Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 3

Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 3 Fnjóská slök „Fnjóskáin hefur ekki gefið mikið í sumar, aðeins milli 70 og 80 laxa, en það er miklu minna en í góðum árum, þetta er á sem hefur gefið á sjötta hundrað laxa þegar best hefur látið," sagði Jó- hannes Kristjánsson veiðigarpur á Akureyri í samtali við Mbl. í gær. Jóhannes sagði að áin hefði verið mjög vatnsmikil í allt sumar og hinn hálfkláraði laxa- stigi þvl sennilega verið erfiður laxinum þar sem aðeins 6 laxar höfðu veiðst fyrir ofan hann fyrir 3 dögum. „Ég kíkti í stig- ann fyrir skömmu og það var mikið störgrýti í honum," sagði Jóhannes. Hann bætti því auk þess við, að þó ætla mætti annað, væri alls ekki mergð laxa fyrir neðan stiga. „Það voraði óvenju- lega seint og Fnjóskáin er auk þess jafnan í kaldara lagi fyrir laxinn, það rofar því kannski til í göngunni fyrir haustið," sagði Jóhannes. Eyjafjardará verið erfíð Jóhannes sagði að 5 laxar væru komnir á land úr Eyja- fjarðará og „menn löngu hættir að gráta út af slíku". Hins vegar sagði Jóhannes bleikjuveiðina hafa verið afar góða á köflum þegar áin hefði verið hrein, sem hefur verið sjaldan í sumar. „Ég hef verið heppinn, fór f hana um daginn með konunni og við feng- um bleikjur allt að 5 punda, allar á smáflugur. Svo fór ég í hana fyrr í sumar og fékk þá á þriðja tug fiska, einnig allt að 5 pund- um, en bleikjur allt að 8 pundum eru alls ekki fátíðar," sagði Jó- hannes. Hann gat þess að lokum, að silungsveiði í Hörgá hefði verið með alminnsta móti í sumar vegna vatnavaxta og gruggs. Leysingar hófust óvenju- lega snemma og vegna mikilla rigninga á hálendinu hefði áin verið í skoluð og mikil lengst af í sumar. Afar tregt hjá Nesbændum f blaðinu í gær var greint frá lélegum aflabrögðum í Laxá í Aðaldal á slóðum Laxárfélags- ins, tæpir 900 laxar. Enn lélegri hefur veiðin verið fyrir löndum Nes- og Árnesbænda og Mbl. hefur fregnað að veiðin nemi varla 150 löxum. Margir nafn- togaðir veiðistaðir tilheyra þess- um svæðum, svo sem Kirkju- hólmakvísl, Grástraumur og Vitaðsgjafi, en í tregfiski gengur einhverra hluta hvað verst í þessum hyljum. „Það kemur verst niður á þessum veiðistöð- um,“ sagði einn gamalreyndur veiðigarpur í samtali við Mbl. I vor. Það má segja að hvergi f Laxá hafi veiðin verið góð nema fyrir ofan Brúarfossa, í ríki hús- andarinnar, straumandarinnar og Hólmfríðar á Arnarvatni. En þar draga menn ekki lax, heldur spikfeitan og stóran urriða á flugur sínar. Vélarbilun í tog- ara Súgfirðinga TÍXIARINN Elín Þorbjarnardóttir frá Suðureyri viö Súgandafjörð hefur verið frá veiðum frá 2. ágúst vegna vélarbilunar. Vél við togvindu bilaði fyrst og var togarinn sendur suður til viðgerðar. Skipið átti síðan að fara út til veiöa á laugardag í fyrri viku, en þá kom fram útleiðsla í aðal-rafli skipsins og þurfti að einangra allar spólur í raflinum. Nú er unnið að þeirri viðgerð og vonir standa til að skipið komist út til veiða á laugardag. Að sögn Bjarna Thors, fram- kvæmdastjóra frystihússins Freyju, hefur vinna verið næg í frystihúsinu þrátt fyrir þessa bilun togarans. Fisks hefur verið aflað frá nærliggjandi fjörðum. Þá hafa trillur á staðnum fiskað bærilega. „Þetta kemur sér þó fremur illa þar sem við höfðum skipulagt hlé á veiðunum í september. Þá vorum við á málningu og viðhaldi línu- bátsins sem við erum með þannig að það hafa verið vandræði að fá hráefni," sagði Bjarni. „Við gætum lent í vandræðum ef þessi bilun dregst á