Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983
„Þurfum ekki að vinna á skurð-
gröfum til að sanna ágæti okkar“
— segir Bára Magnúsdóttir, en hún er nýkomin af alþjóðlegu þingi kvenna í atvinnurekendastétt ásamt Sigríði Pétursdóttur
_______„Association les Femmes
Chefs D’Éntreprises Mondiales"
heita samtök nokkur sem stofn-
uð voru fyrir um 30 árum og eiga
fjölmargar þjóðir aðild að þeim,
en eins og nafnið gefur til kynna
eru félagarnir konur sem stunda
atvinnurekstur.
Fyrir skðmmu var haldið árlegt
þing samtakanna í Brússel, og
að þessu sinni sátu fulltrúar frá
íslandi í fyrsta sinn þíngið. en
það voru þær Bára Magnúsdóttir
sem rekur Jassballettskóla Báru
og Sigríður Pétursdóttir, en hún
rekur fyrirtækið Röskva sem
flytur út ullarvarning. Við mælt-
um okkur mót við þær á skrif-
stofu Báru í Bolholtinu, Sigríður
var ókomin er við komum á stað-
inn og óvíst hvort hún kæmist
vegna anna þannig að við Bára
hófum spjallið og Báravar fyrst
spurð hvort á döfinni væri að
stofna félag kvenna í atvinnu-
Þessi mynd er tekin á þinginu og sýnir hluU ráAstefnugesta. Karlmennirnir fremst á relfctrj hár á |andí
myndinni voru sérstakir gestir á þessum fyrirlestri. -----------------------------------------
Við erum lítið farnar að
velta því fyrir okkur
enn sem komið er enda
áíutt síðan við komum heim af
ráðstefnunni, en það er þó mín
skoðun að við gætum í hvelli
kallað saman 15—20 konur og
stofnað slíkt félag hér. Þessi
samtök eru starfandi 1 þeim
löndum sem eiga aðild að al-
þjóðasamtökunum og konurnar
hittast u.þ.b. einu sinni í mánuði
og ræða ýmis mál sem upp koma
í sambandi við vinnuna. Á
hverju ári koma síðan fulltrúar
saman frá öllum löndunum og
ræða einhver sérstök málefni, í
ár var rætt um samskipti á
vinnustað milli atvinnurekanda
og starfsfólks og 500 konur voru
mættar frá ýmsu löndum."
Hvaða skilyrði þurfa þeir að upp-
fylla sem sækja um inngöngu í þenn-
an félagsskap?
„Þetta þurfa að vera konur sem
hafa stofnað og rekið fyrirtæki og
veita öðrum vinnu, það er ekki
nægilegt að reka eigið fyrirtæki
sem enginn vinnur við annar en
eigandinn. f samtökunum eru
einnig nokkrar konur sem eru yf-
irmenn í embættiskerfinu. Til-
gangur samtakanna er að taka til
umræðu ýmis mál sem snerta all-
ar konur, svo sem hvernig best er
að sameina einkalíf og atvinnu-
rekstur, flestar kvennanna hafa
t.d. verið með börn og heimili. Að
þessu sinni var rætt um samskipti
milli vinnuveitanda og starfsfólks,
en mikil áhersla er lögð á það að
við förum okkar eigin leiðir, eða
þær leiðir sem okkur eru eðlilegar.
Það er margt ólíkt með konum
og körlum sem reka fyrirtæki,"
heldur Bára áfram. „Karlmaður
getur t.d. í flestum tilfellum lagt
af stað til vinnu sinnar að morgni
og þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af því sem er að gerast
heima hjá honum á meðan. Konur
þurfa hinsvegar að skipuleggja
vinnu á tveim stöðum, og ef við
tökum mig sem dæmi þá þarf ég
að samræma vinnuna á heimilinu
kennslu og rekstri fyrirtækisins,
en ég kenni á þrem stöðum í bæn-
um á margvíslegum tímum. Ég
hef að visu verið óskaplega heppin
með það fólk sem í kring um mig
hefur verið, hef haft ágæta konu
til að aðstoða mig á heimilinu, en
ég er með þrjú börn, 16 ára, 5 ára
og það yngsta er 7 mánaða gamalt.
