Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983
20 ára vígsluafmæli
Reykhólakirkju
Midhúsum, 24. ájpist.
SUNNUDAGINN 28. ágúst verður
20 ára vígsluafmælis Reykhóla-
kirkju minnst með guðsþjónustu.
Auk sóknarprestsins Valdimars
Friðjónssonar verða viðstaddir Sig-
urður Álfsson fyrrverandi vígslu-
biskup, en hann þjónaði hér um 5
ára tímabil, Þórarinn I>ór prófastur
Patreksfirði, Sigurður Sigurðarson,
sóknarprestur Selfossi og Dalla
Þórðardóttir, sóknarprestur Bfldu-
dal. Hér er nú á vegum kirkjunnar
Guðrún Sigríður Friðbjarnardóttir
óperusöngkona aö þjálfa söngfólk
fyrir guðsþjónustuna á sunnudaginn.
Sveinn.
Norræn ráðstefna lyfjatækna
NORRÆN ráðstefna lyfjatækna
verður haldin í Reykjavík dagana
3.-6. sept., en ráðstefna þessi er
liður í samvinnu lyfjatækna á Norð-
urlöndum. Ráðstefna þessi er haldin
annað hvert ár en þetta er í fyrsta
skipti sem hún er haldin hér á landi.
Á ráðstefnunni verður rætt um
brýnustu hagsmunamál lyfja-
tækna á Norðurlöndum, en þau
eru meðal annars menntun lyfja-
tækna, kjaramál og tölvuvæðing
apóteka, segir í frétt frá Lyfja-
Fjölskyldu-
skemmtun hand-
knattleiks-
deildar Hauka
Handknattleiksdeild Hauka og
Sumargleðin halda fjölskyldu-
skemmtun í íþróttahúsinu
v/Strandgötu í dag, 25. ágúst. Er
þessi skemmtun m.a. til fjáröflun-
ar til uppbyggingar Haukahússins
sem fór illa í bruna 20. ágúst sl.
tæknafélaginu. Ráðstefnugestir
munu auk fundahalda ferðast um
Suðurlandsundirlendi og fara til
Vestmannaeyja.
Lyfjatæknafélag íslands er
stofnað árið 1976 og gerðist aðili
að samstarfi lyfjatækna árið 1979.
Formaður félagsins er Arndís
Jónsdóttir.
Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum:
23. sumri starfseminnar lýkur um helgina
SKÍÐASKÓLINN í Kerlingar-
fjöllum lýkur 23. sumri starf-
semi sinnar nú um helgina og
verður siðasta helgarnámskeið
sumarsins nú um helgina.
Óvenju gott skíðafæri er nú í
Kerlingarfjöllum og hefur verið
í sumar segir í fréttatilkynningu
frá Skíðaskólanum. Farið er frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 13.30 á
föstudag og komið aftur á
sunnudagskvöld. Ferðaskrifstof-
an Úrval sér um bókanir og eru
þeir sem ætia upp eftir á eigin
bílum, hvattir til þess að hafa
samband við Úrval, ef þeir ætla
að fá húsnæði hjá Skíðaskólan-
um yfir helgina.
INNLENT
íslandsrallið hefst f dag:
„Bensínið í botn“
TVEIR íslenskir keppnisbflar leggja
upp í íslandsrallið, sem ræst verður
um kl. 9.00 í dag frá Bárðardal við
Steypu-
skemmdir
í KAFLANUM „Eöli alkalí-
þensla“ í grein Haraldar Ás-
geirssonar um steypuskemmdir í
blaðinu í gær féll orðið „ekki“
niður á einum stað svo merking
breyttist. Þar átti að standa:
„Þannig ætti ekki að vera hætta
á alkalíþenslum í steypum, sem
steyptar hafa verið hér á árinu
1979 og síðar og raunar í steyp-
um úr seltulitlum fylliefnum eft-
ir 1976.“
Skuttogarinn Guðsteinn í slipp á Akureyri.
Ljósmynd Snorri Snorrason.
Breytingum á Guðsteini
lýkur í lok október
SKUTTOGARINN Guðsteinn, sem
fyrr á þesus ári var keyptur af þrem-
ur ungum mönnum til Akureyrar af
Suðurnesjum, er nú í Slippstöðinni á
Akureyri. Er þar unnið að breyting-
um og endurbótum á skipinu. Verð-
ur því breytt í frystitogara og er ætl-
unin að verkinu verði lokið í lok
október.
