Morgunblaðið - 25.08.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983
13
Komið inn til lendingar. Ekki setti Baldur met að þessu sinni en svifflug er
ekki bara til að reyna að setja met heldur til að hafa gaman af.
vestan við Tindfjöll. En við
Tindfjöll má alveg bóka upp-
streymi og þvi fór ég þangað í leit
að bylgjum."
Baldur renndi sér síðan á svif-
flugunni í beinu renniflugi í átt að
Tindafjöllum þar sem hann fann
uppstreymi, sem skilaði honum
upp í 4.500 metra hæð. „Ég hélt að
sú hæð myndi duga mér niður á
Sandskeið því það hefur margoft
verið gert að fljúga frá Sandskeiði
að Tindafjöllum og til baka. En
því var ekki að heilsa að það yrði
auðvelt í þetta sinnið og þegar
kom að Selfossi var ég kominn
niður í 1.000 metra hæð.
Taldi sig ekki komast
lengra og var farinn aö
leita að lendingarstað
Þarna við Selfoss tók við barn-
ingur og tókst mér að komast upp
í 1.500 metra hæð, en ég vissi að
það myndi engan veginn duga mér
til að komast yfir á Sandskeið því
það var töluverður mótvindur. Það
má reyndar segja að það hafi verið
mótvindur alla leiðina til baka frá
Leiðólfsfelli. Ég ákvað þó að fljúga
beint í norður í þeirri von að finna
þar uppstreymi eða fá bylgju.
Þá tók við sá hluti leiðarinnar
sem reyndist mér erfiðastur, enda
var ég farinn að leita að lend-
ingarstað því ég taldi mig ekki
komast yfir á Sandskeið. Ég flaug
samt norður að Búrfelli í Gríms-
nesi, ekki of viss um hvort ég ætti
að halda áfram eða ekki. Ég var
farinn að skima eftir lendingar-
stað þegar ég lenti í þessu fína
uppstreymi og gat klifrað upp f
2.000 metra, sem ég lét duga til að
fljúga í beinu renniflugi yfir á
Sandskeið en þar lenti ég kl. 21.10
og var þá þessu langþráða marki
að lokum náð.
Ég held mér sé óhætt að segja
að erfiðasti þröskuldurinn á þess-
ari leið hafi verið að komast þessa
10—15 km frá Ingóifsfjalli og að
Búrfelli en þá var mér hætt að
lítast á blikuna því ég var kominn
svo lágt.“
Þetta hefur verið sannkallað
metár í sviffluginu hér á landi.
Sigmundur ríður á vaðið með sínu
innanlandsmeti í útflugi, síðan
bætir Garðar Gíslason það met og
nú síðast verður Baldur Jónsson
fyrstur til þess að fljúga og fá
gull-C hér á landi. Baldur fær
einnig demant, en það er viður-
kenning sem hægt er að fá fyrir
500 km yfirlandsflug, 5.000 metra
hækkun eftir að hjálpartækjum
sleppir og 300 km markflug, sem
ákveðið er fyrirfram. Demantinn
fær Baldur fyrir 300 km markflug,
en einungis munaði 110 metrum
að hann fengi annan demant fyrir
það að ná 5.000 metra hækkun eft-
ir að dráttartaug er sleppt.
Gleðjast yfír árangri
hvers annars
„Það er vonandi að þetta flug
verði til þess að hvetja fleiri til
dáða og fleiri verði til þess að
fljúga og fá gull-C hér áður en
langt um líður. Það má segja að ég
hafi verið heppinn í þessu flugi, en
hins vegar skiptir það sköpum að
taka ávallt réttar ákvarðanir og
ég hlýt að hafa gert það fyrst mér
tókst að komast alla leið.
Ég á hins vegar félögum mínum
í sviffluginu mikið að þakka og við
höfum hvatt hvern annan til dáða
og glaðst yfir árangri hvers ann-
ars. Það var vel tekið á móti mér
þegar ég kom til baka og menn
glöddust yfir því að búið var að ná
þessu marki hér á landi," sagði
Baldur Jónsson að lokum.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásfcíum Moggans!
höfum við tekið fram vörurn-
ar sem eru ekki á útsölunni
og gefum 10% afsl. af þeim
á meðan á sumarútsölunni
stendur.
LATTU
þig ekki vanta á þessa frá-
bæru útsölu.
40%—60% afsláttur.
Verið velkomin!!
KARNABÆR
IV LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22
F SIMI FRÁ SKIPTIBORDI 85055
fna
Laugavegi 20 Simi Ira skiptiborði 85055
Austurstraeti 22 Sími frá skiptiboröi 85055
III-