Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 16

Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÍJST 1983 Sovétríkin teygja árina framar í Mið-Ameríku eftir Gunnar Pálsson UMDEILT strfð og inn- brotshneyksli áttu fyrir ára- tug snaran þátt í þeirri ákvörðun bandaríska þings- ins að þrengja svigrúm fram- kvæmdavalds í utanríkismál- um. Einn kunnasti dálkahöf- undur í Bandaríkjunum fyrr og síðar, Walter Lippmann, hafði þó vakið á því athygli tuttugu árum áður að áhrifa- vald forseta í málefnum stríðs og friðar hefði smám saman færzt til löggjafar- þings og þaðan yfir til fjöld- ans. Lippmann, óhvikull lýð- ræðissinni, líkti aukinni hlut- deild almúgans í öryggismál- um rfkisins við tæringu heil- brigðs líkama og kenndi sjálfviljugu hugsunarleysi, sem af henni hlauzt, um verstu mistök bandarískrar utanríkisstefnu á öldinni. í lýðræðisríkjum okkar daga telst vart til annmarka á stjórn- arfari að kjósendur kalli ráða- menn til ábyrgðar. Á hinn bóginn má um það deila hvort aukin íhlutun almennings í málefnum stríðs og friðar stuðli einatt að skynsamlegri ákvarðanatöku. Stjórnist athafnir valdhafa af viðhorfum almennings hverju sinni kann það þvert á móti að spilla fyrir mótun heilsteyptrar utanríkisstefnu. Síbreytileg af- staða almennings kann að hindra áform til langframa. Aðþrengdu framkvæmdavaldi gefst ekki ráð- ním til skjótra gagnráðstafana á neyðarstund. Þar sem vinsældir afstöðu verða mælikvarði fyrir réttmæti hennar er stjórnvöldum óhægt um vik að taka óvinsælar en nauðsynlegar ákvarðanir. Er það kaldhæðnislegt að þrátt fyrir að lýðræðisríki byggi frelsi sitt að verulegu leyti á traustum land- vörnum, ala þau á frjálslyndisöfl- um, sem skorast vilja undan því að axla byrðarnar af lýðræðinu. Þau vilja njóta ávaxtarins án þess að vökva rótina. Stefna Bandaríkjanna í Mið- Ameríku að undanförnu er að ýmsu leyti táknræn fyrir um- rædda sjálfheldu framkvæmda- valdsins. Hergagnaflutningar Sovétmanna til Mið-Ameríku hafi e.t.v. aldrei verið meiri og kúb- anskir hernaðarráðgjafar í Nicaragúa skipta nú þúsundum. { krafti liðsaukans hyggjast stjórn- völd viðhalda núverandi skipan að þjóðinni forspurðri og draga taum kommúnískrar byltingar í ná- grannaríkjunum. Bandaríska þingið hefur engu að síður reist rammar skorður við afskiptum stjórnarinnar af E1 Salvador og Nicaragua. Hefur meirihluti þingsins, bergmál almennings, haft að málsvörn að Reagan væri með harðskeyttri stefnu sinni að sökkva þjóðinni í fen annars Víet- nam-æfintýris. Samlíkingin við afskipti Banda- ríkjamanna af Víetnam á um margt við rök að styðjast. Líkt og á tímum Víetnam-stríðsins grein- ir menn á um nlutverk þingsins og hvort það eigi að hlíta eða hnekkja stefnumörkun framkvæmdavalds- ins. Deilt er um viðbrögð við bylt- ingaröflum í þróunarlöndunum og baráttuaðferðir lýðræðisafla gegn tangarsókn kommúnismans. Að öðru leyti er þó ólíku saman að jafna. Nálægðin ein veldur að málefni Mið-Ameríku snerta ðryggi Bandarikjanna beinlínis. Takist kommúnistum að koma ár sinni fyrir borð í nágrannaríkjum gefst Sovétmönnum kostur á her- stöðvum, sem ógna bandarísku þjóðinni og auka líkur á heims- ófriði. Meiri samstaða er um mikilvægi Mið-Ameríku nú en til var að dreifa varðandi Vietnam 1965. Hávær mótmæli gegn