Morgunblaðið - 28.08.1983, Page 4

Morgunblaðið - 28.08.1983, Page 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983 Eiginlega synd að maður skuli ekki hafa nema tvö eyru Rætt við Ingibjörgu Þorbergs um tónlist Ingibjörg Þorbergs er löngu þjóðkunn fyrir sönglög sín, og reyndar einnig fyrir störf sín hjá Ríkisútvarpinu. Flestum detta sjálfsagt Aravísurnar í hug þegar Ingi- björg er nefnd — eða lagið „Á morgun“ sem varð vinsælt bæði hér heima og erlendis í eina tíð. Það er fjöldinn allur af lögum sem Ingibjörg hefur samið að ógleymdum leikritum hennar og Ijóðum. Þegar ég kem til viðtals við hana á heimili þeirra Ingibjargar og Guðmundar Jónssonar píanóleikara er mér sú spurning efst í huga hvernig Ingibjörg hafi hafið feril sinn sem tónskáld. Ingibjörg Þorbergs Kri*‘jín — Ég hef alltaf verið haldin þessari áráttu að vera sífellt að semja eitthvað, hvort sem það er nú lag, ljóð eða leikrit. Jafnvel sem smástelpa var ég að pára eitthvað sem átti að vera nótna- skrift og byrjaði þannig að semja lög. Það er verst hversu lítinn tíma maður hefur haft aflögu til að fást við þessa hluti — það þarf nefnilega mikinn tíma til að semja lag, ekkert síður en ljóð eða leik- rit. Ég hefði gjarnan viljað hafa meiri tíma, en það er nú svona að ég hef alltaf látið vinnuna ganga fyrir. Þetta árið gegni ég starfi dagskrárstjóra meðan Hjörtur Pálsson er í fríi, og það er svo mikið að gera, að ég get hreinlega ekki litið upp hvað þá látið eftir mér að semja eitthvað. Ég geri mér hins vegar vonir um að geta snúið mér að þessum áhugamálum mínum af fullum krafti þegar ég hætti hjá útvarpinu eftir rúmlega eitt ár. Hvenær komst þú fyrst fram í útvarpinu? — Ég var ekki nema tólf ára þegar ég kom fram í fyrsta skipti en þá söng ég einsöng með barna- kórnum Sólskinsdeildinni. Ég var ekki nema 18 ára þegar ég byrjaði á skrifstofu innheimtudeildar Ríkisútvarpsins og þar var ég í tæp þrjú ár. Síðan fór ég í tónlistardeildina, þar sem ég starfaði í 32 ár, hvorki meira né minna, og nú hef ég verið i rúm tvö ár í dagskrárdeildinni sem varadagskrárstjóri. Svo hef ég yf- irleitt verið með einhverja þætti, þ.e. tónlistarþætti með bæði léttri og klassískri tónlist, og barnatíma árum saman. Þú byrjaðir ung í tónlist- arnámi, er það ekki? — Jú, ég var alltaf ákveðin í að leggja stund á tónlist. Ég byrjaði að læra á orgel 9 ára gömul og fór fljótlega að syngja í barnakórum. Svo fór ég í Tónlistarskólann í Reykjavík og þaðan lauk ég ein- leikaraprófi í klarinettuleik en lagði jafnframt stund á píanóleik og „komposition". Það voru alls sex ár sem ég var við nám í Tón- listarskólanum en svo fékk ég tækifæri til að bæta við mig tón- listarnámi, lauk tónmennta- kennaraprófi auk námskeiða hér og annars staðar. Hvert er þitt uppáhalds hljóðfæri? — Ég veit það satt að segja ekki, — meðan ég var að læra á klarin- ettuna var hún númer eitt en er það kannski ekki lengur. Kirkju- orgel held ég mikið uppá, það er eins og heil hljómsveit — það er ákaflega gaman að leika á orgel. Kannski er það flygillinn, sem er mitt uppáhalds hljóðfæri núna. Þó finnst mér mannsröddin full- komnasta hljóðfærið. Nú ert þú sjálfsagt frekar tengd gítarnum en þessum hljóðfærum f hugum fólks? — Jú, það er sjálfsagt útaf Ara- vísunum — þær hafa fylgt mér eins og draugur síðan platan kom út. Gítarinn er útaf fyrir sig skemmtilegt hljóðfæri. Ég var við gítarnám í nokkur ár. Gítarinn var þá ekki orðinn það tízkuhljóð- færi sem hann er nú, en eftir að Bítlarnir komu hefur gítarinn hins vegar verið allt í öllu í dæg- urlögum — kannski ég hafi bara verið á undan minni samtíð hvað þetta varðar, segir Ingibjörg og hlær. Er tímafrekt að semja sönglög? — Já, yfirleitt verður maður að hafa töluvert mikið fyrir því að leggja fram verulega vinnu áður en lagið er orðið fullmótað. Þegar ég sem sönglag, held ég að ég hafi aldrei samið það öðruvísi en við ljóð — eftir sjálfa mig eða aðra. Það eru kannski ekki allir sem gera sér ljóst hversu erfitt það getur verið að semja ljóð við lag án þess að áherslunar verði skakk- ar. Ég hef alltaf talið það mikið atriði að áherslurnar séu réttar, enda eru rangar áherslur í söng hrein misþyrming á málinu. Rangar áherslur í dægurlagatext- um eru orðnar mjög áberandi og það held ég að geti orðið hættulegt fyrir íslenskuna þegar til lengdar lætur, því að dægurlögin