Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JtJLÍ 1983 35 einnig í 30 daga frá því fyrsta flug- leiöin er farin og hægt aö hafa viö- komu á þrem stööum t.d. Reykja- vik— Akureyri—Egilsstaöir— * Reykjavík og kostar miöinn tæpar þrjú þúsund krónur. Enn eru ótaldir nokkrir feröa- möguleikar, hægt er t.d. aö taka flugvél á leigu og ef hún er fullnýtt veröur fargjaldiö ódýrara en ef um áætlunarflug er aö ræöa. Hið sama gildir einnig um hópferöabíla og báta. Á nokkrum stööum á landinu sigla ferjur milli staöa en hjá Skipaútgerð ríkisins fengum viö þær upplýsingar aö hætt væri aö taka viö farþegum í feröir umhverf- is landiö. Viltu gista í tjaldi eða á hóteli? Feröamálaráö hefur gefiö út bækling um tjaldstæöi á landinu, 106 þúsund erlendir ferðamenn hér á landi ár- ið 1992? V Gönguferðir um landið njóta vaxandi vinsælda hjá erlendum ferðamönn- um. Hvernig er ódýrast að ferðast milli staða innan- lands?_________ Eddu hótel eru 15 talsins á landinu. en þann bækling ættu þeir feröa- langar, sem hafa hug á aö gista í tjaldi í sumarleyfinu aö fá sér, því í honum er aö finna nauðsynlegar upplýsingar um helstu þjónustu sem tilheyrir tjaldstæöunum eöa eru í nágrenni viö þau. Og ef veö- urguöirnir eru meö einhver leiöindi getur veiö gott aö kynna sér hvar hægt er aö fá inni meö svefnpok- ann sinn, en upplýsingar um þá staði er bæöi aö finna í Ferða- handbókinni og bæklingi þeim sem Farfuglar gefa út, en þá er hægt aö nálgast á feröaskrifstof- um. j Feröahandbókinni er einnig aö finna flest hótel á landinu, og hiö sama má segja um bækling sem geymir svipaöar upplýsingar og handbókin, en bæklingur þessi kom út á þessu ári og nefnist „Á hringvegi“. Þar má einnig finna upplýsingar um ýmsa merkisstaði, helstu matsölustaöi og aörar hag- nýtar upplýsingar. Þeir sem óska eftir gistingu á hótelum er bent á hagstætt verð Edduhótelanna, en þá eru um 15 talsins á landinu. Tveggja manna herbergi kostar 710 krónur og 880 ef þaö er meö baði. Á Edduhótel- unum er víöa hægt aö fá svefn- pokapláss, en þaö kostar 120 krónur ef sofiö er í skólastofu, og 150—200 krónur ef gist er í her- bergi. Þá er einnig ástæöa til aö benda á hringferðir um landiö sem Feröa- skrifstofa ríkisins hefur staðiö fyrir undanfarin ár, en þessar ferðir eru seldar meö gistingu á Edduhótel- um og fullu fæði og eru reyndir leiösögumenn meö í ferðum. Þess- ar feröir eru sérstaklega hagstæð- ar þeim sem ekki treysta sér til aö gista í tjöldum eöa ganga mikið, og sagöi Kjartan Lárusson, for- stjóri feröaskrifstofunnar, á fundi meö blaðamönnum fyrir skömmu aö m.a. væri boðið upp á 10 daga hringferðir um landiö og 9 daga feröir um Snæfellsnes og Vestfiröi. Kjartan sagöi ennfremur aö svefnpokapláss væri hægt að fá á svo til öllum Edduhótelunum, sam- tals er gistiaöstaða í rúmum fyrir um 1.000 manns og sagöi hann gesti hafa veriö til helminga íslend- ingar og erlendir feröamenn und- anfarin ár. Þá er enn ótalinn einn gisti- möguleiki, en þaö er gisting á sveitabæ. Hjá feröaþjónustu bænda fengum við þær uppiýs- ingar aö í ár væru 34 bæir á skrá víös vegar um landið og auk gist- ingar veita þeir margvíslega þjón- ustu, útvega t.d. veiöileyfi, jafnvel aöstööu til aö komast á handfæri, leigja út hesta eöa eru í sambandi við hestaleigur, svo aðeins eitt- hvaö sé nefnt. Gisting á bæjunum kostar 350 krónur fyrir manninn í uppbúnum rúmum í tveggja manna herbergi, morgunmatur er innifalinn, en einnig er j mörgum tilfellum hægt aö fá svefnpoka- pláss. Ferðaþjónusta bænda hefur nýlega gefið út vandaðan bækling þar sem upplýsingar er aö fá um þá bæi sem bjóöa þessa þjónustu. Fram aö þessu hefur þessi þjón- usta mest verð notuð af erlendum feröamönnum, en full ástæöa er til að vekja athygli íslenskra ferða- manna á þessum gistimöguleika, þvt eins og margir þéttbýlisbúar kannast viö eru tengslin milli sveitalífsins og borgarinnar óöum aö rofna og þeir sem hafa ekki aöstööu til aö heimsækja vini og fjölskyldumeðlimi í sveitasælunni, geta meö þessu móti ferðast meö börn og fjölskyldu og komist í ofurlitla snertingu viö bændasam- félagiö, sem einkenndi landiö okk- ar fram á þessa öld. Hvar og hvaö viltu boröa? Sumir feröalangar eru duglegir viö aö elda eitthvaö áöur en lagt er af staö í feröina, smyrja stafia af samlokum og fleira í þeim dúr, aörir fara meö prímusinn og mat- reiöa gómsæta tjaldrétti. Og enn eru þeir sem snæöa á veitinga- stööum. í Feröahandbókinni og bæklirsgnum „Á hringvegi" er aö finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um veitingahús, hvort sem boröað er aö staðaldri á slíkum stöðum, eöa tjaldgestum boöiö upp á smá tilbreytingu frá hinum daglegu tjaldréttum. Þaö hefur oft veriö sagt um ís- lendinga aö þeir kunni ekki aö feröast um eigið land. En þrátt fyrir aö um 90% feröabæklinga sem gefnir eru út hér á landi séu á er- lendum tungumálum, er þó heil- miklar upplýsingar aö finna þegar gluggað er í bæklingaflóöið. Feröahandbókin er ágæt biblía feröafólki og auk þess eru ótal aörar handbærar upplýsingar til. Viö ráöleggjum þeim sem ætla að bregöa undir sig feröafætinum hér innanlands aö byrja á því aö nálg- ast nauösynlegar upplýsingar, og skipuleggja feröina vel í upphafi, því eins og komið hefur hér fram eru feröamöguleikar ótalmargir og misjafnlega kostnaöarsamir. framhryggur og rif KINDA: buffsmásteik á pinnum. NAUTA: bujJ-framíxryHjtjur OKRTDDAÐ GSRW HAGSTÆD MATA1UNNKAUP SALTKJÖT: 76,50 kr. kg NAUTAHAKK: 162 kr. kg Nýgrillaöir kjúklingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.