Morgunblaðið - 25.08.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983
27
Námskeið í huglækningum
HÉR Á landi er stödd bresk kona,
Agar Nares, að nafni, en hún hef-
ur að undanfornu helgað sig iðkun
huglækninga. Vinnur hún eftir
kerfi sem hún hefur mótað frá
kenningum Robert Moore um að
gera einstaklinginn meðvitaðan
um líforkuferli líkamans og hvern-
ig má beita því á sem áhrifaríkast-
an hátt, og Yoga, en Agar dvaldi á
Indlandi í tvö ár. Auk þess hefur
Agar stundað nám í sállækningum
og yfirpersónulegri sálarfræði í
Bretlandi.
Agar Nares heldur hér eitt
helgarnámskeið, dagana 27. og
28. ágúst frá kl. 9.30-18.00.
Upplýsingar og skráning eru í
Bókaútgáfunni Hagall, að Báru-
götu 11.
Agar Nares
Norræna húsið í kvöld:
Síðasta „opna
hús“ sumarsins
SÍÐASTA „opna húsið“ verður í
Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30. Þá
mun Hjálmar Ólafsson, formaður
Norræna félagsins, halda fyrirlestur
á sænsku og tala um ísland — land
og þjóð á mörkum hins byggilega
heims. Á eftir fyrirlestrinum verður
sýnd kvikmynd Osvaldar Knudsens,
„Fjallaslóðir“, en sýning hennar
tekur 28 mín.
Þar með lýkur þessari sumar-
dagskrá sem einkum var ætluð
ferðamönnum frá Norðurlöndun-
um en hefur einnig verið vel sótt
af Islendingum.
í anddyri hefur sýningin á ís-
lenskum sjófuglum, sem Náttúru-
fræðistofnun og Náttúrugripa-
safnið standa að, verið sett upp
aftur og verður hún opin til mán-
aðamóta á venjulegum opnunar-
tíma hússins.
I sýningarsölum Norræna húss-
ins eru sýningarnar um norrænt
landnám og búsetu til forna opnar
daglega kl. 14—19, en athygli er
vakin á þvf að þeim lýkur sunnu-
daginn 28. ágúst.
Húsið-trúnaðarmál
— endursýnd
ENDURSÝNINGAR á íslensku
kvikmyndinni Húsið — trúnaðar-
mál, hefjast í dag, fimmtudag, í
Laugarásbíói og verður myndin á
sýningum klukkan sjö og níu, með-
an aðsókn leyfir.
Með aðalhlutverk fara Lilja
Þórisdóttir og Jóhann Sigurðsson,
en myndina þarf vart að kynna.
Hún var frumsýnd 12. mars síð-
astliðinn og hlaut bæði góða dóma
og aðsókn. En nú gefst þeim sem
ekki voru á landinu á meðan sýn-
ingar stóðu yfir kostur að sjá
þessa mögnuðu mynd.
INVITA innréttingar í allt húsið
= þægindi og gæði
Bjóðum nú
dagsektir
ef umsaminn
afhendingardagur stenst
ekki á sérsmíðuðum
eða stöðluðum
Invita innréttingum.
Yfir 40 mismunandi
tegundir.
U-BÍX160
Hagsýna eftirherman
U-BIX 160 er hagsýna ettirherman í U-BIX fjölskyldunni og leggur sig alla fram
viö að vera í senn fjölhæf og ódýr í rekstri. Hún afgreiðir pappírsstærðirnar
A3, A4, og A5 úr tveim bökkum á augabragði og vandar sig alltaf jafn mikið.
SELKO
IÐNSYNING
19/8-4/9
FÉLAG iSŒNSKRA OMREKENDA
't&tíi bás
í sérflokki
Þar getið þér skoðað framleiðslu okkar.
Hinar nýju glæsilegu spjaldahurðir með og án glugga
að ógleymdum okkar sívinsœlu SELKO fataskápum
sem við hjóðum nú í nýjum og fjölbreyttari
viðartegundum. - Verið velkomin.