Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983 iLio^nu- ípá HRÚTURINN 21. MARZ—19.APRIL Gódur dagur til að ræða málin við ástvin þinn, einnig ættir þú að snúa þér meira að skapandi verkefnum eða að verkefnum sem þú þarft að hugsa um. m NAUTIÐ m 20. APRlL-20. MAl Taktu meira tillit til þarfa fjöl- skyldunnar og hafðu meira sam- band við fjölskyldumeðlimi. (ióður dagur til að gera við það sem hefur bilað. Njóttu kvölds- ins með vinum. TVÍBURARNIR 21. MAl-20. JÚNl l>ú hefur mikla longun til ferAa laga, þú kemur hugmyndum þínum mjöe vel á framfcri. Taktu þátt í einhverri skemmt un með ástvini þínum, en eyddu ekki of miklu. KRABBINN 21. JÚNl—22. JÍILl l»ú ættir að gera heimilisbók- hald til að sjá í hvað peningarnir fara. Þú ættir að gera eitthvað fyrir fjölskylduna heima eða bjóða henni út, engar öfgar samt. r®riUÓNIÐ !Tílí 23. JtLl-22. ÁGÚST í Þú tekur meiri þátt í félagsmál- um og áhugi þinn á nýjum verk- efnum gefur þér lækifæri til aA framleiAa eitthvaA sjálf(ur). HugsaAu vel um heilsuna. MÆRIN 23. ÁGÚST-22. SEPT Þú ættir að athuga vel heilsufar þitt og tilfinningar, þú munt verða ánægð(ur) eftirá. Kvöld- inu er vel varið með fjölskyld- unni, við tómstundagaman. £ Wj Vá\ vogin 23. SEPT.-22. OKT. Heimboðum rignir yfir þig og þú gengur í nýjan félagsskap þar sem þú getur látið að þér kveða. Forðastu að ofreyna þig í starfi og njóttu félagsskapar góðra vina. DREKINN 23. OKT.-21.NÓV. Þú hefur mjög ákveðnar hug- myndir um hve langt þú vilt ná í starfí. Farðu á námskeið í þrí sambandi. Þú ættir að fara í heimsókn til vina, en vertu ekki seint á ferð. fj| BOGMAÐURINN 22. NÓV.-21. DES. Þú hefur mikinn áhuga á að fara í ferðalög. Komdu hug- myndum þínum á framfæri og fylgdu þeim vel eftir. Gættu þess að lenda ekki í rifrildi við vin þinn. STEINGEITIN 22. DES.-19. JAN. Þú hefur mikinn áhuga - hverskonar námi, þú færð mik- inn stuðning hjá maka þínum. Hugsanlega ferð þú í viðskipta- ferð. Notaðu kvöldið til að ræða málin við maka þinn. sffgÍ VATNSBERINN ^20. JAN.-18.FEB. Þér Kcnjfur vel í st»rfi þínu í dag. Samskipti þín viA ástvini eru eíns góA og þau geta veriA. Þú ættir aA Uka meiri þátt í félagsmálum. Gettu þín i um- ferAinni. 3 FISKARNIR 19. FEB.-20. MARZ Samvinna þín viA samstarfsfólk _ mjöK góA. Þú (>ætir þurft aA fara í óvænt feróalag. f sam- handi viA ástamálin skaltu ekki vera meA of mikinn ákafa. CONAN VILLIMAÐUR V/f 9l6KO»l/*l,J JILLIHAVUflU ÍI6MBIR &AMÍ/ fifAPl/M'.l rv/jp-^ 0«. //£/tf- L/R/H/J / KCry iKNI£ <HAN 3-17 ±ZÍAtÍi DÝRAGLENS SMÁFÓLK BRIDGE Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Bridge er, eins og við vitum, öðrum þræði söfnun upplýs- inga og hins vegar úrvinnsla þeirra. Að þessu leyti er bridge ólíkt skák. I skák liggja allar upplýsingar á borðinu, það er staðan eins og hún lítur út. En í bridge sjáum við að- eins tvær hendur, hinar verð- um við að reikna út eftir þeim vísbendingum sem liggja á lausu: sögnum, útspili o.s.frv. Þetta er það sem kallað er „card-reading“, eða spilarýni. Menn eru mjög misgóðir við að rýna í spil, og margir spila árum saman án þess að veita hinum einföldustu vísbending- um athygli. Það stafar af því að þeir spyrja sig ekki réttra spurninga. Og í rauninni er aðeins um tvær spurningar að ræða: Hvers vegna gerir hann þetta? Hvers vegna gerir hann ekki eitthvað annað? Það er auðveldara að vera vakandi fyrir fyrri spurningunni, enda minnir hún sífellt á sig. En menn gleyma iðulega að spyrja sig seinni spurningar- innar ... Norður ♦ G VK5 ♦ ÁG83 ♦ ÁKD974 Vestur Austur ♦ ÁKD9862 ♦ 73 V D3 V 82 ♦ 762 ♦ D10954 ♦ 8 ♦ G1063 Suður ♦ 1054 V ÁG109764 ♦ K ♦ 52 Vestur Noróur Austur Suður — —- — 3 hjörtu 3 spaðar 6 hjörtu pass pass pass Vestur spilar út spaðaás gegn 6 hjörtum, og skiptir síð- an yfir í tígul. Sagnhafi var fljótur að afgreiða spilið. Hann tók hjartakóng og svín- aði gosanum, einn niður. Rök hans voru þau að þar sem vestur ætti greinilega 6-7-lit í spaða væru meiri líkur á því að hann væri stuttur í hjarta. Rétt svo langt sem það nær. En sagnhafi gleymdi að spyrja sig þessarar spurn- ingar: Hvers vegna spilaði vestur ekki spaða áfram? Svarið blasir við um leið og spurningunni er varpað fram. Þetta spil er fengið að láni úr bók Kelsey, How to Im- prove your Bridge, í kafla þar sem hann fjallar um bridge- blindu, eða tilhneigingu spil- ara til að missa af augljósum vísbendingum. Næstu daga munum við skoða nokkur spil úr þessum kafla. Umsjón: Margeir Pétursson Á kúbanska meistaramótinu í ár kom þessi staða upp í við- ureign tveggja af efnilegustu skákmönnum Kúbu, þeirra Sieire og Vera, sem hafði svart 31. — Df2!! (Auðvitað ekki 31. — Bxf3?, 32. Dxf3 og hvítur nær gagnsókn. Ef nú 32. Hxf2 þá Hxh3 mát.) 32. Dxe3 — Bxf3! og hvítur gafst upp því hann lendir í vonlausu enda- tafli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.