Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.07.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1983 55 VELVAKANOI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Hvaða sjóðir eru þetta? Sigríöur Guðmundsdóttir skrifar: „Við vorum í saumaklúbbnum mínum af gefnu tilefni að ræða sjóðstofnanir og gátum ekki rifjað upp eða komið okkur saman um hvernig í lægi. Þess vegna langar mig til að koma á framfæri í Vel- vakanda spurningum í von um að svör við þeim gætu orðið til að upplýsa okkur. Það er um sjóðstofnanir sem forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, hefur tilkynnt um á ferðum sínum. Ég man að minnsta kosti að í frétt frá París um daginn, var frá því sagt að forseti íslands hefði í móttöku hjá íslenzka sendi- herranum tilkynnt um sjóðstofn- un í tilefni þess að 850 ár eru liðin síðan Sæmundur fróði var í skóla í París, að því er þjóðsagan segir. Þessi sjóður skyldi vera til styrkt- ar íslenzkum námsmönnum í París, ef ég man rétt. Þá þóttist önnur okkar muna eftir því, að forsetinn hefði til- kynnt í London, í opinberri heim- sókn, að hún ætlaði að standa fyrir stofnun á einhverjum svip- uðum sjóði til styrktar náms- mönnum þar. Og enn var að væfl- ast fyrir okkur einhver sjóðstofn- un á vegum forsetans þegar hún var á ferðalagi á Ströndum, gott ef það var ekki eitthvað í sambandi við kirkjuna á Hólmavík. Nú lang- ar okkur til þess að vita hvaða sjóðir þetta eru, hver stendur að þeim og hvar þeir eru nú. Helst hvar á að sækja um styrk úr þeim. Einkum hefur ein okkar áhuga á sjóðnum í París, þar sem hún á aðstandanda sem þar stundar nám. En það er nú kannski of snemmt að fara að sækja um hann. Ég vona að enginn fari að móðg- ast, þótt við spyrjumst fyrir um þetta, enda opinber málefni, og í lýðræðisþjóðfélagi eiga borgar- arnir að geta leitað sér upplýsinga um hvaðeina sem er á opinberum vegum og tilkynnt í blöðum. Þetta er bara venjuleg kvenleg forvitni, að leita nánari upplýsinga um það sem maður er að tala um.“ Var stúlkan eitt- hvað að villast? Næturflug yfir Reykjavfk sjaldgæft nema í mikilli hæð Valdimar Ólafsson yfirflug- umferðarstjóri skrifar: „Vegna fyrirspurnar Garð- ars Sigurgeirssonar í Velvak- anda 7. og 12. þ.m., um hávaða frá flugvélum yfir Reykjavík- urborg, sem Gunnar Sigurðs- son flugvallarstjóri svaraði vegna Reykjavíkurflugvallar, skal eftirfarandi tekið fram: Engar sérstakar hömlur eru á flugi yfir Reykjavíkurborg, aðrar en alþjóðareglur um lágmarksflughæðir yfir þétt- býli. Að nóttu til er flug yfir borginni sjaldgæft, nema í mjög mikilli hæð. Flugvélar varnarliðsins eru þó stundum á ferð að nóttu til við sitt eftirlitsflug og er lík- legt að umræddur hávaði hafi stafað frá slíkri flugvél. Mælst hefur verið til þess við varnarliðið, að flugvélar þeirra leggi lykkju á leið sína, framhjá mesta þéttbýlinu, að nóttu til. Jafnan hefur verið tekið til- lit til þeirra tilmæla og frávik eins og þetta verður að teljast undantekning." Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur les- endur til að skrifa þætt- inum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrit- uð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Gummi skrifar: „Ég sá á myndum, sem birt- ar voru af mótmælagöngu að bandaríska sendiráðinu þegar Bush varaforseti var hér, að fremst gekk stúlka með málað á sig stórum stöfum Víetnam. Var þetta ekki einhver mis- skilningur að hún væri að ganga að bandaríska sendiráð- inu? Eða var hún eitthvað að villast. Núna eru engir Banda- ríkjamenn í Víetnam, og orðið æði langt síðan þeir voru þar. Aftur á móti eru það Sov- étmenn sem vopna Norður- Víetnama, en þeir hafa sem Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar: „Kæri Velvakandi. Að undanförnu hafa töluverðar umræður orðið í blöðum, ekki síst Mbl., um stofnun hinna fyrirhug- uðu bókmenntaverðlauna forseta íslands í minningu Jóns Sigurðs- sonar. Að ýmsu leyti tel ég þessar um- ræður hafa verið upplýsandi og gagnlegar, þótt þær nær einvörð- ungu hafi snúist um ytri forms- atriði og smáagnúa á frummeð- ferð málsins, sem auðveldlega verða sniðnir af síðar. Hins vegar hafa allir verið sammála um ágæti sjálfrar hugmyndarinnar. Og er það vel. Það eitt að tengja þessi verðlaun minningu Jóns Sigurðs- sonar gefur þeim sérstakt og mik- kunnugt er lagt undir sig Suður-Víetnam, og fara þann- ig með íbúana að þeir flýja landið í stórum hópum. Þeir eru líka með innrásarher í Kambódíu og hafa þar með sér sovésk vopn. Stúlkan hefur líklega ætlað sér að mótmæla því með áletr- uninni Víetnam á sér, en af einhverjum ástæðum lent á vitlausu sendiráði. Sovétmenn eru uppi í Garðastræti. Heim- ilisfangið geta þeir, sem láta sér annt um fólkið í Víetnam, fundið í símaskránni." ilvægt gildi, sem m.a. ætti að tryggja að þau yrðu aldrei veitt fyrir venjuleg miðlungsverk — (hvað þá heldur lágkúru þar fyrir neðan). — Nei, til bókmennta- verka, sem hæfðu slíkum verð- launum, er vonandi að ekki ein- ungis fámenn nefnd heldur þjóðin öll geri ávallt háar kröfur — fyllstu gæða-kröfur — og ekki síst sé frá jákvæðu menningarsjónarhorni horft. Ef slíks verður gætt geta þessi verðlaun orðið sívökul hvatning og öflug lyftistöng íslensku menning- arlífi í framtíðinni. Vigdís forseti á því vissulega miklar þakkir skilið fyrir sína björtu hugsjón." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Þeir þvældust fyrir hvor öðrum. Rétt væri: Þeir þvældust hvor fyrir öðrum. Bendum börnum á þetta! Bókmenntaverðlaun forseta íslands: Geta orðið sívökul hvatn- ing og öflug lyfttistöng íslensku menningarlífi Tíu skápar á dag koma skapinu í lag Sagði fyndnasti lagermaðurinn okkar í gær þegar hann hamaðist við aö bera stóra og litla skápa í útkeyrslubílana. Skápakynning okkar hefur fengiö góðar und- irtektir og flestir orðið undrandi á því feiknar úrvali sem við höfum af allskonar skápum. Aðeins 20% út og rest á 6—8 mánuð- um. 3ja ára ábyrgð. UÚSGAGNAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410 JttargtsstMiifrife Gtxkrn daginn!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.