Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 22
22
• MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983
Mannfall í árás
yrði 25 milljónir
að minnsta kosti
London. 24. ágnoL AP.
HEFÐU Sovétmenn ráðrúm til að
flytja alþýðu manna í skjól raætti eigi
að síður gera ráð fyrir að allsherjar
kjarnorkuárás Bandaríkjanna á sov-
éska eldflaugaskotpalla og iðnaðar-
svæði yrði milli tuttugu og fimm og
þrjátíu og fjórum milljónum manna
að fjörtjóni. Gæfist Sovétmönnum
ekki slikt ráðrúm gætu dauðsfoll orð-
ið á bilinu fimmtíu til eitt hundrað
milljónir. Niðurstöður þessar koma
fram í athugun Alþjóðlegu herfræði-
stofnunarinnar í London (IISS), sem
birt var í dag.
Noregur:
Óánægjan
vex með fisk-
kaup Rússa
Ósió, 24. ágÚHt. Frá fréttariura Mbl.
EINS OG sagt var frá í gær, þriðju-
dag, er víða mikil óánægja meðal
n.skvinnslufólks í Noregi og
atvinnurekenda með gífurleg fisk-
kaup Sovétmanna beint frá fiski-
skipunum. sem farin eru að valda
atvinnuleysi í landi. Við átökum lá
í Hammerfest um sl. helgi vegna
þessa en nú er það fólk í Abelnes,
skammt frá Flekkufirði, sem mót-
mælt hefur þessum viðskiptum.
I Abelnes gengur nú flest fisk-
vinnslufólk atvinnulaust og er
þremur sovéskum verksmiðju-
skipum kennt um, en þau lóna úti
fyrir ströndinni og kaupa alla þá
síld, sem bátarnir veiða. Tals-
menn þeirra, sem hagsmuna eiga
að gæta í landi, segja þessar að-
farir bæði ólöglegar og sérstak-
lega óheiðarlegar af hálfu norsku
sjómannanna.
Helge Schött, talsmaður síld-
arútflytjenda, segir útilokað
fyrir norska atvinnurekendur að
bjóða í síldina á móti Rússum.
Laun í Rússlandi séu smámunir
einir samanborið við það, sem
gerist í Noregi, og þess vegna
geti þeir keypt alla þá síld, sem
þeir komast yfir og selt hana síð-
an aftur með góðum hagnaði á
Vesturlöndum. Sovétmenn greiða
5,30 ísl. kr. fyrir kílóið en í landi
fá sjómennirnir aðeins um 1,90
ísl. kr.
Dr. Desmond Ball, frá ástralska
þjóðarháskólanum í Canberra,
veitti könnuninni forstöðu. Hann
sagði að frá árinu 1973, að minnsta
kosti, hefði það verið stefna banda-
rískra yfirvalda að miða ekki
kjarnorkueldflaugum á þéttbýlis-
svæði í Sovétríkjunum. Ball bætti
þó við að örðugt væri að segja til
um hvað slík stefna þýddi i raun
þar sem alls byggju tvö hundruð
sextíu og niu milljónir manna i
Sovétríkjunum.
I athuguninni kemur fram að
Bandaríkjamennn miða eldflaug-
um að um fjörutíu þúsund skot-
mörkum í Sovétríkjunum. Til sam-
anburðar má geta þess að skot-
mörkin voru einungis tvö þúsund
og sex hundruð árið 1960, en tutt-
ugu og fimm þúsund árið 1974. Ball
sagði að fjölgunin ætti rætur að
rekja til þess að uppskátt hefði orð-
ið um fleiri hernaðarmannvirki í
Sovétríkjunum með bættri leyni-
þjónustu og væri því ástæðan ekki
að sovéskum hernaðarmannvirkj-
um hefði skyndilega fjölgað.
Blíðunnar notið undir byssukjöftum
ísraelskur hermaður gætir hér öryggis félaga sinna, sem eru að sóla sig og baða í
Awali-ánni í Suður-Líbanon. Á þessum slóðum verður víglína ísraela eftir að þeir
hafa flutt her sinn um set frá Chouf-fjöllum í miðju landinu.
Mobutu lét berja
andstæðinga sína
Briissel, 24. ágúst. AP.
UM SEXTÍU andstæðingar Mobutu Sese Sekos, forseta
Zaire, voru barðir og fangelsaðir 12. ágúst eftir að fjórir
þeirra áttu fund með bandarískum þingmönnum í Kinshasa,
höfuðborg Zaire, að því er dagblaðiö „De Morgen“ sagði í
dag.
