Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 12

Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 „Það hlaut að koma að þessu, bara spurning um hver yrði heppnastur“ Vænghaf svifflugunnar sem Baldur flaug er hann setti metið er 15 metr- ar og hefur hún rennigildið 1 á móti 41,5 sem þýðir að fyrir hvern metra sem hún fellur fer hún 41,5 metra áfram. ákveðið að fara. Eg ákvað því að reyna að komast í þetta bylgju- uppstreymi og fór norður fyrir Laugarvatn og komst þar í fjalla- bylgju sem skilaði mér upp í tæpa 5.000 metra yfir laugarvatni." Baldur sagði að þá hefði hann haft um tvo kosti að velja, að fara norðar og lenda í meira upp- streymi og betri bylgju eða að slá undan og fara sunnar þar sem ekki var eins mikið um góðar bylgjur, en var þó í átt að mark- inu. „Ég valdi seinni kostinn því mér þótti ég óþarflega langt kom- inn inn yfir landið til að komast að vendipunktinum. Ég fór því í suður í áttina að Hruna þar sem ég komst aftur í góða bylgju, sem flutti mig í 5.300 metra hæð. Síðan fór ég norðan við Búrfell í stefnu á Hrauneyjafoss, þar sem er lend- ingarstaður, en ég vildi eiga möguleika á þvi að lenda einhvers staðar ef ég lenti í vandræðum eða erfiðleikum. Á þessari leið minni yfir Hrauneyjafoss og að Þóris- vatni missti ég ekki mikla hæð og kom að Þórisvatni í um 3.000 metra hæð.“ Yfir Þórisvatni náði Baldur síð- an að komast í 4.500 metra hæð. Þaðan renndi hann sér síðan rétt vestan við Foss á Síðu og yfir Kirkjubæjarklaustur þar sem hann tók ljósmynd. Frá Klaustri flaug hann síðan í átt að vendi- punktinum Leiðólfsfelli. Komið að Leiðólfsfelli „Ég flaug síðan í vestur frá Kirkjubæjarklaustri í átt að Leið- ólfsfelli. Yfir hálendinu hafði ver- ið frekar skýjað, en þó var það með einstaka gloppum. Mér fannst ég því hafa verið heppinn er ég sá fjallið og sá að það var frekar - rætt viö Baldur Jónsson sem fyrstur varö til aÖ fljúga 300 km markflug hér á landi og fá þar meÖ gull-C Það má með sanni segja, að sumarið 1983, þrátt fyrir alla rigninguna sólarleysið, verði íslenskum svifflugmönnum minnisstætt. A þessu sumri hafa þrjú ný met verið sett og þar á meðal tókst Baldri Jónssyni að ná því takmarki að fá gull-C, en því takmarki hefur aldrei verið náð hér á landi fyrr og má því telja þetta tímamót í íslenskri svifflugsögu. Að fljúga svifflugu og fá fyrir það gull-C táknar, að flogið hafi verið a.m.k. fimm klst. þolflug, 300 km yfirlandsflug og að náð hafi verið 3.000 metra hækkun eftir að dráttartauginni er sleppt. Þessum áfanga náði Baldur 31. júlí, en þá flaug hann frá Sandskeiði og yfir Leiðólfsfell þar sem hann sneri við heim á leið og lenti á Sandskeiði kl. 21.10. Hafði hann þá flogið 300 km, verið á lofti í tæpar 8 klst. og hækkað flugiö um 4.890 metra eftir að dráttartauginni var sleppt. Flug Baldurs er bæði Islands- met og einnig innanlandsmet, en áður höfðu í sumar verið sett innanlandsmet í útflugi á svif- flugu. Þá hafði met Þórðar Hafliðasonar staðið óhreyft síðan 1967, en þá flaug Þórður 172,5 km í útflugi. Fyrstur til að bæta met Þórðar var Sigmundur Andrésson er hann í sumar flaug 184 km frá Sandskeiði og lenti á Fossi á Síðu. Síðan varð Garðar Gíslason til þess að bæta um betur er hann flaug 250,2 km í útflugi 17. júlí, en upphaflega hafði hann ætlað sér að snúa við á Kirkjubæjarklaustri og fara til baka til Sandskeiðs og ná þar með í gull-C. Það hefur lengi verið draumur íslenskra svifflugmanna að geta fengið gull-C hér á landi en ís- lenskir svifflugmenn hafa flogið slík flug erlendis. Það sem aðal- lega hefur valdið erfiðleikum við að fljúga og fá gull-C hér á landi, er að svifflugmenn hafa þurft að fljúga í gegnum mörg misjöfn veð- rabelti á leið sinni og einnig hefur heppilegasti vendipunkturinn ekki fundist fyrr en nú, því að telja verður Leiðólfsfell hentugan vendipunkt, þar sem einmitt tókst að ná í gull-C með því að snúa þar við. Baldur hóf að fljúga svifflugu 17 ára að aldri og þá var mikið um það rætt meðal svifflugmanna að reyna að ná í gull-C með flugi til Hornafjarðar, en ekki tókst það. Baldur lagði síðan svifflugið til hliðar um 10 ára skeið á meðan hann bjó úti á landi þar. sem ekki var aðstaða til svifflugsiðkunar. Hann tók síðan þráðinn upp þar sem fra var horfið þegar hann flutti aftur til stór-Reykjavíkur- svæðisins. Leitað að heppilegum vendipunkti „Ég flaug nokkrar ferðir í sumar frá Sandskeiði með það í huga að leita að heppilegum vendipunkti fyrir flug sem gæfi gull-C,“ sagði Baldur Jónsson, þegar hann var spurður um að- dragandann að fluginu. „Það hef- ur einnig verið búist við því að Baldur með flugyfirlýsinguna í höndunum þar sem hann lýsir því yfir að hann ætli að fljúga frá Sandskeiði að Leiðólfsfelli og til Sandskeiðs aftur og fljúga þar með 300 km markflug. þetta takmark næðist fljótlega, því þessar plastvélar, sem flogið hefur verið á í sumar, hafa mun meira rennigildi heldur en þessar gömlu og því má segja að það hlaut að koma að þessu, bara spurning um hver væri heppnast- ur. Þegar ég kom upp á Sandskeið um morguninn var ég ekki búinn að ákveða endanlega hver yrði vendipunkturinn hjá mér í flug- inu. Eg ákvað þó að hafa það Leið- ólfsfell og gaf upp leiðina: Sand- skeið-Leiðólfsfell-Sandskeið, sem síðan var skrifað undir. Það var mjög skýjað þegar ég var dreginn í loftið af TF-TUG um kl. 13.50 en ég lét það ekkert á mig fá. Ég var dreginn í 600 metra hæð og fljótlega eftir að ég sleppti fann ég bylgjumyndun og þegar ég kom að Hengli var ég kominn í 3.000 metra hæð. Þá leit ég austur fyrir og fannst ég sjá sterkar bylgjur norðan við þá leið sem ég hafði bjart yfir því. Síðan birti skyndi- lega til yfir Skaftártungunum og varð mjög bjart yfir Leiðólfsfelli. Ég dólaði síðan við fjallið í um tuttugu mínútur og tók mynd af því og því næst hélt ég til baka í átt að Sandskeiði. Þegar ég hafði snúið við og var kominn rétt austan við Skaftá lenti ég í bylgju sem ég nýtti mér til að komast í tæplega 5.500 metra hæð og það dugði mér til að komast að Múlakoti, sem er suð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.