langinn," sagði Bjarni Thors að lokum. Tvöföldun á þorsk- veiðum Færeyinga ÞORSKVEIÐAR Færeyinga á heimamiðum voru fyrstu 6 mánuði þessa árs tvöfalt meiri en á sama tíma síðasta árs. Samtals hafa Fær- eyingar aflað á þessum tíma 63.793 lesta af óslægðum fiski í ár, en í fyrra 47.032 lesta. Fyrri helming sðasta árs nam þorskveiðin 13.000 lestum en nú tæpum 26.000 lestum. Aukning á öðrum tegundum en þorski var mest á blálöngu, karfa og ufsa. Langminnstur afli barst á land í janúar, eða 2.634 lestir, en mest í febrúar, 15.350. Alla mán- uðina utan janúar var landað meira en 10.000 lestum af fiski í Færeyjum. í kjölfar aukinna fiskveiða Fær- eyinga hefur útflutningur þeirra vaxið verulega eða um tæp 30% fyrri helming ársins miðað við sama tíma í fyrra í krónum talið. Á síðustu 5 árum hefur útflutn- ingur Færeyinga miðað við sama tíma nær tvöfaldast. Nú nam út- flutningurinn rúmun tveimur milljörðum íslenskra króna fyrstu 6 mánuðina en sama tímabil í fyrra nam hann rúmun einum og hálfum milljarði króna. Á sama tímabili 1979 nam útflutningurinn rúmum einum milljarði íslenskra króna miðað við gengi i dag. í júní nam útflutningurinn um 426 milljónum íslenskra króna og var eingöngu um fiskafurðir að ræða. Þorskflök voru flutt út fyrir tæpar 118 milljónir króna og er það lang stærsti þátturinn. Mest var flutt SÖLUSTOFNUN lagmetis hefur nú tekið ákvörðun um þaö, að breyta nokkuð skiptingu framleiðslu milli Siglósfldar og K. Jónsonar. & co. á Akureyri. Felst hún í því, að nokkur gaffalbitaframleiösla verður flutt frá verksmiðjunni í Siglufirði til Akur- eyrar. Að sögn Heimis Hannessonar, framkvæmdastjóra Sölustofnun- ar, er þetta gert til þess að hraða afskipunum. Sagði hann, að þessi tilflutningur yrði Siglfirðingum bættur upp innan tíðar í tengslum við þá viðbótarsamninga, sem taldir væru framundan. Verk- smiðju K. Jónssonar á Akureyri væri nú falið að framleiða meira út til Bandaríkjanna, Vestur- Þýskalands og Spánar. í fyrsta sinn í langan tíma var nú flutt út til Sovétríkjanna. Voru það fryst ufsaflök fyrir um 28 milljónir króna. en upphaflega hefði verið ætlað og Siglósíld minna. Hve mikið það væri teldi hann ekki rétt að gefa upp en það væri nokkuð magn. Ástæða þessa væri aðallega sú, að framleiðsla á Akureyri gengi tölu- vert hraðar fyrir sig, meðal ann- ars vegna þess, að verksmiðjan þar hefði nýlega endurnýjað tækjakost sinn og afköst hennar væru tölvert meiri en í Siglufirði. Þá hefði hráefnisöflun í Siglufirði hafist síðar en venjulega, en í báð- um tilvikum væri framleiðslan jafngóð, þannig að ekki væri verið að gera upp á milli verksmiðja á þann hátt. Þetta hefði gerst nokkrum sinnum áður og væri því ekki um einsdæmi að ræða. Framleiðsla færð frá Siglósíld til K.J. & co. KVÖLDSÝNING fjmmtudag Nú breytum við til og höldum bílasýningu til klukkan lOíkvöld. ——-—” SÝNUM: I NOTAÐA BILA. G^sUegtúrva! ' r . _ d nno l PICKUP 929 er því pseldur) °23 1400 Swtion I 626 2000 4 dym Bl-sk. 626 2000 4 dyra 323 1300 5 dyra 323l300 3dyra 1 929 Station si.sk- 323 1300 5 dyra 323 1300 Saloon 626 2000 4 dyra ___A rlvra I Ekinn 61.000 27.000 29.000 30.000 7.000 30.000 26.000 31.000 * 50.000 12.000 bílaborghp fíSsshölða 23 sirra 812 9 Fólksbíll/Stationbíll Nýr framdrifinn MAZDA 626 5 dyra Hatchback margfaldur verdlaunabíll. Vél: 102 höDIN Viðbragð: 0-100 km 10 4 sek Vindstudull 0.35 Farangursgeymsla: 600 lítrar m/niðurfelldu aftursæti Bensineyðsla 6.3 L/100 km á 90 km hrada

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.