Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 23
Býflugur í búi sínu. hessar eru af evrópsku bergi brotnar og hinir mestu
fridarsinnar hjá þeim afrísku.
Bandaríkin:
„Drápsflugurnar44
koma eftir fá ár
Washington, 24. ágúst AP.
MILLJONIK svokallaðra „drápsflugna" eru nú að nema land í Mið-
Ameríku og munu að öllum líkindum vera komnar til suðurríkja Banda-
ríkjanna eftir fá ár, að því er segir í skýrslu frá bandaríska landbúnaðar-
ráðuneytinu.
Býflugurnar eru afkomendur
suður-amerískra karlflugna og
afrískra drottninga, sem brasil-
ískir vísindamenn voru að gera
tilraunir með árið 1957. Þær
sluppu hins vegar út úr 26 búrum
og hafa síðan farið sem eldur um
sinu norður eftir álfunni, að jafn-
aði nærri 500 km leið á hverju
ári. Afríska tegundin er miklu
herskárri og hættulegri en sú
innlenda og þykja bastarðarnir
hafa erft allt það versta í fari
foreldranna.
Á síðustu 20 árum hafa mörg
hundruð manns og húsdýr, fleiri
en tölu verði á komið, fallið í val-
inn fyrir býflugunum, sem, að því
er segir í skýrslunni, eru með
ólíkindum grimmar og fljótar til
árásar. Þegar þessi nýja tegund
breiddist út um Brasilíu urðu
margir býflugnabændur að
bregða búi vegna hættunnar, sem
öðru fólki stafaði af þeim, en nú
hafa margir tekið það ráð að
flytjast til afskekktra staða.
Hunangsframleiðslan er því aftur
að taka við sér þar í landi, en það
sama verður ekki sagt um Ven-
ezúela. Þar er hunangsiðnaðurinn
í rúst af völdum flugnanna.
Býflugurnar stinga helst ná-
lægt búinu og eru hættulegastar
fyrstu fimm árin eftir að þær
nema nýtt land. Eftir það virðast
þær róast eitthvað. Bandarískir
vísindamenn segja, að ekkert
muni geta hindrað þær í að setj-
ast að í suðurríkjunum, en norðar
muni þær þó ekki fara. Þar koma
vetrarfrostin til með að setja
þeim stólinn fyrir dyrnar.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983
PALL ÞORGEIRSSON & CO.
Armúla 27. — Símar 34000 og 86100.
Hænsni stikna
í hitabylgjunni
New York, 24. ágúst. AP.
HITABYLGJAN í Bandaríkjunum, sem þegar hefur orðið átjan manns að
aldurtila, rénaði ögn í suðurríkjunum í dag meðan annar hvirfilbylur síðsum-
arsins sótti í sig veðrið úti fyrir ströndum Flórída.
Hitastigið komst upp í þrjátiu hundruð og tuttugu kílómetra út
og átta stig á celsíuskvarða á
þriðjudag í Karólínuríkjunum,
Georgíu, Virginíu, Alabama, Ark-
ansas og Tennessee, en heitast
varð í Gilda Bend í Arizona, þar
sem hiti varð fjörutíu og eitt og
hálft stig.
í bænum Anderson, Indíana,
lézt fjórtán ára drengur á þriðju-
dag eftir að hann hlaut hjarta-
áfall á knattspyrnuæfingu í þrjá-
tíu og tveggja stiga hita.
Vonir eru nú bundnar við að
annar hitabeltisstormurinn í röð,
Barry, hafi í för með sér rigningu,
en stormurinn er nú um þrjú
af austurströnd Flórída. Um níu
hundruð þúsund hænsni hafa
stiknað til dauða í Georgíu og
mjólkurframleiðsla hefur dregizt
saman. í Nebraska drap rok og
rigning um tvö þúsund spörfugla á
landbúnaðarbýli.
Um tvö hundruð manns önduð-
ust af völdum hitabylgju í júlí.
Síðan á laugardag hefur hitanum
verið kennt um fimm dauðsföll í
Alabama, þrjú í Oklahöma, tvö í
Georgíu, Missouri, Tennessee og
Kentucky, en eitt í Norður-Karól-
ínu og Illinois.
Málaliða óskað
í Mið-Ameríku
Mexfkóborg, 24. ágúst. AP.
EINN af leiðtogum hægri-
manna í El Salvador sagði í
dag að landið hefði full not
fyrir ráðgjöf fleiri banda-
rískra málaliða í baráttunni
við uppreisnarmenn. Bardag-
ar loguðu á nokkrum stöðum
í Nicaragúa þar sem and-
stæðingar sandínista tókust
á við stjórnarherinn.
