og hafa þar aðset-
ur leikarar og tæknimenn.
Inni í eldhúsi mátti greina, í
gegnum gufuna sem steig upp úr
pottum, kokkinn sem er af þýskum
ættum og heitir Gesa Elisabet
Burmeister og hjálparkokk hennar,
Valgeröi Janusdóttur. „Hér gerum
við alveg ótrúlega hluti," sagði
Gesa. „í dag var til dæmis á boö-
stólum jólakaka sem við bökuðum
með undirhita aöeins, og geri aörir
betur. Fólkiö hefur sannarlega
góða lyst enda úti í rigningu og
vosbúö allan daginn. Annars eld-
um viö bara áttatíu og níu bollur í
kvöld en um daginn voru þær
hundrað fjörutíu og níu. Við styrkj-
um bæði sjávarútveg og landbún-
Yngsti leikarinn, Gottskálk Sigurö- Hrafnatemjarinn Gunnar Jónsson.
arson, 9 ára.
að og höfum fisk í hádeginu og
kjöt á kvöldin og þrátt fyrir aö aö-
stæöurnar séu ekki beint fyrsta
flokks gengur þetta meö ólíkind-
um. Eins og góður maður sagði
um daginn: „Fólk undir Eyjafjöllum
kvartar ekki, hvorki gestir né staö-
arfólk."
Leikarar voru farnir að renna á
lyktina og tíndust inn í matsalinn
hver af öðrum. Þar á meðal var
Gottskálk Sigurðsson, yngsti leik-
arinn í myndinni, en hann varö níu
ára á þessu ári.
„Þetta er nú ekki fyrsta myndin
sem ég leik í,“ sagöi Gottskálk
þegar við spuröum hann hvernig
honum fyndist aö leika i kvikmynd.
„Ég var í Snorra Sturlusyni líka,
en það var samt ekki í gegnum
þaö sem ég fékk þetta hlutverk.
Frænka mín, Þuríður, er skrifta
hérna og hún mundi eftir mér þeg-
ar verið var aö velja í þetta hlut-
verk og benti á mig.
Mér finnst mjög spennandi og
gaman aö vera meö í þessu. En
þaö er líka svolítið erfitt. Maöur
þarf að einbeita sér svo þegar vél-
in er komin í gang."
Næst Gottskálk sat Gunnar
nokkur Jónsson en hann hefur það
hlutverk aö temja hrafna fyrir
myndina. Aöspurður um þaö starf
sagðist hann hafa starfað viö dýra-
tamningu bæöi í Sædýrasafninu,
þar sem hann haföi unnið frá upp-
hafi þess og tvö ár í Kanada þar
sem hann vann við tamningu á há-
hyrningum. Hann hefur nú þrjár
vikur til að temja tíu hrafnsunga og
notar til þess flautu sem hann kall-