glymja stöðugt í eyrum fólks. Hver er þín aðferð við að semja lög? — Eins og ég sagði hef ég alltaf samið sönglögin mín við ljóð og þá hef ég jafnan reynt að semja lag- línu með þeim hugblæ sem ég finn í ljóðinu. Það er auðvitað afar misjafnt hvernig manni tekst upp — það er kannski enginn sérhæfi- leiki að semja lög í sjálfu sér, heldur eitthvað sem flestir geta lært. Útkoman verður hins vegar misjöfn rétt eins og í öðrum list- greinum. Það hefur reyndar verið sagt um góðar laglínur, að þær verði ekki til nema fyrir hreina guðs- Ingibjörg er þarna við útsendingu en myndin er tekin einhverntíma um 1955 er útvarpið var til húsa í gamla Landsímahúsinu. Þeir greiddu heilmikið fyrir mér þegar þangað var komið — ég kom fram bæði í útvarpi og sjónvarpi, söng þar með sinfóníuhljómsveit og hefði áreiðanlega getað notað mér þetta betur, en hafði einhvern veginn ekki hug til þess. Þetta var afar spennandi — siónvarpið var þá alveg nýtt fyrir íslendinga, og mér þótti það mikið undur. En það var voðalegur flýtir og hasar í kringum þetta allt saman, þannig að mér þótti oft alveg nóg um „stressið". Frankie Laine var með einhvern vinsælasta sjónvarps- þáttinn í Bandaríkjunum á þess- um tíma og fékk ég boð um að koma þar fram, sem þótti mikil upphefð. Ég var líka kynnt fyrir ýmsu frægu fólki í tónlistarheim- inum á þessum tíma s.s. Ellu Fitzgerald og Duke Ellington, og náð. Það þurfa ekki alltaf að vera hálærðir tónlistarmenn sem semja beztu laglínurnar. Heyrst hefur að einhverntima hafi þekkt bandarískt tónskáld tekið sig til og ákveðið að semja melódíu er átti að slá í gegn. Hann fékk gott ljóðskáld i lið með sér og lokuðu þeir sig inni i heila viku og allan þann tíma gerðu þeir ekkert ann- að en reyna að koma saman þessu eina lagi. En það mistókst, og það kom ekkert sérstakt út úr þessu samstafi þeirra. f Bandaríkjunum segja þeir að það sé ekki nema einn af milljón, sem geti samið góðar laglínur. Bítlarnir John Lennon og Paul McCartney höfðu þessa hæfileika í ríkum mæli, ég held t.d. að lagið þeirra, „Yest- erday“, sé eitt hið fallegasta lag, sem samið hefur verið um áratugi. Það er hreint innblásturslag og hefur í sér fólginn alveg sérstakan anda. Þú byrjaðir snemma að syngja inn á plötur. — Já, fyrsta platan sem ég söng inná var gefin út af Fálkanum 1953. Á henni voru lögin „Játning" eftir Tómas Guðmundsson við lag Sigfúsar Halldórssonar og „Hrísl- an og lækurinn" eftir Pál ólafsson við lag Inga T. Lárussonar. Ári síðar söng ég inná barnaplötu fyrir íslenska tóna, en það hefur sennilega verið fyrsta barnaplata með íslenskum lögum, sem gefin var út hér á landi. Á henni voru Aravísurnar. Einnig kom út á því ári lagið „Hin fyrstu jól“, sem ég samdi um líkt leyti. Hvert er þitt uppáhaldslag af eigin sönglögum? — Það er sjálfsagt lagið „Á morgun“ og svo ef til vill annað „Ingibjörg Þorbergs syngur fyrir börnin“ — þetta er plötuumslag af fjögurra laga plötu en á henni eru einmitt hinar margfrægu Aravísur og Guttavísur. lag, sem ég samdi fyrir rúmlega ári. „Á morgun“ er eina lagið eftir mig sem hefur verið flutt erlendis að nokkru ráði. Nú fórst þú í mikla reisu til Bandaríkjanna um þetta leyti — Jæja, það var nú ekki nema tveggja mánaða ferð þó að ekki vantaði að ýmislegt bæri við. Þetta var árið 1956, en ég fór út i boði Kórs George Whasington- háskólans. Það lá þannig í þessu, að kórinn hafði verið hér á landi í söngför, en þá kynntist ég for- manninum og hjálpaði þeim smá- vegis meðan kórinn var hér. Nokkru eftir að þeir fóru fékk ég svo þetta boð um að dveljast í tvo mánuði í Bandaríkjunum. þetta var auðvitað allt mikil upp- lifun fyrir mig eins og gefur að skilja. Það var svo fyrir algjöra tilvilj- un að mér var boðið í einhvern vinsælasta útvarpsþáttinn hjá CBS-útvarpsstöðinni, sem bar heitið Nefndu lagið (Name the tune). Það gerðist einfaldlega þannig að ég var stoppuð á götu í New York af fólkinu, sem stjórn- aði þessum þætti. Þegar það heyrði, að ég var frá íslandi vildi það endilega að ég kæmi í prufu. Ég bjó hjá tveim bandarískum stúlkum sem voru við leiklistar- nám og höfðu þær einmitt reynt töluvert til við að komast í þennan útvarpsþátt. Þegar ég kom heim til þeirra og sagði frá því að mér hefði verið boðið að koma fram í þættinum, trúðu þær mér hrein-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.