Morgunblaðið - 25.08.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983
35
• Heimir Karlsson, markakóngur
frá því í fyrra, virðist nú vera bú-
inn að finna leiðina I markiö.
Hann skoraöi annað mark Vík-
ings í gær og er nú í þriöja s»ti
yfir markhssstu menn.
• Júlíus Júlíusson skoraöi fyrra
mark Þróttar í gmr eftir akemmti-
lega tekna aukaspyrnu hjá Ás-
geiri Elíassyni.
Þróttarar jöfnuðu
á síðustu stundu
ÞRÓTTARAR TRYGGÐU sór annaö stigiö gegn Víkingi þegar þeir
jöfnuðu er tæpar tvær mínútur voru eftir af leiktímanum. Allan seinni
hálfleikinn var mikil pressa á marki Þróttar og oft voru Víkingar nærri
því að skora, en óheppnin elti þá, jöfnunarmarkiö kom því þvert á
gang leiksins og geta Þróttarar veriö ánægöir meö úrslitin, 2—2.
Staðan í hálfleik var 1—1.
Leikurinn var allfjörugur á köfl-
um, bæöi liöin böröust af krafti en
spil Víkinganna var öllu beittara,
einkum þó í seinni hálfleik, en þá
lágu þeir í nær stanslausri sókn.
Fyrsta marktækifæriö kom á 15.
mín. Jóhann Þorvaröarson gaf á
Þórö Marelsson sem skaut föstu
skoti frá vinstra vítateigshorni, en
Guðmundur í marki Þróttar bjarg-
aöi í horn. Tveimur mínútum síöar
voru Víkingar enn á ferðinni og sú
sókn færði þeim mark.
Oæmd var aukaspyrna á vall-
arhelmingi Víkinga. Áöur en vörn
Þróttar haföi snúiö sér viö, haföi
Ómar Torfason tekiö spyrnuna,
gaf langan bolta fram á Aðalstein
sem brunaði að marki Þróttar og
skaut í markiö framhjá Guömundi.
Þarna voru Þróttarar illa á verði,
en náöu þó að bæta fyrir mistök
sín þegar þeir skoruöu rótt á eftir.
Ásgeir Elíasson tók aukaspyrnu
viö vítateigshornið vinstra megin,
gaf fyrir markiö og viö fjærstöng-
ina stökk Júlíus Júlíusson upp og
skallaöi í netiö.
Rétt á eftir komst Siguröur Aö-;
alsteinsson inn fyrir vörn Þróttar,
en hitti boltann illa og skot hans
fór framhjá. Úr næstu sókn Þróttar
átti Júlíus gott skot aö marki Vík-
ings en rétt framhjá. Þaö sem eftir
liföi fyrri hálfleiks áttu Víkingar
nokkur tækifæri, en sem fyrr segir
voru þeir óheppnir upp viö mark
Þróttar og staöan í hálfleik því
1 — 1.
Seinni hálfleikurinn var öllu
daufari en sá fyrri, Víkingar sóttu
stíft og á 58. mínútu komust þeir
yfir. Magnús Þorvaldsson átti þá
skot fyrir utan vítateig en í varn-
armann Þróttar, boltinn hrökk til
Heimis Karlssonar sem afgreiddi
hann í netiö í hægra horniö. Eftir
þetta færöist nokkur deyfö í leik-
inn, sem fór aö mestu leyti fram á
vallarhelmingi Þróttar.
Þegar um tíu mínútur voru eftir
af leiknum fengu Víkingar nokkur
færi sem heföu aö öllu jöfnu átt aö
gefa af sér mörk. Ómar Torfason
átti góöa sendingu á besta mann
Víkinga í þessum leik, Aöalstein,
sem spilaöi inn í teiginn vinstra
megin, en Guðmundur varöi skot
hans vel, upp viö nærstöngina.