að- ferðum Reagans í Mið-Ameríku breyta því ekki að tilgangur þeirra er lítt umdeildur. Árið 1965 gátu margir talið sér trú um að Viet lýsti því yfir árið 1823 að Banda- ríkin myndu áskilja sér rétt til að vernda þjóðir Rómönsku Ameríku gegn ágangi evrópskra einræðis- þjóða. Monroe-kenningin hefur síðan verið hornsteinn banda- rískrar utanrikisstefnu i heims- hlutanum. Þrátt fyrir að viðbrögð Reagans við afskiptum Sovét- manna af Mið-Ameríku séu í anda þessarar kenningar, er nauðsyn- legt að túlka þau í ljósi samtíma- legra viðburða. Veturinn 1958 var Eisenhower Bandaríkjaforseti á tveimur átt- um um andsvör við byltingartil- raunum Castrós á Kúbu. Þar eð sannanir voru fyrir níðingshætti Fulgencio Basista, einræðisherra, endes í Chíle, sem naut fulltingis Castrós, var kollsteypt í septem- ber 1973. Linnulausar tilraunir Kúbuleiðtogans til að grafa undan áhrifum Bandaríkjamanna í heimshlutanum hafa spillt fyrir friði en annars hvergi borið tilætl- aðan árangur, ef undan eru skilin smáríkin Surinam og Grenada, og loks Nicaragúa nú. Atburðum í júlí 1979 svipar um margt til atburða 1958. Eins og á Kúbu var einræðisherra við völd í Nicaragúa, Anastasio Somoza. Þótt Somoza væri staðfastur Bandaríkjavinur, ollu spilling og mannréttindabrot einræðisherr- ans því að risinn í norðri hélt að sér höndum í byltingunni ’79. , Ml£>: a^erika Cong væri fyrst og fremst þjóðleg umbótahreyfing bænda og berðist því ekki undir fána yfirvalda í Hanoi. Sandínistar i Nicaragúa hafa á hinn bóginn enga tilburði til að villa á sér heimildir og fara leynt og ljóst undir hamri og sigð. Stór hluti bandarísku þjóðarinnar kýs að bægja hættunni frá með friðmælum frekar en vopnabraki. En hafi Reagan ekki tilburði á vígvellinum er ósennilegt að ár- angur náist við samningaborðið. Þar sem einn aðili berst til sigurs, en hinn til friðar, hefur hinn fyrr- nefndi oftar betur. Stefna Reaganstjórnarinnar í Mið-Ameríku helgast af sögu- legum forsendum, gömlum og nýj- um. Monroe Bandaríkjaforseti ákvað stjórnin að hætta að styðja hann með vopnasendingum. Castró og byltingarliðum hans reyndist hægur eftirleikurinn og námu þeir Havana herskildi í janúar 19o9. Þegar Bandaríkjamenn sáu sig um hönd var það orðið um seinan. Blíðulæti Castrós og Sovétmanna knúðu stjórnina til refsiaðgerða, sem náðu hámarki með hinni mis- heppnuðu innrás í Svínaflóa í apríl 1961. Þrátt fyrir að árásin yrði Castró veruleg lyftistöng ein- angraðist hann smám saman frá meginlandi Rómönsku Ameríku. Tilraunir hans til að kynda undir byltingum í Guatemala, Venezu- ela, Kólombíu, Perú og Bólivíu runnu út í sandinn og stjórn All- Andstaða þorra almennings við stjórn Somozas, gerði að verkum að byltingaröflin, undir forystu sandínista, áttu greiðan aðgang að stjórntaumunum. Aðgæta ber þó að hefði byltingin ekki notið sam- þykkis Samtaka Ameríkuríkja að auki er óvíst hvort sandínistar hefðu náð að taka völdin. Á fundi utanríkisráðherra sam- takanna í júní 1979 bar til tíðinda að gerð var ályktun þar sem stjórn Somozas var í raun svipt lögmæti og uppreisnarmönnum heitið sið- rænum stuðningi. í ályktuninni voru andstæðingar einræðisherr- ans hvattir til að beita sér fyrir „sannri lýðræðisstjórn". Nýja her- stjórnin í Nicaragúa svaraði sam- þykkt samtakanna með