í fréttinni sagði að í hópi
fórnarlambanna hefðu verið
þrettán fyrrverandi þing-
menn, er áður höfðu verið
látnir sæta fangelsisvist fyrir
að gagnrýna einræðisstjórn
Mobutus í belgísku nýlendunni
fyrrverandi.
myndir af tveimur þrettán-
menninganna, sem sagt er að
hafi verið teknar eftir bar-
smíðarnar. Skyrtur beggja
voru blóðugar og augu þeirra
bólgin. Dagblaðið, sem talið er
áreiðanlegt, gat ekki um heim-
ildir sínar fyrir fréttinni í
Zaire. Það sagði að bandarísku
máli við fjóra félaga Samtaka
fyrir lýðræði og félagslegum
framförum, UDPS, á alþjóð-
legu hóteli í Kinshasa. Að
fundinum loknum segir blaðið
að zairísku þingmennirnir,
auk fimmtíu fylgismanna,
hefðu verið lúbarðir með belt-
um af herlögreglu í borgara-
klæðum, en síðan fluttir til
herbækistöðva, þar sem mis-
Mobutu forseti Zaire
þyrmingunum
áfram.
var haldið
„De Morgen" birti ljós- þingmennirnir hefðu komið að
Stjórnarflokkur &
vann í Nígeríu r
Ukos, Nígeríu, 24. ígúsl AP.
Stjórnarflokkur Nígeríu, Þjóóar-
flokkurinn, náöi fimmtíu og fimm
sætum í kosningum til öldungadeild-
ar nígeríska þingsins og hefur því
yfirburða meirihluta. Kosningarnar
fóru fram á laugardaginn var, en
talningu atkvæða lauk ekki fyrr en í
dag.
Skugga bar þó á kosningarnar
þar sem átök í vesturríkjunum
Oyo og Ondo ollu því að kosning-
um þar var frestað um óákveðinn
tíma. Kosningar í Kwara-ríki, þar
sem ofbeldis hefur gætt einnig,
munu fara fram 10. september.
Hvert hinna nítján ríkja Nígeríu
hefur fimm kjörna fulltrúa í öld-
ungadeildinni. Hérað höfuðborg-
arinnar, Abuja, hefur einn full-
trúa.
Líkt og í forseta- og ríkisstjóra-
kosningum fyrr í mánuðinum náði
Þjóðarflokkurinn beztum árangri
í flestum kjördæmum, bætti við
sig þingsætum í mið- og suðurhér-
uðum en hélt í horfinu í norður-
Shagarni forseti Nigeríu
héruðum, þar sem meirihluti íbúa
er múhameðstrúar.
Afganistan:
Dreifa myndum af
fyrrverandi konungi
Nýju I)elhí, 24. á|(úst. AP.
HAFT ER EFTIR heimildum, að myndir af fyrrum konungi Afganistans
gangi nú manna á meðal í Kabúl, höfuðborginni, en hins vegar hefur
lepjstjórnin lítið sem ekkert látið frá sér heyra um stuðningsyfirlýsingu
konungs, sem nú er í útlegð á Ítalíu, við frelsissveitirnar í landinu.
Ibúum í Kabúl kom það á óvart þjóðarinnar, að vinna að „stofnun
í síðustu viku að sjá mynd af fyrr-
um konungi í herfangi, sem sjón-
varpið sýndi og sagði hafa fallið í
hendur stjórnarhermönnum í
Bagrami fyrir austan borgina. Er
það í fyrsta sinn sem leppstjórnin
gefur til kynna, að konungur sé á
bandi skæruliðanna.
Fyrrum konungur Afganistans,
Mohammad Zaher Shah, var rek-
inn frá völdum árið 1973 og hefur
haft hægt um sig síðan. í síðustu
viku skoraði hann hins vegar á þá
menn, sem berjast fyrir frelsi
nýs Afganistans, sem óháð væri
erlendum ríkjum og hefði kenn-
ingar spámannsins frá Mekka að
leiðarljósi". Kvaðst hann einnig
mundu berjast fyrir málstað þjóð-
arinnar á alþjóðlegum vettvangi.
Fólk, sem komið hefur frá Kab-
úl, segir, að myndum af konungin-
um sé dreift í borginni, oft fyrir
opnum tjöldum, og að andspyrnu-
hreyfingin hafi haldið fund þar
sem rætt hafi verið um hlutverk
konungs í frjálsu Afganistan.