Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983 í dag kannast flestir við hugtakið lyklabarn, og ætla mætti aö það hugtak væri nokkuð nýtt af nál- inni. Eri þegar flett er í gegnum gamla árganga af dagblöðunum kemur ým- islegt á óvart. í Mbl. fyrir tæpum 30 árum, nánar til- tekið þann 4. júní 1954, var t.d. fjallað um lyklabörn í þætti sem nefndist „l'r daglega lífinu“ og til gam- ans birtum við þær vanga- veltur, sem þar komu fram, hér á eftir. Lyklabarn er skrýtiö fyrir- brigöi, dálítiö subbulegur og óhreinn krakki þetta 6 til 12 ára gamall, sem gerþekkir lífiö á göt- um og í listigörðum Stokkhólms- borgar, einbeittur og haröur í horn aö taka. En aðaleinkennið er þó ótaliö: hann hefur húslykilinn í vas- anum eöa í snúru um hálsinn, því aö heima er engin lifandi sála allan liölangan daginn. En sum hafa alls engan lykil. Þaö er því fariö aö skipta lyklabörnum í tvo flokka, annars vegar eru þau meö húslyk- ilinn á sér, hin hafa alls engan lykil, því aö þessi börn eru svo hættuleg aö dómi foreldra sinna, aö ekki kemur til mála aö þau fái aögang aö heimili sínu, nema fullorönir séu þar til eftirlits. Og á vinnutíma er enginn heima. Þess vegna eru ekki tugir, heldur tugþúsundir lyklabarna í Stokk- hólmi nú. Þaö mætti kalla þetta aftur- göngu í félagsmálum Svíþjóðar. Þetta stafar ekki af bágindum, heldur rekur þvert á móti rætur til þeirra möguleika, sem fólk hefur til að bæta lífskjör sín. Og þessir möguleikar eru nýttir langt umfram þaö sem búist var viö. Lögreglan veit margt um lykla- börnin og þaö kemur ekki til af góöu. Lögreglumaður, sem jafn- framt var formaöur í barnavernd- arnefnd i einu af úthverfum Stokkhólms, hefur komist aö oröi á þessa leiö: „Fyrir allmörgum árum, þegar ég var lögregluþjónn í Stokkhólmi, uröum viö líka varir viö yfirsjónir barnanna, svo aö viö uröum aö hafa tal af foreldrum þeirra. Þegar viö svo fundum þau til aö taka skýrslu heima hjá þeim eöa annars staöar, duldist okkur ekki, hvernig bágindin voru undirrót vandræö- anna. Þetta var illa klætt, fátækt fólk, sem baö drengjum sínum miskunnar og lofaði aö reyna aö hafa hemil á þeim. í dag veröum viö enn oftar aö leita á fund foreldra. Þetta eru þá engir vesalingar, heldur mætti ætla, aö viö hefðum fyrir okkur greifa og greifynjur. Og þessir for- eldrar hreyta í okkur ónotum af því aö þeir eru ónáöaöir. Ef við svo kynnum okkur tekjur þeirra, kemur í Ijós, aö meö öllu er ÁSTA HRÖNN OG FINNBOGI Viö táruðumst allar þeg- ar úrslitin voru kynnt Feguröarsamkeppnir hafa ver- iö áberandi i þjóðlífinu upp á síökastiö. Ungfrú Útsýn, Ungfrú ísland og nú síöast Ungfrú Hollywood. Fjöldinn allur af ungum stúlkum hefur spreytt sig í þessum keppnum þó ekki hafi þær allar unniö. Ein þessara stúlkna er Stella Skúladóttir, 18 ára Kópa- vogsmær, hún tók þátt í Ungfrú ísiand-keppninni. Hvernig vildi þaö til aö þú tókst þátt í þessari keppni? — Ég var aö sýna meö Módel 79 eitt kvöld í vor þegar komiö var aö máli viö mig og ég beðin að vera með. Ég neitaði í fyrstu en fékk nú samt umhugsunarfrest. Svo mætti ég á fundi meö dóm- nefndinni og sló til. Ég vissi aö ég myndi engu tapa á þessu og aö svona tækifæri byðist bara einu sinni og ég sé alls ekki eftir aö hafa verið meö. Hvaö gerðist næst? — Viö mættum allar saman á fundi meö dómnefndinni svo aö hún gæti kynnst okkur sem best og svo voru tekin viðtöl og myndir. Viö vorum líka æföar í sviösfram- komu, hvernig viö ættum aö ganga o.s.frv. Allt veröur náttúrulega að vera pottþétt, svo þurftum við líka aö venjast því að ganga um á sundbol. Þaö tekur líka sinn tífna. Þetta var mjög samstilltur hópur og mjög góöur mórall á milli okkar allra, enda var unniö markvisst aö því aö viö kynntumst sem best. Hvaö tók undirbúningurinn langan tíma? — Fyrsti fundurinn var haldinn sumardaginn fyrsta og eftir þaö fór mikill tími í undirbúninginn. Margar þurftu að ná sér í síöa kjóla eöa sauma sér þá. Þá þurftum viö aö borga sjálfar, en viö fengum sundbolina og snyrtingu og hár- greiöslu bæöi sýningarkvöldin gef- ins. En fyrir myndatökur og slíkt uröum viö aö bjarga þessu sjálfar. Svo kom keppnin sjálf. — Já, maöur vissi nokkurn veginn hvernig þetta myndi fara, Þetta byrjaði allt á hárgreiöslu- sýningu í vor. en samt var ég auövitaö spennt. En hópurinn var svo samstilltur aö viö táruöumst allar þegar úrslitin voru ráöin, kannski vegna tauga- spennunnar. En þaö var eins og allur hópurinn væri aö vinna. Hvernig er valiö í svona keppni? — Þaö er talaö viö flestar stelpurnar og þær beðnar aö vera með. Þaö er aðallega fólkiö úr dómnefndinni, sem stendur í slíku, en svo er líka tekiö viö ábending- um. Ég veit ekki um nein sérstök skilyröi fyrir því að vera meö, en þau hljóta þó aö vera einhver. Nú var keppnin mjög umtöluö, Stundum kemur maóur alvsg óæfóur. hvers vegna fór svona mikiö fyrir henni í ár? — Þaö er veriö aö reyna aö gera keppnina aö viöburði í þjóö- lífinu, enda er hún það. Þarna fá ungar stúlkur tækifæri til aö spreyta sig og fyrir sigurvegarann getur svona keppni opnaö margar dyrnar. Keppnin var aö koöna niöur í ekki neitt og t.d. í fyrra þurfti aö fá kórónu aö láni til aö krýna fegurðardrottninguna. Núna var allt keypt nýtt, bæöi kóróna og sproti. Opnar þessi keppni eitthvaö fyrir þér?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.