Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 15

Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 Boðsgestir í fyrstu máltíð hollustuvikunnar, ásamt aðstandendum henn- ar. Talið f.v. Noel Johnson, maraþonhlaupari, Hilmar Helgason, Páll Árnason, yfirmatsveinn, Sigurður Gíslason, hótelstjóri, dr. Jón Óttar Ragnarsson, dósent, Hulda Ólafsdóttir, ritari og Ágúst Sigurðsson, matvdafraeðingur. Heilsufæði á boðstóhim á Borginni: HOLLT SKAL ÞAÐ VERA! „ÞAÐ ER gömul þjóðsaga að halda að hollustufæði þurfi endilega að vera bragðvont, en þessi máltíð var alveg frábær,“ sagði Örn Harðar- son, einn þeirra sem borðaði fyrstu máltíðina í hollustuvikunni sem nú stendur yfir á Hótel Borg. Dr. Jón Óttar Ragnarsson, dósent, lagði á ráðin um samsetningu réttanna, sem á boðstólum eru, í samvinnu við Pál Árnason, yfirmatsvein á Hótel Borg. í samtali við Mbl. sagði Páll að saminn yrði matseðill fyrir hvern dag, sem samanstæði af skammti af blönduðu íslensku grænmeti og síðan einum aðal- rétti. í hverri máltíð eru um 400 hitaeiningar, en að sögn Arnar Harðarsonar, eins þeirra sem brögðuðu á hollustumatnum, var fæðan bragðmikil og góð, og á engan hátt einhæf. Páll Árnason er nýkominn heim frá Svíþjóð, þar sem hann hefur kynnt sér matargerð af þessu tagi, og rak auk þess eigin matsölustað þar i landi í 4 ár. Páll sagði að hollustufæðan hefði verið á matseðli Hótel Borgar í gær, og hefðu margir af matargestum valið hana og líkað vel. Hann sagði að þessi fæða væri í raun engin breyting á matarvenjum, heldur einungis öðru vísi samsetning á fæðuteg- undum. Hann taldi fólk hafa ímyndað sér of lengi að hollustu- og megrunarfæði þyrfti alltaf að byggjast á endalausu gulrótar- áti, en þessi fæða sem hann væri að kynna, byggðist upp á ís- lensku kjöti, fiski og grænmeti, þar sem kappkostað væri að sameina bragðgæði, hollustu og ákveðið hitaeiningagildi. Heiðursgestur við fyrsta holl- ustumálsverðinn var Noel John- son, hinn 84 ára gamli mara- þonhlaupari og heilsuræktar- áhugamaður, og áður en máltíð- in hófst, flutti dr. Jón óttar Ragnarsson nokkur kynningar- orð um hollustufæðið. GóÖtemplarareglan 100 ára Góðtemplarareglan á íslandi verður 100 ára þann 10. janúar 1984. Af því tilefni hefur verið ákveðið að gefa út veglegt afmæl- isrit. Ritið verður um 160 blaðsíð- ur og gefið út í ca. 3.000 eintökum. Góðtemplarareglan hefur unnið brautryðjendastarf í félagsmálum hér á landi, segir í fréttatilkynn- ingu frá reglunni og hefur starfað í flestum sveitarfélögum landsins. Ákveðið hefur verið að gefa al- menningi kost á því að gerast áskrifendur að ritinu og fá nöfn sín skráð á heillaóskalista fremst í ritinu. Þeir sem hefðu áhuga á að gerast áskrifendur að ritinu geta hringt í síma Stórstúku fslands, Eiríksgötu 5, eða sent nöfn sín í pósti til Stórstúkunnar fyrir 1. október 1983. Landsmót votta Jehóva f dag hefst í Reykjavík árlegt landsmót votta Jehóva á íslandi. Mótið er haldið í samkomuhúsi þeirra við Sogaveg í Reykjavík og stendur í fjóra daga. Einkunnarorð mótsins eru „Ein- ing undir Guðsríki", en vottar Je- hóva telja Biblíuna sýna að Guðs- ríki sé eina von mannkynsins um varanlegan frið og einingu. Á dagskrá er fjöldi erinda og viðtalsþátta, auk tveggja leikrita með litskyggnum. Aðalræðu móts- ins flytur Bergþór N. Bergþórsson kl. 14:00 á sunnudag og nefnist hún „Hverjir eru sameinaðir í þessum sundraða heimi?“ Vottar Jehóva munu á fimmtudag ganga i hús í Reykjavík og ræða við fólk um Bibliuna og bjóða þvi að sækja mótið, en aðgangur er öllum frjáls. Mótinu lýkur á sunnudag. ARNARFUUG VÖRUFUJTMNGAR Þeirsem krefjast öryggis ve/ja vörufiutninga Arnarf/ugs vegna þess að 737-200 COMBI flugvél Arnarflugs er í senn vöru- og farþegaflugvél. Það tryggir fullkomna nýtingu hverrar ferðar til vöru- og farþegaflutninga í samræmi við þörf hverju sinni. vegna þess að menn treysta vörueftirliti CORDA - þjónustutölvu KLM og Arnarflugs. Hún segir okkur á svipstundu hvar varan er stödd, hve þung hún er og stór, hverjir viðkomustaðir hennar eru og flutnings- tími. vegna þess að reglubundið áætlunarflug Arnarflugs að og frá Schiphol flugvelli tryggir lágmarks- afgreiðslutíma á vörum til landsins. Þannig stuðlum við að minna birgðahaldi, lægri fjármagnskostnaði og auknum veltuhraða stórra sem smárra fyrirtækja. vegna þess að Arnarflug finnur hagkvæmustu leiðina fyrir þína vöru. Flugfélag með ferskan blæ 4RNARFLUG Lágmúli 7, Sími 29511 MetsöluUad á hverjum degi! HVÖT Haustferð með Eddunni Til Newcastle 31. ágúst. Fararstjóri Sigríöur Hannesdóttir. Skráning hjá Farskip í síma 25166 — Valgeröur Einarsdóttir, kl. 9—17 og hjá Önnu Borg á skrifstofu Hvatar, kl. 9—12. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.