Morgunblaðið - 28.08.1983, Side 17

Morgunblaðið - 28.08.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 1983 99 Fólk heldur að það hafi verið við sem lok- uðum okkur frá heimin- um ... en það var heimurinn sem fór svona með okkur. 44 99 Ég hafði aldrei hugsað mér að byggja allt mitt líf kringum einn mann. u John var mikið í mun að fjölskylda mín væri sátt við son okkar. u Það virðist vera hefð að trúa því, að þegar eiginmaðurinn deyr, þá hætti eigin- konan einnig að lifa lífinu. 44 Fortíðin er ennþá mitt líf — og ég á fullt í fangi með hana! 44 Yoko og John, eftir að þau klipptu af sér mikinn hluta hársins í Svíþjóð. Yoko og John voru í rúminu í viku í þágu friðar eftir að þau gengu i þao heilaga 1969. Yoko á blaðamannafundi þar sem hún kynnti hugmyndir sínar um þríhyrnt svæði í Central Park, sem kallað yrði „Strawberry Fields“ og opnað í minningu látins eiginmanns hennar, John Lennon. Yoko og John í Central Park. sér forræði dótturinnar, en Yoko viðurkennir: „John gat ekki þolað að athygli minni væri skipt milli hans og Kyoko. Hann var eigin- gjarn. Á þessum tíma hafði John ekki einu sinni tíma fyrir einkason sinn (Julian, sem hann átti með fyrri eiginkonu sinni, Cynthiu). Þörf hans fyrir athygli, ást, um- hyggju ... og mig, var gríðarlega mikil. Ef við Kyoko vorum að leika okkur, truflaði það hann — John var ekki tilbúinn til að deila mér með öðrurn." Gremja Lennons gagnvart Ky- oko — honum fannst hún vera tengiliður Yoko við annan mann — skapaði mikla spennu milli þeirra ... og Kyoko var fórnar- lambið. Rödd Yoko brestur og augu hennar fyllast af tárum þegar hún rifjar upp þennan tíma. „Þetta var hræðilegt. En ég tók loks ákvörðun — ég var of veikgeðja til að hafa hana. Hún þarfnast eins foreldris sem getur veitt henni óskipta athygli. Og þar sem Tony var staðráðinn í að hafa hana, lét ég hana loks af hendi. Ég saknaði 'hennar sárlega. En með tímanum gerði ég mér grein fyrir því að þetta var eigingjörn ást og hún yrði hamingjusamari með Tony.“ Fimm ár liðu frá því hún missti Kyoko og þar til Sean fæddist. Á þeim tíma varð John öruggari um ást Yoko. En þegar Yoko varð ófrísk að Sean, barðist hún harðri baráttu við sjálfa sig um móður- tilfinningar sínar. „Þegar ég varð ófrísk að Sean var ég ákveðin í að láta eyða fóstr- inu,“ viðurkennir hún. „En John sagði „Það gerum við ekki.“ Ég sagði honum þá að ég myndi ganga með og ala barnið, en eftir fæðingu þess yrði það í hans um- sjá. Ég var óttaslegin eftir að hafa misst Kyoko. Ég lofaði sjálfri mér því, að ég myndi aldrei framar ganga í gegnum það að rífa mig frá barni mínu; ég lofaði mér að ég yrði aidrei framar svo nátengd barni, að það hefði slík áhrif á líf mitt, ef ég missti það.“ Vegna þess að hún var orðin 42 ára þegar hún varð ófrísk og að hún hafði nokkrum sinnum misst fóstur áður ýtti John henni um í hjólastól fyrstu þrjá mánuði með- göngutímans. Síðar eftir að Sean var fæddur, hélt Lennon til á sjúkrahúsinu til að annast son sinn, heillaður af föðurhlut- verkinu. Eftir að hafa tekið loforð af John um uppeldi á syninum, sleit Yoko tilfinningalegum tengslum við hann að mestu leyti og sneri sér að því að rekstri og fjármögn- un á Lennon-eignunum. „Það er ekki fjarri lagi að ég hafi leikið hlutverk hins dæmigerða föður," segir hún. „Ég kom heim að kvöldi og smellti kossi á kinnina á Sean og spurði hann hvernig dagurinn hefði verið hjá honum.