Morgunblaðið - 25.08.1983, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 25.08.1983, Qupperneq 48
■ ifas— ^/Vskriftar- síminn er 830 33 iHMitttXtfftfrifr _/\iglýsinga- siminn er 2 24 80 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1983 íslensk- ir hestar í kvikmynd í Moskvu UM I'ENSAR mundir stendur yfir í Noregi undirbúningur að gerð kvik- myndar um víkinga þar sem í ráði er að nota íslenska hesta þar sem hesta er þörf. Eru það kvikmyndafyrirtæki í Noregi og Rússlandi sem vinna sameiginlega að þessari fyrirhug- uðu mynd. Upptökur munu fara fram bæði í Noregi og Rússlandi og hefur verið talað við Eyjólf ís- ólfsson reiðkennara um að taka að sér yfirumsjón með þjálfun hest- anna og jafnvel verður hann feng- inn til að ríða hestunum þar sem áhersla verður lögð á að ná góðum tölt- og skeiðsenum. Undanrennan að norðan: Flutning- arnir kosta 2 milljónir Framkvæmdanefnd Framleiðslu- ráðs landbúnaðar hélt fund í gær með fulltrúum nokkurra mjólkursamlaga og Osta- og smjörsölunnar þar sem rætt var um þá vöntun á mjólkurvör- um á 1. verðlagssvæði sem fyrirsjáan- leg er í vetur vegna minnkandi mjólk- urframleiðslu sunnan- og vestanlands og hvernig bæta megi úr því. Niður- staða fundarins var sú að kosin var nefnd til að kanna þá valkosti sem fyrir hendi væru í flutningi á þeim 1,5 milljónum lítra af undanrennu sem talið er að vanti á markaðinn eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær, og hver þeirra væri hagkvæmastur. Gunnar Guðbjartsson fram- kvæmdastjóri Framleiðsluráðsins sagði í samtali við Mbl. í gær að kosta myndi 1,30 til 1,40 krónur að flytja hvern lítra af undanrennu frá Akureyri til Selfoss til þurrkunar þar sem afkastamesti þurrkarinn væri, en það gerir um 2 milljónir króna í allt Gífurlegur mannfjöldi var á fundinum í Sigtúni í gærkvöldi og urðu margir að standa eins og sjá má. Morgunblaðið/Kristján Einarsson. 2.000 manna fiindur krefst úrbóta í húsnæðismálum „EINU raunhæfu úrbæturnar eru þær, að lán verði veitt til lengri tíma, að lán verði mun hærra hlut- fall af húsnæðiskostnaði en nú er, og, að þessar aðgerðir verði aftur- virkar þannig að þeir, sem keypt hafa eða byggt húsnæði sl. þrjú ár, njóti þeirra," segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á fjölmennum fundi, um úrbætur i húsnæðismál- um, sem haldinn var í Sigtúni við Suðurlandsbraut í gærkvöldi. Þá var í ályktuninni látinn í Ijós uggur um framtíð þúsunda fjölskyldna fari fram sem horfir. „Endurteknar kjaraskerðingar á undanförnum árum samhliða óðaverðbólgu valda því að skuld- irnar hækka en kaupið ekki,“ segir í ályktuninni. Bent var á hátt hlutfall skammtímalána í fjármögnun húsnæðiskaupa og skorað á stjórnvöld að setja lög um að vísitöluverðbætur á lán, úr lífeyrissjóðum og Húsnæðis- málastofnun til íbúðabygginga og kaupa, verði ekki meiri en sem nemur greiddum vísitölu- bótum á laun. Að boðun fundarins í Sigtúni stóðu 30 áhugamenn úr öllum stjórnmálaflokkum sem hafa sameinast um að berjast fyrir úrbótum í húsnæðismálum. Fundarstjórar voru þeir Pétur J. Eiríksson, hagfræðingur, og Ögmundur Jónasson, fréttamað- ur. Frummælendur voru þeir Stefán ólafsson, lektor, Gunnar Haraldsson, hagfræðingur, og Sigtryggur Jónsson, viðskipta- fræðingur. Fjölmargir tóku til máls og fjöldi skeyta barst fund- inum. Sjá nánar frásögn og myndir á miðopnu. Skagamenn standa vel aö vígi Akurnesingar standa vel að vígi í fslandsmótinu í knattspymu eftir að hafa sigrað Keflvíkinga í Keflavík í gærkvöldi 1—0. Úrslit annarra leikja í 1. deild urðu þau að Þróttur og Víkingur gerðu jafntefli, 2—2, og fsafjörður og KR gerðu jafntefli, 1—1. Myndin er úr viðureign ÍA og ÍBK. Sjá nánar um leikinn í gærkvöldi á íþróttasíðum. Morjfunblaðið/Friöþjófur. Mikill skortur á hjúkrunarfræðingum: Mörgum deildum lokað á sjúkrahúsum MIKILL skortur hefur verið á hjúkr- unarfræðingum á Borgar- og Ríkis- spítölunum í sumar og hefur þurft að loka deildum um lengri tíma af þeim sökum. A Borgarspítalanum var handlæknisdeild með 32 sjúkrarúm- um lokað í tíu vikur, lyflæknisdeild með 25 sjúkrarúmum í fimm vikur og í tíu vikur hefur Grensásdeildin aðeins verið starfrækt að hálfu leyti. Svipaða sögu er að segja af Ríkis- spítölunum, en ástandið mun vera einna verst á Kleppsspítalanum og Landspítalanum. Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítalanna, sagði í samtali við Morgunblaðið, að skorturinn stafaði bæði af því að undanfarið hefðu bæst við heilbrigðiskerfið margar nýjar stofnanir sem þyrfti að manna, og eins hinu, að fast- ráðnir hjúkrunarfræðingar væru nú meira og minna í sumarleyfum. Sagði Davíð að þetta vandamál kæmi upp á hverju sumri, en væri með verra móti í ár. Bjóst hann við að ástandið færi að lagast upp úr miðjum september. Helga Ragnarsdóttir, hjúkrun- arframkvæmdastjóri á Landspít- alanum, gaf sömu skýringar á ástandinu og Davíð. Taldi hún að NOKKRU minna er nú um fiskveið- ar Færeyinga á íslandsmiðum, en verið hefur undanfarin ár. Stafar það líklega af auknum afla á Fær- eyjamiðum, en fyrri helming ársins var þorskaflinn þar tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar höfðu Færey- ingar alls aflað um það bil 9.700 ástandið í sumar væri verra en undanfarin ár, fyrst og fremst vegna lengingar orlofs. Sagði Helga að tekist hefði að bjarga málum í horn í sumar vegna mik- illar yfirvinnu hjúkrunarfræð- inga. lesta af 17.000 lesta árlegum afla- kvóta síðastliðinn þriðjudag. Þar af mega Færeyingar veiða 6.000 lestir af þorski. Á miðvikudag voru alls 12 færeysk fiskiskip að veiðum hér við land, þar af þrír togarar. Síðastliðinn þriðjudag hélt færeyski togarinn Polarborg af íslandsmiðum áleiðis til Fær- eyja með um 71 lest af þorski. Fiskveiðar Færeyinga á íslandsmiðum: Hafa fengið 9.700 lestir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.