Rétt á eftir fengu Vikingar auka-
spyrnu hægra megin, boltinn barst
VíkingurM n
-Þróttur
inn í teiginn, þar stökk Heimir upp,
en Guðmundur varöi skallabolta
hans.
Tíminn leiö og flestir farnir aö
telja Víkinga sigurvegara í þessum
leik, en þegar tæpar tvær mínútur
voru eftir komust Þróttarar í sókn.
Júlíus lék upp vinstri kantinn aö
endamörkum, gaf fyrir á Þorvald
sem stóö einn og óvaldaður og
sendi boltann í netiö. Fleiri uröu
mörkin ekki, en Víkingar áttu þó
alla möguleika á aö bæta þriöja
markinu viö rétt fyrir leikslok.
Ómar Torfason komst elnn inn
fyrir vörn Þróttar eftir langa send-
ingu frá Stefáni Halldórssyni.
Ómar spilaöi aö marki, en skot
hans fór í Guömund, sem kom
hlaupandi út úr markinu. Viö þaö
flautaöi Baldur dómari til leiksloka
og ósanngjörn úrslit ráöin.
Víkingsliöiö lék nokkuö vel á
köflum, en alltaf vantaöi herslu-
muninn þegar upp aö marki Þrótt-
ar var komið. Bestur í liöinu var
Aöalsteinn, sem geröi oft góöa
hluti í framlínunni. Heimir átti einn-
ig góöan leik, en aö ööru leyti var
liöið nokkuö jafnt. Hjá Þrótturum
bar mest á Kristjáni Jónssyni. Spil-
aöi hann mjög yfirvegaö og byggöi
upp megniö af sóknum Þróttara.
Auk hans voru þeir Júlíus og Þor-
valdur frískir.
Einkunnagjöfin:
ÞRÓTTUR: Guömundur Erlingsson
6, Júlíus Júlíusson 7, Þorvaldur
Þorvaldsson 7, Páll Ólafsson 6,
Daöi Haröarson 6, Ásgeir Elíasson
6, Pétur Arnþórsson 6, Jóhannes
Sigursveinsson 5, Kristján Jóns-
son 8, Arnar Friöriksson 5, Jóhann
Hreiöarsson 5, Valur Helgason
(vm) 5, Sigurkarl Aöalsteinsson,
lék of stutt.
VÍKINGUR: Ögmundur Kristinsson
6, Ragnar Gíslason 6, Magnús
Þorvaldsson 6, Stefán Halldórsson
6, Þóröur Marelsson 6, Ómar
Torfason 5, Ólafur Ólafsson 6, Sig-
uröur Aðalsteinsson 6, Heimir
Karlsson 7, Aöalsteinn Aöal-
steinsson 8, Jóhann Þorvaröarson
6.
í STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur
fyrsta deild. Víkingur — Þróttur
2—2(1 —1).
GUL SPJÖLD: Engin.
ÁHORFENDUR: 405.
DÓMARI: Baldur Scheving. Dóm-
gæsla hans var í meðallagi.
— BJ
FLEXIS. Oröið stendur
fyrir íjölhœfni, aðlögun.
sveigjanleika.
Með nánast einu
handtaki má breyta
innréttingum
FLEXIS skápanna og
laga þá að nýjum
aðstœðum. Engar
áhyggjur þarf að haía
þó t.d. flutningur standi
fyrir dyrum eða nýr
fjölskyldumeðlimur sé
á leiðinni. Innréttinga-
möguleikarnir eru
ótœmandi, og staðlað-
ar einingar úr vönduðu
hráefni gera skápana
ótrúlega auðvelda í
uppsetningu.
FLEXIS er því orð að
sönnu.
REXIS. .konungur
klœðaskápanna', er
prýddur öllum kostum
FLEXIS skápanna, en
rennihurðirnar gera
hann sérstaklega
hentugan þar sem gólf-
rými er lítið.
AXIS
AXEL EYJÓLFSSON
HUSGAGNAVERSLUN SMIOJUVEGI9
200 KÓPAVOGI SlMI 91 43577