Morgunblaðið - 25.08.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.08.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 39 fclk í fréttum „Staying Alive“ frumsýnd Þegar Sylvester Stallone kom í glæsikerrunni sinni téku öryggisverðirnir höndum saman til að forða honum fri því að vera hreinlega troðinn undir af áköfum mannfjöldanum. Fjórum dögum eftir frumsýninguna — þúsundir manna bíða eftir því að fá að fara inn. + Þegar myndir, sem frægt fólk leikur í, eru frumsýndar í Bandaríkjunum er jafnan mikið um að vera og margir leggja þad á sig að bíða klukkustundum saman eða jafnvel í heilan sólarhr- ing eftir því að fá að sjá stjörnurnar. Þannig var það líka þegar myndin „Stayin’ Alive" með þeim Sylvester Stallone og John Travolta var frumsýnd. Þús- undir manna söfnuðust þá saman fyrir utan kvikmyndahúsið og máttu öryggisverðirnir hafa sig alla við til að stjörnurnar kæmust heilar á húfi út úr bílnum og inn í húsið. Þegar Pétri og Páli var loks gefinn kostur á að kaupa miða myndaðist nokkra km löng biðröð við miðasöluna og þegar miðinn var fenginn varð fólk að bíða í annarri röð ekki styttri eftir því að komast inn. COSPER Erfið í búðum + Ira af Furstenberg, sem komin er af góðu fólki í Þýskalandi, var nú nýlega dæmd til að greiða um 180.000 ísl. kr. í sekt fyrir að hafa far- ið heldur gáleysislega með greiðslukortið sitt. Gerðist þetta fyrir sex árum þegar Ira var stödd í útlandinu en þá átti hún ekki nema tæpar 10.000 ísl. kr. á reikningnum. Þegar Ira fer í búðir halda henni hins vegar engin bönd og sjálf segist hún bara ekki geta við sig ráðið þegar hún kemur auga á falleg föt og skartgripi. — Gættu þess að súpan verði ekki of sölt. SOL I SUMARLEYF MALL0RCA SIÐASTA BROTTFÖR SUMARSINS 6. SEPTEMBER Verð frá aðeins kr. 16.900.- í 3 vikur. Góö greiðslukjör Reykjavík: Austurstræti 17, sími 26611 og 20100. Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 22911. NÚ SPÖKUMVIÐ PENINGA pg smídum sjálf! Við eigum fyrirliggjandi flest það efni, sem til þarf þegar þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús- innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn- fremur loftbitaefni, viðarþiljur, límtré og spónaplötur. Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög hjá okkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.