Kostnaður við breytingarnar
nemur um 30 milljónum króna og
veitti Akureyrarbær skuldaábyrgð
vegna þess. Með þessu skipi bætist
nýtt fyrirtæki í bæinn og nýtt skip
í flota Akureyringa.
Sprengisandsleið. Aka þeir ásamt
öðrum keppendum yfir Sprengisand
að Sigölduvirkjun. Verður þetta
fyrsta leiðin af fjórum, sem eknar
eru í íslandsrallinu.
„Þetta á að vera einskonar upp-
bót á að hafa fallið útúr keppni í
Ljómarallinu," sögðu bræðurnir
Ómar og Jón Ragnarssynir, en
þeir aka Subaru 1800 4WD í ís-
landsrallinu, en hinn islenski
keppnisbíllinn er Lada Sport Sig-
hvats Sigurðssonar og Gunnlaugs
Rögnvaldssonar. „Þetta er mest til
gamans gert. Það er örugglega
ævintýralegt að aka Sprengisand í
keppni,“ sögðu þeir félagar. Báðir
íslensku bílarnir verða nær
óbreyttir, en í Lada-bílnum verða
þó þrjú varadekk, drullutjakkur
og tveir verkfærakassar ásamt
venjulegum öryggisútbúnaði fyrir
rallakstur. Subaru ómars og Jóns
var ekið af Helgu Jóhannsdóttur i
Ljómarallinu og verður gaman að
sjá hvort bíllinn stenst tvö erfið-
ustu röll ársins með stuttu milli-
bili.
„Það verður bara að stíga bens-
ínið í botn til að koma bílnum
eitthvað áfram,“ sagði Þorsteinn
brosandi um Lada Sport-bílinn, er
hann ekur ásamt Gunnlaugi. Ein-
hver talaði um að sjóða bensín-
gjöfina fasta í botni á bílnum, en
líklega þarf einhver álíka ráð, því
keppinautar íslendinganna eru á
sérútbúnum bílum fyrir keppni af
þessu tagi. Eru sumir bílanna
knúnir hátt í þrjú hundruð hest-
afla vélum og ættu að skilja aðra
keppendur eftir ef að líkum lætur.
Það gæti háð íslensku keppendun-
um að þeir verða líklegast aftastir
í rásröð af þeim 23 keppendum
sem keppa í rallinu, þvi þeir
ákváðu á síðustu stundu að taka
þátt. Gæti t.d. Sprengisandsleið
orðið þeim erfið, ef sandkaflar
grafast upp. En aðalástæðan fyrir
þátttökunni er hrein ævintýraþrá
og verður gaman að sjá hvernig
þeim reiðir af innan um alvana
keppendur.
- GR
Niðjamót
Hurðar-
baksættar
NIÐJAMÓT afkomenda Árna Pált
sonar hreppstjóra á Hurðarbaki
Villingaholtshreppi og konu han
Guðrúnar Sigurðardóttur verðu
haldið laugardaginn 27. ágúst
Þjórsárveri í Villingaholtshreppi.
Þau hjónin eignuðust þrettái
börn og er afkomendahópurinn m
orðinn um 500 manns.
Stefnt er að því að ættarmótii
hefjist kl. 14.00.
Steinullarfélagið:
Framhaldsaðal-
fundur í næstu viku
AÐALFUNDUR Steinullarfélagsins
var haldinn í lok síðasta mánaðar.
Kosið var í stjórn og teknir fyrir
reikningar, en ekki tókst að Ijúka
fundarstörfum og verður framhalds-
aðalfundur í næstu viku.
í stjórn voru kosnir: Árni Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri hjá
hraðfrystihúsinu Skildi hf. Hann
er formaður. Varaformaður er
Ólafur Friðriksson, kaupfélags-
stjóri á Sauðárkóki, en Jón Ás-
bergsson, framkvæmdastjóri hjá
Loðskinn hf., er ritari. Aðrir
stjórnarmenn eru Stefán Guð-
mundsson, alþingismaður, Stefán
Guðmundsson, vélvirki, Jafet
Ólafsson, deildarstjóri í Iðnaðar-
ráðuneytinu, og Magnús Péturs-
son , hagsýslustjóri.
Þorsteinn Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Steinullarfélagsins,
sagði í samtali við Mbl. að það
væru einkum ýmis framkvæmda-
atriði sem ætti eftir að ræða, sem
ákveðið hefði verið á fyrsta aðal-
fundinum að skoða og undirbúa
betur.
IGNIS
ódýrog vðnduð heimilistæki
ARMULA8 S:19294