Forseti þingsins í El Salvador,
Roberto d’Aubuisson, lét þau um-
mæli falla í höfuðborginni San
Salvador að þjóð hans hefði enga
þörf fyrir þá viðbót bandarískra
hernaðarráðgjafa, sem Reagan
Bandaríkjaforseti hefur stungið
uppá. „Við höfum nóga ráðgjafa,
einkum þegar tillit er tekið til
þeirra skilyrða, sem þeir þurfa að
starfa við,“ sagði d’Aubuisson.
„Kostnaðurinn af að halda þess-
um heiðursmönnum uppi er of
hár og við gætum haft annars
konar ráðgjafa með minni til-
kostnaði," bætti hann við.
Haft er eftir heimildum innan
hersins í Nicaragúa að harðir
bardagar hafi geisað í fimm bæj-
um í Zelaya Norte-héraði norð-
austanverðu, í Jinotega-héraði og
meðfram landamærum Costa
Rica og Hondúras. Tvö þúsund
manna herdeild skæruliða, sem
réðist inn í Nicaragúa frá Hond-
úras 3. ágúst hefur fjölgað árás-
um í Zelaya Norte og í landinu
norðanverðu. Herma fréttir að
tvö hundrað og fjórir skæruliðar
hafi fallið ásamt níutíu og niu
hermönnum stjórnarinnar.
Stjórnarandstöðublaðið „La
Prensa" kom ekki út í dag eftir að
stjórnvöld tóku efni þess trausta-
taki og héldu því fram yfir venju-
legan vinnutíma starfsmanna
blaðsins.
Nýkomið
Parket
Askur, 2 gæöafl.
Eik
Birki
Furugólfborð
10 og 22 mm
Panelkrossviður
4 geröir
Pílárar í handrið
Huntonit
Vegg- og lofta-
klæöningar
Baðherbergis-
klæðning
3 gerðir
Arangur
af ferð
de Cuellar framkvæmdastjóri SÞ
Namibía:
Tyrkir eru hættu-
lega lágvaxnir
IsLanhul, 24. áfuist AP.
TYRKNESKIR verkamenn eru alltof stuttir til að vinna við innfluttar
vélar og tæki og er það helsta ástæðan fyrir óvanalega mörgum vinnu-
slysum í landinu, að því er segir í opinberri skýrslu um þessi mál.
I skýrslunni segir, að tjrrkn-
eskir verkamenn séu svo lágir í
loftinu, að oft geti þeim stafað
hætta af að vinna við tæki, sem
flutt eru til landsins frá Evrópu.
Meðalhæð þeirra, sú minnsta i
Evrópu, sé ekki nema 1,68 m en á
Ítalíu 1,76 og 1,77 m í Þýska-
landi. Af þessum sökum veitist
þeim vinnan erfiðari en ella og
stundum grípa þeir í tómt þegar
þeir þurfa að rjúfa strauminn
skyndilega. Þá er voðinn jafnan
vís.
Nefndin, sem vann skýrsluna,
hvatti stjórnvöld til að draga úr
slysatíðninni með því að laga
vélarnar að fólkinu þar sem það
væri auðveldara en að laga fólk
að þeim.
Cuellars
Windhork. Namihiu, 24. igúM. AP.
JAVIER Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
kvaðst í dag hafa fengið nokkru
áorkað gagnvart stjórnvöldum í
Suður-Afríku og fengið þau til að
fallast á ýmis mikilvæg mál hvað
varðar væntanlegt sjálfstæði Nami-
bíu.
De Cuellar kom í dag til Wind-
hoek, helstu borgar Namibíu, og
hélt síðan þaðan strax til þess
svæðis við landamæri Angóla þar
sem skæruliðar hafa látið mest að
sér kveða. De Cuellar kom frá
Höfðaborg og er hann fyrsti fram-
kvæmdastjóri SÞ, sem fer til
Suður-Afríku í 11 ár.
De Cuellar sagði við frétta-
menn, að samkomulag hefði tekist
um væntanlega skipan friðar-
gæsluliðs í landinu og hvernig
kosningunum til nýs þings yrði
háttað. Pik Botha, utanríkisráð-
herra Suður-Afríku, lagði hins
vegar áherslu á, að vera kúb-
anskra hermanna í Angóla kæmi
enn í veg fyrir endanlegt sam-
komulag um sjálfstæði Namibíu.
ERLENT