“ Þrátt fyrir að Lennon hafi litið á fjármuni sína með lítilsvirðingu, naut hann þess að vita af pening- unum — þetta var nokkurs konar 91 Ég vissi að það var margt sem ég þyrfti að læra í lífínu — en ég hafði einhvern veginn alltaf vonast eftir að ég gæti bara lært það af bók. 44 ^ J Ég hélt að John yrði alltaf til staðar fyrir Sean. 44 9 9 Þegar John lést fannst mér eins og mér hefði verið sparkað niður á botn stöðu- vatns, og ég er enn að reyna að komast upp á yfirborðið til að anda. 44 arfleifð frá uppeldi hans. Hann óttaðist það mest að þurfa kannski að koma fram í Las Vegas, en það var það versta sem fyrir hann gat komið að hans mati. „Ég spurði hann þess vegna hversu mikið hann þyrfti til að láta sér Iíða sem frjálsum manni ... og hann nefndi háa tölu. Ég gat ekki hugsað mér að helga líf mitt ávöxtun peninga svo að ég setti sjálfri mér takmark — tvö ár. En við nánari umhugsun bætti ég við: „Höfum þau frekar fimm!““ Áður en þessi fimm ár voru liðin var Yoko búin að fjórfalda eignir þeirra. Hún gerir gys að þeirri umsögn að hún sé mikill við- skiptajöfur: „Þetta er goðsögn", segir hún. „Ég notaði bara aðrar aðferðir. Mér var sagt að kaupa hlutabréf, það væri besta aðferðin til að ávaxta peninga — en þá varð verðhrun á markaðnum. Ég keypti gömul hús sem voru sögulega merkileg, gerði þau upp, — og verðgildi þeirra jókst gífurlega. Við keyptum málverk sem var okkur mikils virði (eftir Renoir) og listaverkamarkaðurinn tók stórt stökk upp. Ég fór ekki í kringum lögin eða reglurnar ... ég þekkti þær ekki. Eg held að John hafi trúað því að ég myndi læra á heiminn með því að taka við fjármálunum. Þetta var erfið reynsla — en góð.“ Meðan Yoko tók að laga sig að þessu nýja hlutverki sem brauðstritari heimilisins, hóf John fimm ára skyldutímabil sitt sem heimavinnandi húsbóndi. Hann hætti að semja á þessum árum og krafðist þess að Yoko gerði slíkt hið sama. „Ef John sá mig vera að semja við píanóið varð hann sár og sagði, „Ég trúi þessu ekki ... Þú hefur svikið mig.“ Ég reyndi þá að sannfæra hann um að ég myndi ekki ljúka verkinu ..." Hjónabandið krefst oft mála- miðlana. Og Yoko segir að atriðið um lagasmiðina hafi einmitt verið ein slík. Ef Lennon var ekki að gefa út hljómskífur var ekki rétt að ég væri að því. „Ég vissi líka að ég gæti alltaf gert það seinna, einn góðan veðurdag kæmi að því að John fyndi öryggi." Að kvænast Yoko og draga sig út úr heimi tónlistarinnar var hvort tveggja hluti af tilraun John til að halda áfram á þeirri þroska- braut sem hann var staddur þegar frægðin stöðvaði hann. Skömmu fyrir andlát hans hafði Yoko sent hann til Hong Kong einan til að „finna“ John Lennon að nýju.“ „Ég hafði ekkert gert upp á eigin spýt- ur frá því ég var tuttugu og eins árs gamall," sagði Lennon á þeim tíma. „Ég kunni ekki að biðja um herbergisþjónustu á hóteli, hvað þá bóka mig inn. Nú hugsa áreið- anlega einhverjir sem lesa þetta „þessar fjárans poppstjörnur". Þeir skilja ekki þann sársauka sem því fylgir að vera í sviðsljós- inu. Frægðin var afsökun fyrir því að þurfa aldrei að takast á við eitt né neitt." Lennon eyddi nokkrum dögum í að ráfa um Hong Kong, og naut þess að vera einn og óþekktur í fyrsta skipti í tuttugu ár. „Þarra upplifði ég loks sjálfan mig sem mig. Þess vegna er ég nú loksins laus við Bítlana. Ég tók minn tíma í að frelsa sjálfan mig.“ Skömmu síðar hóf Lennon að semja aftur og þau hjón komu úr skel sinni i fyrsta skipti eftir fimm ára einangrun. Þau ráð- gerðu jafnvel að eignast annað barn ... En Yoko var áhyggjufull. Nú voru þau komin fram í sviðs- ljósið að nýju, auðsærð og hún krafðist þess að John fengi sér lífvörð. Hann hló. Yoko getur nú talað um hinar hræðilegu nætur eftir að Lennon var skotinn, en þá settust velvilj- aðir aðdáendur hans upp fyrir utan hús þeirra og spiluðu SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.