Ég hef líka verið mjög heppin með
starfsfólk hérna hjá mér í skólan-
um, en nú vinna hjá mér 14 kon-
ur.“
Þú sagðir að aðalefni ráðstefnunn-
ar hefðu verið samskipti milli vinnu-
veitanda og starfsfólks. Hvernig var
tekið á þeim málum?
„Það var mikið rætt um mis-
munandi stjórnun, eftir því hvort
yfirmaðurinn er karl eða kona.
Konur eru að hasla sér völl sem
atvinnurekendur og því mjög
margt gagnrýnt sem þær eru að
gera. Þær eru jafnvel sjálfar óör-
uggar og reyna því að stjórna eins
og karlar en tekst oft misvel. Ef
kona er yfirmaður og byrstir sig
er hún sögð frek, en karlmaður
sem ber í borðið annað slagið er
sagður strangur og góður yfirmað-
ur.
En það eru tfl margar leiðir til
stjórnunar og þarna á ráðstefn-
unni var lögð mikil áhersla á að
við færum eftir eigin innblæstri
og færum okkar eigin leiðir. Kon-
ur sem eru yfirmenn eru t.d. oft
skilningsríkari en karlar, flestar
konur eru t.d. mæður, en það úti-
lokar þó ekki að þær verða oft að
vera málefnalegar og strangar.
Margar konur sem eru í stöðu yf-
irmanns leggja meira upp úr and-
rúmslofti á vinnustað, allar kon-
urnar þarna á ráðstefnunni voru
t.d. sammála um það að skapa
heimilislegan anda á vinnustað,
það er jú stór hluti ævinnar sem
fólk eyðir á vinnustöðunum og því
ástæða til að láta fólki líða vel.
Enn gera fatahönnuðir alit til að barnafatnaðurinn líkist fatnaði sjálf, sem helst vilja líkjast pabba og mömmu. Litirnir í barnafatnaði,
hinna fullorðnu sem mest. Auðvit- rs allt frá ungbörnum í vöggu og til
að eru skiptar skoðanir í þessu efni um hve langt eigi að ganga, en flestir munu samt ánægðir með þessa próun. Og þá ekki síst börnin fm: barna fram að fermingaraldri, eru afar upplífgandi og frjálslegir. Pó ber mikið á ýmsum mjúkum past- ellitum eins og hjá þeim fullorðnu.
Tíska
Texti: Guðný Bergsdóttir
Ungu dömurnar eiga aö
klæöast víöum og léttum
pilsum og víöum peysum
með V-hálsmáli og eru peysurnar
þá meö stórum „leðurblöku-
ermum". Hinir ungu herrar eiga að
ganga í kínabuxum og rúllukraga-
peysum eöa „sweat-shirts“. Bæöi
stutt- og langerma peysur eru oft
meö skemmtilega máluöum
mynstrum eða myndum. Þetta á
einnig viö um þykkar og hlýjar
peysur, sem oft eru meö leöurbót-
um á öxlum og oínbogum.
Þegar fatahönnuöir, sem ein-
beita sér að fatnaöi fyrir ungu
kynslóöina, kynntu framleiðslu
sína fyrir innkaupendum, var úr
mörgu aö velja. Þetta er fatnaður,
sem kemur í verslanir næsta haust
og vetur. Áberandi er að mikiö af
skrauti er notaö á fatnaö, t.d. leö-
urbætur og likingar, mikiö af stór-
um vösum og rennilásum. Þá til-
heyra bæöi peysum og jökkum
stórir hálsklútar og treflar og ungu
dömurnar eiga aö ganga meö
alpahúfur, sem hallast niöur yfir
annað augaö.
Jakkar, bæöi fyrir stráka og
stelpur, eru eins ólíkir eins og
framleiöendurnir eru margir. Mikiö
er um mittisjakka og eru þeir yfir-
leitt meö rennilás, oft vel fóöraöir
og meö litlum hettum.
Buxurnar eiga aö liggja laust um
mitti og mjaömir og vera þröngar
niöur. Hinar vinsælu legghlífar eru
í öllum regnbogans litum og enn-
fremur spá hönnuöir, aö vinsælt
veröi aö nota fleiri pör af háum,
þykkum sokkum næsta vetur, sér-