yfirlýs- ingu um sumarið, þar sem hún lof- aði lýðræði, mannréttindum og J'yrstu frjálsu kosningunum" í Nicaragúa á öldinni. Illu heilli kom í Ijós að sam- þykkt Samtaka Amerfkuríkja var byggð á röngum forsendum. Stjórn sandínista hófst þegar handa við að gera loforðin að engu. Þeir höfðu komizt til valda i skjóli samstarfs við ólíka aðila en reyndu að viðhalda þeim óskiptum í krafti ofbeldis og erlendrar íhlutunar. Mannréttindi hafa ver- ið höfð að spotti og frjálsar kosn- ingar eru hvergi f sjónmáli. Sand- ínistar hafa þó ekki látið hér við sitja heldur einnig lagt drag undir kommúnískar byltingar í ná- grannaríkjunum. Viðbrögð Bandaríkjamanna við þessari framvindu mála bera þess merki að árásin í Svínaflóa er stjórnvöldum enn í minni. Þús- undir „kontra“-skæruliða, sem njóta stuðnings bandarísku leyni- þjónustunnar, hafa á árinu ráðist inn í Nicaragúa frá nágrannarík- inu Hondúras. Andstæðingarnir telja í sínum hópi fyrrverandi Somoza-sinna, en einnig fyrrver- andi sandínista, er telja að stjórn- in hafi brugðizt málstað bylt- ingarinnar. Heræfingar banda- rískra land- og fótgönguliða nær landamærum ríkjanna, svo og æf- ingar bandaríska flotans við strendur Nicaragúa, bera þess vitni að Reagan hyggst ekki taka vettlingatökum á svikráðum sand- ínista. Einurð forsetans virðist þegar hafa komið nokkru til leið- ar. Castró og sandínistar hafa nú í fyrsta sinn á orði að stöðva beri utanaðkomandi vopnaflutning til heimshlutans. Hver árangur verð- ur af viðvörunum forsetans ræðst þó að miklu leyti af því hvort bandaríska þingið gefur forsetan- um kost á að láta kné fyigja kviði. Eins og horfir er vandséð hvort Reagan fær nauðsynlegt ráðrúm til athafna í Mið-Ameríku. Full- trúadeildin hefur samþykkt fyrir sitt leyti að stöðva liðsinni banda- rísku leyniþjónustunnar við „kontra“-skæruliða í Nicaragúa. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið fær að hafa í mesta lagi fimm- tíu og fimm hernaðarráðgjafa i E1 Salvador. Háværar raddir krefj- ast af forsetanum að hann beiti sér fyrir „ pólitískri" lausn á þrætuefnum Mið-Ameríkuríkja. Friðþægingarstefna þingsins get- ur þó vart talizt vænleg til árang- urs. Samkvæmt upplýsingum bandaríska varnarmálaráðuneyt- isins hafa hergagnaflutningar Sovétmanna til Nicaragúa það sem af er árinu verið tvöfalt meiri en á öllu árinu í fyrra. í grein, sem blaðamaðurinn Richard Halloran reit fyrir „The New York Times" nýlega, segir að allt bendi til að lungi hergagnanna hafi verið stór- skotaliðsvopn, skriðdrekar, bryn- drekar og flugvélar. Flutninga- skipið Alexander Ulyanov, sem nýlega kom til hafnar með her- gögn í Cortino í Nicaragúa, var hið tíunda í röðinni frá í byrjun árs- ins. Um það bil er Ulyanov lagði að bryggju í Nicaragúa var tugur annarra flutningaskipa þegar lagður af stað frá Sovétríkjunum til sama áfangastaðar. Samkvæmt upplýsingum varn- armálaráðuneytisins hefur herinn í Nicaragúa nú á að skipa um hundrað þrjátíu og átta þúsund hermönnum, en miðar að því að hafa tvö hundruð og fimmtíu þús- und hermenn innan tíðar. Allt að tvö þúsund kúbanskir hernaðar- ráðgjafar starfa nú í landinu auk eitt hundrað sovézkra ráðgjafa í höfuðborginni Managúa. Hafa Sovétmennirnir einkum haft

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.